Morgunblaðið - 05.05.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.05.1999, Blaðsíða 1
99. TBL. 87. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS 45 farast í náttúruhamförum í Oklahoma og Kansas í Bandaríkjunum Skýstrókar jafna heilu borgarhverfin við jörðu Oklahoma. Reuters. Reuters BIFREIÐ björgunarmanna keyrir i gegnum Moore, sem var eitt úthverfa Oklahoma-borgar, en var nánast jafnað við jörðu í náttúruhamförunum í gær. Við hlið bílsins má sjá tré sem veðrið hafði leikið grátt. AÐ minnsta kosti fjörutíu og fimm manns fórust þegar öflugir ský- strókar gengu yfir ríkin Oklahoma og Kansas í Bandaríkjunum í gær. Hundraða var saknað eða höfðu orðið fyrir meiðslum af völdum náttúruhamfaranna og var óttast að fleiri fyndust látnir eftir því sem björgunarstarfi yrði fram haldið. Verst var ástandið í Oklahoma- borg og voru heil hverfi þar jöfnuð við jörðu. Gátu björgunarstarfs- menn sér þess til að næstum tvö þúsund heimili hefðu orðið veðrinu að bráð. Sjónarvottar sögðu að út- hverfið Moore líktist helst vígvelli, vegna þeirrar gífurlegu eyðilegg- ingar sem orðið hafði á húsum og byggingum. Fjörutíu munu hafa lát- ist í Oklahoma-ríki og fimm í Wichita og Haysville í Kansas. Skýstrókamir gengu yfir Okla- homa og Kansas á 30-45 mínútum og sagði Ben Frizzell, hjálparstarfs- maður í Oklahoma, að sumir ský- strókanna hefðu verið svo öflugir, og hefðu skollið á svo snögglega, að fólk hefði ekki haft nokkurt tæki- færi til að koma sér í öraggt skjól. Að sögn Franks Keatings, ríkis- stjóra Oklahoma, var ekki vitað um afdrif fjölda fólks. Engan fslending sakaði Keating ríkisstjóri lét þess getið að engar líkur væru á því að hægt yrði að hefja uppbyggingu í Okla- homa-borg að nýju án þess að um- talsverð aðstoð bærist. Bill Clinton Bandaríkjaforseti svaraði kalli Keatings og lýsti yfir neyðarástandi í Kansas og Oklahoma. Kvaðst for- setinn finna innilega til með fómar- lömbum skýstrókanna og lofaði því að stjórnvöld í Washington myndu veita alla hugsanlega aðstoð. Frekari náttúruhamfara gæti hins vegar verið að vænta því veð- urfræðingar spáðu áfram slæmu veðri á þessum slóðum. Um 200 íslendingar eru búsettir í borginni Tulsa í Oklahoma og nokkrir einnig í Oklahoma-borg og í Kansas. Að því er Morgunblaðið komst næst sakaði engan þeirra í ofsaveðrinu. Geirþrúðúr Jónsdóttir, sem býr í Tulsa, sagði í samtali við Morgunblaðið að sem betur fer hefðu engin slys eða skemmdir orð- ið þar í borg en gat þess að viðbún- aður hefði verið afar mikill. ■ Talið að/30 Indónesía Hermenn fella 28 mótmæl- endur Jakarta. Reuters. HUNDRUÐ hermanna héldu í gær uppi eftirliti á götum iðnaðarbæjar- ins Krueng Geukueh í Indónesíu þar sem hermenn skutu að minnsta kosti 28 mótmælendur tii bana í fyrradag. Bærinn er í Aceh-héraði, sem er nyrst á eyjunni Súmötra og að mestu leyti byggt múslimum. I hér- aðinu hefur lengi verið mikil and- staða við yfirráð Indónesíustjómar. Indónesíska fréttastofan Antara hafði eftir formanni nefndar, sem rannsakar blóðsúthellingamar í bænum, að 28 manns hefðu fallið. Her Indónesíu hélt því hins vegar fram að 18 hefðu beðið bana og 80 særst. Wiranto hershöfðingi, yfirmaður Indónesíuhers, kvaðst harma at- burðinn og sagði að hermenn hefðu skotið á mótmælenduma í sjálfs- vörn. Herinn sagði að hermennim- ir hefðu hafið skothríðina eftir að nokkrir mótmælendanna hefðu skotið á þá. Nokkrir sjónarvottar sögðu hins vegar að skothríðin hefði hafist eftir að nokkrir mót- mælendur hefðu grýtt hersveitirn- ar til að hefna sín á hermanni, sem kastaði grjóti á þá. Aceh hefur í reynd verið undir stjóm hersins mestan hluta áratug- arins vegna aðgerða hans gegn að- skilnaðarsinnum, sem hafa látið að sér kveða í héraðinu. Aðgerðum hersins lauk í fyrra en íbúar hér- aðsins hafa risið upp á síðustu mán- uðum og mótmælt grimmdarverk- um hersins á valdaskeiði hans. Tony Blair um stríðið í Júgóslavíu Lofar að binda enda á þjóðar- morð Milosevics Reuters KOSOVO-Albani hvílir lúin bein í Cegane-flóttaniannabúðununi í Mak- edóníu í gær en þar beið fólkið í biðröð eftir ýmsum hlífðarflfkum. Heppin en van- þakklát Amsterdam. Reuters. TVÆR ætimyndir eftir hinn fræga listmálara Rembrandt, sem keyptar vora nýlega á hollenskum flóamarkaði íyrir 86 íslenskar krónur, hafa ver- ið seldar þýskum málverka- safnara fýrir hálfa fjórðu milljón króna. Hollenska blaðið Algemeen Dagblad sagði frá þessu í gær en það er langt í frá, að selj- andinn, kona nokkur í Utrecht, sé ánægð með af- raksturinn. Hún hafði gert sér vonir um að fá rúmlega fimm millj. kr. fyrir myndimar. „Þegar ég fór fram á um- boðslaunin, þrjú prósentin, varð fjölskylda hennar brjál- uð og hótaði mér misþyrm- ingum,“ sagði listaverkasal- inn, sem hafði milligöngu um söluna. „Eg hef ákveðið að gleyma þessum peningum, ég kæri mig ekki um neinar bar- smíðar." Búkarest, Brussel, Washington. Reuters. TONY Blair, forsætisráðherra Bret- lands, lofaði því í gær að Atlants- hafsbandalagið (NATO) myndi binda enda á hið „hræðilega þjóðarmorð" sem Slobodan Milosevie, forseti Júgóslavíu, hefði staðið fyrir í Kosovo. Á sama tíma viðurkenndi Klaus Naumann hershöfðingi, sem nú hefur látið af störfum sem forseti herráðs NATO, að bandalagið hefði ekki ígrundað hemaðaráætlanir sín- ar í Júgóslavíu nægilega í upphafi. NATO hefði ekki beitt nægilegum herstyrk strax í byrjun og hefði ekki gert sér far um að grípa til hernað- araðgerða sem komið hefðu Serbum í opna skjöldu og valdið uppnámi hjá stjórnvöldum í Belgrad. Dagblaðið The Financial Times hefur í dag, miðvikudag, eftir hátt- settum fulltrúum innan Júgóslavíu- stjórnar að MUosevic hugleiði nú að heimila fámennum gæslusveitum á vegum Sameinuðu þjóðanna að koma til Kosovo. Þótt ólíklegt sé að NATO telji Milosevic með þessu ganga nægilega langt er engu að síður um nokkra stefnubreytingu að ræða. Bill Clinton forseti Bandaríkjanna hafði aukinheldur sagst reiðubúinn að hugleiða aliar tilraunir til að leysa deiluna áður en hann hélt af stað í tveggja sólarhringa Evrópufor í gærkvöldi. Umræðan um landhernað skaut aftur upp kollinum í gær en Nau- mann hershöfðingi sagðist ekki sjá ástæðu til þess að efna til landhern- aðar í Júgóslavíu á þessu stigi. Á sama tíma felldi Bandaríkjaþing lagafrumvarp sem hefði veitt Bill Clinton Bandaríkjaforseta rétt til „allrar nauðsynlegrar valdbeiting- ar“, þ.m.t. landhemaðar. Hvíta húsið hafði lýst sig andsnúið framvarpinu. Engar vísbendingar voru um að árangur hefði náðst í viðræðum Vikt- ors Tsjemómýrdins, sendimanns rússneskra stjómvalda í deilunni um Kosovo, við bandaríska ráðamenn í gær og fyrradag. Þreifingar héldu þó áfram og þýsk stjórnvöld til- kynntu að utanríkisráðherrar Tengslahópsins svokallaða, sam- starfsnefnd sjö helstu iðnríkja heims og Rússa, myndu hittast í Bonn á morgun til skrafs og ráðagerða. í Brussel neituðu fulltrúar NATO hins vegar staðhæfingum Serba um að herþotur bandalagsins hefðu ráð- ist á fólksflutningabifreið í Vestur- Kosovo á mánudag með þeim afleið- ingum að sautján létust. Gáfu tals- menn NATO í skyn að liðsmenn Frelsishers Kosovo (UCK) hefðu staðið fyrir árásinni en talsmenn UCK sögðu að rútan hefði verið mannlaus, þar hefði enginn fallið og að um blekkingar serbnesku lögregl- unnar hefði verið að ræða. ■ Sjá uinfjöllun á bls. 31-32.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.