Morgunblaðið - 14.10.2011, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 14.10.2011, Blaðsíða 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2011 „Bíddu, er sem sagt allt sem Björk gerir óumdeild snilld?“ Og svar mitt er: „Uuu … já.“ 40 » Á laugardag flytur Gunnar Hilm- arsson (Andersen & Lauth) fyrir- lestur um Indriða Guðmundsson klæðskera í Listasafni Kópavogs - Gerðarsafni kl. 14:00. Fyrirlesturinn er haldinn í tilefni af því að Fata- hönnunarfélag Íslands veitti Indr- iðaverðlaunin í fyrsta sinn á opnun tíu ára afmælissýningar félagsins í Gerðarsafni 8. október sl. Verðlaun- in, sem verða framvegis veitt annað hvert ár þeim fatahönnuði sem þykir hafa skarað fram úr, eru kennd við klæðskerann Indriða Guðmundsson heitinn, sem var mikill talsmaður fatahönnunarverðlauna á Íslandi. Indriði útskrifaðist úr Iðnskól- anum í Reykjavík 1992 og kenndi síðan klæðskurð við skólann 1994- 2000 og síðar við Listaháskóla Ís- lands ásamt því að starfa við bún- ingagerð. Árið 2000 hóf Indriði störf sem sjálfstætt starfandi sniðgerð- armaður fyrir íslenska hönnuði og verslanir. Hann var einn af stofn- endum Hönnunarfélags Íslands. Ár- ið 2003 stofnaði Indriði verslun við Skólavörðustíg í Reykjavík. Árið 2006 flutti hann verslun sína til Kaupmannahafnar og rak hana þar til hann lést 30. desember sama ár. Gunnar Hilmarsson hefur hannað fyrir fyrirtæki á borð við Nokia, Top Shop, Jack & Jones, Birger et Mikk- elsen og All Saints og starfar nú sem yfirhönnuður hjá Andersen & Lauth. Hann er fyrrverandi formað- ur Fatahönnunarfélags Íslands og Hönnunarmiðstöðvar. Morgunblaðið/Jim Smart Hönnuður Indriði Guðmundsson klæðskeri og hugsjónamaður. Fyrirlestur um frum- herja Fjallað um Indriða Guðmundsson Pétur Blöndal pebl@mbl.is „Ég er mjög ánægð með hvernig til hefur tekist,“ segir Helga Thors viðburðastjóri hjá Saga Film, sem stýrði uppsetningu íslenska skálans á bókastefnunni í Frankfurt. „Þetta hefur gengið ótrúlega vel; verkefni sem byrjaði á blaði og er orðið risastórt. Og það er gaman að finna hversu ánægt fólk er með út- komuna.“ Bóklestur á 13 skjáum Upphafið má rekja til þess, að fyrir ári síðan lögðu Magnús Viðar Sigurðsson, framleiðslustjóri Saga Film, Páll Hjalti Hjaltason arkitekt og Finnbogi Pétursson myndlist- armaður leið sína til Frankfurt og skoðuðu sýningu Argentínu, sem þá var heiðursgestur. Ástæðan fyrir því að þremenn- ingarnir voru fengnir til starfans var sú að Sögueyjan Ísland, sem sér um þátttökuna í Frankfurt, vildi setja upp expo-skálann sem hafði verið á heimssýningunni í Kína. „Þeir hönnuðu svo sýningu í kringum hann sem passaði bóka- stefnunni og úr varð bóklestur á þrettán skjáum, þar sem 26 bóka- unnendur lásu úr sinni eftirlæt- isbók – og við ritstýrum því ekki,“ segir Helga. „Sögueyjan hleypti verkefni af stokkunum þar sem öllum Íslend- ingum gafst kostur á að senda ljós- mynd af heimilisbókasafninu sínu inn á heimasíðu Sögueyjunnar, þar er mörg hundruð mynda safn og síðan var valið fólk af þeim lista sem Ragnar Agnarsson leikstjóri hjá Saga Film sótti heim með töku- teymi. Fólk las í hljóði í tuttugu mínútur og svo eina mínútu upp- hátt. Afraksturinn er svo spilaður hér á þrettán risaskjáum, sem eru níu metrar á breidd og sex metrar á hæð, og úr verður mikil drama- tík.“ Kirkjuleg upplifun Og andstæðurnar eru miklar. „Fyrir utan salinn er ofboðslega mikill skarkali og öngþveiti, kalt og hvítt, en svo gengur fólk inn í þetta hlýja og myrka rými. Það er ekki annað hægt en að fyllast lotningu, þetta er svolítið kirkjuleg upplifun, sem gerir það að verkum að fólk nálgast sýninguna af virðingu og fer jafnvel að hvísla þegar það kem- ur inn. Fólki líður þar af leiðandi vel, það notar tækifærið, tyllir sér og hvílir sig eftir þrammið um stóru sýningarskemmurnar. Barinn á sýningunni heppnaðist líka vel. Við fórum á milli antíkverslana og sönkuðum að okkur notuðum hús- gögnum fyrir 400 fermetra rými og sköpuðum þar einstaklega kósí stemmningu sem hefur verið vel nýtt.“ Gæti orðið yfirfullt Mestur hluti sýningargesta kem- ur um helgina á bókastefnuna þeg- ar hún verður opnuð almenningi. En Helga kvíðir því ekki. „Við höfum náð að anna gest- unum hingað til, en um helgina er- um við ansi hrædd um að allt verði yfirfullt, því heiðursgestsrýmið er miklu vinsælla en undanfarin ár. Við vitum því ekki alveg hvernig þetta fer,“ segir hún og hlær. „En mér finnst það bara jákvætt ef allt verður yfirfullt og einhverjir þurfa frá að hverfa – eftirspurnin er þá að minnsta kosti fyrir hendi.“ Þó að undirbúningurinn stæði í ár, tók aðeins tíu daga að koma upp sýningunni í íslenska skálanum. „Það var gaman að sjá þetta rísa á tíu dögum,“ segir Helga. „Fyrst var þetta eins og kaldur íþróttasalur með ljósu parketi og risagluggum, en í dag stígurðu inn í myrkahelli. Það er ótrúlegt hvað þetta gerðist á skömmum tíma, enda unnu 30 manns frá Frankfurt dag og nótt við uppsetninguna.“ Og brotið er blað með því að hleypa lesandanum inn í sýninguna. „Það skín í gegn í fjölmiðlaumfjöll- uninni hvað við höfum komið á óvart með þessari framsetningu,“ segir Helga. „Lesandinn er í önd- vegi hjá okkur, en undanfarin ár hefur verið horft meira til fram- leiðslunnar. Við höfum heyrt frá Simone Bühler, sem situr í stjórn bókastefnunnar, að þetta hafi bjargað heiðursgestsdagskránni, en talað hafði verið um að leggja hana niður, kostnaðurinn væri of mikill og þetta skilaði ekki nógu miklu. En nú hefur Ísland endurlífgað þennan lið í dagskrá bókastefn- unnar.“ Hugmynd sem byrjaði á blaði og varð risastór  Íslenski skálinn settur upp á 10 dögum „Ekki and- laust auglýsinga- skrum“ Morgunblaðið/Kristinn Bókamessan Helga Thors, sem stýrði uppsetningu íslenska skálans, er ánægð með hvernig til hefur tekist. Sýningunni Ný list verður tilundir sýningarstjórn JónsProppé á Kjarvalsstöðumer ætlað að varpa ljósi á andrúmsloftið og hina nýju myndlist sem var að fæðast hérlendis á miðjum sjöunda áratugnum. Þetta er tímabilið þegar landslags- málverkið var hætt að svara kröfum tímans, áratuga blómaskeiði af- straktlistarinnar að ljúka, allar gátt- ir opnar og ný áhrif flæða á milli list- greina eins og segir í sýningarskrá. Á sýningunni eru hátt í þrjátíu verk listamanna úr ýmsum áttum ásamt skyggnusýningu ljósmynda frá lista- sýningu á Skólavörðuholtinu. Þá eru myndbandsviðtöl við sex ein- staklinga sem segja frá andrúmslofti myndlistarinnar á þessum árum sem allir upplifðu spennandi breytingar, á þó mismunandi forsendum. Það fer ekki á milli mála að und- irliggjandi átök eiga sér stað þegar ríkjandi kerfi gliðnar og ný hug- myndafræði er að mótast. Kannski má segja að frelsið og opnu gáttirnar hafi verið tímabundin og kerfið fundið sér nýjan farveg til að storkna í og það sé einmitt í þeim farvegi sem þetta tímabil er skoðað og sett fram á þessari sýningu. Alla vega þá saknar maður þess að upp- lifa skýrari merki í sýningunni um þau menningarpólitísku átök sem áttu sér stað, tímabundna frelsið og skörunina milli listgreinanna og að- komu listmiðla á borð við grafík og vefnað og leirlist. Slíkir miðlar voru ekki hátt skrifaðir og m.a. notaðir á virkan hátt sem framlag róttækra listamanna, ekki síst kvenna, á tím- um þar sem barátta fyrir almennum borgaralegum réttindum, barátta gegn stríði og barátta fyrir rétt- indum kvenna voru á margan hátt hugmyndafræðilega sama baráttan. Þrátt fyrir að mörg forvitnileg verk og viðtöl séu á sýningunni þá virðist það vera skortur á sjón- arhorni eða söguleg einföldun sem þynnir sýninguna út miðað við þær forsendur sem gefnar eru og kynnt- ar sem grundvöllur sýningarinna. Það var víst ýmislegt annað að gerj- ast í listalífinu en úrelt landslag og afstrakt á undan SÚM hópnum eins og lesa má í þeim örfáu orðum sem fylgja sýningunni. Þótt nú sé komin út vegleg íslensk listasaga þá er ekki boðlegt hjá Listasafni að sleppa því að fylgja sýningum, sögulegum eða samtímalegum, eftir með rituðu máli. Ný list verður til bbbnn Sýningarstjóri Jón Proppé. Yfirlitssýn- ing á íslenskri myndlist frá sjöunda ára- tugnum á Kjarvalsstöðum. Sýningin stendur til 6. nóvember 2011 Opið alla daga frá kl 10-17. ÞÓRA ÞÓRISDÓTTIR MYNDLIST Breytingar Sigurður Guðmundsson, Kyrrlífismynd (Blómakarfan), 1968. Fæðing nýlistar – sjónarhorn „Ísland og leyndarmál lestr- arins: Sjaldan hefur nokkurt land náð öðrum eins árangri á bókasýningunni í Frankfurt,“ var fyrirsögn dagblaðsins Süd- deutsche Zeitung á fimmtudag. Og í Frankfurter Allgemeine Zeitung á miðvikudag hljóðaði lýsingin þannig á því hvernig til hefur tekist: „Íslenski skálinn er alveg laus við ódýr brögð, markaðs- hrópandi framsetningu, glymj- andi áróður hinnar fögru nýju rafrænu veraldar. Og allt þetta taugadrepandi og andlausa auglýsingaskrum. Sú vitund sem einu sinni gilti um bóka- sýninguna í heild sést hér í hreinleika sínum: Bókmenntir eru sérstök vara sem verður að meðhöndla af varfærni og inn- lifun.“ Varfærni og innlifun ÞÝSK DAGBLÖÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.