Morgunblaðið - 06.10.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.10.2005, Blaðsíða 1
Blátt áfram Tónleikar gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum Menning Viðskipti, Íþróttir og Málið Viðskipti | Suður-kóreskur risi  Hvernig hugsa Kínverjar? Íþróttir | Guðjón Valur skorar grimmt  Óhræddir Pólverjar Málið | The Fiery Furnaces  Sannleikur Agnesar  Skákbox London. AP, AFP. | Bretar sökuðu í gær ír- anska byltingarverði um að láta uppreisn- armönnum í Írak í té búnað og tækniþekk- ingu til að útbúa flugskeyti, sem kostuðu átta breska hermenn lífið í nokkrum árás- um það sem af er þessu ári. Breskur emb- ættismaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði að ennfremur gætu Bretar fært sönnur á það að byltingarverðirnir ættu í sambandi við uppreisnarmenn úr röðum súnní-múslíma, sem barist hafa gegn hersveitum bandamanna í Írak. Segja Breta ljúga Talsmaður íraska utanríkisráðuneytis- ins, Hamid Reza, vísaði á bug því sem hann kallaði „breskar lygar“ og bað um sann- anir. „Ef þeir hafa undir höndum sannanir fyrir því sem þeir saka okkur um, þá þurfa þeir einfaldlega að leggja þær fram,“ sagði hann, „en þeir hafa engar sannanir. Þeir ásaka aðra þegar það eru þeir [Bretarnir] sem eru rót óöryggis, óstöðugleika og hættuástands í Írak.“ Segja Írana bera ábyrgð á árásum DÖNSKUM spilafíklum, sem leita meðferðar við fíkn sinni, hefur fjölgað um 40% frá því um áramótin, að því er fram kemur í Berlingske Tidende. Er talið að aukningin felist fyrst og fremst í því að æ fleiri láti glepjast af fjárhættuspil- um á Netinu. „Aukningin er slík að helst er hægt að líkja henni við flóð- bylgju,“ segir Michael Bay Jørsel, forsvarsmaður Mið- stöðvar fyrir spilafíkla í Dan- mörku. Hann segir meðferð- armiðstöðvar á engan hátt geta annað eftirspurninni. Fólk þurfi oft að bíða í allt að níu mánuði eftir að komast í meðferð og það sé óvið- unandi. Hann bendir einnig óhikað á fjárhættuspil á Netinu, og þá helst póker, sem helstu or- sakavalda aukins fjölda spila- fíkla. „Á Netinu gerist allt svo fljótt og spilin ganga svo hratt fyrir sig að fólk er mun fljót- ara að ánetjast þeim, ekki all- ir en margir,“ bætir hann við. Ný bylgja spilafíkla KONA veður götu í bænum Veracruz í Mexíkó en miklar rigningar hafa verið í landinu af völdum hitabeltisstormsins Stans, sem riðið hefur yfir Mexíkó og Mið-Ameríku. Að minnsta kosti 119 manns hafa látist af völdum stormsins en hann náði á köflum að verða fellibylur á fyrsta styrkleikastigi. Gríð- arlegar rigningar fylgja honum og er óttast að tala látinna muni hækka enn frekar á næstu dögum. Flóð eru um allt, brýr hafa hrunið, aur- skriður fallið og vegir eru ófærir vegna leðju. Alls hafa 50 manns látist í El Salvador, 50 í Guatemala, 11 í Níkaragva og 8 í Mexíkó. Þá hafa hundruð manna slasast. Rúmlega 100.000 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín á ham- farasvæðunum og eru fjölmörg hús nú þegar ónýt af völdum flóða. Reuters Stan hefur kostað 119 manns lífið SPÆNSKA veikin, sem lagði 50 milljónir manna að velli á ár- unum 1918–19, kann að hafa stafað af veiruafbrigði sem átti uppruna sinn í fuglum. Banda- rískir vísindamenn hafa komist að raun um að sú veira bjó yfir sömu erfafræðilegu stökkbreyt- ingum og H5N1 fuglaflensu- veiran sem nú gengur í Asíu og hefur valdið dauða a.m.k. 65 manna. Þetta kemur fram á fréttavef breska ríkisútvarps- ins, BBC. Segja vísindamennirnir nið- urstöður rannsókna sinna und- irstrika hversu mikil hætta stafi af fuglaflensunni sem nú geisi í Asíu. Segja þeir aðeins örfáar amínósýrur greina asísku veir- una frá veirunni frá 1918. Veir- an berist ekki auðveldlega úr fuglum í menn eða frá manni til manns. Aðaláhyggjuefnið sé að veiran öðlist erfðafræðavísa sem geri hana sérlega smit- næma og að hún verði loftborin. Spænska veikin frá fuglum komin STOFNAÐ 1913 270. TBL. 93. ÁRG. FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is EIGENDUR Skúlason ehf. eru tveir, Skulason UK Ltd., sem á um 80%, og Vestmanna- eyjabær, sem á um 20%, sam- kvæmt upplýsingum frá Jó- hannesi B. Skúlasyni, framkvæmdastjóra Skúlason ehf. Á sínum tíma keypti Þró- unarfélag Vestmannaeyja hlut í fyrirtækinu fyrir sex millj- ónir króna. Sú eign varð til- efni deilna í bæjarstjórn Vest- mannaeyja. Eigendur Skulason UK Ltd. eru Jóhannes framkvæmda- stjóri, Ingibjörg Reynisdóttir og um 120 erlendir ein- staklingar, flestir búsettir í Bretlandi og með breskt rík- isfang. Jóhannes sagði fyrirtækið opinberlega skráð í Bretlandi og þar væri hægt að nálgast hluthafaskrá hjá fyr- irtækjaskrá. STARFSMENN efnahagsbrota- deildar Ríkislögreglustjóra gerðu húsleit hjá fyrirtækinu Skúlason og á einkaheimili í Reykjavík í gærmorg- un. Var það að ósk breskrar lögreglu um samstarf við rannsókn skipu- lagðra fjársvika og peningaþvættis. Jóhannes B. Skúlason, framkvæmda- stjóri og einn eigenda Skúlason, stað- festi þetta í gærkvöldi, en kveðst ekki vita hvernig fyrirtækið ætti að tengj- ast slíku athæfi. Skúlason sér m.a. um símsvörun og þjónustu fyrir Skífuna, Lánasjóð íslenskra námsmanna og Fréttablaðið og segir Jóhannes að sú þjónusta haldist óskert. Húsleitirnar hér og á Bretlandi hófust samtímis og voru gerðar á ann- an tug leita víða um Bretland og sjö einstaklingar handteknir þar. 15 starfsmenn efnahagsbrotadeildar stóðu að húsleitum og gagnaöflun hér, m.a. leit í tölvum, handtökum og yf- irheyrslum vitna. Samkvæmt yfirlýsingu Ríkis- lögreglustjóra rannsaka bresk yfir- völd umfangsmikil fjársvik á Bret- landi og peningaþvætti. Svikin eru talin felast í kerfisbundinni sölu hluta- bréfa í fyrirtækjum með blekkingum, röngum og villandi upplýsingum um fyrirtæki og væntanlega skráningu bréfa í kauphöll. Brotin eru talin hafa staðið í nokkur misseri og búa og starfa hinir grunuðu víða í Evrópu. Kyndiklefasvik Að sögn Jina Roe, talsmanns rann- sóknardeildar fjársvika hjá bresku lögreglunni, er umfang hinna meintu svika yfir milljón sterlingspund, eða hátt á annað hundrað milljónir króna. Roe segir hér um að ræða svonefnd „Boiler room“, eða kyndiklefa-svik, sem fela yfirleitt í sér símasölu þar sem miklum þrýstingi er beitt og ekk- ert gefið eftir við söluna. Yfirleitt eru slík svik stunduð frá skrifstofum og þeir sem starfa við þau hafa gjarnan ekki hugmynd um að þeir séu að vinna fyrir glæpamenn. Þannig er viðskiptavininum lofað ýmist vöru sem kemur aldrei eða er gölluð, eða jafnvel einhvers konar hlutabréfum, sem síðan reynast verðlaus. Fleiri en einn íslenskur ríkisborgari er flæktur í málið, að því er Roe telur. Jóhannes B. Skúlason staðfesti við Morgunblaðið að gerð hefði verið hús- leit hjá fyrirtækinu. Nokkrir hluthaf- ar í Skúlason séu á Bretlandi, en eng- inn þeirra gæti átt hlut að slíku máli. „Ég held að nafn fyrirtækisins hafi einhvern veginn komið upp í rann- sókn á fyrirtækjunum sem voru til rannsóknar á Bretlandi,“ segir Jó- hannes. „Þetta truflaði auðvitað starf- semina dálítið, en lögreglan vann þetta mjög faglega og með mikilli prýði. Þeir voru mjög samvinnuþýðir og við samvinnufús vegna þessa máls. Þannig að við reyndum að gera þetta fljótt og vel. Þetta var óveruleg rösk- un nema það að starfsfólkinu fannst þetta skrýtið.“ Jóhannes var spurður hvort Skúlason hefði selt hlutabréf í símsölu hér eða á Bretlandi: „Nei, við höfum aldrei selt hlutabréf með því að hringja út. Höfum aldrei gert það.“ Efnahagsbrotadeild gerði húsleit í fyrirtæki og á einkaheimili að ósk breskra lögregluyfirvalda Viðamikið fjársvikamál sem sagt er teygja sig víða Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segist ekki skilja tengslin við málið Eftir Svavar Knút Kristinsson og Jóhann Bjarna Kolbeinsson  Húsleitir | 4 Tveir eigendur Skúlason ehf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.