blaðið - 24.08.2007, Blaðsíða 26
34
FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 2007
blaðið
FÓR BEINT
ÁTOPPINN
í USA
ASTRÓPÍA
RATATOUILIE
ASTRÓPfÁ
TRANSFORMERS
ÍSsRÓLABÍÓ
BOURNE ULTIMATUM
OPIA
BOIDRNE ULTIMATUM
ASTROPIA kJ. 6,8og 10 L
TFt BOURNE ILnMATlJM M.520,8og1020 14
RUSH HOUR 3 W. 6,8og 10
BECOMING JANE M. 5.30,8001020 L
THEBOURNEULnMATUM M.s.'to.aioarpowER 14
RUSHH0UR3 kJ. 3.45,6,8og10
RATAT0UILLE ísltal kl. 3.45 L
TRANSF0RMERS kl. 7 og 10 10
SIMPS0N Úensktal kl.4 L
THEBOURNEULTIMATUM I kj. 6,8 0Q KFKRAFT 14
RUSHH0UR3 kl.8og10
SIMPS0N íslenskttal |kl.6 L
ttEGnBO unn
SICK0 kl. 530 og 8 7
DIE FALSCHER kJ.8 14
FUCK kl.5.30 7
DEATH 0F A PRESIDENT kl. 10.30
GOYA'S GH0ST M.5.30
F0R Y0UR C0NSIDERATI0N M. 8 7
C0CAIN C0WB0YS M.8 14
GOODBYE BAFANA M. 5.30 7
SH0RTBUS M.1030 18
G0INGT0 PIECES M. 10.30 16
AWAY FR0M HER M. 10.30 7
smánfÁ^Bió
THEBOURNEUIJWATUM kL 530,8 Ofl 1030 14
THE BOURNE U. LÚXUS M. 5.30,8 og 10.30 14 I
RUSH H0UR3 kl. 3.45,550,8 og 10.10
SIMPS0N enskttal kl. 4,6,8 0010 L 1
SIMPSON islenskt tal kl. 4 og 6 L 1
DEATH PR00F kl. 10.45 16 |
DIE HARD 4.0 kl.8 14 I
ÁLFABAKKA
ASTRÓPÍÁ kl. 4-6-8-10:10 L
ASTRÓPÍÁ kl. 8-10:10 VIP
RATAT0UILLE ífiSKLITAl. kl. 5:30-8-10:30
RATATOUILLE ÍSLWL kl. 3 - 5:30 DISH
TRANSF0RMERS kl. 5-8-10:40 10
TRANSF0RMERS kl.5
NANCYDREW W.6 7
GE0RGIA RULES kl.8 7
HARRY POTTER 5 kl.3-8 10
SHREK3M/ ISLTAL kl.3-4
OCEAN'S 13 kl. 10:30 7
JH.'tiuM* KKINGLUKNI
ASTRÓPÍÁ kl. 6-8-10:10 L
B0URNE ULTIMATUM kl. 5:40-8-10:20
RATATOUILLE LV-ÍSLTAL kl. 5:30 MU.
RATAT0UILLE kl.8
TRANSF0RMERS kl. 10:20 10
£L'W}j3k AKUREYRI
ASTRÓPÍÁ kl.6-8-10 L
RATAT0UILLE iSLTAL kl.6
RATATOUILLE ENSKTTAL M.8 L
TRANSF0RMERS M 10:15 10
ORÐLAUSLIFIÐ
ordlaus@bladid.net
Þannig að þetta er ekki
bara þarft og kúl, heldur
líka fallegt. Það er eiginlega
allt rétt við þetta.
Til hamingju ísland, biðin er senn á enda
Allt Fóstbræðra-
safnið á DVD
Ákveðið hefur verið
að gefa út Fóstbræður
á DVD, en allur ágóði
rennurtil Umhyggju. Jón
Gnarr óskar þjóðinni til
hamingju.
Eftir Atla Fannar Bjarkason
atli@bladid.net
„Fóstbræður eru svolítið eins og
Monty Python. Við gerðum þætt-
ina á sínum tíma með því hugarfari
að við værum að skapa klassík,“
segir Jón Gnarr, en nú hefur verið
ákveðið að gefa út sjónvarpsþætt-
ina Fóstbræður á DVD. Hægt
verður að kaupa allt safnið eða
staka diska, en allur ágóði rennur
til Umhyggju, styrktarfélags lang-
veikra barna. „Ég vil óska þjóðinni
til hamingju og vona að þetta eigi
eftir að seljast í bílförmum, þannig
að Umhyggja njóti góðs af.“
Atriði á Youtube
„Þetta er búið að vera vandamál
í mörg ár vegna þess að þegar þætt-
irnir voru gerðir á sínum tíma, þá
var ekki samið neitt sérstaklega
um DVD,“ segir Jón. „DVD var á
þeim tíma talið einhver bóla sem
ekki myndi ná neinni fótfestu.
Það var einungis samið um
myndbandaútgáfu."
Atriði úr Fóstbræðrum hafa
skotið upp kollinum á myndbanda-
vefsíðunni Youtube og eru gríðar-
lega vinsæl. Þá hafa milli 2-3.000
manns skráð sig á undirskriftalista
sem berst fyrir útgáfunni á Netinu.
Við upptökur Föstbræðraatriði
hafa skotið kollinum á Youtube.
Allt safnið í flottum pakka
„Öll deildin hérna á hæðinni
hjá mér er búin að liggja yfir
► Fyrsti Fóstbræðraþátturinn
fór í loftið 2. október árið
1997.
► Fimm þáttaraðir voru fram-
leiddar á árunum 1997 til
2001.
Katrín Atladóttir stendur fyrir list-
anum á vefsíðu sinni, katrin.is.
„Samtökin Umhyggja fá allan
ágóða af sölunni,“ segir Jón.
„Þannig að þetta er ekki bara þarft
og kúl, heldur líka fallegt. Það
er eiginlega allt rétt við þetta. Ef
ágóðanum hefði verið skipt milli að-
standenda hefði þurft að semja upp
á nýtt við alla sem komu að þessu.
Það er bara heljarinnar verkefni
vegna þess að það voru svo margir
sem komu að þessu á löngum tíma.“
þáttunum, eftir að þeir fundust á
Youtube,11 segir Pálmi Guðmunds-
son, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2.
Hann segist gríðarlega ánægður
með að Fóstbræður séu loksins að
koma út á DVD.
„Við erum að undirbúa útgáfuna
með Senu og það standa væntingar
til þess að þetta komi út um jólin.
Við ætlum að selja staka diska, og
svo verður hægt að kaupa allan
pakkann í flottari umbúðum."
Pálmi segir ekki víst að safnið nái
að koma út
fyrir jól, en
að það sé
mark-
miðið. „ Að-
alatriðið
er þó það
að þetta
er að koma
/ . «
ut.
FÓSTBRÆÐUR
Mjög flottur, glænýr litur í
D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 4.990,-
Gamli góði „minimizerinn" nýkominn
aftur ( D,DD,E,F,FF,G skálum á
kr. 3.990,-
Teningunum
er kastað...
Myndin Astrópía er nýjasta
viðbótin við íslenska kvikmynda-
flóru og verð ég bara að játa að
myndin kom mér skemmtilega
á óvart. Myndin segir frá glansp-
íunni Hildi sem hefur lifað eins
og blóm í eggi undir verndarvæng
hins hrikalega smeðjulega kærasta
síns, Jolla. Þegar kærastinn er
síðan handtekinn neyðist Hildur
til þess að standa á eigin fótum og
til þess að sjá fyrir sér fer hún að
vinna í teiknimyndasögu- og hlut-
verkaspilsversluninni Astrópíu þar
sem rjóminn af nördum landsins
safnast saman með tilheyrandi
svitalykt og kvikmyndatilvísunum.
Það er einstaklega ánægjulegt
að sjá hversu vel hefur tekist til
við framleiðslu myndarinnar. Öll
tæknileg atriði, svo sem hljóð og
myndataka, eru með ágætum og
eiga framleiðendur myndarinnar
hrós skilið. Leikarar myndarinnar
skila sínum hlutverkum með sóma.
Ragnhildur Steinunn stendur sig
prýðilega í hlutverki sínu sem
dekurdrósin Hildur og slíkt hið
sama má segja um flesta leikarana.
Sveppi og Pétur Jóhann ofleika
skemmtilega í hlutverkum sínum
sem samstarfsmenn Hildar í Astr-
ópíu og eiga þeir félagar margar af
Astrópía
Bió: Sambíóin
Leikstjóri: Gunnar Björn
Guðmundsson
Aðalhlutverk:
Ragnhildur
Steinunn, Snorri
Engilbertsson,
Davíð Þór, Pétur
Jóhann.
BÍÓ
bestu línum myndarinnar.
Myndin reynir af fremsta megni
að tengja sig við myndasöguheim-
inn og það sést vel hvernig myndin
er brotin upp með blaðsíðum
úr teiknimyndasögubók. Helstu
hasaratriði myndarinnar gerast í
ímynduðum leikjaheimi aðalper-
sónanna og er margt við þann heim
flott og vel hannað. Þó finnst mér
það vera heldur ódýr lausn að láta
lokauppgjör myndarinnar gerast
í þeim heimi. Fyrir vikið fellur
myndin aðeins á lokasprettinum en
það nær þó ekki að skemma fyrir
heildarmynd Astrópíu. Astrópía
er ferskur andblær inn í íslenskan
kvikmyndaheim. Hún er alls ekki
fullkomin en við nördarnir erum
það ekki heldur.
í tygjum við
eina tvítuga
Þær sögur ganga nú fjöllunum
hærra að hinn 36 ára Fjölnir
Þorgeirsson sé kominn með
nýja kærustu sér við hlið. Sú
heppna er tvítuga Selfossmærin
Rebekka Pálsdóttir, sem hefur
unnið sér það helst til frægðar að
bera titilinn ungfrú Suðurland
þetta árið. Ef marka má Gróu á
Leiti mun Rebekka hafa krækt í
Fjölni meðan á keppninni Ung-
frú Suðurland stóð síðastliðið
vor og heillað sjarmatröllið upp
úr skónum undir það síðasta í
keppninni. Hvort um framtíðar-
samband eða einvörðungu stutt
gaman er að ræða skal ósagt látið,
en óhætt er að segja að Fjölnir sé
að yngja upp...
Lindsay Lohan
ekki ákærð
Leikkonan Lindsay Lohan verður
ekki ákærð fyrir fíkniefnabrot
og þarf því ekki að hafa áhyggjur
af fangelsisvist líkt og vinkona
hennar Nicole Richie.
Brotin sem eru tvö talsins tengj-
ast umferðarslysum sem Lohan
olli, en hún var handtekin fyrir
ölvunarakstur þegar hún ók á
annan bíl í Beverly Hills og í
seinna skiptið ók hún sem óð
væri undir áhrifum fíkniefna
á eftir aðstoðarkonu sinni sem
hafði sagt starfi sínu lausu. Leik-
konan unga mun því að öllum lík-
indum aðeins eiga yfir höfði sér
kæru vegna umferðarlagabrota
og verði hún fundin sek mun hún
ekki þurfa að dvelja lengur en
fjóra daga í fangelsi.
Justin og Alba
saman í mynd
Söngvarinn Justin Timberlake
hefur tekið að sér hlutverk á
móti leikaranum Mike Myers í
kvikmyndinni The Love Guru, en
myndin fjallar á gamansaman
hátt um Bandaríkjamann sem er
alinn upp af gúrúum á Indlandi.
Leikkonan Jessica Alba mun
einnig fara með eitt aðalhlut-
verkið og mun Verne Troyer sem
lék Mini Me í Austin Powers
einnig fara með stórt hlutverk.