Morgunblaðið - 07.07.2005, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.07.2005, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÍS LE N SK A AU GL †S IN GA ST OF AN /S IA .I S L YF 2 84 55 06 /2 00 5 www.lyfja.is - Lifið heil VIRKAR Á ÖLLUM STIGUM FRUNSUNNAR - ALDREI OF SEINT! Vectavir FÆST ÁN LYFSEÐILS Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd Vectavir krem er áhrifaríkt lyf til meðferðar á frunsum af völdum Herpes Simplex. Vectavir virkar á öllum stigum frunsunnar frá sting eða æðasláttar til blöðru. Í Vectavir er virka efnið penciklóvír sem stöðvar framgang veirunnar. Vectavir er ætlað fullorðnum og börnum eldri en 12 ára. Berið Vectavir á frunsusvæðið á 2 klst. fresti í 4 daga. Berið á rétt fyrir svefn og um leið og vaknað er. Dæmigert er að frunsa komi fram við ofreynslu, kvef eða inflúensu eða í mikilli sól (t.d. á skíðum). Ekki á að nota lyfið ef að áður hefur komið fram ofnæmi fyrir penciklóvír, famciklóvír eða öðrum innihaldsefnum. Með Vectavir grær frunsan hraðar, verkir minnka og smittími styttist. Vectavir kremið 2 g fæst án lyfseðils. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. HIÐ svonefnda metamfetamín, sem orðið er útbreiddasta fíkniefni í Bandaríkjunum samkvæmt fréttum BBC, er vel þekkt hér á landi þótt ekki séu nema 2–3 ár síðan þessi fíkniefnategund kom á íslenska fíkniefnamarkaðinn. Að sögn Þór- arins Tyrfingssonar er metamfeta- mín náskylt amfetamíni en hefur sterkari virkni á heilann og minni áhrif á úttaugarnar heldur en am- fetamínið. Segir hann að sumir telji metamfetamínið sterkara fíkniefni en það sé ekki endilega sannleikur- inn. „Þetta eru mjög áþekk efni. Aftur á móti hefur ólögleg fram- leiðsla amfetamíns leitt af sér met- amfetamín í stað amfetamín- súlfats.“ Metamfetamín þekkt hér á landi KARLMAÐUR á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í tveggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að fara inn á ritstjórnarskrifstofur DV í október í fyrra og taka Reyni Traustason, sem þar var starfsmaður, kverkataki og herða að. Sortnaði Reyni fyrir augum auk þess sem hann marðist og hruflaðist á hálsi. Segir í dóm- inum að ekki séu efni til að skil- orðsbinda refsinguna að neinu leyti. Auk fangelsisvistar var hinn ákærði dæmdur til að greiða 22.425 krónur í sakarkostnað og málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, 215.000 krónur. Málsatvik eru þau að miðviku- daginn 20. október 2004 var lög- reglunni í Reykjavík tilkynnt um að þrír menn hefðu ruðst inn á skrifstofu DV við Skaftahlíð í Reykjavík. Á vettvangi hafði lög- regla tal af Reyni Traustasyni, fréttastjóra DV, og nokkrum vitnum. Lýsti Reynir því fyrir lögreglu hvernig ákærði, ásamt samferðamönnum sínum, ruddist inn á ritstjórn DV. Einn þre- menninganna spurði eftir Mikael Torfasyni ritstjóra. Reynir innti aðkomumennina eftir því hvort þeir hefðu pantað viðtal hjá Mikael, ella yrðu þeir að gera það til að ná tali af honum. Að- komumennirnir sneru sér þá að Reyni, ákærði tók hann hálstaki tvisvar sinnum og þrýsti honum upp að vegg. Eftir hótanir héldu aðkomumennirnir á brott. Á leið sinni út af ritstjórninni ruddu þeir niður blaðabökkum af skrif- borðum og lágu blöð og bækl- ingar á víð og dreif. Er þess get- ið í frumskýrslu að áverka hafi mátt sjá hægra megin á hálsi Reynis. Rustafengið framferði Fjöldi vitna var að atvikinu og ber þeim og hinum ákærða að verulegu leyti saman um máls- atvik, segir í dómnum. Í niðurstöðu dómsins segir meðal annars að ofbeldisfullt framferði ákærða hafi verið rustafengið, ófyrirleitið og með öllu tilefnislaust. Í ljósi þess að yfirlýst tilefni farar þremenning- anna hafi verið megn óánægja með starfsaðferðir DV, að í ferð- ina hafi ráðist þrír gildir og stæðilegir karlmenn, að vitni beri að þeir félagar hafi verið æstir og ofbeldisfullir í allri hegðun og að til líkamlegrar valdbeitingar hafi komið af hálfu ákærða í tilefni þess að þeim var vísað út úr hús- inu, sé einboðið að „ákærði og fé- lagar hans hefðu ekki kinokað sér við að beita líkamlegu ofbeldi ef þeir hefðu ekki orðið sáttir við svör og þá fyrirgreiðslu er þeir sóttust eftir hjá ritstjóra DV.“ Með hliðsjón af þessu er refs- ing ákærða ákveðin fangelsi í tvo mánuði. Þóttu ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna að neinu leyti. Símon Sigvaldason héraðsdóm- ari kvað upp dóminn. Sækjandi var Katrín Hilmarsdóttir og verj- andi Sveinn Andri Sveinsson hrl. Tveggja mánaða fangelsi fyrir að taka fréttastjóra DV kverkataki SJÖ sóttu um stöðu forstjóra Fjár- málaeftirlitsins, tvær konur og fimm karlar. Frestur til að sækja um stöðuna rann út 4. júlí sl. Umsækjendur voru Ásta Þór- arinsdóttir, Hlynur Jónsson, Hörð- ur Sverrisson, Ingunn Þorsteins- dóttir, Jónas Friðrik Jónsson, Rúnar Guðmundsson og Sigurður Árni Kjartansson. Sjö vilja í stól forstjóra Fjár- málaeftirlitsins HEILDARFJÖLDI frjókorna mæld- ist yfir 1500 frjó/m³ á Akureyri í júní sem er það langmesta sem mælst hefur síðan frjómæl- ingar hófust þar vorið 1998. Mestu munar um birkifrjóin sem í ár náðu hámarki 7. júní þegar ríflegt ársmeðaltal mældist á ein- um sólarhring. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Náttúru- fræðistofnun Íslands en þar segir jafnframt að frjómagn í Reykjavík í júní hafi verið 876 frjó/m³. Það mun vera nokkuð hærra en meðal- talið en samt sem áður lægra en undanfarin þrjú ár. Framundan er aðalfrjótími grasa á Íslandi en hámarkið kemur jafnan fram í síðari hluta júlí eða í byrjun ágústmánaðar. Verði skilyrði til frjódreifingar góð á þeim tíma má búast við háum frjótölum, einkum á stöðum þar sem gras er látið óslegið og fær að vaxa úr sér. Metfjöldi frjó- korna á Akureyri „HVENÆR á ævinni hefur þú kom- ist næst því að vera í sigurvímu? Þá skilurðu hugsanlega hvernig þetta var. En þetta var ólýsanlegt,“ sagði Sævar Helgi Bragason stjörnu- áhugamaður í samtali við Morgun- blaðið. Hann ásamt hópi Íslendinga er staddur á eyjunni Maui á Hawa- ii-eyjum til að taka þátt í verkefn- inu Deep Impact, þar sem vísinda- mönnum heppnaðist að láta geimfar rekast á halastjörnu. Í hópnum eru auk Sævars, þau Snævar Guðmundsson sem er höf- undur bókarinnar Íslenskur stjörnuatlas, Ásta Þorleifsdóttir jarðfræðingur, Ingimar Hólm Guð- mundsson sem kennir stjörnufræði við Versló, Tómas Guðmundsson, Snorri Björn Gunnarsson og Lilja Steinunn Jónsdóttir, öll nemar við MH, Agnes Ösp Magnúsdóttir, nemi við MK, og Sverrir Guðmundsson sem stundar nám við eðlisfræði- skor HÍ ásamt Sævari. „Okkar aðkoma að verkefninu byrjaði með ráðstefnu um stjörnu- líffræði í fyrra, þangað komu nokkrir kennarar og prófessorar frá háskólanum á Hawaii. Upp úr því varð til samstarf milli fram- haldsskólanema, kennara og há- skólans á Hawaii, en Karen Meech prófessor við skólann hafði for- göngu. Framhaldið er að níu manns voru valdir til að fara út og fylgjast með árekstrinum en Karen er einn af aðalmönnunum í Deep Impact.“ Að sögn Sævars eru í hópnum miklir áhugamenn um stjörnufræði. „Á námskeiði í kringum atburð- inn höfum við tekið myndir úr Faulkes-sjónaukanum á Maui-eyju af halastjörnunni og þá bæði fyrir og eftir áreksturinn, til að fylgjast með hvernig halastjarnan hefur breyst við áreksturinn. Svo lærum við að vinna úr myndunum, búa til litmyndir og gera ýmsar mælingar. Einnig munum við reyna að mæla hvort halastjarnan hafi hreyfst eitthvað við áreksturinn en það er þó ekki hægt nema yfir mjög lang- an tíma. Við vitum þó að árekstur- inn hefur haft einhver áhrif þannig að halastjarnan hefur aukið virkni sína, menn virðast sjá það úr fyrstu myndunum. Birtuaukningin varð til dæmis talsverð og stjarnan varð svo björt að hún sást með berum augum.“ Ekki spurning að leggja stjörnufræðina fyrir sig Spurður um þýðingu þessa at- burðar fyrir vísindin, segir Sævar að fyrir stjörnufræðina þýði þetta vonandi að hugmyndir um hvernig sólkerfið okkar varð til muni breyt- ast. „Til dæmis hvert hlutverk halastjarna hefur verið í að koma með vatn til jarðar og hugsanlega sá fræjum lífsins. Það er mikilvægt að skilja ef við ætlum að leita að lífi annars staðar,“ segir hann og bendir á að aldrei áður hafi yfir- borð halastjörnu sést jafnskýrt og á myndunum. „En það er gaman að segja frá að við Íslendingarnir, sem stjórnuðum Faulkes-sjónaukanum þegar áreksturinn varð, vorum fyrstir Evrópumanna til að ná myndum,“ segir Sævar sem viðurkennir að talsverð upphefð felist í að stjórna stórum sjónauka og sjá birtu hala- stjörnunnar aukast skyndilega eftir áreksturinn „í næstum beinni út- sendingu“, sem vegna fjarlægð- arinnar var tíu mínútum á eftir. En ætlar hann að leggja stjörnu- fræði fyrir sig? „Já, ekki spurning, svona reynsla hvetur mann auðvit- að til að halda áfram á þessari braut. Það væri ekki leiðinlegt að geta upplifað svona viðburði, nokk- urn veginn reglulega. Það er ótrú- lega margt að gerast í rannsóknum á sólkerfinu þessi árin og alltaf að finnast ný sólkerfi. Ég held líka að fleiri okkar í hópnum séu á þeirri skoðun eftir þátttökuna að leggja eitthvað þessu líkt fyrir sig. Vísindin eru allt annað en þurr og leiðinleg, heldur spennandi og gefandi.“ Í framhaldinu segir Sævar að ís- lenski hópurinn ætli auðvitað að skemmta sér vel á Hawaii. Stað- urinn sé stórkostlegur og fljótlega fari hópurinn til að skoða stærstu sjónauka heims á Maunakea-fjalli sem rís 4.200 metra yfir sjávarmál. Íslenskur hópur fylgdist með árekstri geimfars og halastjörnu frá Hawaii Náðu myndum fyrst Evrópubúa Íslenski hópurinn sem nú vinnur að verkefni á vegum NASA á Hawaii. Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur aps@mbl.is TENGLAR .............................................. www.stjornuskodun.is HÉR & Nú ehf., auglýsingastofa, hefur kært tímaritið Hér & Nú til Samkeppnisstofnunar vegna ruglings sem skapast hefur á nafni hins nýja tímarits, líkt og segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Hér & Nú ehf. ákvað að leggja fram kæru þar sem efnistök tímaritsins Hér & Nú og sú slæma umræða í kringum það í fjölmiðlum að undanförnu hefur neikvæð áhrif á rekstur Hér & Nú ehf. „Allt frá stofnun Hér & Nú ehf. árið 1990 hefur fyrirtækið notið mikillar viðskiptavildar sem teng- ist nafninu,“ segir í fréttatilkynningunni. „Fyrir- tækinu er því mikið í mun um að vernda nafnið Hér & Nú sem tengist ímynd, orðspori og trú- verðuleika þess.“ Í tilkynningunni kemur ennfremur fram að að undanförnu hafi fjöldi símtala borist til Hér & Nú ehf. í tilraun til að hafa samband við aðstandendur tímaritsins Hér & Nú og eru þau flest með nei- kvæðum formerkjum. Hafa aðilar gengið svo langt að hafa samband við framkvæmdastjóra Hér & Nú ehf. heima við að kvöldi til. Viðskiptavinir Hér & Nú ehf. hafa einnig lýst yfir óánægju sinni með tenginguna við tímaritið og tilvonandi viðskiptavinir einnig. „Ljóst er að notkun 365 prentmiðla á nafninu Hér & Nú veldur þeim misskilningi að um sé að ræða sama fyrirtæki enda starfa báðir aðilar á sviði fjölmiðlunar. Jafnvel þannig að aðilar sem hringja standa í þeirri trú að Hér & Nú ehf. standi að útgáfu tímaritsins Hér & Nú, þrátt fyrir og ekki síður vegna vitneskju um eðli starfsemi Hér & Nú ehf.,“ segir í fréttatilkynningunni. Hér & Nú ehf. kærir tímaritið Hér & Nú

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.