Fjarðarfréttir - 01.03.1983, Blaðsíða 1

Fjarðarfréttir - 01.03.1983, Blaðsíða 1
VETRARSTEMMNING Þótt tíðarfarið hafi oft verið rysjótt í vetur hafa stundum komið þeir dagar, að engin bönd hafa haldið róifæru fólki innan dyra. Á einum slíkum degi brugðu Fjarðarfréttamenn undir sig betri fætinum, vopnaðir myndavél, og á bls. 8 má sjá hluta af afrakstrinnm NÝ BYGGÐ RÍS í SETBERGI Hafnfirðingar hafa nú eignast stórveldi í íslenskum körfuknattleik, þar sem er hið unga og efnilega lið Hauka. í viðtali við Fjarðarfréttir, sem birt er á bls. 4, segir Einar Bollason, þjálfari liðsins, m.a. að hér sé um að ræða yngsta lið sem í sögu íslenskra iþrótta, nær þeim áfanga að keppa í efstu deild. Á myndinni sjáum við hinn stórefnilega fyrirliða Hauka, Pálmar Sig- urðsson, taka við verðlaununum fyrir sigur í I. deild. Hið rismikla hús, Suðurgata 5, sem áður var eign Jóns Gests Vigfússon- ar verður rifið nú á næstunni. Ástand hússins er að mati manna svo bág- borið að ekki sé um annað að ræða. Bæjarráð hefur samþykkt að fela bæjarverkfræðingi að láta rífa húsið. Rannveig Traustadóttir, bæjarfulltrúi lét bóka eftirfarandi í framhaldi af þessari samþykkt bæjarráðs: ,,Ég er andvíg því, að húsið Suðurgata 5 verði rifið, en tel réttar að gera húsið upp á núverandi stað eða selja það til flutnings á aðra lóð, þar sem hægt væri að gera húsið upp.“ Hvað sem öllu niðurrifi líður hefur hús þetta á sínum tíma verið hið reisulegasta og bæjarprýði. Nýlega var auglýst eftir umsóknum í lóðir í nýju byggðarhverfi sem fyrirhugað er að rísi á næstu árum í landi Setbergs. Vafalaust verða lóðir á þessum fallega stað mjög eftirsóttar. — í opnu blaðsins (bls. 6-7) er fjallað nánar um þetta nýja byggðarsvæði og stór uppdráttur af 1. áfanganum birtur. 75 ára afmæli Hafnarfjarðar: Undirbúningur hátíðahald- anna í fullum gangi. HAUKAR I URVALSDEILD SUÐURGATA 5 VERÐUR RIFIN Afmælisnefnd bæjarins starfar nú af fullum karfti og nýlega voru þær Lovísa og Þórunn Christiansen ráðnar starfsmenn nefndarinnar í hlutastarf. Dagskrá hátíðahald- anna er ekki að fullu mótuð og enn eru nokkrir lausir endar að sögn Guðjóns Tómassonar, formanns nefndarinnar. í megin atriðum má skipta dag- skránni í þrjá þætti. a) Sýningar og atriði sem standa allan tímann. b) Afmælisdagskrá með ýmsum uppákomum. c) Vinarbæjardagskrá. Hafnfirskir listamenn munu hafa sýningar í Háholti og einnig í Flensborg og þar mun verða hægt að koma fyrir ýmsri annarri dagskrá samhliða málverkasýn- ingu. Fjarðarfréttir munu í næstu blöðum flytja fréttir frá nefndinni og segja nánar frá hátíðahöld- unum, sem standa yfir frá 28. maí til 4. júní. ÁGRIP AF SÖGU FRAMKVÆMDA VIÐ HAFNARFJARÐARHÖFN Vandað rit um sögu hafnarinnar. í tilefni af 70 ára afmæli Hafnar- fjarðarhafnar hefur að tilhlutan Hafnarstjórnar verið gefinn út myndarlegur bæklingur þar sem saga hafnarinnar er rakin i stórum dráttum. Ritið er prýtt mörgum myndurn frá ýmsum tímum og er t alla staði hið vandaðasta. Snorri Jónsson sá um samantekt ritsins. ATVINNULEYSI MEÐ MEIRA MÓTI Atvinnuástandið hefur verið talsvert áhyggjuefni manna að undanförnu. Augljóst er að hættan á atvinnuleysi er nú talsvert meiri en á undanförnum árum. í janúar sl. voru um 2.2% landsmanna at- vinnulaus og í febrúar 1.6%. Til samanburðuar voru 0.9% atvinnu- lausir í febrúar á síðasta ári. Þessar tölur sína að nokkuð hefur sigið á ógæfuhliðina. Þess ber þó að gæta að það sem af er árinu hefur verið talsvert um tímabundið atvinnu- leysi vegna erfiðleika í útgerðinni, eins og starfsfólk Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar hefur fengið að kynnast. Til að grennslast nánar um stöðu þessara mála hér í bænum, fengu Fjarðarfréttir eftirfarandi upplýs- ingar hjá Gunnari Sveinbjörnssyni hjá Félagsmálastofnun Hafnar- fjarðar: Nú um mánaðarmótin eru á at- vinnuleysisskrá í Hafnarfirði 115 manns, þ.e. 42 konur og 73 karl- menn, er skiptist þannig: Verkakonur 32 Verkamenn 27 Sjómenn 10 V örubifreiðastjórar 19 Iðnaðarmenn 5 Verslunarkonur 8 Verslunarmenn 2 Iðnverkakonur 2 Iðnverkamenn 3 Matsveinar 3 Verkstjórar 2 Vélstjóri 1 Vélvirki 1 Alls 115 manns Skráðir atvinnuleysisdagar í febrúar 1983, 3768. Hjá konum 1819 dagar og körlum 1949 dagar. Atvinnuástand í bænum var slæmt í febrúar, þó sérstaklega fyrri hluta mánaðarins, þar til vinna hófst að nýju hjá B.U.H. Nú um mánaðarmótin eru enn rúmlega 100 manns atvinnulaus og virðist þar ráða mestu erfið veðr- átta, lítill afli og samdráttur í hinum ýmsu þjónustugreinum, og það sem af er þessum mánuði hefur ekki orðið breyting til batnaðar.

x

Fjarðarfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.