Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2000, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2000
23
r töl !éi ii s: LU Lff
vun tík n i ■í 09 1W V í s i nda
WonderSwan Color á markaö í Japan:
300.000 eintök
seld fyrstu vikuna
- aöeins til í Japan
Japanskir unglingar eru hvað duglegastir allra unglinga að spila tölvulelki sem
gerir Japan að gósenlandi til að sjá hvort tölvur komi til með að meika það.
Fyrir skömmu
síöan kom á
markaðinn í
Japan ný teg-
und af lófa-
leikjavél sem
nefnist Wonder-
Swan Color. Þessi leikjavél er gerð
af fyrirtækinu Bandai og ætlar fyr-
irtækið sér stóra hluti á þessum
markaði sem Nintendo hefur haft
mikla yfirburði á. Síðasta leikja-
tölvan til að keppa við Game Boy-
vélina var NeoGeo-leikjatölvan
sem var slegin af eftir stutt stopp.
WonderSwan virðist vera að slá í
Einrs afþeim leikjum
sem eru fáanlegir fyrir
véiina strax er útgáfa
af leiknum víðfræga
Final Fantasy ogvirð-
ist sem það haffheld-
ur betur hjálpað
WonderSwan þar sem
leikurinn hefur selst í
jafnmörgum eintökum
og leikjavélin.
gegn hjá japönskum leikjavinum
því vélin hefur selst gríðarlega vel
eða í 300.000 eintökum á einni viku.
Einn af þeim leikjum sem eru fáan-
legir fyrir vélina strax er útgáfa af
leiknum víðfræga Final Fantasy og
virðist sem það hafi heldur betur
hjálpað WonderSwan þar sem leik-
urinn hefur selst í jafnmörgum ein-
tökum og leikjavélin.
Hvort að WonderSwan á eftir að
gera Nintendo einhvem alvarlegan
grikk á leikjamarkaðinum verður
að koma i ljós en hvað sem gerist
þá er öll aukin samkeppni til góðs
fyrir neytendur, ekki sist þegar eitt
fyrirtæki hefur haft yfirburðastöðu
á markaði í langan tima eins og í
þessu tilviki.
Ekki er ljóst hvort WonderSwan
kemur á markað í Evrópu eða
Bandaríkjunum og fer það örugg-
lega eftir því hvort vel gengur í
Japan.
Hakkari hakkar kortafyrirtæki
- og stelur kreditkortanúmerum
Hakkarar virð-
ast aldrei taka
sér frí og
stöðugt berast
fregnir af hökk-
urum að hakka.
I siðustu viku
tilkynnti fyrirtækið
Creditcards.com viðskiptavinum
sínum aö hakkari hefði komist í
gagnagrunn þeirra og komist yfir
fullt af kreditkortanúmerum.
Creditcards.com, sem sér um að
geyma kortanúmer fyrir alls kyns
netverslanir, sagði hakkarann hafa
reynt að kúga fé út úr fyrirtækinu
Það virðist ekki vera nóg að passa
upp á kortið sitt því hakkarar virðast
eiga greiðan aðgang inn í tölvukerfi
kortafyrirtækja.
með því að hóta því að birta kredit-
kortanúmerin á Netinu. Fyrirtækið
lét ekki undan hótunum hakkarans
og birti hann þá númerin á Netinu.
Creditcards.com hefur verið gagn-
rýnt fyrir að segja ekki frá málinu
fyrr og hafa margir viðskiptavinir
fyrirtækisins hætt viðskiptum viö
það vegna þess.
Þetta mál er ekki einstakt því á
síðasta ári gerðist sami hluturinn
hjá fyrirtækinu Salesgate.com sem
er svipað fyrirtæki og
Creditcards.com og hafa þessi mál
vakið athygli á lélegum öryggismál-
um fyrirtækja af þessu tagi.
PlayStation-leikurinn Driver 2:
Gallað framhald
- að mati margra netleikjamiöla
Einn vinsælasti
tölvuleikurinn
fyrir PlayStation
á síðasta ári var
án efa snilldar-
leikurinn Dri-
ver. Þar fór sam-
an frábær leikheimur og einstök
leikhæfni sem hélt mörgu leikjafrík-
inu fóstu í sófanum í nokkrar vikur.
Reflections, fyrirtækið á bak við
Driver, fór svo auðvitað út á þá
braut að gera framhald af leiknum
og er það komið út.
Eitthvað virðist Driver 2 fara öf-
ugt ofan í blaðamenn helstu net-
Það sem mest er
kvartað yfir eru tækni«
leg atriði eins og að
leikurinn hægi á sér í
mesta hasarnum, að
oft sjáist i gegnum
veggi og annað sem á
ekki að sjást í gegnum.
leikjamiðla og eru dómar um leik-
inn ansi slæmir. Ganga sumir svo
langt að segja Driver 2 vera mestu
vonbrigði ársins 2000.
Það sem mest er kvartað yfir eru
tæknileg atriði eins og að leikurinn
hægi á sér i mesta hasamum, að oft
sjáist í gegnum veggi og annað sem
á ekki að sjást í gegnum og svo að
byggingar skoppi upp eins og
gorkúlur fyrir framan spilarann þar
sem teiknifjarlægö leiksins sé engin.
Sumir segja Driver 2 sýna fram á
að PlayStation 1 sé bara orðin of
kraftlítil til að heilla menn með
graflskum flugeldasýningum.
Hvað svo sem er satt í þessu öllu
saman þá selst Driver 2 eins og
heitar lummur um allan heim og er
um að gera fyrir leikjavini að prófa
bara leikinn áður en hann er
keyptur.
Það er mat sumra að PlayStation 1 sé úr sér gengin grafíklega séð og þar
með virki leikir eins og Driver 2 ekki lengur á spilara.
Glæsilegt úrval
\ J Glæsilegt úrval af handunnum rúmteppum, dúkum, Ijósum og gjafavörum. Árshótíðadress fyrir börn og fullorðna, samkvæmisveski. . Matta rósin 20% afsl. .
r Ti í l Pelsar í úrvali
op» Sigurstjarnan virka daga 11-18, {fc>láu húsi við Fákafen. laugard. 11-16 Sími 588 4545.
Raðhús óskast
Raðhús í Staðahverfi í Grafarvogi óskast keypt.
Þurfa aö vera 3-4 svefnherbergi.
Tvöfaldur bílskúr æskilegur
en ekki nauðsynlegur.
sttSS,
Jlk
Upplýsingar í síma 893 3355.
14 ífguCísífirtfjripir.
*• „ 71965 W-l 0,04 W/SI I W V
27326 0,04 W/SI 6n ko«)ju 9850,*
\ T- t f-á» : 13459 Zfr. : 0,06 W/SI 1 13500,* ■ UJBMWItMMIUI '■'... ¥
‘Miíqð úrvaí af
demantsskartgrvpum
dfrábczru verði.
Sett með demöntum,
fráBcert verð.
(futfeða Fivítagutf.
Sendum myndalista.
<&,u
(dfyöttin
Laugavegi 49, sími 561 7740
JÓIdbækur
10-30% afsláttur
Sími 525 3000 • Skútuvogi 16
*Fylgir ekki með barnabókum
Moulinex blandari fylgir
hverri bók.*
HÚSASMIÐJAN
Smáauglýsingar
Markaðstorgið
—allt til alls
550 5000