Dagblaðið - 01.06.1981, Blaðsíða 22

Dagblaðið - 01.06.1981, Blaðsíða 22
22 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 1. JÚNÍ1981. g) i Menning Menning Menning Menning BATÍK SEM SLÍK r Um sýningu Katrínar Agústsdóttur Myndlist AÐALSTEINN INGÓLFSSON Batík ætti varla að þurfa að kynna fyrir fólki á íslandi á því herrans ári 1981; svo mjög sem hún hefur verið f tisku hér undanfarin ár. Menn flytja hana inn frá Austurlöndum, þar sem hún er upprunnin, eða framieiða hana hér heima í stórum stíl til að selja útlendingum. Ekki er þár með sagt að við eigum okkur marga frjóa listamenn í grein- inni því batík má nánast fjöldafram- leiða eins og svo margt annað. Ein af þeim fáu sem fengist hefur við ný- sköpun í batík hér á landi og vinnur af merkjanlegum metnaði er Katrín Ágústsdóttir sem þessa dagana sýnir með miklum myndarbrag að Kjar- valsstöðum (til 31. maí). Vax á dúk örfá orð um tæknina: Batík er ættuð frá Malasíu og byggist að nokkru leyti á því að blöndu af par- affínoliu og býflugnavaxi er hellt á dúk. Dúkurinn er svo litaður en litur- inn sest þá aðeins á þá hluta sem ekki eru þaktir vaxi. Hins vegar springa vaxfletirnir, liturinn rennur í gegn og þá verða til hinar sérkennilegu æð- ar sem setja svo mikinn svip á list- greinina. Að lokinni litun er vaxið fjarlægt með hita eða kemískum efn- um og þá má byrja upp á nýtt með öðrum litum. Þessu fylgir jafnan heilmikið púl og stendur batíkfólk heilu og hálfu dagana með handleggi upp að öxlum í litasúpum. Því hlýtur maður að undrast elju Katrínar sem fyllt hefur stóran sal með 70 verkum (sem hiýtur að vera einhvers konar alþjóðlegt met í batík) en auk þess hefur hún unnið fjölda kjóla með svipuðum hætti. Þótt áferðarfalleg sé hún hefur batíkin ýmsa annmarka sem mynd- list. í vinnslunni mýkjast nefnilega allir litir sem notaðir eru, skil verða ekki skörp og einfalda verður bygg- ingu mynda. Menn hafa því freistast til að spila sérstaklega á þá eiginleika til að framleiða innantómt skraut. Flest af því sem hér er til sölu í versl- unum er einmitt af því tagi. Mitt á milli Aðrir, þ.á m. Katrín, hafa gert sér far um að skapa marktæka og nú- tímalega myndlist i þessum miöli, m.a. með þvi að hvíla burstabæina, álfana og búsmalann en fjalla þess i stað um bílinn, borgarlif og há- spennukapla. Þessi þróun hefur verið mjög skýr og áberandi í verkum Katrínar, frá sýningu hennar árið 1973 og til þessa dags. Nú gerir hún djarfa tilraun til að hasla sér völi mitt á milli batikur og málverks, utan við meginstrauma skreytikenndrar batíkur. Gerir hún þetta með þvi að tileinka sér nokkra eiginleika afstraktmálverksins: hina hreinu fleti, einfaldar áherslur og umfangið. Sem fyrr er ísland sam- tímans myndefnið — landslag, fólk á ferð, bilismi, hestamenn, uppstilling- ar. Guðsgjöf skreytimeistara Hefur hún erindi sem erfiði? Satt að segja er ég ekki viss um það. í batfk er erfitt að koma í veg fyrir að fletir mynda brotni upp í ótal eining- ar sem dreifa athygli áhorfandans frá þungamiðju hvers verks, sömu- leiðis er erfitt að vinna litina með öðrum hætti, þannig að þeir mýkist ekki, bæði að styrk og i jöðrunum. Þessi atriði takmarka óneitanlega tjáningarmöguleika batíkur í alvar- legri, hálffígúratífri myndlist eins og þeirri sem Katrín leggur stund á, gerir t.d. alla tjárungu „atmosferu” næstum ómögulega. En þessir„gall- ar” batíkur eru skreytimeisturum náttúrlega mikil guðsgjöf. Þar sem mér fannst Katrín komast einna næst því að skapa marktæk myndverk í batík — og þá með demp- uðum litum og stífri myndbyggingu — var í myndum eins og Vatnavextir (nr. 27), Blástör (nr. 33), Undir jökli (nr. 36), Haustkvöld (nr. 40) og Hólafjöll (nr. 52). Þann mikla metn- að sem fram kemur í risadúkum lista- konunnar frá 60—67 ber.að þakka fyrir. En þótt hér sé efast vona ég að Katrín láti ekki deigan síga og taki til athugunar fleiri möguleika, t.d. hugsanleg tengsl batíkur og silki- þrykks. -AI. ' .. Katrin Ágústsdóttir ásamt tveimur dúkasinna. ✓ Tónlist Pianótónlolkar á vegum Tónlistarféiagsins í Austurbœjarbfói 22. mal. Ftytjandur: Gfsli Magnússon og Halldór Har- aldsson. Efnlsskró: Brahms: Sónata I f-moll op. 346; Rachmaninoff: Fantasla op. 6; Ravel: Rapsodle Espagnole. Gísli Magnússon og Halldór Har- aldsson eru landsþekktir fyrir sam- leik sinn á tvær slaghörpur. Lítið hefur heyrst frá hvorum um sig um hrið, af eðlilegum orsökum, og því var það ærið tilhlökkunarefni í þeirri tónleikalægð sem myndast hefur við brottför Sinfóníunnar að Tónlistarfé- lagið skyldi bjóða upp á tónleika með Gísla og Halldóri. í Brahms sónötunni lögðu þeir alla áherslu á glæsileikann. En einmitt í þessari sónötu, millistigi á milli kvint- ettanna tveggja, má svo auðveldlega finna samsvörun með Brahms og Grími Thomsen. Báðir hlutu að þola samanburð við önnur skáld sem' létt- ara var um mál og i minna stríði áttu við að binda verk sín í endanlegt form. En beggja verk standa líka Halldór Haraldsson og Gísli Magnússon. jafnóhagganleg í endanlegum frá- gangi. Undir flosmjúku yfirborði í fantasíu Rachmaninoffs blés rómantískur hnúkaþeyr verkið í gegn. Sérstaklega tókst þeim félögum vel upp í klukkuhljómshermunum í lokaþættinum. að lokum léku þeir kumpánar Rap- sodie Espagnole. Píanóútsetning Ravels er meistaraverk og þeir fóru um hana höndum sem slíka. Leikur þeirra var glæsilegur og hnitmiðaður frá upphafi til enda. í þeim verkum Ravels sem hann helgar sínum hálf- spænska uppruna er ætíð að finna þóttafullan og hörkulegan undirtón undir flosmjúku yfirborðinu, sem er sagður valda því að Spánverjum falli þau vel í geð og telji sína músík. Tvær slaghörpur eru vandmeð- farin hljóðfæraskipan. Litið má út af bera f leik til að ekki fari þær hreint og beint að minna á tvær jarðýtur. Leiki hins vegar tveir góðir píanistar, sem finna samhljóm hvor með öðrum, er sú skipan afar skemmtileg. Þannig er því varið með Gfsla og Halldór. Það er merkis listviðburður í hvert sinn sem þeir halda tónleika saman. -EM. Tvær slaghörpur

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.