Dagur - 03.07.1999, Blaðsíða 10

Dagur - 03.07.1999, Blaðsíða 10
LIFIt) / LANDINU 26 - LAUGARDAGUR 3. júlí 1999 landið. GUmar ^ Snjallharmonikuleikari og hefur honum verið boðið tii ____________ Ber9en í Noregi tii bess að spila. ' Hann er ættaður frá Streiti í Breiðdal. Gunnar með uppeldisdótturinni. Þijú á einu hjóli Hún málar, hann spilar á nikku, saman hjóla þau. Hjónin Guðríður Jensdóttir og Gunnar Guðmundsson hafa ferðast mikið saman innanlands og utan. „Eg átti dreng sem missti sjónina og þurfti að fara £ blindraskólann. Ég var áður búin að sjá Gunnar og dauðvor- kenndi honum að þurfa að ganga í vinn- una á hverjum degi,“ segir Guðríður, en Gunnar bjó á þessum tíma á Bjarkar- götu og vann áður á skrifstofu Sam- bandsins á Sölvhólsgötu 4. Þau keyptu hús í Ingólfsstræti árið 1972 og hófu búskap. Þau segja að staðsetningin hafi verið hentug vegna þess að það var styttra í vinnuna fyrir Gunnar, sem er blindur. Hann þurfti þó að fara yfir tvær umferðargötur, Banka- stræti og Hverfisgötu. „Það var sérstaklega erfitt fyrir hann að fara yfir Hverfisgötuna, þar sem ekki eru umferðarljós. Hann beið þar stundum lon og don eftir að komast yfir. Það gekk svo langt að prestar voru farnir að leggja útaf því við messu hvað hann væri þol- inmóður," segir Guðríður. Þau segjast hafa tekið húsið mikið í gegn síðan þau keyptu það og meðal annars var það tekið og pússað allt að utan eitt sumarið og málað. Þá voru reistir vinnu- pallar og þau segja að nágrann- arnir hafi óttast um Gunnar, þar sem hann var að príla í þeim tíl þess að komast áð til þess að mála. „Eg reyndist bara vera Iið- tækur málari," segir Gunnar og Guðríður bætir því við að blindir hafi sérstaka aðferð við að mála. Fyrst sé málaður kassi, málað lá- rétt inní hann og svo lóðrétt. Vitlaus beygja á Jótlandi Þau hafa ferðast mikið saman og eru áhugafólk um hjólreiðar og eiga tveggja manna hjól. Þau segja að það hafi vakið athygli þegar þau voru á hjólinu með uppeldisdóttur sína með sér. „Við fórum stundum með Iitlu stelpuna okkar út að hjóla. Við vorum þá með barnastól á bögglaberanum þannig að fólk rak upp stór augu þegar að það sá þrjá einstaklinga á sama hjól- inu,“ segir Gunnar. Fyrrir allmörgum árum tóku þau þátt í hjólreiðakeppni á Jótlandi. Þar voru hjólaðir 25 km en þau segjast hafa á einum stað tekið vitlausa beygju og hjólað fimm til tíu km aukalega. Þau segja að þrátt fyrir þetta hafi þau verið einhverstaðar um miðjan hóp. Það hafi margir þarna verið á flottum hjólum en þau hafi fengið lánað hjól sem hafi ver- ið hálfgerður garmur. „Við höfðum ekki hjólið okkar með okkur út, en það var nú svo sem allt í lagi. Við hjóluðum þarna í einum spretti og skildum ekkert í því að við sáum ekki nokkurt kvikindi á hjóli í kringum okur. Svo kom leigu- bíll á þeysispretti og sagði okkur að við værum að fara eitthvað annað en til stóð. Þetta tafði okkur talsvert. Ég man eftir því að þarna voru svona siglingsbrekkur sem ég átti nú ekkert von á. Maður hefur alltaf haft þá ímynd að Jótland væri ein flatneskja og maður hafði það þarna á tilfinningunni að Danirnir hafi hreinlega búið til brekkur fyrir okkar að puða £,“ segir Gunnar. Guðríður segir að áður en þau hafi farið út hafi þau æft sig og hjólað svipaða vegalengd og keppnisvegalengdina í ná- grenni Reykjavíkur. Paradís á jörðu Þau hafa líka keyrt um landið, hafa nokkrum sinnum farið hringveginn og eitt sumarið voru þau í sumarbústað austur á Héraði. „Við höfðum hann sem bækistöð og fórum þaðan niður á firð- ina. Þetta er dálítið sniðugur ferðamáti ef maður er að heimsækja staði sem eru kannski ekki í alfaraleið. Við fórum til að mynda í Mjóafjörð. Það er alveg dagsferð ef maður vill fara og skoða. Við heimsóttum Vilhjálm Hjálmarsson á Brekku. Hann er fróður maður um þetta svæði bæði fyrr og síðar. Þarna á Asknesi í Mjóafirði var mikil hvalstöð fyrr á árum,“ segir Gunnar Hann er að austan frá Streiti í Breið- dal en hún er að vestan. Þau segja að einu sinni hafi þau keyrt vestur á Rauðasand, þar sem hún eigi skyld- menni. „Ari Ivarsson, frændi Guðríðar, sagði okkur ýmislegt um svæðið, rakti kennileiti og ýmislegt þeim tengt. Það var ákaflega sérkennilegt veð- urlag einn daginn sem við vorum þarna. Þá fórum við á fjörunni niður á sandinn. Þá tók ég mig til og hljóp alveg eins og ég lifandi gat og var þá algjörlega lausbeisl- aður. Maður hnaut þó nokkrum sinnum um holur sem voru þarna í sandinum. Síðan hvessti veru- Iega og gerði ein 10 vindstig. Sandinn skóf í rokinu. Þrátt fyrir þessa miklu veðurhæð var 20 stiga hiti. Vindurinn stóð af fjöll- unum, það var svona hnjúkaþeyr þarna," segir Gunnar. Guðríður segir að Rauðisandur sé Paradís á jörðu. Fólk ætti endi- lega að gera sér ferð þangað og skoða, þar sé hægt að labba á fjöll og margt að skoða. „Það er mikil saga í Iandinu. Þarna er Sjöundá, svo er upplagt að ganga inní Skor, þar sem Eggert Olafsson ýtti bát sínum úr vör. Svo eru þarna kola- námur. Þarna er hrikalegt lands- lag en fagurt. Ég stúdera fjöllin, þau eru með allt öðru lagi fyrir vestan en þau eru fyrir austan. Gunnar stúderar fúglana. Ef mig langar til þess að vita hvaða fugl er hvað þá spyr ég hann,“ segir Guðríður. -PJESTA „Ég stúdera fjöllin, þau eru með allt öðru lagi fyrir vestan en þau eru fyrir austan. Gunnar stúderar fuglana, “ segir Guðríður Jensdóttir. mynd: e.ól.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.