Morgunblaðið - 22.02.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.02.1990, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 199'o' ' £ Forsætisráðherra um minnisblöð A-flokkanna: Þetta er tóm sýndarmennska STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra segir að ríkisstjórn- in í heild hafi það að markmiði að gæta sparnaðar og aðhalds í ríkisútgjöldum. „Þetta er tóm sýndarmennska hjá Alþýðuflokki og Alþýðubandalagi, að senda ríkisstjórninni svona minnisblöð um að- hald í ríkisrekstri," sagði Steingrímur í samtali við Morgunblaðið í gær. „Vitanlega erum við að gæta aðhalds. Það er hvert einasta frum- varp metið með tilliti til kostnaðar og þess fjármagns sem við getum Á sýningunni á Kjarvalsstöðum verða verk eftir Pierre Alechinsky, Karel Appel, Roger Bissiere, Cor- neille, Olivier Debré, Lucio Font- ana, Sam Francis, Egil Jacobsen, ráðstafað. Á sama tíma og mennta- málaráðherra er að tala um að það vanti 50 milljónir króna í þýðingar- sjóð og iðnaðarráðherra um að fjár- Asgeir Jorn, Per Kirkeby, André Landskoy, Jean Messagier, Serge Poliakoff, Antonio Saura, Marie Helene Vieira Da Silva, Francisco Toledo og Jacob Weidemann. stuðning ríkisins þurfi til skipaiðn- aðarins, þá koma flokkar þeirra með svona tillögTar. Ég verð að segja það eins og er, að maður spyr sjálf- an sig þeirra spurningar hversu mikil alvara búi að baki svona plöggum frá A-flokkunum,“ sagði forsætisráðherra. Steingrímur sagði að full alvara væri að baki þeim áformum ríkis- stjórnarinnar að skera ríkisútgjöld niður eins og frekast væri unnt. „En að fara að skuldbinda sig fram yfir kosningar í þá veru að ríkisstjórnin leggi ekki fram nein frumvörp eða tillögur á Alþingi sem hafí í för með sér útgjaldaaukningu fyrir ríkissjóð er að mínu mati gjörsam- lega út í hött,“ sagði forsætisráð- herra. Hugmyndir alþýðuflokksmanna gera ráð fyrir því að einu undan- tekningarnar frá því sem forsætis- ráðherra nefnir séu frumvörp sem tengist nýgerðum kjarasamningum, eða varði atvinnuöryggi í iandinu og mikilvægar skuldbindingar þjóð- arinnar. Sýning á verkum Cobra- listamanna á Kjarvalsstöðum SÝNING á 34 evrópskum formleysismálverkum frá 6. áratugnum, sem fengin eru að láni úr einkasafhi frú Riis í Ósló, verður opnuð í vestursal Kjarvalsstaða næstkomandi laugardag. Á sýningunni, sem stendur í 5 vikur, verða verk eftir helstu Cobra-listamennina í Norð- ur-Evrópu, svo og franska, spænska og ítalska formleysismálara. Morgunblaðið/Þorkell Gengið er frá mengunarvaldandi eftium til flutnings til Danmerkur, þar sem þeim verður eytt. Sorpeyðing höfiiðborgarsvæðisins bs.: Móttaka umhverf- VEÐURHORFUR í DAG, 22. FEBRÚAR YFIRLIT i GÆR: Norðvestan gola norðvestanlands, en annars stað- ar hægviðri eða vestan gola. Léttskýjað var á Suðurlandsundir- lendi, en skýjað og él á stöku stað í öðrum landshlutum. Frost víðast 1-7 stig. SPÁ: Hæg vestlæg átt og smáél um vestanvert landið en víðast þurrt austan til á landinu í nótt. Hægt vaxandi austan- og norðaust- anátt síðla nætur og í fyrramálið með snjókomu eða slyddu víða um land, þó einkum um austanvert landið. Hvöss norðaustanátt á Vestfjörðum síðdegis, en yfirleitt hægari í öðrum landshlutum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG: Norðan- og norðvestanátt og fremur kalt í veðri. Él á Norður- og Vesturlandi en annars þurrt. HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg breytileg átt og léttskýjað víða um land. Fremur kalt í veöri. TÁKN: Heiöskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað y. Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius ý Skúrir * V El — Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —j- Skafrenningur Þrumuveður Tfr T.úettiSBSF VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veöur Akureyri 0 skýjað Reykjavík 2 lágþokublettir Bergen 7 skýjað Helsinki 9 léttskýjað Kaupmannah. 10 þokumóða Narssarssuaq +15 heiðskírt Nuuk +9 snjókoma Osló 6 alskýjað Stokkhólmur 10 alskýjað Þórshöfn 4 skúr Algarve 18 heiðskírt Amsterdam 13 léttskýjað Barcelona 17 léttskýjað Berlín 16 heiðskírt Chicago +6 heiðskírt Feneyjar 12 þokumóða Frankfurt 14 léttskýjað Glasgow 6 hálfskýjað Hamborg 15 léttskýjað Las Palmas 23 heiðskírt London 11 léttskýjað Los Angeles 8 hálfskýjað Lúxemborg 12 hálfskýjað Madríd 15 mistur Malaga 16 místur Mallorca 18 skýjað Montreai +14 skýjað New York +3 heiðskírt Orlando 18 léttskýjað París 15 skýjað Róm 16 þokumóða Vín 15 mistur Washington 2 heiðskírt Winnipeg + 1 iéttskýjað ismengandi efiia SORPEYÐING höfuðborgarsvæðisins tekur á móti umhverfism- engandi eftium á Dalvegi 7 í Kópavogi. Gert er ráð fyrir að um 150 tonn af mengandi efnum komi í móttökustöðina í ár. Búið verður-unr efnin til flutnings til Danmerkur, þar sem þeim verður eytt. Sorpeyðing höfuðborgarsvæðis- ins er byggðasamlag allra sveitar- félaga frá Hafnarfirði til Kjalar- ness og er tekið við efnaúrgangi af öllu svæðinu. Um er að ræða efnaúrgang, sem ekki má urða eða losa í sjó samkvæmt nýrri meng- unarreglugerð. ítarlegum leið- beiningum um frágang og merk- ingu efnanna verður dreift á næst- unni til vinnustaða á höfuðborgar- svæðinu. í móttökustöðinni verður búið um efnin til flutnings til dansks fyrirtækis, sem tekið hefur að sér að eyða þeim þar til íslend- ingar geta leyst þann vanda sjálfir. í frétt frá Sorpeyðingu höfuð- borgarsvæðisins segir, að rekstur móttökustöðvarinnar eigi að standa undir sér fjárhagslega og að hóflegt gjald verði tekið fyrir þjónustuna, enda standi ekki til að stöðin skili hagnaði. Aðstaðan við Dalveg í Kóapvogi er til bráða- birgða í eitt ár eða þar til framtí- ðarmóttökustöð hefur risið í Gufu- nesi. Selt úr íslensku skipií Skotlandi ARNARNES SI selur 50-55 tonn, aðallega af þorski, í Aberdeen í Skotlandi í dag, fimmtudag. Þorri SU er eina íslenska skipið, sem selt heftir afla í Abérdeen undanfarna tvo áratugi en þar var selt úr skipinu 19. febrúar 1987, að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar hjá Landssambandi íslenskra útvegsmanna. Aðalástæðan fyrir því að selt verður úr Arnarnesi SI í Aberdeen en ekki í Hull eða Grimsby er sú að á því sparast sólarhringssigling, að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar. „Það hefði mætt mikilli andspyrnu í Aberdeen fyrir nokkrum árum að fá íslensk skip þangað. Hins vegar eru Skotar komnir inn á það að þeir þurfi virkilega að fá fisk héðan vegna hrikalegs niðurskurð- ar á aflakvótunum á þessu ári.“ Vilhjálmur sagði að verð á físk- mörkuðunum í Bretlandi og Vest- ur-Þýskalandi hefði lækkað vegna aukins framboðs að undanförnu en verðið var mjög hátt á tímabili vegna gæftaleysis í Norðursjó. Þrír starfsmenn Stöðv- ar 2 hefja störf hjá Sýn ÞRÍR starfsmenn Stöðvar 2 sögðu skyndilega upp störfúm þar í fyrradag, og hafa þeir verið ráðnir til starfa hjá Sýn. Goði Sveins- son, sem var dagskrársíjóri á Stöð 2, hefiir verið ráðinn sjón- varpsstjóri hjá Sýn, Jón Gunnarsson auglýsingasljóri verður mark- aðssljóri Sýnar og Páll Baldvinsson, sem var aðstoðardagskrár- stjóri á Stöð 2, verður innkaupasljóri hjá Sýn. Þorvarður Elíasson, sjónvarps- stjóri Stöðvar 2, sagði að enginn ágreiningur hefði verið um upp- sagnir þremenninganna. „Við gáf- um þá lausa þrátt fyrir uppsagnar- frest, og það var enginn ágreining- ur um það fyrst þeir vildu skipta. Þeir fá þama tækifæri sem þeir gátu ekki hafnað og við vildum ekki standa í vegi fyrir þeim.“ Að sögn Þorvarðar hafa Marí- anna Friðjónsdóttir og Björn Björnsson á dagskrárdeild, sem sagt höfðu upp störfum á Stöð 2, nú verið endurráðin, og einnig hefði Guðrún Þórðardóttir, um- sjónarmaður barnaefnis, verið endurráðin, en henni hafði verið sagt upp störfum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.