Þjóðólfur - 20.09.1901, Blaðsíða 1
ÞJOÐOLFUR.
53. árg.
Reykjavík, föstudaginn 20. september 1901.
Nr. 45.
Takið eptir!
Nýir kaupendur
að næsta (54.) árgangi Þjóðólfs frá árs-
byrjun 1902
fá ókeypis
síðasta ársfjórðung þessa yfirstandandi árgangs,
frá 1. október til ársloka, allS 15 tölublöð.
og auk þess í kaupbæti
Biðjið ætíð um
OTTO MÖNSTED’S
danska smjörlíki
sem er alveg eins notadrjúgt og bragðgott eins og smjör.
Verksmiðjan er hin elzta og stærsta í Danmörku, og býr til óefað hina beztu vöru
og ódýrustu í samanburði við gæðin.
Fæst h já k a u p m ö n n u n u m .
tvö síðustu sögusöfn blaðsins.
sérprentuð (11. og 12. hepti) yfir 200 bls.
í stóru 8X2: í þessum heptum eru
mjög skemmtilegar sögur, er hlot-
ið hafa almannalof, t. d. Gröf ívans, Kan-
ada-Karl, Þorpið horfna, Óstýrilátar ástir
o. m. fl.
Nýbyrjuð í blaðinu norsk saga:
sUnnusta fangans«, byggð á sannsögulegum
atburðum og þykir hún ágætlega rituð.
íslenzkir söguþættir halda áfram að koma
í blaðinu við og við.
Þjóðólfur flytur ekkert fals né lygi,
hvorki í pólitik né öðru, en skýrir satt og
rétt frá málavöxtum. Annars þarf ekki að
lýsa stefnu hans í þjóðmálum, því að hún
er kunn.
Allir góðir drengir, sem unna frelsi
og sjálfstjórn íslands ættu að kaupa og lesa
ÞjóðóJf. ___________
Utsölumenn, sem útvega 8—10 nýja
kaupendur, og annast um borgun frá þeim,
fá há sölulaun, og að auki sérprentlin af
öllum íslenzkum sagnaþáttum, er birzt hafa
í blaðinu næstl. 3— 4 ár. Fyrsta heptinu
mun verða lokið um nýár.
Útlendar fréttir.
Kaupmannahöfn, 5. sept.
Engin stórtíðindi!
Þaðer aðallega hin fyrirhugaða ferð Rússa-
keisara til Þýzkalands og Frakklands, er gefur
blöðunum umtalsefni þessa dagana, og þó er það
sagt, að ferðin sé ópólitisk. Keisarinn er nýlega
kominn hingað til Danmerkur og dvelur hjá afa
sfnurn Kristjáni IX á höllinni í Fredensborg, litla
þorpinu á Norður-Sjálandi, sem þvl allra augu nú
hvíla á, eins og optar fyr. Georg Grikkjakonung-
ur er þar og sem stendur ásamt fleiri kgl. skyld-
mennum og á sunnudaginn kemur Játvarður Breta-
konungur.
Annað umtalsefnið er heimsókn Tschun’s
(Chun’s) Kínaprins hjá Wilhelm keisara. Til þess
að sefa reiði keisara út af morðinu á v. Ketteler
sendiherra hefur Kínakeisari sent bróður sinn hing-
að vestur. Eptir langar bollaleggingar um, á hvern
hátt prinsinn ætti að biðja um fyrirgefningu eða
lýsa gremju Kínverja á nefndum glæp — hvort
hann eptir kínverskum sið ætti að kasta sér fyrir
fetur W. keisara og lemja andlitinu niður í gólfið
eða að eins hneigja sig auðmjúklega. — mættiprins-
inn loks fyrir hástóli keisara í gær. Þess er getið
nákvæmlega, að keisari hafi setið með reigingssvip,
en eptir að prinsinn hafi hneigt sig þrisvar sinn-
um og lesið upp erindi sitt hafi hann látið mýkj-
ast og loks boðið honum að borðahjásér! Prins-
inn varð þó að afloknu erindi að hneigja sig apt-
ur þrisvar sinnum og ganga aptur á bak út. Þar
með var svo vináttan milli Kínverja og Þjóðverja
aptur innsigluð til blessunar fyrir báðar þjóðir og
allan hinn siðaða heim — eins og keisari með
vanalegu látleysi komst að orði.
Eptir því, er séð verður af blöðunum, er nú
verið að reka rembibnútinn á kínversku friðar-
sáttmálana; sendiherrarnir loks orðnir sammála.
I erfðaskrá sinni hefur ekkja Friedrich’s
keisara ánafnað hverju af börnum sínum 1,000,000
kr. — Það gengur sá orðasveimur, að hún eptir
dauða manns síns hafi gipzt leynilega einum af
hirðmönnum sínum, Seckendorff greifa. Keisari
hefur enn ekki lýst sögu þessa ósanna, þótt fleiri
blöð hafi borið hana á borð.
Mikla eptirtekt hefur vakið í Þýzkalandi og
víðar mál eitt, er nokkuð þykir svipa til Dreyfus-
málsins. Herforingi einn af háum stigum, Kro-
sigk að nafni, var skotinn af einhverjum í her-
sveit þeirri, er hann stýrði; K. var illræmdur fyr-
ir hörku gegn mönnum sínum. Grunurinn féll á
Marten undirherforingja. Hann neitaði sigsek-
an og var sýknaður af undirrétti, en v. A11 e n
hershöfðingi, er þóttist sannfærður um sök M.’s
lét eigi að síður halda honum í varðhaldi og áfrýj-
aði dómnum. Og nú er M. dæmdur til dauða
án frekari sannana. Dómararnir eru herforingj-
ar, undirboðarar v. Altens. Málinu verður þó nti
skotið til hæstaréttar.
Um þrætumál Frakka og Tyrkja, sem
áður er áminnst, er það að segja, að soldán sveik
öll loforð, og Frakkar slitu því diplomatisku sam-
bandi við Tyrki og köUuðu Constans sendi-
herra heim. Kveldblöðin geta þess, að Frakkar
sétt einráðnir í að halda málinu til streitu.
Það lítur út fyrir, að Bretum verði lítið ágengt
með tilskipun Kitchener’s, er um var getið í
síðasta bréfi. Gamli Kriiger hefur mótmælt henni
kröptuglega og telur aðferð Breta stríðandi gegn
ákvæðum friðarfundarins í Haag. Svo kvað og
allir helztu foringjar Búa í Afríku (Botha, Stejn,
de Wet o. fl.) hafa sent K. skrifleg mótmæli og
látið hann vita, að þeir mundu ekki láta hugfall-
ast. — Að öðru leyti ekkert sögulegt að frétta af
viðskiptum Breta og Búa; þeir eiga í slfelldum
smástympingum og einkum virðast Búar í seinni
tíð hafa gert allmikinn óskunda á járnbrautunum
þar syðra; þannig höfðu þeir nýlega sprengt í
lopt upp járnbrautarlest við Hamanskraal, þar sem
Bretar mistu 20—30 manns.
Það hefur verið í meira lagi kulkalt milli
Venezuela og Kolumbia seinastamánuðinn.
Nú útlit fyrir, að Mac Kinley muni takast að koma
á sáttum.
D r a g a drottning í Serbíu þykir nokkuð ráð-
rík. Sem dæmi er þess getið, að hún létnýlega
víkja forstöðumanni hermannaskólans þar < landi
frá embætti, af því að hann hafði sett ofan í við
lærisvein einn, sem er náskyldur drottningu. Þýð-
ingarmeira er þó, að konungur, sem nú er von-
laus um að eignast börn, kvað eptir fortölum konu
sinnar vera að hugsa um að kjósa bróður hennar
Nikodem Lunyeviza, sem er lautenant, ti! ept-
irmanns síns í konungssessi.
Slys mikið varð nýlega vestur við Alaska.
Skipið »Islander« rakst á ísjaka og sökk; 65 m.
höfðu drukknað, þar á meðal Ross landstjóri í
Alaska með fjölskyldu sinni og skipstjóri sjálfur;
yfir 100 m. varð bjargað. Eins og vant er við
slík tækifæri, gerði hræðslan rnenn óða; fólk barð-
ist um bátana, konur og börn voru fótum troðin,
sumir köstuðu peningum sínum í sjóinn af örvænt-
ingu og aðrir toguðu gullið með sér niður í sjáv-
ardjúpið. ____________
Fáum dögum eptir lát Nordenskjölds, heim-
skautafarans nafnkunna, andaðist annar af beztu
mönnumSvía: Gunnar Wennerberg, fyrv. ráð-
herra, áníræðisaldri,ljóð-ogtónskáld(»Gluntarne«).
Það er nú haft eptir Indiánum f Hudson-
baylandi í Norður-Ameríku, að þeir í fyrra vor
hafi fundið leifar af loptbát og lík af tveim hvlt-
um mönnum, og eptir lýsingunni á annar af þess-
um mönnum að hafa verið Andrée.
Islenzkur skóarasveinn, Pétur Pétursson
að nafni, fyrirfór sér nýléga á þann hryllilega
hátt, að hann fleygði sér út um glugga á efsta
lopti 1 húsinu, þar sem.hann bjó (Gartnergade 5
hér í bæ). Unnusta hans hafði svikið hann og
tók hann sér það svo nærri, að hann hafði ekki
verið með fullu ráði seinustu dagana.