Morgunblaðið - 24.01.2006, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 24.01.2006, Blaðsíða 32
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn EF ÞÚ SKELLIR Á MIG EINU SINNI ENN ÞÁ HÆTTI ÉG ALVEG AÐ HRINGJA! GREYIÐ ELLA! JÁ, GREYIÐ ELLA SEM DANSAR NÚ UM AF GLEÐI ÞAÐ VAR UM DIMMA OG STORMASAMA NÓTT... SKYNDILEGA HEYRÐIST SKOTHVELLUR! SAGAN MÍN BYRJAR MEÐ HVELLI MAMMA, ÞAÐ ERU GEIMVERUR ÚTI Í GARÐI SEM VILJA TALA VIÐ ÞIG FLÝTTU ÞÉR, ÉG SKAL PASSA SMÁ- KÖKURNAR SVONA FLÝTTU ÞÉR! HÚN TRÚIR MÉR EKKI HVERSU HEIMSK HELDURÐU AÐ ÉG SÉ? HRÓLFUR GLEYMDI SKILDINUM SÍNUM, ENN EINA FERÐINA HRÓLFUR! GRÍPTU! HÉRNA ER TANNBURSTINN HANS OG TANNÞRÁÐUR HVERNIG TANNKREM MÁ BJÓÐA YKKUR. VIÐ EIGUM JARÐABERJA, HINDBERJA OG KIRSUBERJABRAGÐ... OJ, BARA! ...EINNIG BRÉFBERA-, SÖLUMANNS- OG RUSLAGÁMSBRAGÐ RUSLAGÁMS- BRAGÐ! Í ALVÖRU TALAÐ? EIGIÐ ÞIÐ RUSLAGÁMS- BRAGÐ? HELDURÐU AÐ HANN VERÐI HÉRNA LENGI? NEI, PABBI OG MAMMA FINNA EINHVERJA LAUSN ÉG ER EKKI SVO VISS. HANN STYÐUR BUSH OG HÚN KERRY. ÉG VEIT AÐ ÞETTA LÍTUR ILLA ÚT EN ÞETTA HEFUR GERST ÁÐUR MAMMA HEFUR HENT HONUM ÚT Á HVERJU EINASTA KOSNINGAÁRI SÍÐAN 1972 ÉG ER VISS UM AÐ NIXON VAR SAKLAUS! TARANTÚLAN SAGÐI AÐ RÓSA VÆRI MORÐINGI OG ÉG SKILDI HANA EFTIR MEÐ M.J. ÞÆR ERU FARNAR! NIÐUR Á HÖFN, TAKK HÚN ER ENNÞÁ MEÐ SKAMMBYSSUNA Dagbók Í dag er þriðjudagur 24. janúar, 24. dagur ársins 2006 Víkverji náði á dög-unum áfanga sem hann hafði lengi kviðið. Hann varð þrítugur. Nú getur hann loksins farið að segja með andakt orð sem áður hafa vakið hjá honum ónotatilfinningu. Orð eins og vísitala, sam- félagsgildi, trúarlíf, fjölskyldugildi, hag- vöxtur og jepplingur. Víkverji er þó ekki svo viss um að hann vilji temja sér notkun þessara orða, að hann vilji fara að leggjast of- an í far samfélagsins og hið rótgróna gildismat. Víkverji er nefnilega hrifnari af því að lifa lífinu svolítið út fyrir kassann og hegða sér áfram eins og strákpjakkurinn sem hann hefur allt- af verið. Þannig ætlar Víkverji ekki að fá sér kreditkort að svo stöddu og hvað þá að setja einhvern reikning á rað- greiðslur. Því síður ætlar Víkverji að kaupa bíl með bílalánum eða fá sér fellihýsi. Víkverji gæti hins vegar vel hugs- að sér að fara að taka aðra fleti fer- tugsaldursins til skoðunar. Þannig horfir Víkverji nú löngunaraugum til þess fyrirbæris sem kallast „vínskápur“ svo hann geti boðið gestum sínum upp á frískandi sopa á síðkvöldum. Ennfremur kynni Vík- verji vel að meta að fara að kynna sér fjöl- breyttari áhugamál, s.s. skógrækt og ferða- lög. „Kannski ég geti það þegar fer að grynnka aðeins á skuldunum,“ sagði Vík- verji með vonarglætu í augum, en hló síðan að eigin heimsku. Skuld- irnar eru ein lífseigasta eign hins þrítuga manns. Skuldir eru óþægilegur baggi og virðast hafa hræðilegan hæfileika til að aukast jafnt og þétt fram að þrí- tugu. Víkverji vonar að nú fari skuldastaðan að batna örlítið, þótt hann eigi ósköp lítið til að réttlæta skuldir sínar. Lengri ferðalög verða hins vegar að bíða aðeins á meðan Víkverji bryður niður verstu skuld- irnar. Þetta hlýtur nú allt að koma. Fertugsaldurinn ku vera hinn nýi þrítugsaldur, eða það var hann a.m.k. á meðan símenntunartískan réð ríkj- um hér á landi. Sviptingar í mál- efnum tónlistarskóla gætu þýtt ann- að. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is     Loftbelgir | Loftbelgjaeigendur undirbúa hér fararskjóta sína til ferðalags á opnunardegi Alþjóðlegu loftbelgjavikunnar, sem nú stendur yfir í Chateau d’Oex í Sviss. Eins og sjá má er annar loftbelgurinn í formi dómkirkjunnar í Saint Gall, en hinn í formi höfuðs hollenska málarans Vincent Van Gogh. Þetta mun vera í 28. sinn sem Alþjóðleg loftbelgjavika er haldin. Reuters Flogið um á dómkirkju MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Og hann leit í kring á þá með reiði, sárhryggur yfir harðúð hjartna þeirra, og sagði við manninn: „Réttu fram hönd þína.“ Hann rétti fram höndina, og hún varð heil. (Mark. 3, 5.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.