Frjáls verslun - 01.05.1944, Blaðsíða 10
Árni Jónsson frá Múía:
LUIS ZÖLLNER
n í r æ ð u r
F ramhald
Um þessar mundir eru liðin rétt sextíu ár frá
því „Islandssaga" Louis Zöllner hófst.
Það var kvöld eitt, haustið 1884, að Zöllner
sat í húsakynnum taflfélags Norðymbralands i
Newcastle og tefldi skák. Hann var þá þegar
orðinn kunnur af taflmennsku sinni og horfðu
því jafnan margir á, er hann tefldi. Að þessu
sinni þreytti hann íþrótt sína við svo slyngan
andstæðing, að ekki þótti með öllu sýnt, hversu
leikar færu. Eftir því sem nær dró úrslitum
bættist stöðugt í hóp áhorfenda. Meðal annars
var þar kominn ungur maður ókunnur, hár
vexti og fríður sýnum, vel búinn og fyrirmann-
legur. Þegar taflinu var lokið víkur þessi mað-
ur sér að Zöllner, heilsar honum hæversklega,
nefnir nafn sitt og kveðst eiga við hann erindi.
Zöllner tók komumanni hið bezta og ræddust
þeir við um stund, en ákváðu að lokum að hitt-
ast morguninn eftir á skrifstofu þeirra bræðra,
Andreas og Louis Zöllner. Þetta var Jón Vída-
lín, síðar félagi Zöllners og ræðismaður Breta
á íslandi.
Jón Vídalín var þá tuttugu og sjö ára að aldri.
Hann var fæddur 6. september 1857, sonur hjón-
anna Páls bónda og alþingismanns Vídalín og
Elínborgar Friðriksdóttur Eggerz, prests í Ak-
ureyjum. Ólst hann upp á ættaróðali Vídalín-
anna, Víðidalstungu. Sextán ára gamall missti
hann föður sinn og réðst þá starfsmaður til
Borðeyrarverzlunar. Tveim árum síðar fór hann
utan og gekk á verzlunarskóla í Kaupmanna-
höfn. Að námi loknu réðst hann bókhaldari til
Gránufélagsverzlunar á Raufarhöfn, en hafði
þar ekki langa dvöl. Rúmlega tvitugur tekur
hann að reka verzlun í Reykjavík í félagi við
frænda sinn, Pál Eggerz. Verzlun sú varð ekki
langlíf, og urðu þeir frændur gjaldþrota.
Jón Vídalín.
Skömmu síðar gerði Vídalín ferð sína norður
í Þingeyjarsýslu að heimsækja móður sína, sem
nú var gift séra Benedikt Kristjánssyni í Múla.
Þetta var sumarið 1883. Varð það úr að Jón var
um kyrrt hjá móður sinni og stjúpa næsta miss-
erið.
10
FRJÁLS VERZLUN