Morgunblaðið - 07.09.1988, Blaðsíða 35
880 r ÍTftHWCTTSTTR .V HTIDAŒIXIVatM .«IOAJHMUOHOM £8
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1988 35
ASÍ setur skilyrði fyrir frekari viðræðum:
Niðurfærsla án
lækkunar launa
Formannafundur boðaður á mánudag
Þorsteinn Pálsson, Ásmundur Stefánsson og Steingrímur Hermanns-
son við upphaf fyrsta viðræðufundar ráðherranna þriggja og ASÍ.
Lögþvinguð verðstöðvun með
viðurlögum skásti kosturinn
MIÐSTJÓRN ASÍ hefur settþað
skilyrði fyrir áframhaldandi
viðræðum við ríkisstjórnina að
þær snúist ekki um lækkun
launa. Jafnframt hefur verið
ákveðið að boða til almenns
formannafundar sambandsins á
mánudaginn.
Á fundi miðstjómarinnar í gær-
dag var eftirfarandi ályktun sam-
þykkt samhljóða: „Fundur mið-
stjórnar og formanna landssam-
banda ASI samþykkir að setja það
skilyrði fyrir áframhaldandi við-
ræðum við ríkisstjómina að þær
snúist ekki um lækkun launa.
Áframhaldandi viðræður beinist
að því að leita leiða til að lækka
vexti og verðlag og tryggja af-
komu útflutningsgreina.
Jafnframt ítrekar miðstjóm
kröfu sambandsins um að hækkun
bóta elli- og örorkulífeyrisþega
verði ekki frestað."
Ásmundur Stefánsson forseti
ASÍ segir að það væri að hans
áliti fráleit afstaða af hálfu ríkis-
stjómarinnar ef húp hafnaði þess-
um kröfum ASÍ. Einfaldlega
vegna þess að skynsamlegt væri
af öllum aðilum að reynt verði að
leita lausna á þeim vandamálum
sem við er að glíma þannig að
sættir náist um þær.
„Það er alveg ljóst að sættir
nást ekki á þeim forsendum sem
ríkisstjórnin hefur lagt fram, það
er 9% launalækkun og von um að
verðlag lækki á einhverjum mán-
uðum um 2-3%,“ segir Ásmundur.
„Ef eitthvað á að gera af viti er
það grundvallaratriði að niður-
færslan beinist að lækkun vaxta
og verðlags, jafnframt ráðstöfun-
um til að tryggja hag útflutnings-
greinanna þannig að við höfum
hér traust atvinnulíf."
Ásmundur segir hvað ályktun-
ina varðar að markmiðið hafi ekki
verið að búa til stórytran sam-
þykkt heldur taka afstöðu til þess
hvemig þeir ætluðu að vinna í
þessu máli. Með þessari einföldu
ályktun væri það gert.
„Ef ríkisstjórnin er reiðubúin til
áframhaldandi viðræðna á öðrum
forsendum en þeim sem hún setti
fyrst fram mun ekki standa á
okkur. Áframhaldið ræðst af vilja
- segir Þorsteinn
Pálsson
ÞORSTEINN Pálsson forsætis-
ráðherra segir að afstaða ASÍ,
eins og hún kemur fram i ályktun
sambandsins, hafi valdið sér mikl-
um vonbrigðum. Svo afdráttar-
laust svar sem þar komi fram
geri það að verkum að niður-
færsluleiðin sé ekki fær. Ein af
höfuðforsendum þess að niður-
færslan gat gengið upp var skiln-
ingur forystumanna launafólks á
því sem gera þyrfti.
„Ég get ekki séð að niðurfærslu-
leiðin sé fær við þær aðstæður sem
nú eru komnar upp,“ segir Þor-
steinn. „Það er ekki raunhæft að
reyna hana eftir svo afdráttarlaust
svar sem felst í ályktun ASÍ.“
Aðspurður um hvaða leiðir aðrar
hann telji færar í stöðunni segir
Þorsteinn að ýmsir kostir séu fyrir
- segir Guðmund-
ur J. Guðmundsson
GUÐMUNDUR _ J. Guðmundsson
formaður VMSÍ segir að honum
hafi ekki dottið i hug að greiða
ályktun ASÍ atkvæði sitt. Hann
var á eini á miðstjórnarfundinum
sem sat hjá við atkvæðagreiðsl-
ríkisstjórnarinnar í þessu máli.
Hvort ríkisstjórnin telji það lausn
vandans að lækka laun í landinu
eða hvort hún er reiðubúin að
skoða aðra þætti,“ segir Ásmund-
ur. „Launlækkun kemur ekki til
greina.“
hendi og munu þeir verða kannaðir
á næstu dögum. „Til greina kemur
einhvers konar blönduð leið en það
er ekki til neitt eitt úrræði til lausn-
arþeim vanda sem við er að glíma."
Aðspurður um hvort Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi verið mótfallinn
lækkun vaxta og verðlags með lögum
samhliða niðurfærslu launa segir
Þorsteinn svo ekki vera: „Það lá allt-
af ljóst fyrir að verðlag yrði lækkað
í kjölfar lækkunar launa eins og
gert veit árið 1959. Þá var verðlag
ákveðið með lögum. Ég vil einnig
benda hér á að er bráðabirgðalögin
voru sett í lok síðasta mánaðar varð
veruleg lækkun nafnvaxta um mán-
aðamótin. Sú lækkun hefði orðið
meiri með niðurfærsluleiðinni.“
Þorsteinn segir að sér hafí fundist
athyglisvert í upphafi hve margir af
forystumönnum verkalýðsfélaganna
hafi tekið jákvætt í að hafa samráð
við ríkisstjómina. Því hafí það verið
sér mikil vonbrigði að sjá ályktun
ASÍ.
una. í máli hans kemur fram að
hans álit sé að ályktunin hafi ver-
ið sett fram af vissum hópi innan
miðsljórnarinnar til þess að slíta
viðræðunum við ríkisstjómina.
„Mér fínnst að frá upphafi hafi
verið viss kjami innan miðstjómar
ASÍ sem aldrei hafi viljað ræða við
ríkisstjómina," segir Guðmundur.
„Það hefur hinsvegar verið reglan
hjá okkur að ræða við ríkisstjóminar
sama' hvaða flokkslitur hefur verið á
þeim. Ég hefði viljað halda áfram
þeim viðræðum sem hafnar voru.“
Guðmundur segir að á fyrsta fund-
inum sem haldinn var með ráðherr-
unum þremur hafi umræðan aðeins
verið opnuð. Eftir átti að ræða allar
þær hliðarráðstafanir sem gera átti
samhliða launalækkuninni eins og
niðurfærslu verðlags og vaxta. Hann
segir að hann sé að sjálfsögðu ósam-
mála því að lækka kaup launafólks
en ef það yrði bætt með samsvar-
andi lækkun verðlags og vaxta og
verðbólgu þannig náð niður væri slíkt
af hinu góða.
„Ég fæ daglega inn á skrifstofu
til mín fjölskyldufólk sem er á upp-
boðsleið. Það er að kikna undan vöxt-
um af húsnæðislánum sínum. Ef far-
in verður gengisfellingarleiðin einu
sinni enn og lánskjaravfsitalan þar
með skrúfuð enn frekar upp hugsa
ég með hryllingi hvemig fer fyrir
þessu fólki," segir Guðmundur.
í máli hans kemur fram að hann
hafi af þessum orsökum viljað ræða
málin enn betur við ríkisstjómina og
hann telur að fjöldi miðstjómar-
manna sé sammála honum um þetta
atriði.
Hvað það atriði varðar að VMSÍ
samþykkti samskonar tillögu á fundi
framkvæmdastjómar eftir fund mið-
stjómar ASÍ segir Guðmundur að
það hafi aldrei komið til greina ann-
að en að styðja afstöðu ASÍ enda
fjöldi manna í framkvæmdastjóminni
sem einnig ætti sæti í miðstjóm ASÍ.
- reynist niður-
færsluleiðin ófær,
segir fjármálaráð-
herra
JÓN Baldvin Hannibalsson, fjár-
málaráðherra, segir enn vera
svigrúm til að ræða niðurfærslu-
leið, vilji ASÍ ræða lækkun verð-
lags og vaxta með lögum, sam-
hliða niðurfærslu launa. Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi þó ekki
samþykkt lækkun vaxta og verð-
lags með slíkurn hætti og sagðist
Jón Baldvin ekki eiga von á að
það breyttist. Hann sagði gengis-
fellingu vera fráleitan kost og ef
niðurfærsluleiðin reyndist ófær
yrðu stjómarflokkarnir að ná
samstöðu um lögþvingaða verð-
stöðvun með viðurlögum til ára-
móta eða lengur. Jafnframt yrði
að ganga frá hallalausum fjárlög-
um og öðrum aðhaldsaðgerðum.
Fjármálaráðherra sagði að það
hefði verið ljóst frá upphafi af hálfu
ASÍ að ekki kæmi til greina að ræða
einhliða niðurfærslu launa, með
verðlækkunum sem myndu sigla í
kjölfarið á því. „Á samráðsfundinum
á mánudag voru lögð fram gögn,
sem voru ekki annað en mat embætt-
ismanna á því hvað ná mætti fram
mikilli verðlækkun sem afleiðingu
af 9% launalækkun án nokkurra
sérstakra aðgerða. Það var ljóst að
það var ekki umræðugrundvöllur."
- segir Steingrím-
ur Hermannsson
utanríkisráðherra
STEINGRÍMUR Hermannsson
utanríkisráðherra segir að niður-
færsluleiðin sé ekki að fullu út-
færð. Plaggið sem lagt hafi verið
fram á fyrsta fundi ráðherranna
þriggja með ASÍ hafi eingöngu
verið útreikningar embættis-
manna á því sem 9% launalækkun
ein og sér hefði í för með sér.
Það liggi enn ekki fyrir hve mik-
il lækkun á til dæmis þjónustu
og raforkuverði geti orðið sam-
hliða en Steingrímur telur að þar
geti verið um verulega lækkun
að ræða.
„Af hálfu ríkisstjómarinnar
liggja ekki enn fyrir þær hliðarráð-
stafanir sem gera átti samhliða
launalækkuninni eins og lækkun
Aðspurður um hversvegna ekki
hefðu verið lagðar fram tillögur um
samhliða lækkun verðlags og vaxta
sagði Jón Baldvin: „Af hálfu forsæt-
isráðherra hefur aldrei fengist skuld-
bindandi afstaða til þess að unnt
væri að knýja fram þessa verðlækk-
un með lögum, eða að beita lögum
til lækkunar raunvaxta." Þingflokk-
ur Sjálfstæðisflokksins hefði ekki
fallist á að hægt væri að knýja fram
meiri verðlækkanir heldur en þær
sem hlytust af lækkun launa og í
þeirri afstöðu hefði höfnun Alþýðu-
sambandsins falist.
Fjármálaráðherra sagði ekki hægt
að framkvæma niðurfærslu án
kjaraskerðingar, en sú kjaraskerðing
yrði minni og léttbærari fyrir þá
verst settu en kjaraskerðing sem
hlytist af gengisfellingu.
„Það er mikið talað nú um milli-
leið sem er í því fólgin að fram-
lengja verðstöðvun og frystingu
launa fram að áramótum og jafnvel
lengur. Það er ekki hægt að fram-
fylgja verðstöðvun svo lengi nema
með lögþvingunum, sem yrði fram-
fylgt með viðurlögum. Vandi út-
flutningsgreinanna, sem þýðir fjár-
vöntun upp á 1,5-2 milljarða, myndi
kalla á millifærslu, sem er vond leið
í sjálfu sér, en stundum brýtur nauð-
syn lög. Það er spuming hvort mönn-
um yrði eitthvað ágengt í framhaldi
af þessu og það fer eftir því hvort
mönnum verði eitthvað ágengt í að
slá á orsakir þenslunar. Því svara
stjómarflokkamir þegar þeir taka
afstöðu til fjárlagafmmvarosins.“
raunvaxta eða afnám lánskjaravísi-
tölunnar,“ segir Steingrímur.
Steingrímur vill taka það fram
að í þessum hugmyndum felist ekki
afturhvarf til haftastefnu eins og
sumir hafa haldið fram. Þessar að-
gerðir þyrftu ekki að standa nema
í sex mánuði meðan verið væri að
ná tökum á efnahagsvandanum.
„Það er því langt í frá að búið
sé að útfæra niðurfærsluleiðina að
fullu,“ segir hann.
Aðspurður um ályktun ASÍ segir
Steingrímur að aldrei hefði verið
hægt að búast við öðru frá sam-
bandinu enda skammt síðan kjara-
samningar voru gerðir. Því hafí
ályktunin ekki komið á óvart.
„Það var ljóst frá upphafi að nið-
urfærslan var erfið leið en hún var
það sem ráðgjafarnefndin mælti
eindregið með. Við framsóknar-
menn vildum og viljum að hún sé
útfærð af fullum þunga og réttlæti
yfir alla línuna," segir hann.
FiskverA á uppboAsmörkuAum 6. september.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 53,00 43,00 45,23 50,783 2.297.181
Undirmál 26,00 25,00 25,73 9,009 231.851
Ýsa 75,00 42,00 49,50 13,815 683.909
Ufsi 26,00 23,00 25,39 20,095 510.174
Karfi 32,00 25,00 30,84 9,024 278.301
Steinbítur 30,00 28,00 28,27 0,296 8.367
Koli 38,00 38,00 38,00 0,483 18.354
Langa 18,00 18,00 18,00 0,045 819
Lúöa 185,00 50,00 132,44 0,674 89.324
Samtals 39,51 104,227 4.118.280
Selt var aöallega úr Vföi HF og Fróöa SH. ( dag verða m.a. seld
5 tonn af ýsu og 5 tonn af karfa úr Tjaldi SH.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 47,00 40,00 40,85 3,157 128.978
Undirmál 24,00 24,00 24,00 0,033 792
Ýsa 82,00 54,00 72,17 5,288 381.627
Lúða 125,00 125,00 125,00 0,024 3.000
Ufsi 25,00 25,00 25,00 0,331 8.275
Steinbítur 23,00 23,00 23,00 0,066 1.518
Skarkoli 43,00 43,00 43,00 0,104 4.472
Langa 15,00 15,00 15,00 0,345 5.175
Samtals 57,11 9,348 533.837
Á morgun veröa seld 15 tonn af þorski, 30 tonn af ýsu, 1,5
tonn af skötusel og 0,4 tonn af stórlúöu.
FISKMARKAÐUR VESTMANNAEYJA hf.
Þorskur 45,00 45,00 45,00 1,112 50.040
Karfi 16,00 16,00 16,00 0,184 2.944
Ufsi 26,50 22,90 23,56 12,651 298.002
Langa 20,00 20,00 20,00 0,258 5.160
Skata 50,00 50,00 50,00 0,019 950
Samtals 25,11 14,224 357.096
Selt var úr Gandí VE og Glófaxa VE.
FÉLAG ÍSLENSKRA FISKMJÖLSFRAMLEIÐENDA
Cif-verð fyrir prótíneininguna af loönumjöli er nú um 9,20 Banda-
ríkjadalir, eöa 30.050 krónur fyrir tonnið, en meöalverö fyrir
tonnið af loðnulýsi er um 390 Bandaríkjadalir (18.200 krónur).
Af staða ASÍ veldur
mér miklum vonbrígðum
Ályktun ASÍ:
Mér datt ekki í hug að
greiða ályktuninm atkvæði
Niðurfærslan ekki
að fullu útfærð