Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Blaðsíða 32
32 DV. LAUGARDAGUR 25. JANÚAR1986. Tilkynningar Fjáröflunardeild kirkjufélags Digranesprestakalls heldur félagsvist í safnaðarheimilinu við Bjamhólastíg i dag, laugardag, kl.: 4.30. Félagsvist Húnvetningafélagsins verður spiluð laugardaginn 25. jan- úar 1986 kl. 14 í Skeifunni 17. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Kvenfélag Óháöa safnaðarins verður með kaffisölu í Kirkjubæ eftir messu sunnudaginn 26. janúar til ágóða fyrir Bjargarsjóð. Einleikur á gítar og almennur söngur. LFiKFfiLAG REYKIAVlKUR SÍM116620 LAND MÍNSFÖÐUR FORSALA SÍMI: 13191 73. sýn. laugard. 1. febr., upp- selt. 74. sýn. sunnud. 2. febr. Fáir miðartil. 75. sýn.þriðjud. 4. febr. 76. sýn.miðvikud.5.febr. 77. sýn. fimmtud. 6. febr. 78. sýn. föstud. 7. febr. Fáir miðartil. 79. sýn. laugard. 8. febr., upp- selt. 80. sýn. sunnud. 9. febr Fáir miðartil. 81. sýn. þriöjud. 11. febr. 82. sýn. miðvikud. 12. febr. 83. sýn. fimmtud. 13. febr. 84. sýn. föstud. 14. febr. Fáir miðartil. 85. sýn. laugard. 15. febr. Fáir miðartil. 86. sýn.sunnud. 16. febr. 87. sýn. miðvikud. 19. febr. 88. sýn.fimmtud.20. febr. 89. sýn. föstud. 21. febr. 90. sýn. laugard. 22. febr. 91. sýn. sunnud. 23. febr. 92. sýn. fimmtud. 27. febr. 93. sýn.föstud.28. febr. 94. sýn. laugard. 1. mars. 95. sýn. sunnud. 2. mars. Allar sýningar í Iðnó hefjast kl. 20.30. <Bj<B Málverkasýning Sigfúsar Hall- dórssonar á Kjarvalsstöðum Allar myndimar eru úr Reykjavík. Þetta er 7. einkasýning Sigfúsar. Myndirnar eru 150 að tölu, mestur hlutinn vatnslitir en einnig olíulitir, pastellitir og blýantur. Myndirnar eru unnar frá árinu 1982 og fram á þetta ár. Sýningin er sölusýning. Sigfús hefur áður haldið sýningar víðs vegar um landið, tekið þátt í samsýningum hér og erlendis. Sýn- ingin verður opnuð í dag kl. 14 og verður opin daglega frá kl. 14-22 og lýkur 10. febrúar. Nýr lagaflokkur „Austurstræti" við ljóð Jónasar Guðmundssonar verður frumfluttur við opnun sýningarinnar og ef til vil aftur síðar. Áður en sýningunni lýkur. Um kvöldið kl. 21 koma í heimsókn þau Elín Sigurvinsdóttir og Friðbjörn Jónsson og flytja þau lög eftir Sigfús með hans aðstoð. Þau koma einnig á sunnudaginn, 26. jan., kl. 16 og kl. 21. Einhver músíkuppá- koma verður á hverju kvöldi meðan sýningin stendur. Ólöf Bergsdóttir við búðarborðið í snyrtistofunni. Snyrtistofa í rá Kristjáni Einarssyni, fréttaritara DV á Selfossi: Ólöf Bergsdóttir opnaði nýlega snyrtistofu á Selfossi. Ólöf er inn- fæddur Selfossbúi og hefur hún undanfarin ár verið með starfsemi sína í forstofuherberginu heima hjá sér. Nú hefur hún fært út kvíamar og flutt í rúmgott húsnæði úti í bæ. Snyrtistofa Ólafar, Grænuvöllum 4, býður upp á alla almenna þjón- ustu, andlitsböð, húðhreinsun, litun, pökkun, förðun, fóta- og handameð- ferð. Einnig er ólöf með sérstaka vaxmeðferð fyrir andlit og fætur. Sagði hún að fólk úr Reykjavík kæmi austur til að fá þessa meðferð. Á stofunni em til sölu snyrtivörur frá Finnlandi „Lumene" bæði fyrir konur og karla. Sagði Ólöf að þessar snyrtivörur hentuðu vel hér á landi vegna þess veðurfars sem væri hér. Stofan er opin frá kl. 10.00-18.30 alla virka daga. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Melgerði 11, þingl. eign Árna Sigurðssonar, fer fram eftir kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl., Hafsteins Sigurðssonar hrl., Guðjóns Jónssonar hdl. og Garðars Garðarssonar hdl. á eigninni sjálfri mánudaginn 27. janúar 1986 kl. 11.15. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Nauðungaruppboð á lausafé Eftir kröfu Útvegsbanka Islands verður mölunar- og hörpunarvélasam- stæða, Unicompact 2 frá Baioni s.p.a. (framleiðslunúmer 12521), ásamt öllum tilheyrandi fylgihlutum, þ.m.t. F-10 Deutch dísilraafstöð (fram- leiðslunúmer 1413), mótor og generator, talið eign Valbergs sf„ Helenar Guðrúnar Pálsdóttur og Jóns Hauks Ólafssonar og/eða framleiðanda, selt á opinberu uppboði, sem fer fram föstudaginn 31. janúar 1986 kl. 14.00, við námu í landi Stóru-Fellsaxlar við Grundartangaveg, Skilmanna- hreppi, Borgarfjarðarsýslu. ____________________Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. Félag starfsfólks í veitingahús- um Félagsfundur verður haldinn á Hótel Esju þriðjudaginn 28. janúar 1986 kl. 17. Fundarefni: 1. Undirbúningur kjarasamninga. 2. Samstarfið í verkalýðshreyfingunni. 3. Útgáfu- mál og húsnæðiskaup FSV. 4. Önnur mál. Sýnið samstöðu og mætið. Kaffisala og kökubasar 6. bekkjar Verslunarskólans 6. bekkur Verslunarskóla íslands heldur kaffisölu og kökubasar í húsnæði skólans að Ofanleiti 1, sunnudaginn 26. janúar milli kl. 14 og 18. Gamlir verslingar og aðrir velunnarar eru sérstaklega boðnir velkomnir. Tapað-Fundið Skjalataska tapaðist Fyrir tæpri viku hvarf ljósgul skjala- taska, líklegast í vesturbænum. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 15535. Páfagaukur tapaðist í Hlíðun- um. Ungur blár páfagaukur tapaðist frá Eskihlíð 6 þann 21. janúar sl. Ef einhver hefur orðið var við hann þá vinsamlegast hringið í síma 10472 eftir kl. 20. Monsi týndur úr Breiðholtinu Sl.laugardag týndist frá heimili sínu, írabakka 22 í Breiðholtinu, heimilis- kötturinn Monsi. Hann er einlitur fress, steingrár, ómerktur en gegnir nafninu sínu. Fundarlaunum er heitið. Þeir sem halda sig hafa séð hann eða geta gefið upplýsingar um hann eru beðnir um að hringja í sima 73744. FatadeiM SÍS hættir — um 65 manns missa vinnuna Frá Jóni G. Haukssyni, frétta- manni DV á Akureyri. Fatadeild Sambandsins á Akureyri, áður Hekla, verður lögð niður í lok apríl. Starfsfólk deildarinnar, 65 manns og mest saumakonur, fær uppsagnarbréf sín innan skamms. Mikið tap hefur verið á fatadeildinni, milljón á mánuði. 12 milljóna kr. tap á síðasta ári á sama tíma og sala nam 40 milljónum kr. Það var Hjalti Pálsson, forstjóri verslunardeildar Sambandsins, sem greindi starfsmönnum fatadeildar- innar frá þessu á fundi með þeim á Akureyri í kvöld. „Þetta ætlar að vera eftirminnileg- ur bóndadagur hjá mér. Fyrst að þurfa að segja fólkinu upp og síðan fréttin um ákæruna,“ sagði Hjalti við DV eftir fundinn. Það var á miðjum fundinum með starfsfólkinu sem Hjalti fékk sím- hringingu. í símanum var honum sagt frá ákæru ríkissaksóknara í kaffibaunamálinu. Um fimmtíu saumakonur vinna hjá fatadeildinni. Flestar eru búnar að vinna hjá Sambandinu í mörg ár. Fram kom á fundinum að hægt er að útvega um 30 manns vinnu í öðrum deildum Sambandsins á Akureyri. Rafmagnsbilanir í Austur-Skaftaf ellssýslu: „Mest ísing á rafmagnslínum í tuttugu ár” „Þetta er allt að komast í land. Skemmdir urðu meiri en við reikn- uðum með. Hoffells- og Svínafells- línan var illa farin og hefur verið unnið við viðgerð á henni í dag. Þessari viðgerð lýkur í fyrramál- ið,“ sagði Erling Garðar Jónasson, rafveitustjóri Austurlands, i viðtali við DV í gær. Eins og hefur komið fram fór rafmagn af mörgum bæjum í Austur-Skaftafellssýslu í óveðr- inu sem gekk þar yfir fyrr í vik- unni. „Þá hefur verið unnið á fullum krafti við viðgerð á byggðalínunni. Níu menn frá Landsvirkjun unnu við þá viðgerð í nótt. Þeir settu upp nýjar stæður fyrir línuna í Alman- naskarði, en þar brotnuðu niður á þriðja tug rafmagnsstaura. Það var óvenjumikil ísing á svæðinu -ein sú mesta í 20 ár. Isinn á rafmagnsstaurum var allt að 10-15 cm í þvermál. Bændur að- stoðuðu við að brjóta ísinn af staurunum. Við vorum með átján menn frá RARÍK. Liðsauki kom frá Klaustri, Hvolsvelli og Egilsstöð- um. Allt í allt voru því 3o manns við vinnu. Þetta hefur verið erfitt verk. Það eru um 100 km á milli staða sem hafa verið rafmagnslaus- ir. Aðstæður voru óvenjuslæmar og færð erfið. Það hefur allt verið gert til að bændur fái rafinagn sem fyrst. ís- lenski bóndinn er mjög háður raf- magni. Fóðurrásir eru rafknúðar og þá nota kúabændur mjaltavélar, enda ógjörningur að handmjólka á stórum kúabúum. Við vonum að bændur hafi ekki orðið fyrir skaða vegna rafmagnsleysisins," sagði Erling Garðar. Erling sagði að það hefði verið flogið yfir allt línukerfið frá Möðrudal á Fjöllum til Sigöldu í gær. Engin ísing var á rafmagnslín- um. Það kom í ljós að á fjórða tug rafmagnsstaura hafði fallið á svæð- inu og spennistöðvar höfðu farið umkoll. -SOS STJÓRN H)JU VILL NÝJAN FORMANN „Þessi útnefiiing mín er framhald af vangaveltum manna undanfarin tvö ár um að breyta til í stjóminni," sagði Guðmundur Þ. Jónsson, vara- formaður Iðju, félags verksmiðju- fólks í Reykjavík, í samtali við DV. í vikunni samþykkti stjóm og trún- aðarmannaráð Iðju samhljóða til- lögu uppstillingamefndar félagsins um nýja stjóm fyrir félagið. Er þar mælt með Guðmundi Þ. sem for- manni í stað Bjama Jakobssonar er gegnt hefur starfinu í tíu ár. - Er með þessu verið að lýsa yfir vantrausti á Bjama? „Það er alveg ljóst að tillögur eins og þessi em ekki gerðar nema menn vilji einhverjar breytingar,“ sagði Guðmundur. Hann sagði að á aðalfundi félags- ins, sem haldinn verður í febrúar, yrði stjómin kosin. Ef ekkert mót- framboð kæmi yrði hann sjálfkjör- inn, annars yrði kosið. Framboðs- frestur til formanns rennur út 31. janúar. „Ég veit ekkert um það hvort eitt- hvert mótframboð kemur. Hins vegar kom mér ekki á óvart að ég skyldi útnefndur til þessa starfs. Það var búið að ræða það og ég geri mér vonir um að ég verði sjálfkjörinn á aðalfundinum," sagði Guðmundur Þ. Jónsson. Ekki náðist í Bjama Jakobsson. KÞ Flaggaðá Húsavík Togarinn Kolbeinsey sigldi inn á Húsavíkurhöfn í gærmorgun. Margir vom ánægðir að sjá „týnda soninn" vera kominn heim á ný. Fánar vom dregnir að húni. -SOS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.