Þjóðviljinn - 21.03.1984, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 21.03.1984, Blaðsíða 1
DJÚÐVIUINN Michel Abs er fulltrúi neyðarhjálpar kirkjunnar í Líbanun. „Sáiræn áhrif styrjaldar- innar eru verst“, sagði hann í viðtali við blaða- mann Þjóðviljans. mars miðvikudagur 67. tbl. 49. árg. Nýtt fiskmatskerfi stórlækkar laun sjómanna: FLOTINN I LAND - ef punktakerfi Jónasar verður ekki afnumið, segja sjómenn • Jónas Bjarnason neitar að ^hlýða skipun sjávar- útvegsráðherra ímálinu Hið nýja punktakerfi við fiskmat, sem Jónas Bjarnason settur forstöðumaður Framleiðslu- eftirlits sjávarafurða, hefur látið taka upp, veld- ur nú ólgu og óánægju meðal sjómanna, þar sem það lækkar laun þeirra um 40% til 50%. Jónas Bjarnason lét taka þetta kerfi upp, þvert ofan skriflegt loforð Halldórs Ásgrímssonar, sjávar- útvegsráðherra við síðustu fiskverðlagningu. Þá var lofað að kerfið yrði ekki tekið upp fyrr en búið væri að gerbreyta allri verðlagningunni, enda er það forsenda þess að hið nýja kerfi verði sett af stað. „Ef þessu punktakerfi verður ekki strax kippt úr sambandi, mun allur flotinn sigla í land og við skulum leyfa þessum guðföður fram- leiðslueftirlitsins að leysa það mál“, sagði Óskar Vigfússon formaður Sjómannasambandsins í samtali við Þjóðviljann í gær. Þegar fiskverð var ákveðið í febrúar sl. var ákveðið að fresta því að taka þetta nýja punkta- kerfi við fiskmat upp. Yfirnefnd verðlagsráðs hafði bréf frá Halldóri Ásgrímssyni uppá það. Síðan ákvað Jónas Bjarnason uppá eindæmi að láta nýja kerfið taka gildi. Þeir Óskar Vigfússon, Kristján Ragnarsson og Kristján Pálsson, gengu á fund sjávarútvegs- ráðherra í fyrradag útaf þessu máli og lofaði ráðherra að kippa því í liðinn. Það hafði hinsveg- ar ekki gerst í gær og virðist J ónas ætla að keyra á málinu þvert ofan í vilja og loforð sjávarútvegs- ráðherra. Elías Bjarnason formaður sjómannafélagsins í Vestmannaeyjum sagði bullandi óánægju með þetta mál þar og gæti allt eins farið að flotinn sigldi í land vegna þessa máls. Sjá bls 3. - S.dór- Ig. Þjóðviljinn fær bréf frá Ingimar Hanssyni: Rekstrarstofan og sonur Ragnhildar Enginn formlegur samningur. Ráðherra forðast umrœður Þjóðviljinn greindi frá því fyrir helgina að Rekstrarstofan í Kópa- vogi sem Ragnhildur Helgadóttir fékk til að gera úttektina á mennta- málaráðuneytinu væri m.a. í eign sonar hennar. Þessi úttekt varð síð- an tilefni til flokkspólitískrar breytingar á ráðuneytinu, sem byggð er á ólögmætri fjölgun skrif- stofustjóra. í gær barst Þjóðviljanum bréffrá Ingimar Hanssyni þar sem hann leitast við að bera frétt Þjóðviljans til baka og segir Rekstrarstofuna vera einkafyrirtæki sitt. í haus þessa sama bréfs er Rekstrarstofan hins vegar skilgreind sem „Sam- starf sjálfstæðra rekstrarráðgjafa á mismunandi sviðum". Helgi Þórs- son, sonur menntamálaráðherra er síðan tilgreindur sérstaklega í bréf- haus fyrirtækisins sem einn þeirra ráðgjafa sem mynda fyrirtækið. í símaskránni er Rekstrarstofan einnig skráð sem undireining við nafn Helga Þórssonar. í viðtali Þjóðviljans við Ingimar Hansson í gær kom fram að fjármál allra sem vinna í gegnum fyrirtækið eru sameiginleg og menntamála- ráðuneytið gerði engan formlegan verksamning við fyrirtækið um út- tektina. Virðist hér því eingöngu hafa verið um munnlega ráðstöfun greiðslna að ræða. Ragnhildur Helgadóttir neitaði á Alþingi í síðustu viku að ræða útttektina sem hún fól samstarfs- fyrirtæki Helga Þórssonar og fleiri að gera. Einnig neitaði hún að ræða spurningar frá tveimur fyrr- verandi menntamálaráðherrum um að fjölgun skrifstofustjóra væri brot á lögum um Stjórnarráð fs- lands. óg/ekh Sjá nánar bls. 2 Deilur í Sj álfstæðisflokknum: Hver átti Það var ekki fyrr en skömmu áður en útsending sjónvarpsþátt- arins um fjárlagagat ríkisstjórn- arinnar hófst í gærkvöldi að Al- bert Guðmundsson fjármálaráð- herra dróst á að mæta til um- ræðnanna. Páll Magnússon þingfrétta- maður fór þess á leit við Albert Guðmundsson fjármálaráðherra að hann kæmi sem fuiltrúi Sjálf- að verja stæðisflokksins í umræðuþáttinn en hann neitaði. Leitaði Páll þá til formanns Sjálfstæðisflokksins, formanns þingflokksins, for- manns fjárveitingarnefndar, sem er Lárus Jónsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins, en allir neituðu og töldu sér ekki skylt að svara fyrir Albert. Málið var tekið fyrir á þingflokksfundi, en hvorki Albert né þingflokkurinn breýtti afstöðunni Það var svo ekki fyrr en í gær- kvöldi sem ljóst var hver yrði full- trúi Sjáifstæðisflokksins við um- ræðurnar. Það mátti heyra á mönnurn í gærdag að með tregðu sinni hefði Albert viljað leggja áherslu á að „fjárlagagatið“ væri alveg eins mál flokksins í heild eins og fjármálaráðherrans eins. - ekh nuoinHn — Samstarf sjálfstæöra rekstrarráögjafa Framkvæmdastjóri J Ingimar Hansson Ráógjafar Bjorn Viggósson Bolli Magnússon Gestur Einarsson Gunnar H. Guómundsson Helgi Þórsson k rtctiÁn k Efsta úrklippan er úr símaskránni en fyrir neðan er hluti af bréfhaus Rekstrarstofunnar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.