Morgunblaðið - 09.03.1993, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1993
Forseti Litháens í heimsókn til íslands
Verður fyrsta erlenda
heimsókn forsetans
FORSETI Litháens, Algirdas M.
Brazauskas, kemur í vinnuheim-
sókn til íslands daganna 17.-19.
mars n.k. Hér mun hann hitta
Fékk vist-
un á Sogni
ÓSAKHÆFI afbrotamaðurinn
sem í síðustu viku var vistaður í
fangageymslum Iðgreglunnar hef-
ur nú verið vistaður á réttargeð-
deildinni á Sogni í Ölfusi.
Eins og skýrt var frá í Morgun-
blaðinu var maðurinn vistaður í
fangageymslum, þar sem geðdeild
Landspítalans neitaði að taka við
honum og ekki var pláss fyrir hann
á réttargeðdeildinni á Sogni. Til stóð
að vista hann á geðdeild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri nú eftir
helgina, en áður en til þess kom leyst-
ist málið og á laugardag komst hann
að á Sogni.
ýmsa ráðherra og aðra ráðmenn
að máli en unnið er að skipulagn-
ingu heimsóknarinnar í forsætis-
ráðuneytinu. Að sögn Ólafs Dav-
íðssonar ráðuneytisstjóra forsæt-
isráðuneytinsins er þetta fyrsta
erlenda heimsókn forsetans og
mikill heiður fyrir íslendinga að
landið skuli hafa orðið fyrir val-
inu.
Það er Guðmundur Benediktsson
fyrrverandi ráðuneytisstjóri sem
vinnur að skipulagningu heimsókn-
ar Brazauskas. Guðmundur segir
að dagskráin liggi ekki alveg fyrir
en forsetinn hefur lagt fram óskir
um þá menn sem hann vill hitta
að máli og verið sé að vinna að
málinu. „Brazauskas mun eiga við-
ræður við íslenska stjómmálamenn
meðan á heimsókn hans stendur,"
segir Guðmundur. „Hinsvegar er
ekki alveg búið að ganga frá dag-
skránni því sambandið við Litháen
er slæmt sem stendur og samskipt-
in verða því að fara í gegnum sendi-
ráð okkar í Kaupmannahöfn."
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Kraftapar
UNNUR Sigurðardóttir, ný-
krýnd sterkasta kona íslands,
heldur hér á Magnúsi Ver Magn-
ússyni, sem hlaut titilinn Steina-
kóngur íslands.
VEÐURHORFUR I DAG, 9. MARS
YFIRLIT: Norður af Jan Mayen er 980 mb lægð sem hreyfist austnorð-
austur. A Grænlandshafi er 989 mb smálægð sem grynnist. Austur af
Nýfundnalandi er heldur vaxandi 978 mb lægð sem hreyfist norðaustur.
SPA: Hæg breytileg átt og léttskýjað um mest allt land í fyrramálið og
talsvert frost í innsveitum, einkum noröanlands og austan en fer síðan
hlýnandi með hægt vaxandi suðaustanátt. Suðaustan kaidi eða stinnings-
kaldi og dálítil rigning eða súld suðvestan- og vestanlands siðdegis á
morgun en áfram bjartviðri á Norður- og Austurlandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
Suðaustlæg átt, yfirleitt kaldi eða stinningskaldi sunnan- og vestan-
lands, en hægari norðaustan til. Sunnanlands og vestan verður súld
eða rigning með köflum, en léttskýjað víðast norðanlands. Hiti verður
á bilinu 3-8 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsími Veðurstofu (slands - Veðurfregnir: 990600.
o <3k m Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk,
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig..
r r r * r * * * * • X * 10° Hitastig
r r r r r * r r * / * * * * * V v V v Súld J
Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél El = Þoka '
FÆRÐÁ VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
Vegir í nágrenni Reyjavíkur eru vel færir en talsvert hálir. Fært er um
Hellisheiði og Þrengsli og með suðurströndinni austur á Austurland og
eru vegir vel færir á Austfjörðum og Héraði. Fært er fyrir Hvalfjörð í
Borgarnes en vegir í uppsveitum Borgarfjarðar eru víða þungfærir.
Fært er um Snæfellsnes og um Heydal f Dali og þaðan til Reykhóla.
Brattabrekka er ófær. Fært er frá Brjánslæk til Patreksfjarðar og þaðan
til Bíldudals. Breiðadalsheiði er fær en Botnsheiði ófær. Skafrenningur
er á Holtavöröuheiði sem er vel fær og fært er til Hólmavíkur. Steingríms-
fjarðarheiði er ófær. Vegir á Norðurlandi eru víðast færir en skafrenning-
ur er í Vatnsskarði og á Öxnadalsheiði. Góð færð er á Noröausturlandi
og fært er með ströndinni til Vopnafjaröar. Elnnig er fært um Mývatns-
og Möðrudalsöræfi.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
á grænni línu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavik hiti +2 veður úrkoma snjóél
Bergen 4 súld
Helsinkl +2 þokumóða
Kaupmannahöfn 2 alskýjað
Narssarssuaq +12 skýjað
Nuuk +16 skýjað
Ósló 4 skýjað
Stokkhólmur 2 skýjað
Þórshöfn 5 skúrir
Algarve 16 léttskýjað
Amsterdam 8 skýjað
Barcelona 16 mistur
Berlfn 2 skýjað
Chicago 2 slydda
Feneyjar 7 heiðskírt
Frankfurt 5 léttskýjað
Glasgow 10 mistur
Hamborg 6 léttskýjað
London 10 léttskýjað
Los Angeles 13 þoka
Lúxemborg 5 léttskýjað
Madríd 15 mistur
Malaga 20 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Montreal +3 mistur
NewYork 5 skýjað
Orlando 10 þokumóða
París 9 heiðski’rt
Madelra 18 háifskýjað
Róm 10 léttskýjað
Vín 1 skýjað
Washington 3 hélfskýjað
Winnipeg +4 alskýjað
íslendingur á flugvél sem skráð var hér
Nauðlent vegna
piparmyntufnyks
Flórída, frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
DOUGLAS DC-8 flutningaflugvél Emery-flugfélagsins var látin nauð-
lenda á flugveliinum í Fort Lauderdale í Flórida síðastliðinn laugardag
vegna piparmyntufnyks sem gaus upp frá farmi hennar. Flugvél þessi
var eitt sinn skráð hér á Iandi og var í þjónustu Loftleiða og Flugleiða
og þegar hún nauðlenti nú var íslenski flugmaðurinn Unnar Þorbjörns-
son í áhöfn hennar.
Flugvélin sem var að koma hlaðin
vamingi frá Dayton í Ohio og með
fjóra menn um borð var að hefja
aðflug að flugvellinum í Fort Laud-
erdale þegar piparmyntufnykurinn
gaus skyndilega upp. Var þegar í
stað gripið til súrefnisgrímanna og
flugtuminn látinn vita. Var lýst yfir
hættuástandi á flugvellinum.
Unnar Þorbjömsson, 2. flugmað-
ur, sagði í samtali við fréttaritara
að áhöfnin hefði yfirgefið vélina um
leið og hún stöðvaðist og skilið allt
sitt dót eftir. Sveit slökkviliðsins,
sem sérhæfð er í meðferð alls kyns
efna, hóf affermingu vélarinnar og
var með súrefnisgrímur. Kom í ljós
að þessi megni fnykur kom frá 200
lítra stáltunnu með óblönduðu fljót-
andi og grænleitu bragðefni sem
notað er í tyggígúmmí og tannkrem.
Var tunnan óþétt og byrjaði að leka
þegar vélin hóf aðflug til lendingar.
Blaðið Sun Sentinel í Miami hafði
það eftir yfirmanni efnadeildar
slökkviliðsins að bragðefnið væri svo
sterkt, að það gæti valdið truflunum
í öndunarfærum og jafnvel skaðað
slímhúð.
í þjónustu Loftleiða
Unnar Þorbjömsson sagðist hafa
farið að rýna í plögg vélarinnar og
séð þá að hún hafi fyrir nokkrum
ámm verið skráð á íslandi og borið
einkennisstafína TF-FLC. Er þetta
væntanlega flugvél sem Loftleiðir
og síðar Flugieiðir voru með í þjón-
ustu sinni af og til á árunum 1970-
1980. Hún var skráð hér á landi
1979 en var mest í leiguverkefnum
erlendis eftir það og var síðan seld
1987.
Unnar hefur verið flugmaður hjá
Emery-flugfélaginu í tvö ár. Áður
starfaði hann hjá Air Lift í Miami
og þar áður hjá Flugleiðum.
------»- ♦ ♦-----
Ógnaði konu
og nágrönn-
um með byssu
MAÐUR ógnaði eiginkonu sinni
og nágrönntun með haglabyssu
um helgina, eftir að hann hafði
drukkið sig ofurölvi á skemmti-
stað. Þegar lögreglan kom á vett-
vang var maðurinn sofnaður ölv-
unarsvefni. Hann var fluttur í
fangageymslur, þar sem hann svaf
úr sér vimuna.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
hafði maðurinn verið á skemmtistað
fyrr um kvöldið, ásamt eiginkonu
sinni. Honum sinnaðist við kunningja
sinn og var enn mjög æstur í skapi
þegar hann kom heim. Hann ógnaði
konu sinni með haglabyssunni og
elti hana fram á gang, þegar hún
leitaði aðstoðar nágranna. Eftir að
hafa ógnað nágrönnunum tók hann
á sig náðir.
Lögreglan flutti manninn í fanga-
geymslurj þar sem hann svaf úr sér
vímuna. Á heimili hans var lagt hald
á tvær haglabyssur og skotfæri.
Tryggvi Emilsson
ríthöfundur látinn
Tryggvi Emilsson rithöfundur
lést laugardaginn 6. mars síðast-
liðinn á Landspítalanum í
Reykjavík á 91. aldursári.
Tryggvi fæddist 20. október
1902 í Hamrakoti á Akureyri, og
voru foreldrar hans Emil Petersen
búfræðingur, bóndi og síðar verka-
maður á Akureyri, og kona hans
Þuríður Gísladóttir. Tryggvi missti
móður sína þegar hann var sex ára
gamall, og ólst hann síðan upp í
Reykjavik og á ýmsum stöðum
norðanlands. Skólamenntun hans
var sex vikna undirbúningsnám fyr-
ir fermingu veturinn 1916. Hann
var vinnumaður í Ámesi í Tungu-
sveit í fímm ár, bóndi í Bakkaseli
og Fagranesi í Oxnadal, verkamað-
ur á Akureyri 1925-1947, og inn-
heimtumaður hjá Rafveitu Akur-
eyrar 1935-1947, en hann studdist
við búskap öll árin. Árið 1947 flutt-
is't hann með fjölskyldu sinni til
Reykjavíkur og var verkamaður
þar, lengst af hjá Hitaveitu Reykja-
víkur og eftirlitsmaður við hita-
veituframkvæmdir í Reykjavík
1962-1968. Tryggvi var formaður
Verkamannafélags Akureyrar-
kaupstaðar í tvö ár, í stjóm Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar í
Reykjavík í tvo áratugi, þar af vara-
formaður í sjö ár og lengi ritari.
Hann var félagi í Kommúnistaflokki
íslands frá stofnun hans og í Sósíal-
istaflokknum frá stofnun, en hann
sat í miðstjórn hans og gegndi þar
ýmsum trúnaðarstörfum.
Tryggvi var sæmdur heiðurs-
merki Dagsbrúnar fyrir störf í þágu
verkalýðshreyfingarinnar og þáði
hann heiðurslaun Dagsbrúnar fyrir
bókina Fátækt fólk. Eftir hann
komu út tvær ljóðabækur 1967 og
1971, en eftir að hann lét af störf-
Tryggvi Emilsson
um hjá Hitaveitu Reykjavíkur gerð-
ist hann afkastamikill rithöfundur.
Æviminningar hans komu út í þrem
bindum, Fátækt fólk árið 1976,
Baráttan um brauðið 1977 og Fyrir
sunnan 1979. Fátækt fólk og Bar-
áttan um brauðið voru báðar til-
nefndar af íslands hálfu til bók-
menntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Auk þess komu út eftir Tryggva
skáldsögur, ættfræðirit og bama-
bók, auk þess sem hann skrifaði
^jölda greina í blöð og tímarit um
ýmis málefni.
Eiginkona Tryggva var Steinunn
Guðrún Jónsdóttir sem lést árið
1977. Dætur þeirra em Fanney
Tryggvadóttir deildarstjóri og Elsa
Jóna Tryggvadóttir skrifstofumað-
ur.