Vikan - 21.11.1985, Blaðsíða 31
Byggt & búið Byggt & búið Byggt & búið Byggt & búið Byggt & búið
HALLDÓRA
BRIEM EK
— fyrs
kven-
arki-
tektinr
Texti: Guðrún
Ljósm.: Einar Ólason o.fl.
Á nýafstaðinni Listahá-
tíð kvenna hér á landi var
margt á dagskrá: tónleik-
ar, myndlistarsýningar í
öllum helstu sýningarsöl-
um höfuðborgarinnar,
leiklistardagskrár, Ijóða-
dagskrár, kvikmyndahá-
tíð, að ógleymdri sýningu
á byggingarlist kvenna í
Ásmundarsal, húsi Arki-
tektafélags íslands. Á
þeirri sýningu gat að líta
verk eftir fyrsta íslenska
kvenarkitektinn, Halldóru
Briem Ek, sem um þessar
mundir á fimmtíu ára bú-
setuafmæli í Svíþjóð. Eftir
stúdentspróf árið 1935
hélt Halldóra til Svíþjóðar í
nám í arkitektúr. Það var
ekki ætlunin að setjast að í
Svíaveldi en síðari heims-
styrjöldin braust út, Hall-
dóra varð innlyksa í land-
inu og kynntist verðandi
eiginmanni, Jan Ek lækni.
Tíminn er kominn á fleygi-
ferð, hún er komin með
fjögur lítil börn þegar hún
kemst í heimsókn til ís-
lands árið 1949 og þau eru
fimm þegar hún verður
ekkja árið 1963.
Þau eru orðin mörg,
svið byggingarlistarinnar
sem Halldóra hefur staldr-
að við á á þrjátíu ára
starfsferli — og hún hefur
ekki farið varhluta af því
hvað það er að reyna að
vinna í faginu um leið og
heimilið heimtar sitt. Til-
efni heimsóknar Halldóru
til íslands að þessu sinni
var bæði fimmtíu ára
stúdentsafmæli og hundr-
að ára afmæli föður henn-
ar, séra Þorsteins heitins
Briem, fyrrverandi sóknar-
prests á Akranesi.
,,Ég byrjaði strax eftir nám að vinna
hjá Samvinnunni í Svíþjóð, sem er
Kooperativa Forbundet, og haföi þá til
47. tbl. ViKan 31