Þjóðviljinn - 14.05.1988, Blaðsíða 8
Kjarvalsstaðir
Böm hafa
hundrað mál...
-7 í dag opnar á Kjarvalsstööum sýningin Börn hafa hundrað mál en frá þeim eru tekin níu- tíu ogníu. Sýningin er yfirlitssýning um uppeldisstefnu sem hefur verið að þróast síðustu þrjá áratugi í borginni Reggio Emilia á N- Ítalíu. Uppeldisfræðingurinn
Gunther Uecker sýnir Gunnari Kvaran, listráðunaut Kjan/alsstaða
Ragnar Kjartansson
Myndhöggvarar
Heiðursfélagi
Ragnar Kjartansson myndhöggvari
heiðursfélagi Myndhöggvarafélagsins í
Reykjavík
Á síðasta aðalfundi Mynd-
höggvarafélagsins í Reykjavík
var samþykkt tillaga fráfarandi
stjórnar um að gera Ragnar
Kjartansson myndhöggvara að
heiðursfélaga. Ragnar hefur
starfað ötullega að félagsmálum
myndhöggvara. Hann var einn
aðalhvatamaður að stofnun
Myndhöggvarafélagsins árið
1972.
Að hans tilstuðlan var á árinu
1973 gerður samningur við
Reykjavíkurborg um vinnuað-
stöðu fyrir myndhöggvara að
Korpúlfsstöðum. Hefur sú að-
staða reynst ómetanleg lyftistöng
fyrir íslenska myndhöggvara,
ekki síst unga myndlistarmenn en
þeim hefur Ragnar ávallt veitt
mikla hvatningu og stuðning.
Menntamálaráðuneytið
Starfslaun listamanna
Menntamálaráðuneytið hefur
úthlutað starfslaunum lista-
manna fyrir árið 1988, en í fjár-
lögum þessa árs er 10 milljónum
króna veitt til starfslaunanna.
Af þeim 138 listamönnum sem
sóttu um hlutu 36 starfslaun, þar
af tveir til 12 mánaða, þeir Georg
Guðni Hauksson myndlistar-
Tæknimaður óskast
Iðnaðarráðuneytið óskar að ráða mann með
staðgóða tæknimenntun (tæknifræði/verkfræði).
- Um er að ræða fjölbreytileg störf varðandi
vernd eignarréttinda á sviði iðnaðar (einkaleyfi,
iðnhönnuno. þ. h.).-Gerterráðfyriraðviðkom-
andi hljóti starífsþjálfun við erlendar stofnanir eftir
umsaminn reynslutíma. - Samskipti við einstak-
linga og fyrirtæki sem vinna að nýjungum í
atvinnulífi og þjónustuaðiia þeirra yrði ríkur þáttur
í starfinu. Tengsl við einkaleyfastofnanir erlendis
kemur einnig við sögu. - Viðkomandi þarf að
hafa gott vald á íslensku máli, norðurlandamál-
unum og ensku. Undirstöðukunnátta í tölvu-
vinnslu er nauðsynleg. - Gert er ráð fyrir að
starfið hefjist 1. september nk. - Laun sam-
kvæmt launakerfi ríkisins. - Upplýsingar eru
veittar í iðnaðarráðuneytinu (ekki í síma) Arnar-
hvoli (3. hæð) milli kl. 8 og 16 næstu daga.
Iðnaðarráðuneytið
Berðu ekki við
tímaleysi
_ í umferðinni.
Paö ert ýrí sem situr undir stýri.
yUMFERÐAR
RÁÐ
Loris Malaguzzi er aðalfrum-
kvöðull og hugmyndagjafi stefn-
unnar, en hann segir vestrænt
skólakerfi svipta börn mögu-
leikum til alhliða skynjunar á
málunum 100, en upphefja rök-
hyggju og kerfishugsun.
I Reggio vildu menn uppeldi
sem væri andstæðan við ríkjandi
þröngsýni og völdu að byggja á
sjónskynjun og tengslum augans
við höndina. Þessi aðferð gengur
undir nafninu sjónrænt uppeldi
og felst í því að þjálfa augu og
snertiskyn barnsins, vekja for-
vitni og ímyndunarafl og örva
það til skapandi tjáningar.
Sýningin stendur til 29. maí og
er opin daglega kl. 14:00-22:00.
LG
eina af myndum sínum. Mynd -Sig.
Gunther Uecker
Myndir frá Vatnajökii
maður og Jónas Tómasson tón-
skáld.
17 listamenn hlutu starfslaun
til 6 mánaða, þar af 15 mynd-
listarmenn, auk Messíönu Tóm-
asdóttur leikmyndateiknara og
Selmu Guðmundsdóttur píanó-
leikara. Starfslaun til þriggja
mánaða hlutu 17 listamenn.
LG
Á morgun verður opnuð að
Kjarvalsstöðum sýning á vatns-
litamyndum eftir hinn heims-
þekkta listamann Gúnther Ueck-
er.
Gúnther Uecker fæddist í We-
udorf í Þýskalandi árið 1930.
Hann nam fyrst í Wismar og
Austur-Berlín en síðar í Dussel-
dorf þar sem hann hefur verið bú-
settur síðan.
Gúnther Uecker er vafalítð
frægastur fyrir lágmyndir sem
hann sýndi fyrst árið 1954. Þetta
eru myndir þar sem yfirborðið er
þakið hvítmáluðum nöglum. Á
næstu árum setti hann sér afar
þröngar skorður hvað varðar efni
og aðferð, og bjó til ótal tilbrigði
við einlitar naglamyndir. Árið
1958 stofnaði hann svo listhóp
ásamt tveimur öðrum lista-
mönnum frá Dusseldorf. Nefndu
þeir hópinn „Zero“ og var hugs-
unin sú hjá þeim félögum að
stroka yfir allt sem hafði verið
gert fram að þeim tíma í mynd-
list, byrja upp á nýtt með nýrri
list! Lögðu þeir megin áherslu á
kyrrðina og Ijósið í verkum sín-
um. Á samsýningum hópsins
sýndi Gúnther Uecker hvítar
naglamyndir þar sem myndflöt-
ur/naglaflöturinn minnti á lands-
lag og óskilgreind lífræn form,
sem voru eins konar stoð fyrir
hugleiðslu.
Á 7. áratugnum útvíkkaði
Gúnther Uecker fyrri nagla-
(hug)myndir og hóf að skapa
, naglaskúlptúra“. Þar þekur
hann hluti - stóla, borð, píanó, -
með nöglum. I þessum verkum
spilar listamaðurinn með ljós -
ýmis skuggaform eru afgerandi -
og hljóð til að virkja betur rýmið
umhverfis verkin ennfremur sem
ætlun listamannsins er að gera
áhorfandann að raunverulegum
þátttakanda.
Samhliða þessum frægu nagla-
myndum hefur Gúnther Uecker
skapað óhlutlægar myndir sem
þó hafa ávallt til að bera ákveðna
tilfinningalega vísun. Og hér að
Kjarvalsstöðum gefur einmitt að
líta vatnslitamyndir eftir Gúnther
Uecker sem hann málaði er hann
dvaldi uppi á Vatnajökli fyrir
nokkrum árum síðan. Þetta eru
því ekki nákvæmar útlistanir á
jöklinum heldur upplifun lista-
mannsins andspænis honum, sem
hann tjáir með myndgerð form-
leysismálverksins.
Þessar myndir, sem hér eru til
sýnis, voru gefnar út í bók ásamt
Ijóðum eftir listamanninn sem
einnig fjalla um nálgun hans við
jökulinn. Bókin verður til sölu á
sýningunni.
Sýning Gúnther Uecker verð-
ur opin daglega frá kl. 14-22,
fram til 29. 5. 1988.
Frá afhendingu styrkjanna á miðvikudaginn, Sólrún Jensdóttir formaður, Rúrí, Þórarinn Eldjárn, Birgitta
Spur (fyrir hönd Hlífar Sigurjónsdóttur) Elín Pálmadóttir, Björgvin Þ. Valdimarsson, Adda Bára Sigfúsdóttir
(fyrir hönd Kolbeins Bjarnasonar) og Róbert Arnfinnsson. Mynd - Sig
Til efíingar íslenskri menningu
Á miðvikudaginn fór fram ár-
leg úthlutun Menntamálaráðs á
styrkjum til menningarstarfsemi.
Styrkjunum er ætlað að efla ís-
lenska menningu, og vera þáttur í
viðleitni Menntamálaráðs til að
standast aukinn þrýsting frá er-
lendri menningu.
Menntamálaráð er stjórn
Menningarsjóðs og bókaútgáfu
Menningarsjóðs og er ráðið kosið
af Alþingi eftir hverjar þingkosn-
ingar. Þeir sem nú skipa ráðið eru
Sólrún Jensdóttir formaður, Ás-
laug Brynjólfsdóttir varaformað-
ur, Helga Kress ritari, Gunnar
Eyjólfsson og Úlfur Hjörvar.
Framkvæmdastjóri Menntamála-
ráðs er Einar Laxness.
Að þessu sinni voru veittir 8
dvalarstyrkir, þrír tónlistarstyrk-
ir, 20 ferðastyrkir, 10 styrkir til
vísinda- og fræðimanna.
Dvalarstyrkina, kr. 90.000,
hlutu Elín Pálmadóttir blaða-
maður og rithöfundur, til dvalar í
Frakklandi til að skrifa sögu
franskra sjómanna á skútuöld við
ísland. Erlingur Gíslason Ieikari,
til dvalaV í Danmörku við loka-
tökur og gerð sýningareintaks
kvikmyndarinnar Símon Pétur,
fullu nafni. Gylfi Gíslason mynd-
listarmaður, til dvalar í New
York og víðar í Bandaríkjunum
til að kynna sér myndlist. Hlíf
Sigurjónsdóttir fiðluleikari, til
dvalar í Sviss og Þýskalandi til
undirbúnings og þátttöku í al-
þjóðlegri fiðlukeppni í Sviss í ág-
úst á þessu ári. Kolbeinn Bjarna-
son flautuleikari, til dvalar í Hol-
landi til undirbúnings og æfinga
vegna einleikstónleika á Listahá-
tíð í júní. Róbert Arnfinnsson
leikari, til dvalar í Þýskalandi og
Bretlandi til að kynna sér leiklist
og sækja leiklistarhátíðir. Rúrí
(Þuríður Fannberg) myndlistar-
maður, til dvalar í Kaupmanna-
höfn vegna vinnu við gerð lista-
verks á Islandsbryggj u þar í borg.
Þórarinn Eldjárn rithöfundur, til
dvalar í Englandi við ritstörf og til
að kynna sér enskar bókmenntir.
Tónlistarstyrkina hlutu Ágústa
Ágústsdóttir söngkona, 30.000
kr.,til að láta vinna hljómplötu
með íslenskum og skandinavísk-
um sönglögum, Björgvin Þ.
Valdimarsson tónlistarmaður,
70.000 kr., til að gefa út hefti með
eigin píanólögum og Gunnar
Björnsson sellóleikari, 30.000
kr., til að láta vinna hljómplötu
með einleiksverkum Bachs fyrir
knéfiðlu.
Guðrún Kristín Magnúsdóttir
rithöfundur og teiknari fékk
40.000 kr. til fræðistarfa, 20.000
kr. til fræðistarfa fengu Ingólfur
Jónsson rithöfundur, Játvarður
Jökull Júlíusson rithöfundur, Jón
Gíslason fyrrverandi póstfulltrúi,
Jón Guðmundsson Fjalli, Pálmar
Kristinsson trésmiður, Skúli
Helgason Reykjavík, Valgeir
Sigurðsson Þingskálum, Þor-
steinn Matthíasson rithöfundur,
og Þórður Kárason fyrrverandi
varðstjóri. LG
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. maí 1988