Pressan - 25.10.1990, Blaðsíða 22

Pressan - 25.10.1990, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. OKTÓBER 2500 ára gömul alþýðulist Alþýðuleikhúsið frumsýnir Med- eu eftir Evripídes í Iðnó 2. nóvem- ber, en um að ræða 2500 ára gamalt leikverk í þýðingu helga hálfdan- arsonar. Leikstjóri er inga BJARNASON. Auk sýningarinnar á verki Evripídesar gefur Mál og menning út 32 tvö verk á bók úr harmleikjum eftir Aristótels, Ekilos, Evripídes og fleiri í þýðingu Helga. Hreinn Friðfinnsson með sýningu í París Myndlistarmaðurinn Hreinn Frið- finnsson hefur öðlast töluverða við- urkenningu í Evrópu. Sýning á verkum hans var opnuð þann 20. október í Gallerí Claudine Papillon í París. Árið 1977 tók Hreinn þátt í opnunarsýningu Pompidou-safnsins í París og 1987 efndi Magazine í Grenobles til sýningar á verkum hans, sem vakti mikla hrifningu í frönsku listapressunni. Helgi Þorgils í vinnustofu sinni hjá Coca Cola: „Ég er svo mikill „nationalisti" í eöli mínu, aö ég held ég fari ekkert að marki út fyrir landsteinana." Konráð béá toppnum „Við teljum okkur vera búin að meika það. Draumurinn var alltaf að fá aö spila á Sögu," sagði Bogo- mil Font, söngvari djasshljóm- sveitar Konráðs Bé, í samtali við PRESSUNA, en Bogomil er betur þekktur sem Sigtryggur Bald- ursson, trommuleikari Sykur- mola. Þessi langþráði draumur Konráðs Bé varð að veruleika síð- astliðið fimmtudagskvöld er hljómsveitarmeðlimir stigu á svið- iö á Sögu fyrir framan fjölda áhorfenda. „Hugmyndin varð til á ferðalagi Sykurmolanna í Júgóslavíu, en þá fór Bragi (bassaleikari Sykurmol- anna) að tala um að sig hefði alltaf langað til að verða trommuleikari í djasshljómsveit. Um svipað leyti uppgötvaði ég að mig hafði alltaf langað til að verða söngvari. Því ákvað ég að koma út úr sturtunni,“ sagði Sigtryggur í samtali við PRESSUNA að loknum hljómleik- unum. Hljómsveitin ber nafn Braga Ól- afssonar, en Bragi hefur notað nafnið Konráð Bé við márgvísleg tækifæri. Auk hans og Sigtyggs eru í bandinu tíu_til tólf aðrir, þar á meðal Einar Örn súpersykur- moli, sykurmolarnir Björk Guð- mundsdóttir, Margrét Örnólfs- dóttir, risaeðlurnar Dóra Won- o der, Magga Stína og ívar, en í ui Konráði Bé leika menn við hvern „Ákvaö aö koma út úr sturtunni," segir Bogomil Font, betur þekktur sem s'nn ^'n8ur. gjarnan á önnur hljóð- Sigtryggur Baldursson sykurmoli. fær' en hingað til. Helgi Þorgils gerir það gott á Italíu — Fjórar sýningar ráðgerðar, þar af tvær í desember. ítölsk- um galleríum þykir ein milljón króna ekkert tiltökumál fyrir mynd eftir Helga. Tvœr sýningar á verkum Helga Þorgiis Friðjónssonar verða sett- ar upp á Ítalíu í desember og sú þriðja í mars. Þegar er búið aö ráð- gera fjórðu sýninguna á nœsta sýn- ingarári. Helgi Þorgils var fulltrúi ís- lands á tvíœringnum í Feneyjum og vöktu myndir hans mikla athygli og seldust allar. Gallerí Toselli íMílanó, sem er eitt stœrsta og viðurkennd- asta gallerí í Evrópu, keypti helming verka Helga á sýningunni og nú sýn- ir hann þar í desember auk þess sem sett veröur upp sýning í borginni Perugia. Helgi Þorgils hefur ekki átt upp á pallborðið hjá íslenskum listaverka- kaupendum, seldi t.d. ekki eitt ein- asta verk í tvö ár og hefur nær ein- göngu selt verk sín til íslenskra lista- safna. Nú bregður svo við að myndir hans seljast á um eina milljón króna til erlendra aðila. „Þetta fer auðvit- að eftir stærð myndanna," svaraði Helgi af hógværð þegar PRESSAN bar þetta undir hann. „Þegar maður selur úti fær maður einungis 50% af verði myndanna," bætir hann við. Þú ert sem sagt að mála á fullu núna upp í sýningar? „Ég vinn ekkert meira en venju- lega. Yfirleitt vinn ég svipað og verkamaður, kannski heldur meira." Vinnustofa Helga Þorgils er í skrif- stofuhúsnæði Vífilfells (Coca Cola á íslandi) við Hofsvallagötu, en Lýður bróðir hans er framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Nú stendur til að selja húsnæðið og þarf Helgi að finna sér nýja aðstöðu. PRESSAN spurði hann hvort hann gæti hugsað sér að flytja út og vinna þar. „Þeir hafa boðið mér að koma og vinna þar í framtíð- inni, en ég er svo mikill „national- isti“ í eðli mínu, að ég held ég fari ekki að neinu marki út fyrir land- steinana." Þarftu ekki fljótlega að fá þér að- stoðarmenn? „Nei, en þeir spurðu mig hins veg- ar hversu marga ég hefði,“ svarar Helgi og brosir. „Þeir hringdu hing- að þegar þeir voru búnir að komast að því hvar ég væri og töluðu við konuna sem vinnur á símanum. Þeim fannst ekkert óeðlilegt að ég hefði sérstaka manneskju sem tæki við skilaboðum. Það sýnir kannski best þann aðstöðumun sem lista- menn búa við.“ Brynhildur Glerskúlptúrar með rætur í pönkinu Stór sýning á verkum brynhild- ar þorgeirsdOttur hefst á Kjar- valsstöðum á laugardag, en Bryn- hildur hefur síðustu ár verið búsett í Bandaríkjunum. Brynhildur er framsækin í listsköpun sinni, enda á hún um margt öðruvísi bakgrunn en venjulegir myndhöggvarar, hef- ur t.d. ekki hefðbundna mynd- höggvaramenntun. Eftir nám í Myndlista- og handíðaskóla íslands lagði hún stund á gleriist og hefur síðan unnið út frá möguleikum glersins í höggmyndalistinni. Á sín- um tíma var Brynhildur undir sterk- um áhrifum frá pönk- og nýbylgju- straumum og á það sinn þátt í því að gera formheim hennar sérstakan í íslensku samhengi. S.ÞÓR

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.