Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988. MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988. 21 íþróttir DV DV íþróttir I ^ Sagt eftir leikínn: i„Ávariatilorð“ I '____________________________________ | Ægir M4r Kárason, DV, aiðurnesjura: „Fyrir leikinn var ég þess full- viss að við rayndum fara með sigur af hólmi. Við lékum af mikl- um krafti allan leikinn og uppskárum samkvæmt því. Per- sónulega er ég ánægður með minn hlut í leiknum en annars börðust allir strákarnir vel og eiga hrós fyrir leik sinn. Sigur- vilji var mun sterkari okkar megin. Ég á varla orð til að lýsa ánaigju minni,“ sagði Pálmar Sig- urðsson, leikmaður og þjálfari Hauka. 1 I I I I I I I I I I I I I I | ísakTómasson: „Ég er rosalega svekktur. Pálm- Valur Ingimundarson: „Það vantaði allan sigurviija hjá okkur. Engu að síður vil ég meina að við eigum besta lið á íslandi í dag. Besta liðið sigrar ekki alltaf. Við náðum ekki að sýna okkar rétta andlit og því fór sem fór,“ sagði Valur ingimund- arson, leikmaöur og þjálfari Njarðvíkinga. ar Sigurðsson var óstöðvandi 1 ■ leiknum og hann hreinlega vann I leikinn fyrir Hauka. Þaö sama | hvað viö reyndum til að stöðva ■ hann ekkert gekk. Þetta var yfir I höfuö hrikalega lélegt hjá okk- ■ ur,“ sagði ísak Tómasson, | Einar Bollason: | „Mér er efst í huga hyílíkan . körfuknattleik liðin náðu að | sýna. Pálraar Sigurðsson á engan ■ sinn likan hér á landi. Hann hef- I ur að geyma stórkostlegan I körfuknattleiksmann. Haukar ■ böröust eins og Ijón og unnu I sanngjaman sigur,“ sagði Einar * Bollason, þjálfari ÍR og fyrrver- | andi þjálfari Hauka. ^ Gunnar Þorvarðarson: ■ „Teiturogísakréðuenganveg- I innviðPálmarSigurðsson.Þegar ■ Sturla Örlygsson og Helgi Raíns- ■ son fóru út af með fimm villur I losnaði um leikmenn Hauka. ■ Bæði jiðin léku geysilega velI sagði Gunnar Þorvaröarson, þjálfari Keflvikinga og fyrrver- | andi þjálfari Njarðvíkinga. - • Henning Henningsson, fyrirliði Hauka, hampar íslandsbikarnum sem nú flyst i Hafnarfjörðinn í fyrsta skipti eftir fjögurra ára samfellda geymslu i Njarðvik. , DV-mynd Brynjar Gauti Nauðungaruppboð annað og síðara á effirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Skógarhlíð 6, 3. hæð, á neðangreindum tíma: Ármúli 38, hl., þingl. eig. Hljóðfæra- verslun Pálmars Arna hf., fostud. 22. apríl ’88 kl. 13.45. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. Brávallagata 42,1. hæð t.v., þingl. eig. Steinunn G. Ámadóttir, föstud. 22. apríl ’88 kl. 10.30. Uppboðsbeiðandi er Skúli J. Pálmason hrl. Dalsel 12, 2.t.v., talinn eig. Guðjón Garðarsson, föstud. 22. apríl ’88 kl. 14.15. Uppboðsbeiðendur eru Jón Oddsson hrl., Gjaldheimtan í Reykja- vík, Viðar Már Matthíasson hdl., Veðdeild Landsbanka íslands, Skarp- héðinn Þórisson hrl. og Sigurmar Albertsson hrl. Dalsel 36,1. hæð t.h., þingl. eig. Daní- el G. Óskarsson, föstud. 22. apríl ’88 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru Veð- deild Landsbanka íslands, Gjald- heimtan í Reykjavík og Guðjón Ármann Jónsson hdl. Flúðasel 94, 3. hæð t.h., þingl. eig. Hauljur Hallsson, föstud. 22. apnl ’88 kl. 10.45. Uppboðsbeiðendur eru Ólaf- ur Axejsson hrl. og Veðdeild Lands- banka íslands. Frakkastígur 19, 1. hæð, þingl. eig. Róbert Hamar, föstud. 22. apríl ’88 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur eru Gjald- heimtan í Reykjavík og Veðdeild Landsbanka íslands. Grettisgata 98, ris, þingl. eig. Gunnar Harðarson, föstud. 22. apríl ’88 kl. 10.30, Grettisgata 98, ris, talinn eig. Guðmundur Höskuldss. og Sigrún Víglundsd., föstud. 22. apríl ’88 kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur eru Ásgeir Thoroddsen hdl., Tryggingastofnun ríkisins og Landsbanki Islands. • Palmar Sigurðs- son, þjálfari Hauka, fær flug- ferð eftir að hafa fært sínum mönnum íslandsmeistaratitilinn með stórkostlegri frammistöðu. Hann skoraði 11 þriggja stiga körfur í leiknum og samtals 43 stig. Einstakt afrek í úrslitaleik á íslandsmóti. DV-mynd Brynjar Gauti Haukar Islandsmeistarar í körfuknattleik í fyrsta skipti í sögu félagsins Einveldi UMFN á enda - Haukar sigruðu UMFN, 92-91, eftir æsispennandi tvíframlengdan leik í Njarðvík í gærkvöldi Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum: „Ég fékk knöttinn frá Ingimari Jónssyni og sá að sex sekúndur voru þá eftir. Ég rakti knöttinn aðeins nær körfunni og lét skot ríða af og þegar boltinn hafriaði á spjaldinu var ég viss um að hann færi ofan í körfuna. Þetta er ólýsanleg tilfmning," sagði Reynir Kristjánsson úr Haukum sem skoraði úrslitakörfuna og tryggði Haukum um leið fyrsta íslandsmeist- aratitlinn í körfuknattleik í sögu félagsins í úrslitaleik gegn Njarðvík- ingum í gærkvöldi. Lokatölur leiks- ins urðu 92-91 eftir tvíframlengdan leik, en Njarðvíkingar höfðu orðið íslandsmeistarar sex sinnum á síð- ustu sjö árunum. Leikur liðanna í gærkvöldi er ein- hver sá frábærasti sem fram hefur farið á íslandi fyrr og síðar. Eftir venjulega leiktíma var staðan jöfn, 66-66. Þurfti því að framlengja leik- inn um fimm mínútur. Að loknum þeim tíma var staðan aftur jöfn, 79-79. í annarri framlengingu náðu svo Haukarnir að knýja fram sigur þegar leiktíminn var að fjara út. Leikmenn Hauka trúðu varla sínum eigin augum og trylltust af gleði. Áður en úrslitakeppnin hófst áttu fæstir von á að Haukar stæðu uppi sem íslandsmeistara en í gærkvöldi sýndi liðið frábæran leik og verð- skuldaði fyllilega sigurinn. Sigur Hauka er einstakur fyrir þær sakir að liðið tryggði sér sæti í úr- slitakeppninni í síðasta leiknum í úrvalsdeildarkeppninni. Að auki átti Pálmar Sigurðsson við meiðsli að stríða framan af keppnistímabilinu og ívar Webster í leikbanni í nokkr- um leikjum. Þetta eitt sýnir svo ekki verður um villst sterka Uðsheild liðs- ins. Það var greinilegt á öllu í upphafi leiksins að Haukar voru komnir til að beijast til síðasta blóðdropa. Þetta var þriðja yiðureign liðanna, hvort lið haíði sigrað einn leik og því þurfti þriðja leikinn til að skera úr hvort liðið hreppti íslandsmeistaratitlinn. Gijótagata 9, þingl. eig. Egill Baldurs- son og Halla Amaidóttir, föstud. 22. apríl ’88 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík, Bjöm Ólafur Hallgrímsson hdl, Baldvin Jónsson hrl., Veðdeild Landsbanka íslands og Guðjón Ármann Jónsson hdl. _____________ Grundarstígur 7, þingl. eig. Hafsteinn Bjömsson, föstud. 22. apríl ’88 kl. 14.15. Uppboðsbeiðendur em Búnað- arbanki Islands og Landsbanki ís- lands. Háberg 8, þingl. eig. Magnús Davíðs- son og Svana Sumarliðad., föstud. 22. aprfl ’88 kl. 11.15. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. Hléskógar 5, þingl. eig. Ingibjörg Þor- kelsdóttir, föstud. 22. aprfl ’88 kl. 11.45. Uppboðsbeiðandi er Eggert B. Ólafs- son hdl. Hraunbær 144, íb. 01-02, þingl. eig. Brynjólfúr Sigurðss. og Hrafnh. Hlöð- versd., föstud. 22. aprfl ’88 kl. 13.45. Uppboðsbeiðendur em Gjaldheimtan í Reykjavík, Valgeir Kristinsson hrl., Veðdefld Landsbanka íslands og Gjaldheimtan í Garðabæ. Iðufell 10, 4. hæð t.y., þingl. eig. Ath G. Brynjarsson og Sveinrún Bjamad., föstud. 22. aprfl ’88 kl. 14.45. Uppboðs- beiðendur em Guðmundur Ágústsson hdl., Gjaidheimtan í Reykjavík, Veð- deild Landsbanka íslands og Othar Öm Petersen hrl. Knarrarvogur 4, þingl. eig. Traust hf., föstud. 22. aprfl ’88 kl. 14.00. Upp- boðsbeiðendur em Gjaldheimtan í Reykjavík og Iðnlánasjóður. Kríuhólar 4, 6. hæð merkt C, þingl. eig. Guðmundur Bjamason og Dag- rún Másdóttir, föstud. 22. apríl ’88 kl. 14.30. Uppboðsbeiðandi er Iðnlána- sjóður og Veðdeild Landsbanka íslands. Laufasvegur 17, hluti, þingl. eig. Matt- hías Einarsson o.fl., föstud. 22. aprfl ’88 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur em Gjaldheimtan í Reykjavík, Þórunn Guðmundsdóttir hdl., Ágnar Gústafs- son hrl., Gjaidskil sf., Asgeir Thor- oddsen hdl. og Gjaldheimtan í Garðabæ. Laugávegur 96, 2. hæð, þingl. eig. Byggingartækni sf., föstud. 22. apríl ’88 kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur em Ingi Ingimundarson hrl., Baldur Guð- laugsson hrl. og Gjaldheimtan í Reykjavík. Ljósheimar 12A, '2. hæð, þingl. eig. Þorgrímur Kristmundsson, föstud. 22. aprfl ’88 kl. 15.00. Uppboðsbeiðandi er Iðnlánasjóður. Meistaravellir 11, kjallari, þingl. eig. Siguijón Pálsson, föstud. 22. apríl ’88 kl. 14.45. Uppboðsbeiðendur em Bald- ur Guðlaugsson hrl. og Ólafúr Gústaísson hrl. Stíflusel 8, hl., þingl. eig. Sævar Hall- grímsson og Elísabet Jónsd., föstud. 22. gprfl ’88kl. 14.45. Uppboðsbeiðend- ur em Reynir Karlsson hdl., Guð- mundur Kristjánsson hdl. og Útvegsbanki íslands hf. Teigasel 4, íbúð 02-02, þingl. eig. Rósa Ámadóttir, föstud. 22. aprfl ’88 kl. 14.15. Uppboðsbeiðandi er Gjald- heimtan í Reykjavík. BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ í REYKJAVÍK Haukamir komu Njarðvíkingum strax í opna skjöldu og eftir fáeinar mínútur var staðan orðin 8-0 fyrir Hauka. Njarðvíking- ar sáu þann kostinn vænstan að taka leikhié þegar staðan var 12-2 og aðeins fimm mínútur liðnar af leiknum. Ekki dugði leikhléið til því Haukar breikkuðu bilið jafnt og þétt og komust í 22-8. En þá urðu straumhvörf í leiknum og Njarðvík- ingar söxuðu á forskot Hauka og um miðjan hálfleikinn var staðan 25-19 fyrir Hauka. Aldrei komust Njarðvíkingar nær Hauk- unum í hálfleiknum en þrjú stig og höfðu Haukarnir tveggja stiga forystu í hálfleik, 39-37. Pálmar Sigurðsson var óstöðvandi í fyrri hálfleik eins og raunar í öllum leiknum og skoraði hverja þriggja stiga körfuna á fætur annarri. Eins'var ívar Webster gríðarlega sterkur í fráköstunum og hirti hátt í 20 fráköst í leiknum. Valur Ingimundarson kom Njarðvíking- um yfir, 51-50, í fyrsta skipti í leiknum og upp frá því höföu Njarðvíkingar ávallt forystu. Þegar staðan var 66-63 fyrir Njarðvík og þrjár sekúndur voru eftir af venjulegum leiktíma skoraði Pálmar þriggja stiga körfu og jafnaði leikinn. Þetta var jafnframt áttunda þriggja stiga karfa Pálmars. Framlengingu þurfti til og var jafnt á öllum tölum. Njarövíkingar voru yfir, 79-77, þegar Haukar fengu tvö vítaskot og 10 sekúndur eftir. ívar Ásgrímsson skor- aði úr báðum skotunum og jafnaði, 79-79, og framlengja þurfti öðru sinni og spennan í íþróttahúsinu í Njarðvíkum var í al- gleymingi. Þegar hér var komið sögu voru Njarðvíkingar búnir að missa Helga Rafnsson og Sturlu Örlygsson út af með vfllur og munaði um minna. Haukar komust í 83-79 með körfum frá Pálmari og ívari' og töldu margir að þar væru leiðir að skilja með liðunum en Njarðvíkingum tókst að komast yfir, 88-87. Pálmar skoraði síðan sína elleftu þriggja stiga körfu og kom Haukum yfir, 90- 88. Þegar 10 sekúndur voru eftir skor- aöi Valur úr tveimur vítaskotum og Njarðvíkingar komust yfir á nýjan leik, 91- 90. Síðustu sekúndunum er best lýst með orðum Reynis Kristjánssonar í upp- hafi greinarinnar en hann innsiglaði sigur Hauka á glæsilega hátt. • Pálmar Sigurðsson var yfirburða- maður á vellinum og fór oft á kostum en annars var það sterk liösheild Hauka sem skóp sigur þeirra í leiknum. Njarövíkingar réðu engan veginn við sigurvilja Hauka- manna. Stigin, Haukar: Pálmar 43, Henning 16, ívar 14, Webster 6, Ingimar 6, Reynir 4, Ólafur 3. Stigin, UMFN: Valur 33, Teitur 22, Hreið- ar 12, Sturla 7, ísak 7, Helgi 6, Friðrik 4. • Góðir dómarar leiksins voru Kristinn Albertsson og Ómar Schewing. Nýttskarðí Friðrik skorinn upp í Danmörku í gær - ígerð í fæti eftir nuddmeðferð Ekkert lát viröist á meiöslum leikmanna íslenska ólympíu- landsliðsins í knattspymu. í gær var Friðrik Friðriksson, mark- vörður liðsins, skorinn upp vegna meiðsla á legg á sjúkrahúsi i Óðinsvéum. Friörik, sem leikur með danska liöinu B1909, verður þvi ekki með íslenska ólympíuliö- inu í leikjum þess gegn Hollend- ingum og Austur-Þjóöveijum í Árni með Gróttuna Árni- Indriðason hefur verið ráðinn þjálfari hjá Gróttu, sem á dögunum vann sér sæti í 1. deild- inni í handknattleik. Árni lék með Gróttu á árum áður uns hann gekk í Víking. Hann hefur verið þjálfari Víkinga síðustu þrjú árin. ________________WS Vestur-Þýskaland: Stórsigur Uerdingen á Schalke Bayer Uerdingen, lið Atla Eð- valdssonar, vann stórsigur á Schalke, 5-2, í vestur-þýsku úr- valsdeildinni í knattspyrnu. Sigurinn er liöinu geysilega dýr- mætur í fallbaráttunni og þaö lyfti sér með honum upp í 13. sætið af átján. í öðrum leik í úrvalsdeildinni skildu lið Bochum og Hannover jöfn, 1-1. ________________WS Knattspyma: Jónas afturá Siglufjörð Jónas Björnsson, miðjumaður- inn efnilegi úr Fram, hefur ákveðið að leika áfram með KS á Siglufirði eins og hann gerði sl. sumar. Jónas var þá einn lykil- manna í liði KS en hugðist til skamms tíma klæðast Frampeys- unni í ár. -VS lok mánaðarins. Þetta er mikið áfall fyrir liðið því íslendingar eiga enn smávon að sigra í riölin- um þó lítil sé. Um síöustu helgi fór Friörik í nuddmeðferð og viröist sem storknað blóð hafi farið af stað í leggnum og ígerð kom í meiöslin. Upp frá því fékk hann hita og eft- ir að læknir B 1909 hafði skoðað Friörik nánar var hann sam- stundis íluttur á sjúkrahús til aögeröar. Friðrik mun dvelja á sjúkrahúsi fram að helgL Síðan tekur viö hvíld, aö öllum líkind- um í tvær vikur. Af þessu má vera ljóst aö Birkir Kristinsson úr Fram, varamark- vörður ólympíuliðsins, mun taka sæti Friðriks i leikjunum við Holland og Austur-Þýskaland í næstu viku. -JKS Pétur Pétursson ekki í landsliðinu: „Sártað frétta þetta svona“ „Það er mál Sigfrieds Held hvernig hann velur sitt landslið og ég segi ekkert við hans aðferðum. En mér þykir það sárt, eftir að hafa fómað miklu fyrir það að leika með íslenska landsliðinu síðustu tíu árin, að þeir hjá KSÍ skuli ekki geta lyft símtólinu til að tilkynna mér þessa ákvörðun í stað þess að ég frétti af henni í gegn- um fjölmiðla," sagði Pétur Péturs- son, landsliðsmaöur úr KR, í samtali við DV í gærkvöldi. Sigfried Held hefur ákveðið að velja Pétur ekki í landsliðshópinn fyrir vináttuleikinn gegn Ungverjum í Búdapest þann 4. maí. Ástæðan er sú að Pétur sleppti tveimur síðustu landsleikjum íslands á síðasta ári vegna brúðkaupsferðar. „Hefði ég gert eitthvað rangt myndi ég skilja betur þessi vinnubrögð KSÍ en ég á erfitt meö aö kyngja þessu. Ég vil hins vegar ekkert segja um framtíö mína með íslenska landsliðinu, það veröur bara að koma í ljós hvernig þau mál þróast," sagði Pétur. -VS Reykjavíkurmótið í knattspymu: KR-ingar mæta Val KR-ingar unnu öruggan sigur á ÍR í gærkvöldi, 3-0, og tryggðu sér þar með rétt til að leika gegn Valsmönn- um í undanúrslitum Reykjavíkur- mótsins um næstu helgi. ÍR dugði jafntefli til að komast áfram á kostnað KR en sýnt var hvert stefndi þegar Willum Þórsson og Pét- ur Pétursson skoruðu fyrir KR í fyrri hálfleik, Pétur úr vítaspyrnu. KR nældi sér síðan í aukastig með þriðja markinu, Sæbjörn Guðmundsson átti þá skot, boltinn hrökk af mark- verði og varnarmanni ÍR í markið. Lokastaðan í riðlinum varð þessi: Fram.............3 3 0 0 6-1 6 KR...............3 2 0 1 5-2 5 ÍR...............3 1 0 2 4-6 3 Ármann...........3 0 0 3 1-7 0 Fylkir og Víkingur mætast í loka- leik A-riöils í kvöld. Liðin tvö berjast um annað sætið og Víkingum dugar jafntefli til að ná því og mæta Fram í undanúrslitum. -VS Enska knattspyman: Dýrmæt stig í súginn Portsmouth missti af tveimur dýr- mætum stigum í fallbaráttunni í gærkvöldi þegar Dennis Wise náði að jafná fyrir Wimbledon, 2-2, á loka- mínútunum í leik liðanna í London. Hann skoraði einnig fyrsta mark leiksins, en í millitíðinni komu Paul Mariner og Kevin Dillon Portsmouth í 1-2. Everton komst í þriðja sæti með 2-1 útisigri á Coventry, upp fyrir QPR sem tapaði 2-1 í Luton. Watford á aðeins tölfræðilega möguleika á aö forðast fall eftir 1-1 jafntefli gegn Newcastle á heimavelli. Millwall stefnir hraðbyri á 1. deild, vann nú 2-1 útisigur á Bournemouth í gærkvöldi. Huddersfield og Oldham skildu jöfn, 2-2, og Sheöield United vann Plymouth, 1-0. -VS Hafnfirðingar! NÝ OG BETRIFRAMKÖLLUNARÞJÓNUSTA. NÚ BJÓÐUM VIÐ H-LÚX HRAÐFRAMKÖLLUN. FILMAN INN FYRIR KL. 12 -TILBÚIN KL. 16. TRYGGÐU GÆÐIN -TAKTÁ KDDAK... HBókabúó. •BððWgMT Reykjavíkurvegi 64, S. 651 630 - Strandgötu 3, s. 5051 5.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.