Morgunblaðið - 26.01.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.01.1994, Blaðsíða 1
56 SIÐURB/C 20. tbl. 82. árg. MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Stefnuræða Clintons Bandaríkiaforseta Aðaláherslan á heilbrigðismál Washinglon. Reuter. BILL Clinton Bandaríkjaforseti lagði höfuðáherslu á umbætur í heil- brigðismálum og velferðarkerfinu og baráttuna gegn glæpum í stefnu- ræðu sinni í öldungadeild Bandarikjaþings í nótt, að sögn aðstoðar- manns hans, George Stephanopoulos. I viðtali við NBC-sjónvarpsstöð- ina í gær sagði Stephanopoulos að Clinton sé fylgjandi þeirri hugmynd að menn hljóti lífstíðardóm fremji þeir þrjú alvarleg afbrot. Ekki var búist við tímamótayfir- lýsingum í stefnuræðunni, að sögn embættismanna í Hvíta húsinu. Talið var að Clinton myndi ítreka áherslu sína á umbætur í heilbrigðismálum, sem hann hefur sagt vera mikilvæg- asta mál sitt á þinginu. Hann leggur Olíuverð í 10 dollara? London. Reuter. OLÍUVERÐ á heimsmarkaði gæti farið niður í 10 dollara fatið ef OPEC, Samtök olíuútflutnings- ríkja, koma sér ekki fljótlega sam- an um að minnka framleiðsluna. Var þetta haft eftir evrópskum olíumiðlurum í gær en verulegur þrýstingur var á olíuverðið í fyrra- dag vegna fréttar í fréttabréfinu Middle East Economic Survey en þar sagði, að óvíst væri að Saudi- Arabar og bandamenn þeirra í Persaflóaríkjunum féllust á að minnka framleiðsluna á öðrum árs- fjórðungi. Olíuráðherrar OPEC-ríkjanna koma saman til fundar 25. mars til að ræða nýja kvóta fyrir tímabilið apríl-júní, en þá er eftirspurnin eft- ir olíu hvað minnst. Segja evrópsk- ir olíumiðlarar, að verði þá ekki samið um að minnka framleiðsluna úr 24,52 milljónum fata á dag eins og hún er nú, muni það hafa „skelfileg" áhrif á verðið, það er að segja valda verulegri verðlækk- áherslu á að hver einasti Bandaríkja- maður verði sjúkratryggður en repú- blikanar segja tillögurnar kalla á skattahækkanir. Vegna aukinnar umræðu um glæpatíðni og aðgerðir gegn henni, mun forsetinn koma inn á þau mál í ræðu sinni. Samkvæmt nýlegum skoðanakönnunum telja 37% Banda- ríkjamanna glæpi vera meginvanda landsins en um 20% að það séu heil- brigðismál. Aðstoðarmenn Clintons sögðu að hann myndi koma víða við í stefnu- ræðunni. Meðal annars myndi hann ræða endurþjálfun þeirra sem hafa verið atvinnulausir um lengri tíma, batnandi efnahag og fjárhagsaðstoð við Rússa. Svört skýrsla bandarísku leyniþjónustunnar um Úkraínu Spáir því að land- ið liðist í sundur % ££ x, Afmæli fiðlusnillings FIÐLULEIKARINN Nigel Kennedy fagnar hinum aldna fiðlusnillingi Stephane Grappelli í lok góðgerðartónleika sem haldnir voru á mánu- dagskvöld í tilefni afmælis Grappellis, en hann verður 86 ára í dag. Grappelli lætur engan bilbug á sér fínna þrátt fyrir aldurinn og seg- ir tónlistina halda sér gangandi. Washington. Reuter. BANDARÍSKA leyniþjónustan (CIA) spáir því að efnahagsástandið í Úkraínu muni leiða til þess að landið liðist í sundur og hart verði deilt um kjarnavopn þau sem enn eru í Úkraínu. Þetta kemur fram í frétt The Washington Post í gær. Vitnar blaðið í leynilega skýrslu leyniþjónustunnar þar sem segir að ef efnahagsástandið batni ekki, muni fylgi aukast við sameiningu við Rússland meðal minnihluta- hópa í Úkraínu. Ibúar Úkraínu eru um 51 milljón, þar af eru Rússar um fimmtungur. Leyniþjónustan telur hættu á að íbúarnir muni skiptast upp í and- stæðar fylkingar eftir þjóðerni og búsetu. Rússneski minnihlutinn í austurhluta landsins muni vilja segja sig úr lögum við Úkraínu ,en meirihluti Úkraínumanna í vestur- hlutanum muni leggja áherslu á að koma í veg fyrir það og að halda sjálfstæði sínu. Hefur blaðið heim- ildir fyrir því að í skýrslunni segi að þetta gæti leitt til átaka, mögu- lega með þátttöku rússneska hers- ins. Taki ibúar austurhlutans ákvörð- un um að sameinast Rússlandi, þar sem efnahagsástandið er mun betra en í Úkraínu, gæti það ýtt enn frek- ar undir áhuga áhrifamanna í vest- urhlutanum á því að halda eftir þeim kjarnavopnum sem enn eru í landinu til að koma í veg fyrir yfir- ráð Rússa. Samkvæmt heimildum blaðsins var lokið við skýrsluna sama dag og Bill Clinton, forseti Bandaríkj- anna, hélt upp í Evrópuför sína, fyrr í mánuðinum. í henni undirrit- aði hann meðal annars samning við Rcutor Leoníd Kravtsjúk, forseta Úkraínu, um að Úkraínumenn afhentu kjarnavopn sín og hlytu í stað þess efnahagsaðstoð. Hefur Kravtsjúk orðið fyrir hörðum árásum á þingi vegna undirritunar sinnar, sem margir þingmenn telja sviksamlega. í skýrslunni kemur fram sameig- inlegt álit bandarískra leyniþjón- usta, svo sem CIA, leyni- og upplýs- ingaþjónustu Utanríkisráðuneytis- ins, leyniþjónustu varnarmálaráðu- neytisins, og bandarísku öryggis- stofnunarinnar. Bandaríska leyniþjónustan hefur neitað að tjá sig um skýrsluna. Launin greidd í svínakjöti DRENGIR virða fyrir sér verka- mannalaunin í Serb- íu, sundraða svíns- skrokka. Peninga- kerfið er hrunið til grunna og efna- hagsstarfsemin byggist á vöruskipt- um eða þýskum mörkum. Ríkis- stjórnin hyggst nú reyna að ráða bót á ástandinu með nýj- um „ofurdínar" en hann hefur sama verðgildi og eitt þýskt mark og á að auðvelda baráttuna við verðbólgu- ófreskjuna, sem var einn milljarður pró- senta á síðasta ári. Gömlu seðlarnir verða þó áfram í gildi en sumir þeirra hafa verðgildið 10 milljónir dínara þótt búið hafi verið að skera aftan af því 15 núll. Reuter Timbur- menneru veikindi Toronto. Reuter. GERÐARDÓMSTÓLL í Kanada hefur úrskurðað að maður sem mætti ekki til vinnu vegna timburmanna hafi átt rétt á að fá greiddan veikinda- dag. Vinnuveitandi mannsins taldi hann ekki eiga rétt á greiðslum, þar sem um hefði verið að ræða „fyrirfram ákveðið ástand sem hann hefði sjálfur átt sök á“. Dómurinn sagði að þrátt fyrir að enginn vafi léki á því að mað- urinn hefði tekið sér frí vegna þess að hann hefði haft timbur- menn, ætti hann rétt á launum vegna þess að hann hefði verið alls ófær um að sinna starfi sínu. Segir í niðurstöðu dómsins að líkja megi timburmönnum mannsins við lungnakrabbamein í reykingamönnum, sem þeir eigi sannarlega sjálfir sök á. Borís Fjodorov vill hiklausan stuðning Moskvu. Reuter. BORÍS Fjodorov, fjívrmálaráðherra í stjórn Víktors Tsjernomýrdíns í Rússlandi, hefur ekki enn sent Borís Jeltsín forseta formlega afsögn. Talið er að með þessu hyggist Fjodorov þvinga forsetann til að taka skýra afstöðu með eða móti nýrri stjórn Tsjernómýrdíns sein umbóta- sinnar og vestrænir hagfræðingar telja að hyggist leggja umbætur að mestu á hilluua og nota miðstýringu í stað markaðsvæðingar. Forsetinn og Fjodorov munu hitt- ast í dag. Jeltsín hefur ekki tjáð sig sjálfur um deilur umbótaafla við Tsjernomýrdín en verður nú að kveða upp úr um það hvort hann styðji Fjodorov sem krefst þess að Víktor Geratsjenko seðlabankastjóra og Alexander Zavetjúka aðstoðarfor- sætisráðherra verði vikið úr stjórn. Þeir styðja Tsjernomýrdín sem hét stórfyrirtækjum í gær auknum fjárstuðningi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.