Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1994, Blaðsíða 27

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1994, Blaðsíða 27
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 27 Árni Björnsson Söguleg og félagsleg þróun læknisfræðinnar Ég þakka stjórn L.í. þann heiður, að vera val- inn fyrirlesari á þessum merku tímamótum. Sjötíu °g fimm ár er mestur hluti af mannsævi, og mér hefur alltaf fundist það jaðra við hótfyndni, þegar 75 ára afmælisbörnum er óskað langra lífdaga. Oðru máli gegnir um félög, því þau eru í raun aldrei eldri en meðalaldur félaganna. En þó félög geti í raun ekki elst, geta þau úrelst, en það gerist Þegar þau missa sjónar af markmiðum sínum og fara að lifa sjálfra sín vegna. Það er ósk mín til L.í. á þessu merkisafmæli. að það megi eldast vel og lengi, án þess að úreldast. Ætli það hafi ekki verið á útmánuðum, sem hún Helga Hannesdóttir hringdi og bað mig að flytja erindi um „Sögulega og félagslega þróun læknis- fræðinnar" á þessari virðulegu samkomu. Ég ját- aði því f hugsunarleysi, því langur tími var til stefnu, en gætti þess ekki, hvað ég var að taka að mér. Um efnið mætti skrifa heila bók, kannske tvær, og mér voru gefnar 15-20 mínútur. -,Hvar skal byrja, hvar skal standa?“, sagði séra Matthías forðum og „Bragi“ benti honum á Tindastól, en í stað þess að klifra upp á Tindastól og horfa yfir „Skagafjörð læknisfræðinnar" allan, akvað ég að halda mig í byggð, því þar er þolend- ur læknisfræðinnar að finna. Fyrst örfá orð um orð. Læknir er sá sem læknar eða líknar. Læknisfræði verður til þegar aðferðir v'ð að lækna eru settar í kerfi, munnlegt eða skriflegt. Læknavísindi verða til, þegarfarið er að mæla árangur eða afleiðingar lækningaaðferða og eita nýrra á kerfisbundinn hátt, og læknislist er a nota fræðin og vísindin til lækninga. í þessu spjalli mun ég nota orðið læknisfræði yfir fræðin °g yísindin. Eg ætla ekki að segja sögu læknisfræðinnar. ana getið þið lesið af bókum, en mig langar að reyna að skoða, hver áhrif þróun hennar hefur ia t á viðhorf hins venjulega borgara til lækna- stéttarinnar og læknavísindanna. Þá langar mig til að skoða, hvar læknisfræðin stendur í pólitísku umhverfi nútímans og loks hvers er að vænta og hvert verður hlutverk læknastéttarinnar með læknisfræðina og læknavísindin í farteskinu í þjóðfélagi framtíðarinnar. Það sem hér verður sagt eru mínar skoðanir sem ég einn ber ábyrgð á og ætlast ekki til, að menn séu sammála. Sumt af því sem ég segi er ekki stutt pottþéttum rökum, en það er ætlað til að vekja umræðu, svo einhverjar sofandi sálir megi rumska, þó ekki sé nema til þess að mót- mæla. Ég held að enginn læknir, sem lifað hefur langa ævi, velkist í vafa um að viðhorf almennings til lækna og læknisfræði hafa breyst á síðustu áratug- um og það er ástæða til að skoða, hvort sú við- horfsbreyting stafar af breytingum á læknisfræð- inni, eða breytingum á þörfum almennings fyrir læknisfræði, vegna breytinga á þjóðfélaginu. Nú tala menn oftast um læknisþjónustu, þegar störf lækna eru rædd, en áður var talað um læknishjálp. Þar með hefur læknisstarfinu verið skipað í flokk þjónustustarfa. Frá upphafi vega hafa læknar veitt þjónustu, en sú þjónusta hefur þótt merki- legri en að rétta drykki yfir barborð, eða losa stíflu úr skólpröri. Sivert Lindvall, yfirlæknir í Södertalje, sem kenndi mér almenna kirurgiu og margt annað gott, svo sem að éta humar og síld, sagði ein- hverntímann, í hádegisverðarumræðu. „Víst þjónum viðfólkinu, en við erum ekki skyldugir til að hneigja okkur og rétta fram lófann, að loknu verki“. Læknishjálp hefur hingað til verið metin meira en önnur þjónusta, en er þetta viðhorf að breytast og þá hvernig? Sú óttablandna virðing, sem borin var fyrir lækninum, meðan hann hafði lítil sem engin áhrif á gang sjúkdóma en var fyrst og fremst huggari, er
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.