Þjóðviljinn - 31.01.1980, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 31.01.1980, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 31. janúar 1980 Einhœfur tækjabúnaður símans Listasafn Einars Jónssonar opnað Listasafn Einars Jónssonar veróur onnati ati nviu i febrúar. en safniö hefur samkvæmt venju verið lokaft i desember og janúar. Safniö er opið tvo daga I viku, sunnudaga og miöviku- daga frá kl. 13.30—16. Ljósm.sýning á Kjarvalsstöðum Ljtísmyndarinn John Chang McCurdy opnar sýningu á verkum sinum aö Kjarvals- stööum á laugardaginn kem- ur, 2. febrúar. John Chang McCurdy er fæddur i Kóreu, en er nú bandariskur rikisborgari. Hann rekur eigin ljósmynda- stofu i New York, en vinnur mest aö gerö myndabóka. Hann hefur oft komiö til Islands og á hér marga vini. Fyrsta ferö hans hingað var i tengslum viö heimsmeistara- einvlgiö i skák 1972. Hóf hann þá þegar aö taka myndir af islenskri náttúru sem hann hreifst mjög af. Arangurinn John Chang heimstíkn. McCurdy getur aö lita i myndabók um tsland sem Almenna bóka- félagiö gaf út i fyrra. BSRB frestar skattamálafundinum L! Þar sem framtalsfrestur hefur veriö lengdur og fólk ekki enn fengiö skattskýrsl- urnar sendar hefur BSRB frestaö erindinu um útfyll- ingu skattskýrslunnar, sem átti aö vera 5. febrúar, tii miövikudags ins 20. febr. og hefst þaö þá kl. 20.30 á Grettisgötu 89. Erindinu á Akureyri 5. feb. hefur einnig veriö frestaö til sama dags og hefst þar kl. 20 i Iönskólanum á Akureyri, en þaö er haldiö i samvinnu Starfs mannafélags Akureyrar og BSBB. Aösókn aö slikum fyrir- lestrum á vegum BSRB hefur undanfarin ár veriö meö fádæmum góö og má ætla aö ekki veröi hún þaö siöur nú er nýtt framtalseyöublaö vefst fyrir mörgum. A báöum stööum mun sér- fræöingur f skattamálum útskýra helstu atriöi skatta- laga og leiðbeina varöandi skattaframtöl og um gerö skattskýrslnar Dýrt spaug fyrir fyrirtækin — segja forráðamenn Verslunarráðs Sem kunnugt erhefur Ptístur og simi einkaleyfi á innflutningi sfmabúnaöar af öllu tagi og liggur viö refsing (simleysi) ef menn nota sér annan búnaö en frá stofnuninni. Þaö hefur veriö gagnrýnt aö menn geta ekki feng- iö ýmis konar skrautsfma og antfksima hér á landi og oft er m.a.s. erfiöleikum bundiö aö fá simsnúru lengda. Aö sögn for- ráöamanna Verslunarráös kemur þetta fyrirkomulag og heföbund- in innkaup Pósts og síma verr niöur á fyrirtækjum og stofnun- um en einstaklingum. A blaöamannafundi sem Verslunarráö hélt á þriöjudag kyrínti Guömundur ólafsson, verkfræöingur, tæki sem hann kallar „Sjálfveljara meö minni” og sjá má á meöfylgjandi mynd. Tækiö er sett i samband viö sima og þaö geymir I tölvuminni þau 32 simanúmer sem þú þarftoftast aö nota. I staö þess aö fletta sima- númerunum upp og velja númer- in á skifunni styöur þú aöeins á einn takka á tækinu fyrir hvert númer. (Orfáar sekúndur tekur aö skrifa nýtt númer inn I minni tækisins, breyta númeri eöa burrka númer út.) Tækiö er meö innibyggöum hátalara, þannig aö þú heyrir þegar svaraö er og þá fyrst lyftiröu tólinu af og hefur samtaliö. Einnig geta aðrir i herberginu fylgst meö simtalinu, ef þess er óskaö. A tækinu er einnig takkasimi. Guömundur Olafsson sagöist hafa átt I baráttu viö Póst og slma um aö fá þetta tæki og önnur svip- uö flutt til landsins. Island væri eina Evrópulandiö sem ekki byöi notendum sinum upp á ýmsar tækninýjungar á sviöi slmbún- aðar en slikt sparaöi mikla vinnu og tima I stærri fyrirtækjum. Skrautsimar og annaðþess háttar fyrir einstaklinga væri hégóma- mál hjá þvi. Guömundur benti á aö einkaritarar eru dýr starfs- kraftur og i stærri fyrirtækjum kemur þaö I þeirra hlut aö leita uppi simanúmer og viömælendur óskadraum blaöamannsins og raunar allra þeirra sem nota mikiö slmann viö vinnu slna mætti kalla þetta tæki, sem Guömundur ólafsson, verk- fræöingur heldur þarnaá. Ljósm. Bjarnl. fyrir forstjórana, — nákvæmlega þaö sama og tækiö gerir. Tæki sem þetta kostar 2—300 þúsund krónur, en aö sögn Guö- mundar eru svipuö tæki til ódýrari frá öörum framleiöend- um. — AI Póst- og símamálastjóri: Höfum ekki fjármagn „Póstur og simi hefur ekki fjár- hagslegt bolmagn til aö fjármagna stórfelld innkaup á aukabúnaöi simtækja meöan viö getum ekki sinnt brýnustu þörf- um á nýjum linum og sjálfvirkum sima i sveitum,” sagöi Jón A. Skúlason, Póst- og simamála- stjtíri f samtaii viö Þjóöviljann I gær. Jón sagöi aö ef fólk bæöi um einhvern sérstakan búnaö gæti Póstur og sími útvegaö hann, en hins vegar gæti stofnunin ekki auglýst upp dýr aukatæki, sem siöan yrW ekki hægt aö anna eftirspurn á vegna skorts á fjármagni, en fjárhagur Ptísts og sima er nú I mikilli óvissu vegna stjórnmálaástandsins. Jónsagöiennfremur aöþó lögin um Póst og sima kvæöu á um einkaleyfi á innflutningi þá mætti veitaundaþágufrá þvl, enda væri vilji til þess aö túlka lögin frjáls- legaren áöur heföi veriö gert. Nú gætumenn t.d. keypt slmtækin en Ilögunumer gertráöfyrir þvi aö Póstur og simi eigi allan simbún- aö I landinu. Jón sagöi aö lokum aö ef einhver aöili vildi flytja inn auka- búnaö á borö viö sjálfveljarann ogsábúnaöurstæöistsömu gæöa- kröfur og tæki Pósts og slma, þá gæti sá aöili eflaust fengiö undan- þágu. Hann yröi aftur á móti aö annast viöhald tækjanna sjálfur þvi Póstur og simi g*ti ekki haldiö uppi varahlutalager og viögeröaþjónustu vegna slikra tækja. —AI. Hitaveita á Hvammstanga Skammvinn bilun? GERIÐ GOÐ KAUP okkar leyft verð: verð: KAABER kaffi 1/4 kg....kr. 820,- 1015,- Egglkg.................kr. 1165.- 1794,- Kjúklingar pr. kg......kr. 1990,- 3146,- Kjúklingaríkössumpr.kg. ..kr. 1820,- 3146,- Strásykur 1 kg.........kr. 275,- 373,- HveitiPILLSBURY’S5lbs. ..kr. 545,- 658,- ÞORRAMATUR í ORVALI Opið til kl. 20 iöstudaga og til hádegis laúgardaga Gerið *| verð- saman- burð! J Verslið tímanlega I helgarmatinn Vörumarkaðurinn hf. Armúla 1 A, simi 86111. 1 fyrradag bilaöi djúpdæla I borholu viö Laugarbakka i Miöfiröi og veldur þaö þvl, aö Hvammstangabúar fá ekki allt þaö vatn til upphitunar, sem þeir þurfa. — En þetta er nú vonandi ekki alvarlegt, viögerum ráö fyrir aö geta kippt þessu i lag i kvöld eöa nótt, sagöi Þóröur Skúlason, sveitarstjóri á Hvammstanga okkur I gær. — En vatnslaus erum viö þó ekki, sagöi Þóröur, — viö höfum s jálfrennsliö, en þaö dugar bara ekki til þess aö hita upp öll húsin. Viö áttum vara- dælu á Blönduós i, sem viö erum búnir aö fá hingaö vestur, og kemur hún I staö þeirrar, sem biluö er. Annars hefur þetta gengiö ákaflega vel meö hitaveituna. Hún var tekin I notkun slöla árs 1972 og siöan hefur hún gengiö áfallalaust. Djúpdælan kom svo 1976. Aö þessu höfum viö ekki þurft aö nota hana yfir sumar- mánuöina, þá hefur sjálfrennsliö dugaö okkur. En nú veröur svo naumast lengur, þvi vatnsnotk- unin hefur aukist þaö mikiö. Má jafnvel gera ráö fyrir aö setja þurfi niöur stærri dælu en þá, sem notuö hefur veriö til þessa, en hola er fyrir hendi, sem rúmar stærri dælu og var hún boruð 1977. Fjögur sveitabýli eru tengd hitaveitunni: Syösti-ós, Stóri-ós, Litli-ós, og Höföi. — mhg Rís saumastofa á Þórshöfn? t undirbúningi er nd stofnun saumastofu á Þórshöfn, aö þvi er fréttaritari okkar þar, Arnþtír Karlsson, tjáöi blaöinu. Þaö eru kaupf élagiö, Verkalýösfélagiö, Þtírshafnar- og Svalbarös- og Sauöaneshreppar ásamt nokkr- um einstaklingum, sem stofnaö hafa hlutafélag til þess aö hrinda þessari hugmynd I framkvæmd. Vonir standa til þess aö sauma- stofan geti tekiö til starfa um mánaöamótin mal-júni I vor. Hún mun veröa tll húsa á efri hæö Byggingavöruverslunar kaupfé- lagsins. Sérstakur maöur, bú- settur á Þórshöfn, hefur veriö ráöinn til þess aö annast undir- búning og hefur m.a. meö hönd- um athugun á markaösmöguleik- um. Annars er nú ekki mikiö aö frétta héöan, sagöi Arnþór. Eins og sakir standa er veriö aö landa loönu, en hingaö hafa komiö þrir loönubátar. Þessi loönulöndun er á vegum Valfóöurs. Loönan er hökkuö og gert úr henni skepnu- fóöur, sem siöan er flutt út á vegum dansks fyrirtækis. Afla- brögö hafa veriö léleg og þvi tak- mörkuö vinna i frystihúsinu aö undanförnu, en raunar er ekki kominn neinn kraftur I róörana einnþá. Búiö er aö gera trésmiöaverk- stæöi Kaupfélagsins fokhelt og svo hefur veriö unniö aö innrétt- ingum ibúöarhúsnæöis. Hreppur- inn er meö skólabyggingu á sin- um vegum, ibúöir fyrir aldraöa og svo raöhús. Hreppsfélögin þrjú, sem fyrr eru nefnd, standa aö skólahúsinu og ibúöum fyrir aldraöa. Nú, og svo um leiö og viö sláum botninn I þetta rabb þá má geta þess, aö hér var haldiö fjölmennt þorrablót um slöustu helgi. — mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.