Láki - 19.06.1919, Blaðsíða 1
Afgreiðsla og innheimta
hjá Guðmundi Davíðssyni,
Bókabúðinni; Laugav. 13.
Skrifstofa á Vegamótastíg
9. Ritstjóri til viðtals kl.
7—8 e. h.
LÁKI
GAMANBLAÐ
Láki kemur svo oft sem
þ.ví verður við komið. —
Kostar í lausasölu 25 au.
eint., en fyrir fasta áskrif-
endur 20 au.
Ritstjóri: Pétur Jakobsson
1. tbl.
Fimtudag 19. júní.
Láki.
Hann Láki er engum líkur —.
— Hann Láki er vorinu'fæddur —.
Og Láki er fullur af fjöri og ást,
— en feiknar skapsmunum gæddur.
Og nú er hann Láki lagður af staö,
— og Láki ætlar engum að gleyma.
Rvi Láki er ljúflingur allra,
og Láki á alstaðar heima.
A m a t o r.
Lákl er vorblóm.
Láld er margfaldur vormaður.
Hann lætur ljós sitt sldna i fyrsta
sinni á júnídegi, þegar vorið i náttúr-
unni er i sem mestum blóma, einmitt
þegar súrurnar eru útsprungnar og
hvönnin er orðin græn og vorrigning-
arnar belja með reginmagni, og mynda
kolmórauð stórfljót i göturennunum,
sem brjótast áfram út yfir alla bakka,
— alveg eins og hugur æskumannsins.
1919.
Og hann kemur á vori hins íslenzka
þjóðlífs, — einmitt þegar á að fara að
kaupa flugvélarnar.
Vér sögðum á vori hins íslenzka
þjóðlífs, og það er auðvelt að sýna og
sanna með fáum dæmum. Rað þarf
ekki annað en benda á þessi þrjú hundr-
uð bílstjóra vorra, sem nú hafa, með
hinum foma og dýrlega, eg tala nú ekki
um karlmannlega einarðleik gert
„skrækinn." Og einmitt nú eigum við
séra Bjarna. Og Ólaf Friðriksson. Og
Einar Jochumsson nýkominn til bæj-
arins! Og svo eigum við einhverstaðar
mann, sem kann að herma eftir Chap-
lin!
Eða hafa menn lesið pistihnn eftir
hann Gísla Jónsson, sem fæst i Sölu-
turninum — þar sem þetta stendur
skrifað:
Eg hélt mig sitja í sólskini,
hátt á hól á bersvæði;
þá gægðist þar upp illtrýni
og terrað stél á sóðsvini.
Hver, sem lesið liefir Gísla, efast ekki
um að nii er vor, ekki eingöngu í þjóð-
lífinu, heldur líka i bókmentunum.
Já, ]?að sér hver máður: Láki kem-
ur á þeim tíma, sem fegurstur hefir
runnið upp yfir þjóð vora.
Og ekki einungis það: