Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1983, Blaðsíða 8

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1983, Blaðsíða 8
JÓN ÓLAFSSON Þann 24. júlí 1982 lést hér í Reykjavík Jón Ólafsson hæstaréttarlögmaður. Með honum féll frá síðasti íslendingurinn sem lauk embættis- prófi í lögfræði í Danmörku en starfaði á is- landi. Jón Ólafsson fæddist þann 27. febrúar 1893 í Brimnesgerði t Fáskrúðsfirði, sonur Ólafs bónda þar Finnbogasonar og Sigríðar Bjarna- dóttur konu hans. Jón lauk stúdentsprófi 1915. Sigldi hann til Kaupmannahafnar, og eftir nokkra dvöl þar innritaðist hann í lagadeild Kaupmannahafnarháskóla. Þaðan lauk hann lagaprófi 1923. Strax að prófi loknu gerðist hann starfsmaður bæjarráðs Kaupmannahafn- ar. Því starfi gegndi hann næstu þrjú árin eða þar til hann flutti heim til íslands haustið 1926. Eftir heimkomu hóf Jón málflutningsstörf, fyrsta árið með Birni Kalman hrl. en gerðist síðan fulltrúi hjá þeim Jóni Ásbjörnssyni hrl. og Sveinbirni Jóns- syni hrl. til ársins 1931. Það ár stofnaði Jón eigin málflutningsskrifstofu sem hann rak jafnan síðan. Fáeinum árum áður hafði hann jafnframt gerst for- stjóri íslandsdeildar lífsábyrgðarfélagsins Andvöku og varð forstjóri þess frá því það félag var stofnað sem alíslenskt fyrirtæki 1949. Hann tók við starfi forstjóra Samvinnutrygginga 1954 og stjórnaði báðum félögunum til haustsins 1958 er hann sagði þeim af sér vegna heilsubrests. Svo sem hér kemur fram stundaði Jón lengi lögmannsstörf jafnhliða því sem hann sinnti störfum á sviði vátrygginga. Eftir að Andvaka varð alíslenskt félag og Jón tók einnig við stjórn Samvinnutrygginga gafst honum að von- um lítt tóm til að sinna lögmennskunni en hæstaréttarlögmaður varð Jón árið 1953. Árið 1943 kom út ritið „íslenskur rikisborgararéttur". Gerir Jón þar á fræðilegan hátt glögga grein fyrir réttarstöðu íslenskra og danskra ríkis- borgara í Ijósi Sambandslagasamningsins og laga 21/1919 um ríkisborgara- rétt, og fjallar um þau mörgu álitaefni sem upp komu vegna jafnréttisákvæða sambandslaganna. Var þessi bók Jóns fyrsta fræðilega úttektin sem gerð var á þessu mikilvæga réttarsviði og hafði jafnframt mjög hagnýtt gildi við túlkun jafnréttisákvæðanna í framkvæmd. Svo sem rit þetta sýnir hafði Jón alla ævi mikinn áhuga á góðum sam- skiptum þjóðanna tveggja. Lágu þar án efa að baki góðar minningar hans frá námsárunum við lagadeild Hafnarháskóla. Kom það glöggt fram í grein sem hann skrifaði í þetta timarit (1. hefti 1978) um Júlíus Lassen prófessor ( Rómarétti og Garðprófast. Minntist Jón þess að það ár voru 60 ár liðin frá því próf. Lassen útskrifaði hann í Rómarétti síðastan íslendinga, og gat 126
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.