Morgunblaðið - 13.09.2007, Qupperneq 16
HERÐUBREIÐ yfir stofusófanum, Herðubreið
í borðstofunni, Herðubreið í skrifstofunni – í
nýrri bók listakonunnar Roni Horn er að
finna sextíu ljósmyndir af Herðubreið-
arverkum Stefáns V. Jónssonar þar sem þær
prýða veggi á heimilum Íslendinga.
Stefán kallaði sig Stórval og fæddist í
Möðrudal árið 1908. Í gegnum tíðina málaði
hann ótal myndir af Herðubreið. Enginn veit
hversu margar myndirnar nákvæmlega eru
en þær er að finna á veggjum landsmanna um
land allt.
Hin bandaríska Roni Horn bankaði upp á á
heimilum í Reykjavík, á Vopnafirði og Seyð-
isfirði og fékk að taka ljósmyndir af verkum
Stórvals í eldhúsum, stofum, göngum og skrif-
stofum. Bókin nefnist einfaldlega Herðubreið
at Home (Heima með Herðubreið).
Horn er búsett í New York og kom fyrst til
Íslands fyrir rúmum 30 árum. Síðan þá hefur
hún ferðast reglulega til landsins, sótt inn-
blástur í íslenska náttúru og meðal annars
unnið með vatn úr íslenskum jöklum.
Heima með Herðubreið er gefin út af
Steidl-forlaginu sem áður hefur gefið út ljós-
myndabækur eftir Horn.
Herðubreið í íslenskum
stofum og skrifstofum
Listakonan Roni Horn myndar Herðubreið Stórvals á íslenskum heimilum
Sólvallagata Hjól og Herðubreið.
Litagleði Herðubreiðarmynd eftir Stefán „Stórval“ á Hjallavegi 68 í nýrri bók eftir Roni Horn.
Miðtún Tíu kindur á Seyðisfirði.
Óðinsgata Fartölva, blóm og Herðubreið.
Roni Horn
16 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
YFIRLITSSÝNING á verkum
Ólafs Elíassonar sem var opnuð síð-
astliðna helgi í nútímalistasafni San
Francisco hlýtur
góða dóma hjá
gagnrýnanda Los
Angeles Times.
Innihaldið í list
Ólafs er sagt
varpa birtu á
samtímann „með
skarplegum, hríf-
andi og óvæntum
hætti.“
Sýningin ber
nafnið „Take Your Time“ eða
„Taktu þér tíma“ og er fyrsta eig-
inlega yfirlitssýningin á verkum
Ólafs. Á sýningunni hefur lyk-
ilverkum Ólafs verið safnað saman
og þau sett í nýtt samhengi, en einn-
ig gefur þar að líta tvö ný verk unnin
sérstaklega fyrir þetta tilefni. Und-
irbúningur fyrir sýninguna tók
nærri tvö ár.
Í dómnum sem birtist í Los Ang-
eles Times í gær er sagt erfitt að slá
út verkið sem tekur á móti sýning-
argestum og ber nafnið „One-way
colour tunnel.“ Gestir ganga í gegn-
um verkið til að komast inn á sýn-
inguna. Um er að ræða göng sem
eru bleik á leiðinni inn en svört þeg-
ar farið er til baka og er gagnrýn-
andinn Christopher Knight afar
hrifinn af verkinu.
„Hin augljósu líkindi við leik-
fanga-kviksjá gerir verkið aðgengi-
legt fyrir alla, jafnvel þá sem nú-
tímalist höfðar venjulega ekki til,“
skrifar Knight.
Í dómnum segir að list Ólafs fáist
við „ánægjuna, fegurðina, leikinn –
jafnvel hamaganginn.“ Ólafi er lýst
sem „tilraunalistamanni í nánast vís-
indalegum skilningi“ og rannsókn
hans sögð beinast að því að „um-
breyta kyrrstöðunni.“
Hrífandi
kviksjá
Sýning Ólafs Elías-
sonar dæmd ytra
Tilraunamaður
Ólafur Elíasson.
BÓKMENNTAUNNENDUR geta
kastað mæðinni í dag fyrir loka-
átökin í bókmenntahátíð því eftir
þétta dagskrá
undanfarna daga
þá er upplest-
urinn í Iðnó kl. 20
eina uppákoma
dagsins - en í
kjölfarið fylgir
hins vegar stíf
dagskrá síðustu
tvo dagana. En í
kvöld eru þau
Þórdís Björns-
dóttir og Jón Kalman Stefánsson
fulltrúar íslenskra höfunda en auk
þeirra lesa kanadíska skáldkonan
Kim Echlin, hinn danski Morten
Ramsland og hjónin Jon Halliday og
Jung Chang sem saman sömdu um-
talaða bók um Maó formann.
Rólegur
dagur
Þórdís
Björnsdóttir
Í ÞJÓÐARBÓKHLÖÐUNNI
stendur nú yfir ljósmyndasýn-
ing um Þórð Halldórsson frá
Dagverðará undir Jökli á Snæ-
fellsnesi. Þetta eru nærri 50
ljósmyndir, meðal annars
myndir sem voru á heimsalm-
anaki KODAK árið 1973.
Myndirnar voru í sumar til
sýnis í vitanum á Malarrifi á
Snæfellsnesi og vöktu mikla athygli, en nú njóta
landsmenn þessa umhverfis í kvikmynd Guðnýjar
Halldórsdóttur, Veðramótum. Sýningin er opin á
opnunartíma Landsbókasafnsins og stendur til 6.
október eins og sýningin um Jón Sveinsson,
Nonna, á sama stað.
Myndlist
Ljósmyndir af
Þórði á Dagverðará
NORSKI leikarinn og leik-
skáldið Pelle Sandstrak verður
gestur á fundi Tourette-
samtakanna á Íslandi kl. 15 á
morgun í fyrirlestrasal Þjóð-
minjasafnsins. Hann hefur
ferðast víða um Norðurlönd og
Norður-Ameríku með leiksýn-
inguna Mr. Tourette and I og
er nú væntanlegur til Íslands.
Á fundinum mun Pelle ræða
um reynslu sína af því að halda fyrirlestra og sýn-
ingar fyrir ýmiss konar fagfólk, en tilgangur sýn-
inga hans er að auka skilning fagaðila á Tourette-
heilkenninu í því markmiði að koma betur til móts
við börn sem bera það.
Leiklist
Herra Tourette
og ég
Pelle Sandstrak
100 MYNDIR nefnist sýning
Eggerts Péturssonar málara
sem opnuð verður í galleríi i8 í
dag. Eggert sýnir 100 verk í
tvennu lagi. 50 ferningslaga
myndir hanga innan rétthyrn-
ings, þar sem lesa má tíma
sumarsins frá vori til hausts í
línum niður eftir veggnum eftir
blómgunartíma plantnanna,
líkt og að lesa blaðsíðu í bók. 50
rétthyrningslaga myndir hanga í einni línu and-
spænis á hinum þremur veggjum salarins og aftur
má lesa tíma sumarsins eftir línunni frá vinstri til
hægri. Hanna Christel sýnir verk sitt Innanúr, ut-
anfrá undir stiganum.
Myndlist
Eggert sýnir tíma
sumarsins í i8
Eggert Pétursson
♦♦♦
DJASSHETJAN
Joe Zawinul er
látinn, 75 ára að
aldri. Zawinul er
þekktastur fyrir
hljómborðsleik
sinn með hinu
merka djass-
fúsjón bandi
Weather Report
sem hann stofn-
aði ásamt saxófónleikaranum Wayne
Shorter. Þá spilaði hann einnig á
plötur meistara Miles Davis. Zaw-
inul fæddist í Vínarborg en flutti til
Bandaríkjanna árið 1959 – en hann
var þó kominn aftur til Vínarborgar
þegar hann lést síðasta þriðjudag.
Veðramót
Joe Zawinul
♦♦♦