Morgunblaðið - 25.03.2013, Blaðsíða 36
AF TILRAUNUM
Ragnheiður Eiríksdóttir
heidatrubador@gmail.com
Úrslitakvöld Músíktilrauna var
haldið í Silfurbergi í Hörpu síðast-
liðið laugardagskvöld 23. mars og
ánægjulegt var að sjá hve margir
voru mættir. Áhorfendur voru vel
með á nótunum og fögnuðu innilega
fyrsta atriðinu sem var sigursveit
Músíktilrauna frá í fyrra, RetRoBot
frá Selfossi. Fínasta hljómsveit og
gaman var að sjá að henni hefur
vaxið fiskur um hrygg.
For Colourblind People frá
Akureyri steig fyrst á svið af keppn-
isböndunum. Hljóðheimurinn er
heillandi en rödd söngvarans brot-
hætt og vantar upp á nákvæmni, en
vissulega tekur á taugarnar að
byrja kvöldið. CeaseTone er spenn-
andi tónlistarmaður með flottar
blús-skotnar lagasmíðar og gíf-
urlega útgeislun. Sérstaklega vel
tókst til þegar hann bætti tölvu-
trommum við hljóðmynd sína, og út-
komuna mætti jafnvel kalla teknó-
blús. Glundroði frá Selfossi spilaði
þjóðlagarokk og þrátt fyrir fínar til-
raunir með hörpu og fiðlu vantar þá
betri lög. Eins mætti vanda útsetn-
ingar betur, sem virðast á köflum of-
hlaðnar.
Skerðing frá Akranesi var
fulltrúi pönksins þetta kvöld og
byrjaði á að flytja lagið „Down-
trodden, Lonesome, Bohemian,
Lo-Fi, Teenage, Existentialist
Blues“ sem vinnur hér með verðlaun
hjá mér fyrir besta nafn á lagi í
keppninni. Magnarar væla og
trommari missir kjuða en hvað er
meira pönk en það? Þeir bæta fyrir
hnökrana með frábæru stuði og
hæfilega kæruleysislegu viðmóti.
Stórfínar söngkonur
Aragrúi er þriðja Selfossbandið
sem stígur á svið þetta kvöld, annað
sem keppir. Stórfínar söngkonur, og
smá Kolrössu Krókríðandi-áhrifa
gætir í lagasmíðunum, þar sem kraft-
meiri köflum er stillt upp við hlið líf-
rænni; það er dýnamík sem er að
virka.
Eftir hlé hóf Yellow Void leik og
þar mætti bæði vinna meira í lögum
og flutningi, en það má útskýra með
reynsluleysi meðlima sem öll eru 16
ára og yngri. Kaleo komu á óvart
með fyrsta lagi sínu sem var alveg
frábært og bandið þétt og vel spil-
andi. Hin lögin voru hefðbundin
rokk-blúslög og hljómuðu minna
spennandi.
Tríóið Kjurr, með trommarann
Sólrúnu Mjöll Kjartansdóttur innan-
borðs, minnti á tríóið The Police þar
sem einmitt var einnig að finna ævin-
týralega góðan trymbil. Þessi sveit á
mikið inni og býr yfir gífurlegri sér-
stöðu. Lögin eru flott og flutningur
magnaður. Þá var komið að Vök frá
Hafnarfirði sem flutti lágstemmda
raftónlist með gítar og saxófón. Þau
eru áhugaverður indídúett með sitt
eigið sánd og mjög fín lög.
Næstsíðust á svið var In the
Company of Men sem spilaði þungt,
kaflaskipt rokk. Söngvari sveitar-
innar er kraftmikill, og lokalag
þeirra „Steini milljón“ er hressandi
rokkslagari. Að lokum léku Hide
Your Kids dansvæna indítónlist og
margt er þar gott, eins og seiðandi
og rám rödd söngvarans, þéttar
trommur og grípandi syntalínur.
Lögin eru þó mis-tilbúin og til dæmis
þarfnast miðlagið meiri vinnu.
Frábær skemmtun
Þegar úrslit voru tilkynnt kom í
ljós að sigurvegarar Músíktilrauna
2013 voru Vök og í öðru sæti lentu In
the Company of Men. Aragrúi varð í
því þriðja, en söngkona Aragrúa,
Hulda Kristín Kolbrúnardóttir, var
jafnframt kosin söngvari Músíktil-
rauna. Gítarleikari Músíktilrauna
var Hafsteinn Þráinsson, eða Cease-
Indíið vinnur á
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sigurvegarar Hljómsveitin Vök bar sigur úr býtum í Músíktilraunum 2013.
Þungt rokk Hljómsveitin In the Company of Men varð í öðru sæti.
Indí Hide Your Kids lék dansvæna indítónlist. Tríó Kjurr minnti á tríóið Police.
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MARS 2013
Hörku spennumynd
16
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Páskamyndin 2013
Stórkostleg ævintýramynd
fyrir alla fjölskylduna
Sýnd með íslensku
og ensku tali
Sýnd í 2D og 3D
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
Forsýningar
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
12
L
L
L
L
L
10
HHHH
- K.N. Empire
12
SNITCH Sýnd kl. 8 - 10:20
THE CROODS 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 4
THE CROODS ÍSL TAL Sýnd kl. 2
THE CROODS 3D ENSKT TAL ÓTEXTUÐ Sýnd kl. 8
BROKEN CITY Sýnd kl. 8 - 10:15
IDENTITY THIEF Sýnd kl. 10
OZ THE GREAT AND POWERFUL 3D Sýnd kl. 2 - 5
FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 3D Sýnd kl. 6
FLÓTTIN FRÁ JÖRÐU Sýnd kl. 2 - 4 - 6
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
BROKEN CITY KL. 5.50 16
SAFE HAVEN KL. 5.50 - 8 12
SNITCH KL. 8 - 10.10 16
IDENTITY THIEF KL. 10.10 12
SAFE HAVEN KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
SNITCH KL. 5.30 - 8 - 10.30 16
ANNAKARENINA KL. 6 - 9 12
JAGTEN (THE HUNT) KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
STÓRSKEMMTILEG
ÆVINTÝRAMYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
MEÐ ÍSLENSKU TALI Í 3-D OG 2-D.
FORSÝNINGAR
SAFE HAVEN KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
SAFE HAVEN LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
THE CROODS 3D ÍSL. TAL KL. 3.30 L
THE CROODS 2D ÍSL.TAL KL. 3.40 L
THE CROODS 3D ENSKT TAL, ÁN TEXTA KL. 5.45 L
BROKEN CITY KL. 8 - 10.30 16
IDENTITY THIEF KL. 5.30 - 8 12
21 AND OVER KL. 8 - 10.10 14
FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 3D KL. 5.50 L
DIE HARD 5 KL. 10.30 16