Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 21
inum 17. júníí fyrra. Meðan svo er sjá
þjónustuaðilar Internetsins ekki fram
á að erlendum fyrirtækjum muni
þykja ýkja fýsilegt að tengjast Islandi í
viðskiptalegum tilgangi. Til þess sé
sambandið enn of lélegt. Vonast er til
að Póstur og sími hleypi Internetsam-
bandinu urn sínar öflugur línur og
breyti gjaldskrárstefnu sinni sem
miðar við að tölvusamband sé jafn
þungt og talsamband, þótt reyndin sé
allt önnur, tölvusambandinu í hag. Þá
fyrst verði sprenging í notkun Intern-
etsins í viðskiptalegum tilgangi
Miðheimar hf
AÐGANGUR AÐ ÖLLUM
MÖRKUÐUM HEIMS
Hér á landi fór Internetið verulega að teygja möskva
sína yfir landið við stofnun Miðheima hf. sem eru til húsa í
Tæknigarði á Háskólalóðinni. Þá komst hinn almenni
tölvunotandi á íslandi fyrst í samband við umheiminn, þó
auðvitað hafi „tölvufríkin" löngu verið komin í samband við
Internetið.
Miðheimar er leiðandi fyrirtæki þar sem Intemetið er
annars vegar. í mánaðargjaldi er innifalin einnar klukku-
stunda notkun á Internetinu á dag. Sé sá klukkutími ekki
nýttur dettur hann dauður niður. Þetta er gert, að sögn
Miðheimamanna, til að dreifa álaginu um heldur afkastalitl-
ar símalínur Pósts og síma úr landinu. Með stofngjaldinu
fylgja tveir disklingar með Netscape-forritinu og íslenskur
leiðbeiningabæklingur. Viðkomandi fær einnig notenda-
nafn og númer, svokallað netfang sem er eins og heimilis-
fang á Intemetinu.
Um 300 fyrirtæki eru tengd Internetinu um Miðheima í
dag og nokkur þúsund einstaklingar. Dag hvern bætast
nýir Internetsnotendur í hópinn en þar á bæ eru skráðar
um 90 þúsund Intemetsheimsóknir á viku.
„Fyrirtæki nota Internetið gjarnan til að kynna sig og
ganga þá skrefi lengra en með hefðbundnum auglýsingum.
Þau geta notað Internetið í stað hefðbundinna kynningar-
bæklinga og þá notfært sér tvíátta samskiptamöguleika
við viðskiptavinina. Fyrirtækin hanna þá sínar eigin heima-
síður, til dæmis með merki fyrirtækisins og þeim vöru-
merkjum sem það vill kynna. Hins vegar sjáum við um að
koma hönnuðum heimasíðum í það form sem tækt er á
Internetinu," segir Róbert Bjamason hjá Miðheimum.
Róbert segir Intemetið opna leið fyrirtækja að viðskipt-
um um víða veröld. „Með jafn lítilli fyrirhöfn og tengingu
við Internetið fá fyrirtæki og einstaklingar aðgang að öllum
mörkuðum heimsins. Sem dæmi um umfang viðskiptanna
á Internetinu og þróunina má nefna að í Bandaríkjunum
voru seldar vörur fyrir um 3 milljónir dollara 1993. í fyrra
hafði þessi tala hins vegar hundraðfaldast, var komin í 300
milljónir dollara."
„Hefðum við þurft að fara
hefðbundna pappírsleið í
dreifingu hugbúnaðarins
hefðum við ekki haft efni
á að standa í þessu. “ —
Friðrik Skúlason sem
rekur samnefnt fyrirtæki
Eimskiþ
ÞJÓNUSTU-
UPPLÝSINGAR
INTERNET
Eimskip hefur þegar tengst Inter-
netinu. Með því að kalla fram heima-
síðu Eimskips má nálgast ýmsar þjón-
ustuupplýsingar eins og heimilisföng
umboðsmanna heima og erlendis og
upplýsingar um flutningskostnað, til
dæmis fýrir námsmenn sem eru að
flytja heim frá útlöndum. Hjá kynningardeild Eimskips
fengust þær upplýsingar að þeir væru með sérstaka
fyrirspumasíðu fyrir tölvupóst. Talsverð notkun væri á
síðum Eimskips en viðskiptavinir félagsins væru að byrja
að átta sig á möguleikum Internetsins.
„Menn eru ánægðir með þennan möguleika en þurfa
smátíma til að átta sig á þessum nýja möguleika í samskipt-
um við okkur. Það er ekki svo margir af okkar viðskipta-
vinum tengdir Internetinu ennþá en það verður væntan-
lega sprenging á því sviði,“ sagði Kristján Jóhannsson hjá
markaðsdeild Eimskips.
Markaðurinn
Þau tengja þig Internetinu
- og þjónusta þaö fyrír þig
1. Skíma hf.
2. Miðheimar hf.
3. Menn og mýs hf.
4. Nýherji hf.
5. Margmiðliun hf.
6. Netverjar hf.
7. Strengur
8. Islenska menntanetið hf.
9. SURIS
(samtök upplýsinganetsrannsókna
á íslandi. Tengir en þjónustar ekki)
Friðrik Skúlason
ÚTFLUTNINGUR ÁN
SKRIFFINNSKU
Friðrik Skúlason rekur samnefnt fyrirtæki sem sérhæf-
ir sig í gerð hugbúnaðar, dreifingu hans og sölu. Friðrik
21