Morgunblaðið - 19.06.2005, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.06.2005, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Einar Arnórsson ráðherra hélt af staðtil Kaupmannahafnar á konungs-fund með skipinu „Vestu“ hinn 25.maí 1915 með ýmis frumvörp semAlþingi hafði samþykkt en þörfn- uðust undirskriftar konungs til að verða að lögum. Meðal þeirra var frumvarp um kosn- ingarétt kvenna. Eftir nokkrar tafir á höfum úti lagðist „Vesta“ við bryggju í Kaupmanna- höfn hinn 7. júní. Ráðherra Íslands var skylt að mæta á fundi danska ríkisráðsins ef hann var í Kaupmannahöfn, jafnvel þótt hann hefði ekkert mál að leggja fram. Í þetta sinn hafði ráðherra mikilsverð mál að bera undir konung og hélt því á næsta boðaða fund sem haldinn var í ríkisráðinu danska hinn 19. júní. Þar skrifaði konungur undir ný stjórnskipunarlög frá Alþingi. Þar með var kosningaréttur kvenna á Íslandi í höfn, þótt með miklum tak- mörkunum væri. Konur kætast Þegar tíðindin bárust með símanum til Ís- lands ákváðu Kvenréttindafélag Íslands og Hið íslenska kvenfélag að halda minning- arhátíð og fengu með sér formenn flestra kvenfélaga í Reykjavík. Setja átti Alþingi hinn 7. júlí og konurnar ákváðu að gera sér daga- mun þann dag. Minningarhátíðin fór fram á Austurvelli og hófst kl. 5.20 síðdegis með því að fylking kvenna raðaði sér upp í Barna- skólagarðinum og hélt af stað„í skínandi sól- skini og stafalogni og gleðibrag á öllum andlit- um“ eins og Bríet Bjarnhéðinsdóttir skrifaði í blað sitt, Kvennablaðið. Fremst gengu 200 ljósklæddar smámeyjar með litla íslenska fána í höndum sér en á eftir kom aðalfylkingin og gengu 3 konur samhliða. Fyrir göngunni fór hornaflokkur og lék ýmis íslensk lög. Fylk- ingin gekk eftir Lækjargötu, Austurstræti, Pósthússtræti og Kirkjustræti og inn á Aust- urvöll sem var allur fánum skreyttur. Sendi- nefnd kvenna gekk inn í þinghúsið með ávarp frá íslenskum konum á fund sameinaðs þings. Ingibjörg H. Bjarnason las upp skrautritað ávarp til þingsins. Forseti Sameinaðs Alþingis, sr. Kristinn Daníelsson, þakkaði með stuttri ræðu og sömuleiðis ráðherra, Einar Arn- órsson. Síðast bað séra Sigurður Gunnarsson konur lengi að lifa og tók þingheimur undir það með þreföldu húrra. Eftir þessa athöfn í þinghúsinu var tekið til við hátíðahöldin á Austurvelli þar sem söng- flokkur kvenna söng kvæði sem Guðmundur Magnússon orti í tilefni dagsins, lesið var upp skeyti til Kristjáns konungs X og drottningar frá kvennafundinum og ávarpið til Alþingis. Síðan fluttu þær Bríet Bjarnhéðinsdóttir og Ingibjörg H. Bjarnason ræður en á milli var sungið kvæði eftir frk. Maríu Jóhannsdóttur. Að lokum var sungin Eldgamla Ísafold. Um kvöldið var svo hátíðarsamkoma í Iðnó og var öllum heimilt að koma sem það vildu og veitt kaffi, te, mjólk og gosdrykkir. Þessi minningarhátíð er athyglisverð fyrir margar sakir. Samkoman var ein sú fjölmenn- asta sem sést hafði hér á landi, ef ekki sú fjöl- mennasta – og aldrei höfðu áður sést svo margar og jafn prúðbúnar konur. Þá er þetta sennilega í fyrsta sinn sem íslenski fáninn eins og við nú þekkjum hann var hafður uppi við opinbera samkomu sem viðurkenndur sérfáni Íslands, en Kristján konungur X hafði einnig undirritað frumvarp um sérfána Íslands hinn 19. júní. Smámeyjarnar héldu allar á íslenska fánanum, Austurvöllur var fánum skrýddur og sömuleiðis Iðnó þar sem íslensku flöggin og ís- lensku litirnir voru yfirgnæfandi bæði á borð- unum undir veisluföngin og salurinn allur. Minningarhátíðin var því eins „íslensk“ og hugsast gat. Hinn séríslenski „búhnykkur“ Annað „íslenskt“ atriði stingur hér mjög í stúf. Íslenskar konur fengu að sönnu kosn- ingarétt hinn 19. júní 1915 – en aðeins þær sem voru 40 ára og eldri. Samtímis fengu vinnu- menn kosningarétt með sömu skilyrðum og konur. Þetta hlýtur að vekja þeim mun meiri athygli sem engin önnur þjóð, hvorki fyrr né síðar, beitti viðlíka aldursákvæði í lögum sín- um um kosningarétt kvenna. Nýsjálenskar konur öðluðust kosningarétt fyrstar kvenna í veröldinni árið 1893 og um svipað leyti unnu konur kosningarétt í ein- staka ríkjum Bandaríkjanna. Árið 1903 unnu ástralskar konur kosningarétt til sam- bandsþingsins í Ástralíu. Finnskar konur fengu kosningarétt fyrstar Evrópukvenna 1906 og árið 1907 fengu norskar konur kosn- ingarétt, þó með því skilyrði að vera giftar skattgreiðanda eða greiða nokkurn (lágan) skatt sjálfar. Algengt var að skattgreiðslur væru skilyrði fyrir kosningarétti í sveit- arstjórnum en slík ákvæði hurfu úr lögum þeg- ar kom fram á 20. öldina og aðeins í Noregi var slíku ákvæði beitt í þingkosningum. Heims- styrjöldin fyrri, aðdragandi hennar og eftirmál stöðvuðu kosningaréttarmálið um hríð en eftir 1920 voru flest lönd í Evrópu sem og Banda- ríkin komin með kosningarétt kvenna. Bríet Bjarnhéðinsdóttir sagði í Kvenna- blaðinu 7. maí 1915 að allir stjórnmálaflokkar í Danmörku hefðu komið sér saman um að taka upp „hinn nafnfræga, íslenzka, stjórnvizkulega búhnykk“ að veita konum ekki fullan kosn- ingarétt heldur skammta þeim hann úr hnefa, líkt og á Íslandi. Þessi skilningur hefur með einhverjum hætti ratað inn í fræðirit. Danskar konur fengu hins vegar kosningarétt 5. júní 1915 með sömu skilyrðum og karlmenn. Aldurstakmark settu aðeins tvær þjóðir: Ís- land og Bretland. Í Bretlandi var markið sett við 30 ára aldur árið 1918 en á Íslandi við 40 ára aldur árið 1915. Aldursmarkið skyldi lækka um eitt ár á ári þannig að árið 1931 stæðu konur og karlar jafnfætis að þessu leyti. Engin fordæmi finnast fyrir viðlíka ákvæði í veröldinni og því hlýtur að vakna sú spurning hvaðan það er sprottið. Hvaðan kom þing- mönnum norður í Dumbshafi sú hugmynd að njörva þingskosningarétt kvenna niður við 40 ára aldur – og það tiltölulega skömmu eftir að þeir höfðu samþykkt kosningarétt kvenna í sveitarstjórnum um allt land án viðlíkra skil- yrða? Það má svo bæta því við að ekki verður betur séð af umræðum á Alþingi en að þing- menn hafi verið býsna vel upplýstir um gang mála úti í heimi um kosningarétt kvenna. Ekki verður því fáfræði um kennt. Ótti við kvennaflokk Árið 1911 hafði Alþingi samþykkt frumvarp sem gerði ráð fyrir jöfnum atkvæðisrétti karla og kvenna til Alþingis. Í umræðum um frum- varpið lagði Jón Jónsson í Múla fram breyting- artillögu þess efnis að konur skyldu fá kosn- ingarétt, en við 40 ára aldur. Rök Jóns voru þau helst að óráðlegt með öllu væri að fjölga kjósendum um 2/3 hluta í einu. „Engin mennt- uð þjóð hefur þorað að gera þessu líka tilraun“, sagði Jón í Múla, en vitnaði hins vegar til Wyoming þar sem konur höfðu haft kosninga- rétt og kjörgengi um hartnær 40 ára skeið og „hafa bæði blöð og þing þess ríkis verið orð- lögð fyrir siðprýði jafnan síðan“. Breytingatillaga Jóns í Múla var felld í neðri deild Alþingis og þingið samþykkti frumvarpið með jöfnum atkvæðisrétti. Það hlaut hins veg- ar ekki náð fyrir augum danskra stjórnvalda fremur en önnur stjórnskipunarákvæði þetta árið því sambandsmál Dana og Íslendinga voru í hnút. Árið 1913 komu þingmenn sér saman um nýtt frumvarp varðandi kosningarétt kvenna. Nú sveif andi Jóns í Múla yfir vötnum að hon- um látnum. Meirihluta nefndar neðri deildar sagði svo í athugasemdum sínum við frum- varpið að varhugavert væri að „fjölga svo kjós- endum alt í einu, að núverandi kjósendur sjeu sviftir mest öllu valdi yfir landsins málum.“ Hér bregður fyrir ótta við yfirvofandi breyt- ingar hjá nefndinni. Sams konar ótta má finna í máli Jóns Magnússonar sem sagði í um- ræðum að hætt yrði við að konur myndu skoða sig sem sérstakan flokk sem aðeins mætti kjósa konur á þing ef þær fengju kosningarétt- inn allar í einu. Síðan klykkti hann út: „Að minsta kosti höfum við Reykvíkingar dæmi fyrir okkur í þessu.“ Í Reykjavík höfðu verið bornir fram kvenna- listar við bæjarstjórnarkosningar árin 1908, 1910 og 1912 þegar hér var komið sögu við góðar undirtektir. Kosningastarfið og vinnan í bæjarstjórninni hleypti konum kappi í kinn og sýndu hvers þær voru megnugar er þær stóðu saman. Sennilega var það þetta kapp sem þingmenn voru farnir að óttast. Og óttinn greip fleiri. Í landsmálablöðunum Ísafold og Þjóðólfi fóru að birtast greinar er kom fram á vorið 1911 þar sem beinlínis var ráðist að kon- um og þær ekki taldar hafa neitt það til mála að leggja sem ætti erindi í stjórnmál. Í kosn- ingafélaginu Fram, félagi Heimastjórn- armanna, hafði Jón Þorláksson borið upp snemma árs 1912 og fengið samþykkta tillögu um að ráða Alþingi frá því að samþykkja rýmkun kosningaréttarins fyrirvaralaust. Hér var nýr tónn sleginn. Kvenréttindabar- áttan hafði verið tiltölulega meinlítil hér á landi fram að þessu. Nú urðu kynslóðaskipti í umræðunni og meinleysisgríman rann af þeim karlmönnum sem komu nærri stjórn landsins. Fordæmið frá Reykjavík mátti ekki endurtaka sig í landsmálunum. Danir til bjargar Eins og áður sagði skyldi aldurstakmark kvenna lækka um eitt ár árlega og því hefði jafn kosningaréttur karla og kvenna náðst árið 1931. Ísland hefði þar með lent ansi aftarlega í röðinni hvað þetta varðar. En ákvæðið sem Bríet Bjarnhéðinsdóttir kallaði í háði „hinn nafnfræga, íslenzka stjórnvizkulega búhnykk“ var afmáð með sérstökum hætti. Með sam- bandslagasamningum milli Dana og Íslend- inga fylgi ákvæði um að jafna skyldi ríkisborg- araréttindi landanna á þann veg að þeirra réttinda er Danir nytu í Danmörku skyldu þeir einnig njóta á Íslandi – og öfugt. Í kjölfarið var nokkrum lagaákvæðum breytt á Íslandi, þar á meðal ákvæðum um kosningarétt kvenna og hann færður til jafns við rétt karla árið 1920. Það má því segja að Danir hafi skorið íslenska þingmenn úr þessari sérkennilegu snöru. Fyr- ir þetta hefur þeim aldrei verið almennilega þakkað – en úr því er bætt hér og nú. „Hinn nafnfrægi, íslenzki stjórnvizkulegi búhnykkur“ Ljósmynd/ Magnús Ólafsson – Þjóðminjasafn Hvítklæddar smámeyjar leggja af stað í skrúðgöngu úr Barnaskólaportinu til að fagna kosningarétti kvenna. Sjaldan eða aldrei hafði verið svo mikill mannfjöldi saman kominn í Reykjavík sem 19. júní 1915, en myndin var tekin á Austurvelli þann dag. Kvenréttindabaráttan hefur tekið á sig ýmsar myndir í gegnum tíðina, þó að baráttan fyrir kosn- ingarétti sé efalítið með þeim merk- ari. Auður Styrkársdóttir rifjar hér upp er íslenskar konur fengu kosningarétt árið 1915. Höfundur er forstöðumaður Kvennasögusafns Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.