Morgunblaðið - 03.05.1994, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.05.1994, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAI 1994 Stjórnarandstaðan gagnrýnir sjávarútvegsráðherra vegna sölu á SR-mjöli og tóT ífdi/aðrkaaup?nduS Ráðherra segir fyrirtækið selt fyrir saimgjarnt verð HÖRÐ gagnrýni kom fram á alþingi í gær frá þingmönnum stjórnarand- stöðunnar á málsmeðferð á sölu hlutabréfa rikisins á SR-mjöli hf. Beindist gagnrýnin meðai annars að því að hlutabréfin hefðu verið seld á of lágu verði. Sjávarútvegsráðherra vísaði þessari gagnrýni á bug og sagði að fyrirtækið hefði verið selt á sanngjörnu verði og markmið með sölunni hefðu náðst fram. Sturla Böðvarsson, varaformaður fjár- laganefndar, sagði að ekkert hefði komið fram í skýrslum Ríkisendur- skoðunar um málið, sem gæfi tilefni til þess að Alþingi gripi til að- gerða vegna málsins, og því bæri að fagna. Fram kom hjá sjávarútvegs- ráðherra að SR-mjöl hf. muni væntanlega greiða 60 milljónir króna í tekju- og eignarskatta á þessu og næsta ári. Ufnræða var á Alþingi í gær um veruleika málsins. Þorsteinn sagði, skýrslu Þorsteins Pálssonar sjávar- útvegsráðhei'ra um sölu á hlutabréf- um SR-mjöls hf. Þorsteinn sagði að niðurstaðan af þeim skýrslum og gi'einargerðum sem birtar hefðu ver- ið undanfarið um málið, væri, að vel hefði tekist tii með þessa sölu og umræður síðustu vikur um málið hefðu gengið þvert gegn þeim raun- að með því að halda því fram að selja hafi átt Haraldi Haraldssyni hlutabréfin frekar en þeim sem þau fengu, væru menn að taka afstöðu gegn hagsmunum ríkisins og fyrír- tækisins. Þorsteinn sagði, að greina mætti gagnrýni á málið í þrjá þætti. í fyrsta lagi hafi verið látið að því liggja að ráðherrann sem fari með þessi mál hafi misfarið með vald sitt til að hygla gæðingum og koma eign ríkis- ins yfir til „Kolkrabbans". I annan stað hafi því verið haldið fram að ráðherrann hafí gefið eignir ríkisins þessum áðurnefndu gæðingum. Þetta hafi verið uppistaðan í gagn- lýni stjórnarandstöðunnar. Loks hafi Ríkisendurskoðun gagmýnt einstaka efnisþætti í málsmeðferð söluhóps og ráðgjafarfyrirtækisins Verðbréfa- markaðar íslandsbanka. Sú gagmýni væri af öðrum toga og kæmi hvergi nærri þeim stóryrðum sem einkennt hefðu málflutning stjórnarandstöð- unnar. Þorsteinn sagði að listinn yfir kaupendur SR-mjöls hrekti fullyrð- ingar um að sérstakir gæðingar ráð- herrans hefðu fengið hlutabréfín. Þar Heimild ráðherra ekki dregin í efa til að ganga frá sölunni með þeim hætti sem hann gerði RÍKISENDURSKOÐUN vísar á bug þeirri gagniýni sem sett hefur verið fram á skýrslu stofnunarinnar um sölu á hlutabréfum ríkisins i SR-mjöli hf. Ríkisendurskoðun birti í gær greinargerð þar sem framkomnum athugasemdum er svarað og þar segir m.a. að stofnun- in standi við þá gagnrýni sem fram komi í skýrslu hennar um sölu hlutabréfanna þrátt fyrir athugasemdirnar. Þar er þó áréttað að Ríkisendurskoðun dragi ekki i efa heimildir sjávarútvegsráðherra til að ganga frá sölunni með þeim hætti sem hann gerði. Einnig er beðist velvirðingar á þeirri ónákvæmni sem gæti í skýrslu stofnunar- innar af þeim samningaviðræðum sem voru undanfari kaupsamn- ings. Þar taldi söluhópurinn sig sæta aðdróttun um að hafa gefið kaupendum fyrirfram í skyn að ráðuneytið teldi 700-750 millj. króna viðunandi söluverð. ing, en spurningum um hvernig staðið var að sölu; hvort réttum reglum hafi verið fylgt og áhuga- sömum aðilum tryggt jafnræði, verði ekki svarað með að skoða efndir kaupsamnings. kæmi fram að eignaraðild væri dreifð, enginn einn aðili ætti meira en 7,5% hlut og sainanlagt ættu líf- eyrissjóðir, staifsménn verksmiðj- anna, útgerðannenn loðnuskipa og sveitaifélög 60% af hlutafénu. Eðlilegt verð Þá sagði Þorsteinn að sýnt hefði verið fram á það með óyggjandi hætti, að fyrirtækið hefði verið selt á eðlilegu verði. Hvergi kæmi annað fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar. „Ég ætla ekki að halda því fram að fyrirtækið hafí verið selt, á mjög háu verði. Ég held að það hafi verið selt á sanngjörnu verði fyrir báða aðila, í ljósi þeirrar áhættu sem um er að tefla í þessum rekstri því ég held að fá fyrirtæki í landinu séu jafn háð áhætturekstri og þetta,“ sagði Þor- steinn. Hann sagði, að í skýrslu Ríkisend- urskoðunar kæmi ekkert fram sem raskaði efnislegum niðui'stöðum og hvergi kæmi fram athugasemd um að aðilum hefði verið mismunað utan að Haraldur Haraldsson hefði fengið lengri frest en aðrir. Markaði ekki treyst Ólafur Þ. Þórðarson, þingmaður Framsóknarflokks, gagnrýndi harð- lega að hiutabréfin í SR-mjöli hefðu ekki verið seld á fijálsum hlutabréfa- markaði. Hann sagði að eina ástæð- an fyrir að markaðnum var ekki treyst fyrir að verðleggja og selja bréfin væri sú, að seljandinn vildi ráða hveijum bréfín voru seld. Ólafur sagði það blekkingar að fullyrða að stjórnarandstaðan væri að kreljast ákveðinnar niðurstöðu í söiumálunum. Hann sagðist ekki hefðu haldið vel á sínum spilum eftir kaupin. En hin staðreyndin blasti við, að 63 ára gamalt fyrirtæki, sem ekki hefði verið á framfæri ríkisins, væri selt á þann hátt að ekki hefði fengist rétt verð fyrir eignirnar. „Það veit hvert einasta mannsbarn í land- inu og um það eru ráðherramir fróð- astir,“ sagði Ólafur. Þorsteinn Páls- son mótmælti fullyrðingum Ólafs og sagði að markaðurinn hefði fullkom- lega fengið að ráða. Breytt rekstrarskilyrði Jóhann Ársælsson, þingmaður Al- þýðubandalagsins, sagði, að upplýs- ingum um sölu fyrirtækisins hefði ekki verið komið á framfæri með fullnægjandi hætti og söluverðið hefði verið langt frá sannvirði. Hann benti á, að ekki væri hægt að miða verðmæti fyrirtækisins við fortíðina, því alger umskipti hefðu orðið á rekstrarumhverfi þess. Verksmiðjur hefðu verið endurnýjaðar, ríkið hefði yfírtekið skuldbindingar, og hömlur, sem voru á rekstri verksmiðjanna meðan þær voru ríkisfyrirtæki, væru ekki lengur fyrir hendi, svo sem að þæt' gætu ekki tekið þátt í útgerð loðnuskipa. Jóhann sagði að rang- ur tími hefði verið valinn til að selja fyrirtækið og tímafrestir hefðu verið allt of stuttir. Öflugasti kaupandinn, Akureyrarbær, hefði ékki fengið tækifæri til að bjóða í fyrirtækið og gagnrýnanlegt væri að ráðherra hefði ekki orðið við málaleitan Akur- eyrar um lengri frest. Þorsteinn Páls- son sagði um þetta að beiðni Akur- eyrar hefði komið fram eftir að frest- urinn var útrunninn og Akureyrar- bær hefði fengið öll sömu tækifæri og aðrir mögulegir kaupendur. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, þingmaður Kvennalistans, sagði að stjóranrandstaðan hefði ekki fullyrt að taka ætti tilboði Haraldar Har- aldssonar en það hefði átt að skoða það til jafns við hitt. Og þegar ráð- herra fullyrti að ekki hefði verið hægt að fá hærra verð fyrir fyrirtæk- ið en fékkst, þá lægi fyrir að tilboð Haraldar uppreiknað hefði verið 107 milljónum hærra en endanlegt sölu- verð. í greinargerð sinni sagði söluhóp- urinn, að Ríkisendurskoðun hefði haldið leyndum í skýrslu sinni upp- lýsingum um að fjármálaráðuneyti og sjávarútvegsráðuneyti hafí hvort i sínu lagi lagt mat á verðmæti hlutabréfanna. Ríkisendurskoðun mótmælir þessu og segir, að séu gögn um þetta til hafi aðilar máls- ins leynt þeim upplýsingum fyrir stofnuninni. Söluhópurinn hafði vísað á bug fullyrðingum um, að hann hafí gef- ið endanlegum kaupendum í skyn, að ráðuneytið gæti fallist á 700-750 milljóna króna söluverð SR-mjöls, en Ríkisendurskoðun segir, að þær fullyrðingar byggist á bókunum úr viðtölum við tvo úr starfshópnum og forstjóra VÍB um hvernig samn- ingaviðræðum aðilanna hafi verið háttað. Stofnunin líti svo á að tilboð Jónasar Aðalsteinssonar og Bene- dikts Sveinssonar hafi ekki verið verðtilboð heldur yfírlýsing um á huga á að setjast að samningaborði. Heimildir ráðherra ekki dregnar í efa „í sjálfu sér sá Ríkisendurskoðun ekkert óeðlilegt við framgang máls- ins miðað við að aðilar hefðu tekið upp hefðbundnar samningaviðræð- ur um kaup á hlutabréfunum. í slík- um viðræðum hljóta báðir aðilar að gera sér grein fyrir því hvaða verð þeir séu reiðubúnir að sætta sig við og tilkynna það gagnaðilanum ef svo ber undir. Því má ekki skoða umrædda frásögn af atburðum sem ásökun á hendur seljendum um að halda ekki í heiðri reglur sem gilda um útboð og samþykki tilboða. Þar sem þeir á hinn bóginn líta greini- Iega svo á að um ásökun sé að ræða er beðist velvirðingar á þeirri ónákvæmni sem gætir í frásögn af þessum þætti málsins. Jafnframt skal áréttað að í skýrslunni eru heimildir sjávarútvegsráðherra til þess að ganga frá sölunni með þeim hætti sem hann gerði ekki dregnar í efa,“ segir í skýrslunni. í umfjöllun um greinargerð VÍB segir að Ríkisendurskoðun fallist ekki á þá ályktun VÍB, að vegið sé að starfsheiðri fyrirtækisins og fag- legri hæfni með því mati Ríkisend- urskoðunar, að sú ráðgjöf, sem stjórnvöld hafí notið við söluna, hafí ekki verið að öllu leyti eins vönduð og æskilegt hefði verið. Ríkisendurskoðun dregur gagn- rýni sína á verðbréfafyrirtækið saman á þann hátt, að stofnunin hafi m.a. fundið að því að grunn- upplýsingar um SR-mjöl hf. hafi ekíci verið tilbúnar til afhendingar þegar sala fyrirtækisins var auglýst og að í bréfi til væntanlegra þátt- takenda í útboði hlutabréfa í SR- mjöli hf. hafí ekki verið getið um þau áhersluatriði sem fram komu í greinargerð með frumvarpi að lög- um um stofnun SR-mjöls hf. og lutu að dreifðri eignaraðild og þátt- töku heimamanna. Einnig hafi verið tekið undir gagnrýni Jónasar A. Aðalsteinssonar hrl. á frestun ákvörðunar um að taka áfstöðu til þess hveijir þátttakenda í útboði teldust fullnægja gildandi söluskil- málum og bent var á, að frestunin gæti haft í för með sér mismunun gagnvart þeim sem höfðu sýnt áhuga á fyrirtækinu. Einnig að bjóðendum hafí ekki gefist kostur á að vera viðstaddir opnun tilboða og að ekki hafi verið veittir nægir frestir til að skija tilboðum. Þessu hafi VÍB svarað með því að helsti mælikvarði á árangursríka ráðgjöf sé hvernig kaupsamningur er efndur og hvort þau markmið sem að var stefnt hafi náðst. Ríkis- endurskoðun fellst á, að líta beri til þessara atriða og ánægjuiegt sé, að kaupendur standi við kaupsamn- VERÐMYNDUN NAUTAKJÖTS BÓNDINN KJÖTVINNSLAN SMASALINN Bóndi selur grip til slátrunar, fallþungi 195 kg: Söluverð Kr. 38.025 Frá dregst flutningur 1.268 og skoðunargjald 3.136 Bóndinn heldur eftir kr. 33.622 Fallþungi: Nýting (66,4%) Vöðvar (22,0%) Hakk (44,4%) 1 195,0 kg 129,5 kg 42,9 kg 87,0 kg II A Framleitt er: Kr. Hakk 43.920 Vöðvar 42.986 Samtals: 86.906 Frá dregst: Kr. Innkaup 38.025 Slátrun 7.800 Vinnslan heldur eftir kr. 41.081 116.057 Frá dregst: Kr. Innkaup 86.906 Virðisaukaskattur 14.253 Smásalinn heldur eftir kr. 14.899 Könnun kúabónda á verðmyndun nautakjöts Meira til vinnslu en bænda SAMKVÆMT könnun sem Grétar Haraldsson bóndi í Miðey hef- ur gert á verðmyndun nautakjöts fá kjötvinnslustöðvar að meðal- tali meira í sinn hlut fyrir að brytja skrokkinn niður en bóndinn fær fyrir gripinn eftir að hafa aiið hann í tvö ár. Bóndinn fær rúmar 38.000 krónur í sinn hlut en þarf síðan að greiða bæði flutningskostnað og sjóðagjöld, þannig að eftir hjá honum verða 33.622 kr. Vinnslan fær svo tæplega 87.000 krónur fyrir afurðirn- ar, og að frádregnu kaupverðinu og sláturkostnaði sitja rúmlega 41.000 kr. eftir hjá vinnslunni. Söluverð afurðanna í smásölu er rúmlega 116.000 kr. og fær smásalinn að meðaltali 14.900 kr. í sinn hlut og ríkissjóður fær til sín svipaða upphæð í virðisauka- skatt. Grétar sagði í samtali við Morg- unblaðið, að hann hefði í mars síðastliðnum kannað verðmyndun nautakjötsins mjög víða bæði á höfuðborgarsvæðinu og á lands- byggðinni, en í útreikningum hans er eingöngu miðað við UNl og það meðalverð sem út úr könnun- inni kom. Hann sagði, að ástæðan fyrir því að hann hefði ráðist í könnunina væri sú að þegar verð- ið til framleiðenda hefði verið komið niður fyrir 200 krónur á kílóið á meðan skráð verð er rúm- lega 320 krónur hefði hann viljað sjá hvort sú lækkun hefði skilað sér til nejrtenda. Hann sagði, að þegar niðurstöðurnar hefðu legið fyrir hefðu þær komið sér veru- lega á óvart, og hann hefði aldrei grunað, að vinrislan fengi svo mikið í sinn hlut. „Vinnslan sem átt er við er ein- göngu fólgin í því að brytja skrokkinn niður, en slátrunin er alveg sér. Ég held að öllum hafí komið það á óvart, að vinnslan fær svona mikið, en það verður meira eftir hjá vinnslunni heldur en hjá bóndanum. Þetta er ein- göngu það sem vinnslan fær fyrir að brytja kjötið í neytendapakkn- ingar og mér er sagt að það sé dagsverk fyrir einn mann, en bóndinn.er búinn að vera tvö ár að ala þennan grip. í útreikning- unum er miðað við að verslunin sé með 17% álagningu, en mér sýnist þar sem ég skoðaði að verslunin sé með þetta frá 13% til rúmlega 20% álagningu. Ég held að menn hafi talið að verslun- in tæki meira í sinn hlut, en vinnsl- an ekki svona mikið,“ sagði Grét- ar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.