Vísir - 30.04.1971, Blaðsíða 1
mmm
Bílatryggingar hækka ekki
R'ikisstjórnin gerir tryggingafélögum aö
halda óbreyttum ábyrgbartryggingum bifreiða
a.m.k. fram til 1. sept. — Seldu ekki
tryggingar
0 Ríkisstjórnin ákvað
á fundi sínum í gær
að taka ekki til greina
beiðni tryggingafélag-
anna um 43,9% hækkun
iðgjalda ábyrgðartrygg-
inga bifreiða. Ákveðið
var, að ábyrgðartrygg-
ingarnar skyldu ekki
hækka fyrst um sinn eða
tfl 1. september n.k. og
er því hugsanlegt, að
í morgun
tryggingarárið verði að-
eins þar til þá. í morgun
var ekki unnt að fá bif-
reiðatryggingar keyptar
hér í Reykjavík, en óvíst
er, hvort tryggingafélög-
in grípi til einhverra sér-
stakra ráðstafana. —
Heyrzt hefur, að þau
hugleiði að leggja niður
þessa tryggingagrein.
Það sem £ ratin og veru hefur
gerzt er, að stjórnvöld treysta
sér ekki til að ákveða um hækk-
anir á þessum tryggingum á
grundvelli þeirra upplýsinga
sem fyrir liggja, aö því er Egg-
ert G. Þorsteinsson, trygginga-
málaráðherra sagði í viötali við
Vísi í morgun. Niðurstaðan varö
því sú_ að skipuð yröi nefnd,
þar sem tryggingafélögin til-
nefndu einn fulltrúa, Félag ísl.
bifreiðaeigenda annan, en Efna-
hagsstofnunin oddamanninn.
Þessari nefnd er ætlað að kanna
gaumgæfilega þörf trygginga-
félaganna fyrir hækkun og
vinna að samræmingu á reikn-
ingsuppsetningu félaganna.
Óvíst er_ hvort tryggingafé-
lögin grípa til einhverra ráð-
stafana, en að því er Ólafur B.
Thors hjá Almennum trygging-
um sagði í viðtali við Vísi i
morgun, voru forráðamenn allra
tryggingafélaganna á fundi I
morgun til að ræöa málin. —
Hann sagði, að þessa stundina
tæki félagið ekki við nýjum við-
skiptavinum, enda myndi trygg-
ing tekin í dag aðeins gilda tH
kvölds. — Þeir bifneiðaeigendur
sem nó eru tryggðir hjá félög-
unum geta hins vegar verið ró-
legir fram til 15. mai', en alveg
óvfst er hvað við tekur eftir
þann tíma.
Ólafur sagði, að samkvæmt
lögum yrði tryggingarárið að
vera frá 1. maí til 1. maí
Tryggingafélögunum væri enn
ókunnugt um hvort fengizt að
stytta tryggingarárið, en til þess
þarf reglugerðarbreytingu. —
Undir venjulegum kringumstæð-
um geta tryggingafélögin látið
stöðva allar bifreiðir eftir miðj-
an maf, ef ábyrgðartrygging hef-
ur þá ekki verið greidd af þeim,
en óvíst er hvernig tekið verður
á málunum. — VJ
Ox viður af Vísi
— Dagblað i 60 ár — Saga Visis komin jt
■ 60 ára saga Dagblaðsins Vísis rblaðið, hefur unnið að samn-
hefur nú verið rakin í bók, ingu þessarar bókar undanfarið
sem kemur út um þessar mund- ár. Nefnist hún „Óx viður af
ir. Axel Thorsteinsson, blaða- Vísi“ og er þar rakin saga blaðs-
maður og rithöfundur, sem ins frá upphafi, tildrögin að
lengst allra hefur starfað við stofnun þess og lítillega drepið
á fyrri tilraunir tH þess að
stofna dagblöð í Reykjavík.
Verzlanir opnar tvisvar til klukkan tíu?
ur.
Verzlunarmannafélag Reykjavik-1 hafa lagt til í uppkasti að nýrri | ana £ Reykjavík, að verzlanir verði
■ Kaupmannasamtökin og Kron reglugerð um afgreiðslutíma verzl hafðar opnar til klukkan tíu á
Dimittendi Kennaraskólans flengja með hríslum skólasystkini sín og kennara, þegar þau
ganga inn í skólann.
SVEFNPURKUR FLENGDAR
• „Of seinn, of seinn —
of seinn!“ sönglaði hundraða
radda kór, sem safnazt hafði
saman i raöir viö innganginn í
kennaraskólann £ morgun og
takturinn var sleginn með hrisl-
um á bökum þeirra, sem gengu
á milli raðanna inn í skólann.
Fundu þar fyrir vendinum jafnt
kennarar sem aðrir.
í fylkingum höfðu þau komið
tll skólans i morgun, um 300
kennaraefni, sem ljúka kennara-
eða stúdentsprófi í vor. Hver
bekkur hafði safnazt saman á
ákveðnum stöðum liér og þar í
bænum og gengið síðan fylktu
liði í skólann undir áletruðum
spjöldum, þar sem ga-f að líta
slagorð eins og: „Einn fyrir alla
— allir fyrir einn!“
Þau dimittera í dag. — Síð-
asti kennsludagur var í gær og
upplestrarfríið er byrjað, en eft-
ir helgí hefjast prófin. — GP
kvöldin tvtsvar í viku, þriðjudags-
kvöld og föstudagskvöld. Kvöld-
sölur verði lengur opnar. Væntan-
Iega tekur borgarráð þetta mál fyr
ir fljótlega.
Mikil óánægja er nú meðal verzl
unarfólks um núverandi opnunar-
tíma verzlana og vinnutíma verzl-
unarfólks. Fundur um það efni var
haldinn f Verzlunarmannafélaginu
f gærkvöldi. Guðmundur H. Garð-
arsson formaður félagsins sagöi i
viðtali við Vísi í morgun, að mikil
brögð hefðu verið að þvi undan-
fama mánuði, að verzlanir hefðu
opið með þeim hætti að það bryti
í bága við ákvæði í samningum fé-
lagsins um dagvinnutíma og lokun-
artíma verzlana. „Það er geysilega
mikil óánægja hjá verzlunarfólki
yfir hinum lengda vinnutíma og
sérstaklega þegar það sér fram á
það, að ef þessu heldur áfram
verði það að vinna á laugardögum
til kliukkan fjögur og jafnvel t.il
klukkan sex, þegar aðrir eiga frí
og njóta þessa stutt.a sumars, sem
við höfum. Niðurstaða fundarins
var sú, að samþykkt var heimild til
stjómar félagsins um yfirvinnu-
bann.
Hjörtur Jónsson formaður Kaup
mannasamtakanna sagði að reynt
heföi verið í uppkastinu að hinni
nýju reglugerð að ganga hvorki
á hlut verzlunarfólks né neyt-
enda. „Okkur finnst engin ástæða
til þess að verzlunarfólk, bæði
kaupmenn og starfsmenn þeirra
hafi lengri vinnutíma en aðrar stétt
ir og er óeðlilegt að við séum verr
settir en aðrir í þeim efnum“. Þá
sagði Hjörtur að gert væri ráð fyrir
því í uppkastinu að almennt yrðu
verzlanir kaupmanna ekki opnar
á helgidögum og verzlunum öðr-
um en kvöldsölum lokað klukkan
tólf á laugardögum nema blómabúð
iim og mirijagripaverzlunum, sem
verði með eirihver frávik — SB,
Axel Thorsteinson.
Dagblaðið Vísir var stofnað af
Einari Gunnarssyni árið 1910. Blað-
ið hóf göngu sina 14. desember
og hét þá Vísir til Dagblaðs í
Reykjavík. — 14. febrúar 1911
byrjar Vísir að koma út reglulega
sem dagblað og hefur komið út
óslitið síöan, elzt allra hérlendra
dagblaða.
Axel Thorsteinsson segir í eftir
mála bókarinnar að gamli tíminn
hafi orðið honum hugstæðari þvi
lengur sem hann hugleiddi verk
sitt. í bókinni eru því fyrstu starfs-
árum blaðsins gerð bezt skil, en
stiklað á stóru þegar kemur að
þeim tímum, sem enn eru í fersku
minni margra.
,,Óx viður af Vísi“ er 205 blað-
síður, í bókinni eru myndir af öllum
helztu starfsmönnum blaðsins frá
fyrri tíð, auk þess myndir a,f mörg
um eftirminnilegum fréttasíðum.
BÓkin er prentuð í Leif.tri, en bóka
útgáfan RQktear hefur aöafeöluum-
boð. —JH