Morgunblaðið - 27.04.1988, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B
94. tbl. 76. árg.
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Pólland:
Ný verkfalls-
alda í upp-
siglingu?
Varsjá, Reuter.
UM ÞAÐ bil 4.000 pólskir verka-
menn í Lenín-stálsmiðjunni f
Nowa Huta í Suður-Póllandi fóru
f verkfall f gær, en það siglir f
kjölfar yerkafalls opinbers verka-
lýðsfélags f borginni Bydgozscz í
fyrradag, en því lauk með þvf að
yfirvöld féllust á 60% kauphækk-
un. Það var fyrsta meiriháttar
verkfall í Póllandi frá árinu 1981
og hafa embættismenn kommún-
istaflokksins af þvf áhyggjur að f
kjölfar þessarar undanlátssemi
kunni að sigla ný verkfallsalda.
Verkfallsmenn krefjast hærra
kaups og vilja að fulltrúar Samstöðu,
sem reknir voru eftir setningu her-
laga í desembermánuði árið 1981,
verði endurráðnir. Jerzy Urban, tals-
maður stjómarinnar í Varsjá, stað-
festi að verkfall væri í Lenín-stál-
smiðjunni en sagði að aðeins 900
verkamenn ættu hlut að máli.
Að sögn Samstöðu, hinna ólöglegu
verkalýðssamtaka, var verkfallsund-
irbúningur hafinn í Huta Stalowa
Wola, þar sem 18.000 manns eru í
vinnu, en tilefnið er brottrekstur
tveggja Samstöðumanna, en þeir
voru reknir fyrir að skipuleggja
5.000 manna mótmælafund.
Sjá ennfremur frétt á síðu 23.
Keuter
Þór með klakagrímu
Likneskl þetta af Ása-Þór er á Maríutorginu í Stokkhólmi, en
eftir óvænt kuldakast i fyrrinótt bar þrumuguðinn þessa sérkenni-
legu klakagrímu.
Saudar ijúfa stjóm-
málatenfifsl við Irani
Ryadh, Reuter.
Ryadh, __
STJÓRN Saudi Arabiu sleit í gær stjórnmálasambandi við íran og
skipaði stjómarerindrekum þeirra að hafa sig á brott innan viku.
„Saudí Arabia hefur ákveðið að slíta stjórnmálasambandi við íslamska
lýðveldið Iran ... vegna óvinveittrar afstöðu þess gagnvart Konung-
dæmi Saudi Arabiu og vísvitandi misgjörða, sem beint er gegn gmnd-
vallarhagsmunum þess,“ sagði meðal annars í tilkynningu Saudí
Arabiu. Samband Saudi Arabiu og írans hefur verið með stirðasta
móti að undanförnu, en Saudar og bandamenn þeirra við Persaflóa
hafa stutt yfirleitt íraka i hinni átta ára löngu styrjöld þeirra við írani.
upp að nýju skömmu síðar sem ekk-
ert sé.“
Samskipti ríkjanna versnuðu þó
fyrst til muna í fyrra þegar til
fjöldaóeirða kom í Mekku, helgasta
vé múslima. Þá féllu 402 pílagrím-
ar, að mestu leyti íranir.
Saudar sökuðu írani um að hafa
smyglað sprengiefni inn í landið
þegar á árlegri pílagrímsheimsókn
þeirra til Mekku stóð og sögðu þá
hafa komið í því skyni að útbreiða
trúarkenningar sínar og fremja
hermdarverk. íranir vísuðu þessum
ásökunum á bug.
Síðastliðinn sunnudag réðust sex
varðbátar írana á olíuskip á Persa-
flóa, en það var í eigu Saudí Arabíu.
í Lundúnum sagði Mahdi Varzi,
sem er fyrrverandi stjómarerindreki
írans, að Saudar hefðu vafalaust
gripið til þessa ráðs til þess að koma
í veg fyrir að atburðimir í Mekku
endurtaki sig. Pílagrímsheimsóknir
heflast í júlí.
„Ég held að þetta sé mjög heppi-
leg leið til_ þess að komast hjá því
að veita Irönum vegabréfsáritanir
og sneiða þannig hjá nýju blóðbaði,"
sagði Varzi. Hann sagði að ekki
væri ólíklegt að stjómmálasamband
yrði tekið upp stuttu eftir pílagríms-
förina. „í Miðausturlöndum slíta ríki
stjómmálasambandi og taka þau
Varzi, sem er sérfræðingur í mál-
efnum svæðisins og flytur einatt
fyrirlestra um þau, taldi ólíklegt að
atburður þessi hefði nokkur áhrif á
fund OPEC-ríkja og olíuútflutnings-
ríkja utan samtakanna, sem nú fer
fram í Vín, en þar reyna ríkin að
koma sér saman um framleiðslu-
kvóta á olíu og leiðir til þess að
halda olíuverði stöðugu, reynist ekki
unnt að hækka það. Benti Varzi á
að eftir óeirðimar í Mekku í fyrra
hefðu ríkin haldið samráði sínu innan
OPEC áfram, enda þótt heiftarlegar
orðsendingar gengju á milli höfuð-
borganna.
Þingkosningar í Suður-Kóreu:
Roh Tae Woo tap-
ar þingmeirihluta
Seoul, Reuter.
SÍGA virtist ætla á ógæfuhliðina fyrir stjómarflokkinn í Suður-Kóreu
þegar búið var að telja 80% atkvæða f þingkosningum þar eystra, sem
fram fóru í gær. Miðað við þær tölur má ætla að alls beri hinn Lýðræð-
islegi réttlætisflokkur Roh Tae Woo forseta aðeins sigur úr býtum í
85 kjördæmum af 224. Talið var að stjómarandstöðuflokkamir tveir
og óháðir frambjóðendur myndu sigra í 136 þeirra, en engu var spáð
um þau þrjú kjördæmi, sem þá em ótalin.
Samkvæmt ríkissjónvarpsstöð
Suður-Kóreu fær Lýðræðislegi rétt-
lætisflokkurinn 38 uppbótarþingsæti
að auki, en það nægir honum eigi
að síður ekki til þess að ná þeim 150
sæta meirihluta sem þarf í þinginu,
enda er 36 uppbótarsætum öðrum
úthlutað til hinna flokkanna. Á þingi
eru 299 þingmenn.
Stjómarandstöðuflokkur Kim Dae
Jung, Flokkur friðar og frelsis, vann
mest á í kosningunum og kom sigur
hans talsvert á óvart. Bendir allt til
þess að hann verði stærsti stjómar-
andstöðuflokkurinn, en til þessa hef-
ur Sameingarflokkur Kim Young
Sam verið þeirra stærstur.
Stjómmálaskýrendur segja næsta
víst að pólitísk ringulreið verði í
Suður-Kóreu eftir kosningamar, þar
sem stjómin muni sig hvergi geta
hrært.
10 ára byltingarafmæli í Afganistan:
Afganir hyggjast
beijast til þrautar
Kabúl, Reuter.
HALDIÐ var upp á tíu ára af-
mæli kommúnistabyltingarinnar
í Afganistan í gær og hétu bæði
skæruliðar og leppstjórn Sovét-
manna þvi, að halda baráttunni
áfram eftir brottför innrásar-
hers Sovétríkjanna. Varnarmála-
ráðherra landsins, Mohammed
Rafi, sagði þjóðina vera lang-
þreytta á stríðinu og friðarþurfi,
en bætti við: „Her okkar er reiðu-
búinn til þess að beijast fyrir
friði og landi — við munum aldr-
ei leyfa stjórnarandstöðunni að
koma óþverraáætlunum sinum í
framkvæmd." Harðorðar yfirlýs-
ingar beggja aðila þykja litt til
þess fallnar að auka friðarhorfur
í landinu, en stríðið er talið hafa
kostað tæpa eina og hálfa milljón
Afgana lífið.
I Kabúl var haldin mikil hersýn-
ing og í heiðurstúkunni við hlið
Najibullah forseta sat Vladímír
Orlov, fyrsti aðstoðarforseti Rúss-
neska ríkjasambandsins. Vakti það
athygli vestrænna stjómarerind-
reka að Sovétmenn skyldu ekki
senda háttsettari fulltrúa til hátíða-
haldanna. Fyrir einum og hálfum
mánuði var skipaður nýr sendiherra
Sovétríkjanna í landinu og var þá
mál manna að hann væri einnig
tiltölulega lágtsettur embættismað-
ur. Velta vestrænir stjómmálaský-
rendur í Moskvu nú vöngum yfir
því hvort Sovétmenn hyggist draga
úr samskiptum sínum við Afganist-
an og hafa þau á svipuðu stigi og
við önnur ríki þriðja heimsins.
Á blaðamannafundi, sem skæm-
liðaforinginn Gulbuddin Hekmatyar
hélt í Peshawar í Pakistan, hét
hann því að frelsisbaráttan myndi
halda áfram og fordæmdi það sem
hann kallaði „tortímingaráratug-
inn“. Sagði hann að 1,3 milljónir
Afgana hefðu fallið í stríðinu, 1,5
milljónir hefðu verið Hmlestar, 5
milljónir hefðu flúið land og 70%
þess litla lands, sem hægt væri að
yrkja, hefði verið lagt í eyði.
Sjá ennfremur frétt á síðu 21.
Kúrdar í Moskvu mót- rr
mæla efnahemaði Iraka
Moskvu, Reuter.
KÚRDÍSKIR stúdentar í Moskvu fóru í
kJukkustundarlanga mótmælagöngu um mið-
borg Moskvu í gær. Hrópuðu þeir vígorð
gegn Saddam Hussein íraksforseta og héldu
á lofti myndum af brenndum og afskræmdum
börnum, sem þeir segja vera fórnarlömb
efnahernaðar fraka.
Lögreglan leyfði stúdentunum að ganga frá
Rauða torginu og frámhjá stjómarbyggingum á
Moskvubökkum áður en þeir voru stöðvaðir. írak
og Sovétríkin hafa með sér vináttusamning og
Sovétmenn hafa selt írökum vopn í miklum
mæli. í gær staðfestu embættismenn á vegum
Sameinuðu þjóðanna að þeir hefðu rannsakað
fólk í íran og frak, sem orðið hefði fyrir barðinu
á efnavopnum.
Að sögn stúdentanna voru þeir að minnast
sorgardags, en í gær voru 40 dagar liðnir frá
meintri efnavopnaárás íraka á Kúrdaþorpið
Halabaja, sem er í austurhluta íraks og íranir
hertóku í miðjum marsmánuði.
Rannsóknarnefnd SÞ skýrði frá því í gær að
fólk, sem þeir hefðu rannsakað í íran og írak,
hefði greinilega verið fómarlömb efnavopna,
aðallega sinnepsgass, en einnig hefðu nokkrir
orðið fyrir taugagasi. Fjölmargir írananna vom
óbreyttir borgarar, en allir frakanna vom her-
menn.
Notkun efnavopna er bönnuð samkvæmt
Genfarsáttmálanum frá 1925. Niðurstaða nefnd-
arinnar hefur verið afhent Öryggisráði SÞ til
umfjöllunar.
Reuter
Nokkrir Kúrdanna á Rauða torginu,
en í baksýn má sjá glitta í hluta kirkju
heilags Basils.