Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2003, Blaðsíða 75

Læknablaðið - 15.06.2003, Blaðsíða 75
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ 38 Af hnerra og hetjuskap Óánægður sjúklingur Lögfræðingur nokkur sem talinn var til undantekn- inga meðal starfssystkina sinna þar eð hann þótti flestum til ama og lítt vandur að virðingu sinni þurfti að leggjast fársjúkur inn á spítala. Þrátt fyrir ítarlegar rannsóknir var ekki ljóst hvað amaði að manninum og dag og nótt barðist starfsfólk spítalans við að halda lífinu í honum. Fyrstu vikuna þurfti að skera manninn upp þrisvar sinnum og vegna þess hve alvarlegt ástand hans var eftir síðustu aðgerðina var honum haldið sofandi næstu daga. Loks fór að ganga betur og maðurinn komst til rænu. Ekki leið á löngu þar til starfsfólkið fór að ræða sín á milli og án þess að hann heyrði hve miklu auðveldara það hefði verið að sinna sjúklingnum á meðan hann var sofandi. Maður- inn sýndi nú óyggjandi batamerki dag frá degi og þremur vikum eftir innlögn var komið að útskrift. „Mér finnst alveg með ólíkindum á dögum allrar þeirrar tækni sem læknavísindin hafa upp á að bjóða að það þurfi að halda manni milli heims og helju í marga sólarhringa áður en komist er að réttri sjúk- dómsgreiningu. Og svo verð ég að segja að ég hef nú séð fallegri aðgerðarör en þau sem ég er með,“ sagði lögfræðingurinn við skurðlækninn sem staðið hafði í ströngu við að halda lífinu í sjúklingnum og hafði sýnt mikla þolinmæði við að sinna honum í veikindunum. En nú fannst lækninum mælirinn vera fullur. „Ef þú bara vissir hve áhugaverð veikindi þín voru frá sjónarhóli læknavísindanna og ef þú hefðir minnstu hugmynd um það hve erfitt það var að standast þá freistingu að fá svörin strax með krufn- ingu þá hefur þú enga ástæðu til að kvarta yfir einu né neinu,“ sagði læknirinn ákveðinn og kvaddi. Alltaf hnerrandi Ung kona kom í skoðun til læknis án þess að hún væri beinlínis veik. Læknirinn fann ekkert athugavert og spurði hvort eitthvað sérstakt amaði að henni. „Sko, það er dálítið sem hvílir á mér,“ sagði kon- an. „Og hvað er það?“ spurði læknirinn og virtist ekki vera að flýta sér, aldrei þessu vant. „Sko, í hvert skipti sem ég hnerra fæ ég kynferðis- lega örvun sem nálgast fullnægingu.“ „Ja hérna,“ sagði læknirinn. „Og til hvaða ráða hefur þú gripið út af því?“ „Eg hef notað svartan pipar,“ sagði konan. Einn á móti Maður á miðjum aldri kom til læknis í reglubundið eftirlit. Ekki bar á öðru en maðurinn væri með end- emum vel á sig kominn. „Ég finn ekkert að þér. Er það annars eitthvað annað sem þú ert að velta fyrir þér?“ spurði læknirinn. „Ég hef verið að spá í það að láta taka mig úr sam- bandi,“ sagði maðurinn og fór svolítið hjá sér. „Það er stór ákvörðun,“ sagði læknirinn. „Hefur þú rætt málið heima?“ „Já,“ sagði maðurinn. „Atkvæðin féllu þannig að 16 voru þessu fylgjandi en ég var einn á móti.“ Leikmannsþankar Ef maður hugsar út í það þá geðjast mér ekkert að því að fara til læknisins míns. Eins og svo margir heimilislæknar er hann með alls konar viðurkenning- arskjöl upp á vegg hjá sér og kassa fullan af gúmmí- hönskum á borðinu. Þessar viðurkenningar gefa hon- um heimild til að nota hanskana eins og honum sýnist. Dauður við dyrnar Hjúkkan kom hlaupandi inn á skrifstofu læknisins og var mikið niðri fyrir. „Hann Ásmundur sem var að fara frá þér rétt áðan og allt virtist vera í stakasta lagi með datt líflaus niður við útidyrnar. Hvað viltu að ég geri?“ spurði hjúkkan. Læknirinn leit upp frá pappírunum. „Sjáðu til þess að hann snúi eins og hann hafi verið að koma inn,“ sagði læknirinn. „Hringdu svo í 112.“ Hetjuskapur hjá tannlækni Hjónunum Sigurði og Margréti var vísað inn til Páls tannlæknis. Þau voru mætt án þess að hafa gert boð á undan sér og Sigurður lét á sér skilja að hann væri tímabundinn. „Palli minn, ég held að best sé að draga fjandans tönnina úr. Enga deyfingu og ekkert vesen, bara að kýla á'ða.“ „Ég man ekki eftir að hafa hitt jafn yfirvegaðan og kjarkmikinn sjúkling í háa herrans tíð,“ sagði Páll fullur aðdáunar. „Og hvaða tönn er það?“ Þá sneri Sigurður sér að konu sinni og sagði: „Opnaðu munninn Magga mín og sýndu honum hvaða tönn það er, elskan." Bjarni Jónasson bjarn i.jonasson @gb. Iigst. is Læknablaðið 2003/89 547
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.