Morgunblaðið - 07.05.1999, Blaðsíða 1
101. TBL. 87. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Bruni í
vöruhús-
um í Osló
MIKILL eldur kviknaði í
geymsíuhúsi flutningafyrirtækis-
ins Expressgods við aðaljám-
brautarstöðina í Ósló í gær og
breiddist út í tvö önnur vömhús.
Slökkviliðið náði tökum á eldin-
um tæpum þremur klukkustund-
um eftir að hann blossaði upp en
mikinn reykmökk lagði þó enn
yfir miðborgina í gærkvöldi, að
sögn fréttastofunnar NTB. Allar
lestaferðir lágu niðri síðdegis
vegna branans.
Byggingarnar þrjár gjör-
eyðilögðust í brunanum og talið
er að slökkvistarfinu Ijúki ekki
fyrr en á morgun. Miklar
sprengingar urðu í byggingu
Expressgods vegna efna sem þar
vom geymd og slökkvistarfið
gekk erfiðlega í fyrstu sökum
vatnsskorts. 50 slökkviliðsmenn
og 18 slökkviliðsbílar vom á
staðnum. Öllum, sem vom í
byggingunum, var bjargað, að
sögn slökkviliðsins.
Fundur utanríkisráðherra Vesturveldanna og Rússlands um Kosovo
Samkomulag um fyrstu
skref friðaráætlunar
Reuters
IBRAHIM Rugova, leiðtogi
Kosovo-Albana, hlær meðan
kona kyssir Massimo D'Alema,
forsætisráðherra ítalfu, í Róm.
Rússar hefðu samþykkt á bak við
tjöldin að nauðsynlegt væri að senda
vopnaðar öryggissveitir til Kosovo.
Embættismenn sögðu að enn
væru mörg deilumál óleyst og mjög
ólíklegt væri að loftárásum NATO
yrði hætt nema stjómvöld í Júgó-
slavíu samþykktu erlent herlið í
Kosovo. Haft var eftir Slobodan
Milosevic, forseta Júgóslavíu, að
hann gæti fallist á að öryggissveit-
imar í Kosovo hefðu „vopn til sjálfs-
vamar“ en ekki kæmi til greina að
hleypa þangað hermönnum frá
NATO-ríkjunum.
Clinton sagði þó í gær að ýmislegt
benti til þess að Milosevic kynni að
vera viljugri en áður til að fallast á
friðarskilmála Vesturveldanna. Hann
bætti við að sú óvænta ákvörðun
Milosevic að leyfa Ibrahim Rugova,
leiðtoga Kosovo-Albana, að fara til
Italíu gæti einnig verið góðs viti.
Rugova sagði að flóttafólkið frá
Kosovo gæti ekki snúið þangað aftur
nema það nyti vemdar öryggissveita
frá NATO-ríkjum og fleiri löndum.
■ Árásir NATO/35-36
ar til Kosovo. Forsetinn bætti við að
NATO myndi ekki breyta stefnu
sinni og hygðist halda loftárásunum
áfram meðan reynt yrði að leiða deil-
una til lykta með samningum.
Igor Ivanov, utanríkisráðhema
Rússlands, sagði að samkomulagið
væri „skref framávið" en bætti við að
NATO gæti ekki sent hermenn til
Kosovo án samþykkis stjómvalda í
Júgóslavíu.
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, áréttaði hins
vegar að NATO yrði að vera „kjami“
alþjóðlegu öryggissveitanna í Kos-
ovo. Albright lagði ennfremur
áherslu á að Bandaríkjastjórn vildi
að Serbar flyttu allt herlið sitt frá
Kosovo þótt í yfirlýsingu utanríkis-
ráðherranna kæmi ekki fram hvort
allar júgóslavnesku hersveitimar
yrðu fluttar þaðan eða aðeins hluti
þeirra. Ivanov sagði að þessi deila
hefði ekki verið útkljáð.
Rússneski utanríkisráðherrann
krafðist þess að NATO gerði hié á
loftárásunum meðan reynt yrði að ná
friðarsamkomulagi við stjómvöld í
Belgrad. Hann tók þó fram að Vest-
urveldin hefðu hafnað þeirri kröfu.
Öryggisráð SÞ samþykki
friðaráætlun
Joschka Fischer, utanríkisráð-
herra Þýskalands, sagði að pólitísk
lausn deilunnar um Kosovo ætti að
byggjast á helstu friðarskilmálum
NATO. Ríkin átta hygðust beita sér
fyrir því að öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna samþykkti sem fyrst álykt-
un sem miðaði að því að koma á friði
í Kosovo. Utanríkisráðherrarnir
hvöttu einnig til þess að öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna kæmi á fót
bráðabirgðastjóm í Kosovo.
Vestrænir stjómarerindrekar
sögðu að til að fá Rússa til að sam-
þykkja friðarskilmála NATO hefðu
Vesturveldin fallist á að orðið „her-
lið“ yrði ekki notað í yfirlýsingu ráð-
herranna og að Sameinuðu þjóðun-
um yrði falið að leysa deiluna. Vest-
rænir embættismenn sögðu þó að
Leiðtogar NATO segja að loftárás
unum verði þó haldið áfram
Bonn, Washington, Belgrad. Reuters, AFP.
UTANRIKISRAÐHERRAR Vest-
urveldanna og Rússlands náðu í gær
samkomulagi um fyrstu skref áætl-
unar sem miðar að því að leysa deil-
una um Kosovo og gera hundruðum
þúsunda flóttamanna frá héraðinu
kleift að snúa þangað aftur. Leiðtog-
ar Atlantshafsbandalagsins sögðu þó
að ekki kæmi til greina að hætta loft-
árásunum á Júgóslavíu þegar í stað.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti fagn-
aði samkomulaginu og sagði það
„mikilvægt skref ‘ í átt að lausn deil-
unnar um Kosovo.
Utanríkisráðherrar átta helstu
iðnríkja heims komu saman í Bonn
og var það fyrsti fundur þeirra eftir
að loftárásir NATO hófust fyrir sex
vikum. Samkomulag þeirra kveður á
um að júgóslavneskar hersveitir fari
frá Kosovo og að alþjóðlegar örygg-
issveitir verði sendar til héraðsins.
Enn deilt um
NATO-herlið
Clinton sagði að það mikilvægasta
við samkomulagið væri að Rússar
hefðu í fyrsta sinn lýst því yfir opin-
berlega að þeir væru hlynntir því að
alþjóðlegar öryggissveitir yrðu send-
William Hague talinn
hafa sloppið fyrir horn
London. Morgunblaðið.
FYRSTU tölur úr sveitarstjórnar-
kosningunum á Englandi í gær
bentu til þess, að Verkamannaflokk-
urinn fengi 35% atkvæða, Ihalds-
flokkurinn 33% og Frjálslyndir
demókratar 27%. Óljóst var, hvað
þetta þýddi í fjölda fulltrúa, en ef lit-
ið er til kosninganna á landsvísu, þá
virðist William Hague hafa sloppið
fyrir hom með formennsku sína, en
Tony Blair getur bent á, að hann sé
fyrstur forsætisráðherra brezkra á
öldinni, til þess að verða ofan á í
sveitarstjómarkosningum á miðju
kjörtímabili ríkisstjórnar. Kjörsókn-
in á Englandi var mjög dræm, eða á
bilinu 26% og hefur aldrei verið lé-
legri. Kjörsóknin í Skotlandi var
sögð um 45% og í Wales um 35%.
Kosið var um 10.000 sveitarstjóm-
arsæti á Englandi og þær tölur, sem
lágu fyrir á miðnætti sýndu, að Verka-
mannaflokkurinn hafði tapað 285
sveitarstjómarmönnum á Englandi,
Ihaldsflokkurinn hafði unnið 274 og
Frjálslyndir demókratar 36.
Ihaldsflokkurinn bætti við sig 2
prósentustigum í kosningunum.
Fyrstu úrslit, sem tilkynnt vom í
Skotlandi í gærkvöldi, voru í kjör-
dæminu Hamilton South, þar sem
frambjóðandi Verkamannaflokksins,
Tom McCabe, vann þingsætið og
varð þar með fyrsti skozki þingmað-
urinn í 292 ár. Spá BBC, byggð á
samtölum við 4.000 skozka kjósend-
ur á kjörstað, benti til, að Verka-
mannaflokkurinn næði ekki meiri-
hluta á skozka þinginu, fengi 55-61
þingsæti, en á þinginu sitja 129 þing-
menn. Skozka þjóðernisflokknum,
SNP, var spáð þingmannafjölda á
bilinu 41-47, íhaldsflokknum 11-17
og Fijálslyndum demókrötum
10-16.
Tvísýnar kosningar í Wales
Kjósendur í Wales kusu einnig til
heimastjórnarþings í gær. Spá BBC
benti til að úrslitin yrðu mun tví-
sýnni en búist hafði verið við;
Verkamannaflokkurinn fengi 28-32
þingsæti, en á þingi sitja 60 manns,
og var Verkamannaflokkurinn löng-
um talinn öruggur um að ná meiri-
hluta á velska þinginu. Samkvæmt
sömu spá verður þingmannafjöldi
velska þjóðernisflokksins á bilinu
13-17, íhaldsflokkurinn fengi 7-11
þingmenn og Frjálslyndir demó-
kratar 4-8 þingmenn.
Næturdvöl
á Everest
Kathmandu. Reuters.
33 ÁRA sherpi kleif í gær upp á
Everest-tind og hugðist dvelja
þar í 20 klukkustundir, sem
yrði lengsta viðdvöl á hæsta
fjallstindi heims.
Ekki er vitað hver hefur
dvalið lengst á Everest-tindi en
sérfræðingar segja að aðeins
örfáir fjallgöngumenn hafi ver-
ið þar lengur en í nokkrar
klukkustundir. Tveir fjall-
göngumenn grófu sig niður í
snjó 20 m neðan við tindinn og
voru þar í 13 klukkustundir ár-
ið 1988 þar sem annar þeirra
var of þreyttur til að ganga nið-
ur fjallið.
Sherpinn ætlaði að dvelja í
tjaldi á tindinum án þess að
nota súrefniskúta.