Fréttablaðið - 26.07.2004, Blaðsíða 31
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Hreindýrarifill
Ásbjörn Gíslason
100 metra hlaupi
31MÁNUDAGUR 26. júlí 2004
María Þórðardóttir Seth Sharp Björgvin Franz Gíslason Kenyatta Herring
HARLEM SOPHISTICATE
The Harlem Renaissance Musical Revue
“Sumum stelpum
giftistu,
sumar stelpur
elskarðu.”
Jazz, Blues & Rock and Roll
Duke Ellington, Nat King Cole, Sarah Vaughan,
Billie Holiday, Ella Fitzgerald & Elvis.
"Það er ótrúlegt að fylgjast með Kenyatta
Herring á sviði. Hún hefur allt til að bera
sem getur prýtt eitt svið..."
—Morgunblaðið, Ain´t Misbehavin’
"Seth Sharp...hefur unnið töluvert afrek við
að finna þá leikrænu möguleika sem felast í
hverju lagi og þróa þá út fyrir hið augljósa
og í átt að hinu óvænta.."
—Morgunblaðið, Ain´t Misbehavin’
Miðasala
Forsala aðgöngumiða
hefst í verslunum
Skífunnar og BT
kl. 11:00 á morgun.
www.cmstheater.com
Fös. 13. ágúst
Lau. 14. ágúst
Fös. 20. ágúst
Lau. 21. ágúst
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Lárétt: 2 sykrað, 6 bókaforlag, 8 sómi, 9
borg, 11 klafi, 12 leifturljós, 14 hærast, 16
utan, 17 kveikur, 18 hald, 20 tveir eins,
21 þramma.
Lóðrétt: 1 naut, 3 tveir eins, 4 slitnar, 5
verkur, 7 þenst út, 10 far, 13 und, 15 sáð-
lönd, 16 fiskifæða, 19 listamaður.
Lausn.
Ekkert lát virðist á taflæði lands-
manna um þessar mundir og þó að
flestir haldi sig við hið hefð-
bundna skákborð fer Magnús
Ólafsson sínar eigin leiðir. „Ég
fann upp víkingaskák fyrir um
þremur áratugum,“ segir Magnús
en víkingaskák er sérstakt mann-
tafl þar sem taflborðið er þrílitt
og einn auka skákmaður, sem kall-
ast víkingur, er staðsettur milli
kóngs og drottningar. „Ég kláraði
að þróa taflið árið 1972 og gaf
Spasskí og Fischer eintak af tafl-
borðinu þegar þeir komu hingað
til lands sama ár,“ segir Magnús.
Við og við hafa verið gerðar til-
raunir til að finna upp nýja skák en
allar hafa þær farið út um þúfur. „Í
víkingaskákinni eru sexhyrndir
reitir í stað ferhyrndra og með því
fæst nýr grundvöllur fyrir skák-
ina. Taflmaðurinn glímir í raun við
þrjár stefnur í vikingaskákinni á
móti tveimur í venjulegri. Skák-
menn á öllum stigum hafa prófað
víkingaskákina og raunin er sú að
eftir á er auðveldara að átta sig á
hinni venjulegu skák.“
Þó að víkingaskákin sé ólík
klassískri skák segir Magnús að
auðvelt sé að læra hina nýju skák.
„Mannganginum svipar mjög til
manngangsins í hefðbundinni
skák og það er aðeins manngang-
ur víkingsins sem er nýr,“ en vík-
ingaskákin er þó heldur flóknara
tafl en venjuleg skák út af vík-
ingnum, fleiri reitum á taflborði
og einnar auka stefnu og Magnús
segir að upphaflega hafi gengið
erfiðlega að fá fólk til að tefla vík-
ingaskák en viðhorfið hafi þó
breyst mjög hin síðari ári. Að
minnsta kosti er áhuginn fyrir
víkingaskákinni orðinn það mikill
að 22. júlí síðastliðinn var haldið
víkingaskákmót þar sem vel fór á
með mönnum enda fengu allir
þátttakendur keppninnar verð-
launapening að lokum. ■
Lárétt: 2sætt, 6ab, 8æra, 9róm, 11ok,
12flass, 14grána, 16án, 17rak, 18tak,
20rr, 21arka.
Lóðrétt: 1tarf, 3ææ, 4trosnar, 5tak,
7bólgnar, 10mar, 13sár, 15akra,
16áta, 19kk.
Nú þegar þingi hefur verið slitiðþeysast þingmenn í langþráð
sumarfrí. Það hefur ekki verið heigl-
um hent fyrir þá að ná að skella sér í
tjaldútilegu með fjölskyldunni, hvað
þá að skutlast til útlanda, þar sem
þingslitin voru síðar í sumar en áætl-
að hafði verið. Það er
því umtalað að mjög
fáir þingmenn verði
viðstaddir innsetn-
ingu Ólafs Ragnars
forseta Íslands á
sunnudaginn eft-
ir viku. Einhver
g á r u n g u r i n n
bætti því við að
í staðinn yrði
þetta bara
kósí fjöl-
sky ldus tund
hjá Ólafi.
Það er gert ráð fyrir að innsetning-arathöfnin fari fram þann 1.
ágúst, en frá einum þingmanninum
heyrðist um daginn að í því skipulagi
hafði gleymst að setja inn klásúslu
sem leyfði að athöfnin færi fram á
öðrum degi þegar dagsetning bæri
upp á um Verslunarmannahelgi.
Þeir verða því víst margir sjálfstæðis-
þingmennirnir löglega afsakaðir frá
því að hrópa húrrahrópin fyrir nýjum
forseta og hefur heyrst að þeir verði
ekki nema þrír á landinu. En hið
sama má væntanlega segja um þing-
menn Framsóknarflokksins og
stjórnarandstöðunnar.
FRÉTTIR AF FÓLKI
VÍKINGASKÁK
Magnús segir hvítan víking, sem er staðsettur á milli kóngs og drottningar, eiga að vera á
hvítum reit.
SKÁK
MAGNÚS ÓLAFSSON
■ fann upp víkingaskák árið 1972 og gaf
Spasskí og Fischer eintak af taflborðinu.
Hvítur víkingur í víkingaskák
54-55 (30-31) Fólk 25.7.2004 21:02 Page 3