Tímarit lögfræðinga - 01.11.1983, Blaðsíða 6
GUNNAR THORODDSEN
Gunnar Thoroddsen andaðist 18. september
sl. Hann fæddist í Reykjavík 29. desember
1910. Foreldrar hans voru Sigurður verkfræð-
ingur og yfirkennari Thoroddsen og kona hans,
María Kristín Thoroddsen. Hann tók stúdents-
próf í Menntaskólanum í Reykjavík 1929 og lauk
lögfræðiprófi í Háskóla íslands 1934. Fram-
haldsnám, aðallega í refsirétti stundaði hann í
Danmörku, Þýzkalandi og Englandi frá apríl
1935 til júlí 1936. Doktorsprófi í lögum lauk
hann 1968. Hann stundaði lögfræðistörf ásamt
öðrum störfum 1936-1940. Hann var prófessor
í lagadeild Háskóla íslands 1940-1947, borgar-
stjóri í Reykjavík 1947-1959, er hann var skip-
aður fjármálaráðherra. Ráðherrastörfum gegndi
hann til vors 1965. Þá varð hann sendiherra í
Danmörku og skömmu síðar jafnframt sendiherra í Tyrklandi. Hann fékk
lausn frá sendiherrastörfum um áramótin 1970. Var þá skipaður hæstaréttar-
dómari. Að eigin ósk fékk hann lausn frá dómaraembætti í september 1970
og var á næsta ári skipaður öðru sinni prófessor [ lögum við Háskóla islands.
Frá 1974-1978 var hann félagsmála- og iðnaðarráðherra og að lokum for-
sætisráðherra frá 8. febrúar 1980 til 26. maí 1983.
Gunnar Thoroddsen hóf, eins og áður er sagt, ungur afskipti af stjórnmálum.
Hann var kjörinn til setu á Alþingi 23 ára gamall, vorið 1934, og átti þar sæti
sem landskjörinn þingmaður til 1937 og aftur á sumarþinginu 1942. Frá 1942-
1949 var hann þingmaður Snæfellinga, frá 1949-65 og frá 1971-83 þingmaður
Reykvíkinga. Sat hann á 43 þingum alls. Hann var formaður Heimdallar, félags
ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, 1935-1939, framkvæmdastjóri Lands-
málafélagsins Varðar í Reykjavlk 1936-1937, erindreki Sjálfstæðisflokksins
1937- 1939, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna 1940-1942, vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins 1961-1965 og 1974-1981 og formaður þing-
flokks sjálfstæðismanna 1973-1979. í bæjarstjórn Reykjavíkur var hann frá
1938- 1962, borgarráðsmaður 1946-1960 og forseti borgarstjórnar 1959-1960.
Auk þeirra fjölmörgu starfa, sem nú hafa verið talin, átti Gunnar Thorodd-
sen sæti í ýmsum nefndum og félagsstjórnum og verður fátt eitt af því talið
hér. Hann var í skilnaðarnefnd 1944 og síðar í stjórnarskrárnefndum sem
störfuðu frá 1945 með hléum fram á árið 1983. Frá árinu 1978 var hann for-
maður nýrrar stjórnarskrárnefndar sem auðnaðist að skila frumvarpi að
nýrri stjórnarskrá sem flutt var t lok síðasta Alþingis. í bankaráði Lands-
bankans var hann 1961-1965. Hann var formaður íslandsdeildar þingmanna-
sambands Norðurlanda 1945-1957, forseti sambandsins 1947 og 1957, for-
maður íslandsdeildar Alþjóðaþingmannasambandsins 1951-1965, formaður
Norræna félagsins á íslandi 1954-1965 og 1970-1975.
124