Morgunblaðið - 14.04.1992, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 14.04.1992, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRIL 1992 Sigríður Jónsdótt- ir - Minning Fædd 14. apríl 1903 Dáin 5. apríl 1992 í dag, 14. apríl, verður borin til grafar að Einarsstöðum í Reykjadal í S-Þingeyjarsýslu Sigríður Jóns- dóttir að Okrum í sömu sveit. Hún andaðist 5. þ.m. 88 ára að aldri. Hún hafði kennt nokkurs lasleika um hríð. Henni mun ekki hafa þótt hann mikið tiltökumál en fór þó á sjúkrahús. Á langri kynningarsam- leið okkar Sigríðar hef ég aldrei orðið þess vör áð aldurinn setti mörk á hug hennar, sál eða andlegt atgervi. Þess vegna komu mér ekki á óvart fregnir um síðustu athafnir hennar. Daginn fyrir andlátið brast hana skyndilega mátt til þess að tala. Þá greip hún ritföng og skrif- aði síðustu bón til sonar síns á Ökrum, þá að hugsa vel um gróður- húsið hennar. Þessi bón er táknræn fyrir líf og starf Sigríðar og hún hrærði mig til vitundar um það að hér væri að kveðja einn síðasti full- trúi þeirrar heimaræktuðu menn- ingarkynslóðar er plægði jarðveg- inn og treysti grunn þess velferðar- ríkis er við höfum notið til þessa. Sigríður var fædd 15. apríl 1903 að Auðnum í Laxárdal, dóttir hjón- anna Hildar Benediktsdóttur og Jóns Péturssonar bónda þar. Faðir Jóns hét Pétur Pétursson. Hann hafði um ævina dvöl á á ýmsum stöðum í S-Þingeyjarsýslu eins og margir jarðnæðislausir menn á þeim árum. Hann lést í Vesturheimi. Móðir Jóns var Sigurbjörg Tómas- dóttir frá Skógagerði á Húsavík. Hildur var dóttir hins þjóðkunna hugsjónamanns Benedikts Jónsson- ar á Auðnum og konu hans Guðnýj- ar Halldórsdóttur Jónssonar prests á Grenjaðarstað. Sigríður ólst upp í foreldragarði og dvaldi þar að mestu þar til hún giftist. Ég hygg að hún hafi aldrei átt kost á eiginlegri skólagöngu. í mesta lagi hafði hún notið náms á tveggja til þriggja mánaða nám- skeiði, sem kallað var „Þinghús- skóli“. En á Auðnum hafði löngum verið lögð stund á þekkingarleit, bókmenntalestur, samfélagshug og mannrækt. Þessi var skóli Sigríðar. Sú menntun er hann veitti henni ásamt góðum gáfum og einstakri geðprýði, gerði henni kleift að koma ótrúlega léttstíg frá löngu og eril- sömu lífshlaupi. Sigríður giftist ung Ásvaldi Þor- bergssyni Davíðssonar og konu hans Sigurveigar Jónatansdóttur héraðsljósmóður um áratugaskeið. Þau Sigurveig og Þorbergur bjuggu að Litlulaugum í Reykjadal. Sigríður og Ásvaldur eignuðust níu börn sem, að einu undanskildu, ólust upp hjá þeim. Ein stúlkan var alin upp hjá Hildi ömmu sinni og Guðnýju móðursystur sinni á Auðn- um. Hún ber nöfn þeirra beggja. Börn Sigríðar og Ásvalds eru hér tilgreind en ekki í réttri aldursröð. Fjórar dætur: Sigurveig húsfreyja á Gautlöndum í Mývatnssveit. Hún er látin. Hildur Guðný einnig hús- freyja á Gautlöndum, Ásta hús- freyja á Tröð í Önundarfirði og Þuríður starfskona á Laugum bú- sett á Ökrum. Og fimm synir: Þor- móður bóndi á Ökrum, Hrólfur hag- swcitchn Nú er vorverð á hinum vinsælu SWATCH símum SWATCH símarnir eru til í 10 mismunandi litum Verð frá kr. 3.742 HEKLA LAUGAVEGI 174 S 695500/695550 fræðingur á Hagstofu íslands í Reykjavík, hann er látinn, Jörgen, hann lést á tuttugasta aldursári, Jngjaldur bifvélavirki í Kópavogi, og Þorbergur starfsmaður Kísiliðj- unnar í Mývatnssveit. Það hefur ekki verið heiglum hent að ala önn fyrir þessum stóra barnahópi en aldrei hef ég heyrt þess getið að Sigríður hafí sýnt æðrumerki. Þau Ásvaldur og Sig- ríður áttu lengi vel ekki fast land undir fótum og bjuggu á leigulandi og í leiguhúsnæði. Arið 1944 náðu þau eignarábúð á nýlegu býli, er nefndist Akrar, undir austurhlíðum Reykjadals. Árið 1949 léstÁsvaldur fyrir aldur fram. Sigríður bjó áfram með börnum sínum og síðast með dóttur sinni Þuríði til dauðadags. Þormóður sonur hennar tók við búi af henni fyrir mörgum árum. Frá fornu fari voru mikil og náin vina- og samstarfstengsl milli Auðnaheimilis og heimiii foreldra minna beggja sínu í hvorri sveit. Ég hafði því snemma veður af Sig- ríði frá Auðnum og högum hennar. Þegar ég hitti Sigríði fyrst bjuggu þau Ásvaldur í kjallara samkomu- hússins á Breiðumýri. Þar bjuggu þau í átján ár og þar fæddust sjö börn þeirra af níu. Kjallari undir samkomuhúsi er ekki líklegur frið- ar- eða uppeldisstaður auk þess sem skylt var að selja þar veitingar á mannamótum. Ég kom tvisvar í kjallarann til Sigríðar. Einu sinni á samkomu með móðursystkinum mínum og öðru sinni í heimsókn með móðursystur minni. í bæði skiptin var þar mannmargt einkum á samkomudaginn. Þótt langt sé um liðið er mér þó enn í minni frið- ur heimilis og rósemi. Og þar voru blóm þrátt fyrir litla glugga og lágt undir loft því Sigríður var ræktun- arkona af guðs náð. í kjallaranum ræktaði hún börn sín og blóm eftir mætti og þá að sjálfsögðu ekki miður er hún komst í betri efni og bjartari húsakynni. Þegar börnun- um fækkaði heima á Ökrum fjölg- aði blómunum hjá Sigríði. Henni var því kærkomin gjöf barna sinna á sjötíu og fímm ára afmælinu. Þau gáfu henni gróðurhús. I þessu gróð- urhúsi nutu ræktunarhæfíleikar Sigríðar sín til fulls. Þar voru sam- an komnar fjölmargar og margvís- legar jurtir bæði til nytja og yndis- auka, sem allar lifðu við gróandi í höndum hennar. Við ýmis tækifæri dreifði hún blómum og ávöxtum úr húsinu til vina og vandamanna. Þennan gróður hefur hún nú falið öðrum og þeir munu skilja hvað til síns friðar heyrir. Sigríður var mikill bókmennta- unnandi og lesandi allt frá bernsku. Jafnvel á erfiðustu annríkisárum sínum veitti hún sér ætíð þann munað að lesa bækur. Hún var minnug og því var gott til hennar að leita um ýmsan fróðleik, sem hún lét þó aldrei mikið yfir fremur en öðru er varðaði hana sjálfa. Hún var kurteis kona í hugsun og fasi. Veraldlegur auður íþyngdi ekki Sigríði um dagana. En hún var for- rík af kærleika sem hún veitti óspart hveijum þeim er henni fannst þurfa hans með jafnt óskyld- um sem skyldum ogjafnt mönnum, málefnum, dýrum og jurtum. Þetta fundu allir er nutu návistar hennar. Vegna þessa mun mörgum fínnast sem kólnað hafi undir hlíðum Reykjadals við brottför Sigríðar. I kvæði sínu Ekkjan við ána seg- ir Guðmundur Friðjónsson: „Um héraðsbrest ei getur þótt hrökkvi sprek í tvennt." Sigríður á Ökrum var lengi ekkja við ána. Ég hygg að í hógværð sinni hafi hún litið á sig fremur sem sprek en styrkan stofn. I mínum huga er hún sem eik þeirr- ar hugmenningar sem hvorki verður keypt né seld. Ásgerður Jónsdóttir. Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Svo oft leyndist strengur í bijósti, sem brast við biturt andsvar, gefið án saka. Hve iðrar margt líf eitt augnakast, sem aldrei verður tekið til baka. (E. Benediktsson.) Hún var ljóðelsk, og vitnaði oft í kvæði Einars Benediktssonar, og sérstaklega þessa vísu, sem hún vildi öllum kenna. í okkar augum var hún „Ekkjan við ána“, reyndar ekkja breyttra tíma, en í lífshlaupi beggja fannst svo margt sameigin- legt. Eins og hin var hún alþýðukona, hét 'Sigríður Jónsdóttir, en var sjaldnast kölluð annað en Sigga á Ökrum. En hún var annað og meira, hún var líka amma okkar, og henn- ar viljum við minnast með örfáum orðum. En öll orð verða fátækleg þegar skrifað er um svo stóra konu. Því hún amma okkar var stór kona, þó ekki væri hún há í loftinu. Frá henni geislaði lífskraftur og þróttur sem hver unglingur hefði mátt vera stoltur af. Einhvern veginn leiddum við aldrei að því hugann að hún myndi deyja, svo vel bar hún sinn háa aldur. Hún var allra vinur, bæði manna og dýra. í hennar návist var ekki hægt annað en láta sér líða vel. Krummi, snjótittlingarnir, og villi- kettirnir, allir urðu þeir vinir henn- ar, og urðu illa sviknir ef þeir fengu ekki fyllingu í magann. Garðurinn og gróðurhúsið áttu hug hennar allan, og bera sterk merki um alúðleika hennar. Á köld- um nóttum þegar bjarga þurfti rós eða fjólu frá frosti, brá hún sér inn og sótti kannski húfuna sína og lét yfír blómið. Einhveiju sinni kom ég snemma morguns út í garð og sá hvar kjóllinn hennar lá yfir vorlauk- unum. Þegar ég spurði því hann væri þar, var svarið að laukarnir hefðu þurft meira á honum að halda en hún í nótt. Svona var amma. Fermingargjöf með stíl: Nottambulo fatastandur ■ Gæðahönnun ítalskra arkitekta D=sfORM Brautarholti 3 ■ 3. hæö Sími: 62-4775 Hún gat gefið allt frá sér, en ekki endilega það sem hægt var að kaupa í verslunum og ^setja í skrautlitaðar umbúðir. Nei, hún gaf okkur umburðar- lyndi, visku og kærleika, gjafir sem vega þungt, og koma til með að auðvelda okkur lífsgönguna, og gera okkur að betri manneskjum. Við eigum henni mikið að þakka frá sumrunum okkar á Ökrum. Amma var kona með mikla lífs- reynslu, hafði misst mikið og tekist á við mikla erfiðleika, en ætíð kom- ið heil frá þeim. Nú þegar við kveðj- um hana getum við aðeins óskað þess, að okkur takist að spila svo úr gjöfum hennar, að hún hefði orðið stolt af. Með okkur býr söknuður, en þó meira þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast mannkostum hennar og væntumþykju. Elsa og Sverrir. Við kveikjum á kertunum gömlu þá koma þau liðnu ár sem fljúgandi fuglar af hafí með fegurð, söngva - og tár. (Hulda) Þegar hugurinn kyrrist eftir andlátsfrétt minnar kæru tengda- móður og vinkonu, streyma minn- ingar liðinna samverustunda fram i hugann. Fyrir tæplega 32 árum kom ég á sólbjörtum sumardegi í mína fyrstu heimsókn með manni mínum og Ijölskyldu hans að Ökrum í Reykjadal. Við fyrstu sýn virtist íbúðarhúsið varla rúma allt heimil- isfólkið, en þegar inn var komið var sem húsið hefði ótrúlegt rými. Það var þarna sem ég skildi hvað hjarta- rými getur verið næstum áþreifan- legt. Hver var konan sem skóp slík- an heimilisbrag, að enginn gestur varð ósnortinn? Hún var fædd og uppalin á Auðn- um í Laxárdal, því rómaða menn- ingarheimili. Foreldrar hennar voru Hildur Benediktsdóttir og Jón Pét- ursson. Sigríður var fimmta í röð níu barnajþeirra hjóna. Ung giftist Sigríður Ásvaldi Þorbergssyni frá Litlu-Laugum í Reykjadal. Foreldr- ar hans voru Þorbergur Davíðsson og Sigurveig Jónatansdóttir. Sigríð- ur og Ásvaldur bjuggu á 'A hluta Breiðumýrar (læknisparti) í 18 ár en fluttu þá í Akra í sömu sveit. Þeim hjónum varð 9 barna auðið og eru þijú af þeim látin. Fyrstu árin á Ökrum voru Sigríði þungbær, því árið eftir að þau fluttu í Akra dó 17 ára sonur þeirra úr mænusótt en annar sonur lamaðist á fótum. Árið 1949 andaðist Ás- valdur í Kaupmannahöfn úr höfuð- meini, en hann lifði ekki af aðgerð sem gerð var á honum þar. Eftir lát manns síns bjó Sigríður á Ökrum með dyggri hjálp barna sinna, aðal- lega Þormóðs sem seinna tók við búrekstrinum. Þetta er í stórum dráttum lífs- saga Sigríðar, en fyrir mér er áhrif- amesta saga hennar ósögð enn, en hún er hvern mann hún hafði að geyma og hvernig hún þroskaði sína innri hæfileika og miðlaði visku sinni og kærleika til alls sem lifir. Hún var fjölfróð og hafði yndi af skáldskap, kunni fjölda ljóða og var mjög ættfróð. Marga ánægjustund átti ég á Ökrum við að hlusta á hana fara með ljóð og vísur, rekja ættir manna langt aftur í aldir og verða vitni að áhuga barna hennar, barnabarna og allrar fjölskyldunnar fyrir þeim fróðleik sem hún miðl- aði. Jurta- og dýraríkið annaðist hún sem allt annað af nærfærni og alúð. Garðurinn og gróðurhúsið hennar báru henni fagran vitnis- burð. Ég sé hana fyrir mér sem konu með hendur þeirrar gerðar, að allt sem hún hlúði að óx og dafnaði. Daginn áður en hún veikt- ist, var hún að vinna í gróðurhúsinu sínu við að undirbúa gróður sumars- ins. Hennar undirbúningi er nú lok- ið, en víst er að niðjar hennar halda áfram þar sem frá var horfið í öllum greinum akurlendis hennar. Viðmót hennar til alls sem lifir endurspeglast í börnum hennar ömmu og langömmubörnum, þetta að gefa án endurgjalds, víðsýni, umburðarlyndi og fróðleiksþorsti til alls sem göfgar og bætir. Þegar Hrólfur sonur hennar lést, lét hún
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.