Fjarðarfréttir - 01.03.1983, Blaðsíða 6
6
Fjarðarfréttir
Fjarðarfréttir
7
MEÐ
LOGUM
SKAL
LAND
BYGGJA
HLJOMPLOTUVERSLUNIN MARS
STRANDGÖTU 37
FILMUFRAMKÖLLUN SAMDÆGURS
SEIKO í Hafnarfirði
Ný sending — MIKIÐ ÚRVAL
Vinsæl FERMINGARGJÖF
margt til gjafa
á fermingardaginn:
Rakvél með rafhlöðum - kr. 1.100.00
Einnig skartgripakassar.
Fermingarklæðnaður á stúlkur og allt
tilheyrandi eins og hanska, blúnduvasaklúta, sjöl og slæður
og blóm í hárið. - „Manicure“-sett og margt,
margt fleira prýðir verslun okkar. Snyrtivörur fyrir
dömur og herra. Sendum í póstkröfu ef óskað er.
Strandgötu 34 220 Hafnarfirði Sími 50080
NÝ BYGGÐ
Nokkrir fróðleiksmolar
varðandi fyrirhugaða
byggð í Setbergslandi
1978 er lögfestur makaskipta-
samningur milli Hafnarfjarðar-
bæjar og Garðabæjar. Samning-
urinn rétti nánast af bæjarmörk.
Garðabær fékk land í framhaldi
af nýja iðnaðarhverfinu en
Hafnarfjörður landsvæði er
teygði sig allt niður undir Læk.
1979 var hafin skipulagsvinna að
byggð í Setbergi. Hönnuður
deiliskipulags er Björn Hallsson,
arkitekt.
1980 var gerður samningur um
landakaup í Setbergi. Keypt var
það land í Hafnarfirði er til-
heyrði Setbergi, Þórsbergi og
Hlébergi ails 106 hektarar.
Greiðslum vegna kaupanna skal
vera lokið 1990.
! Setbergi eru byggingarlóðir
u.þ.b. 55% og opin svæði, götur
og land undir opinberar bygg-
ingar u.þ.b. 45% ails landssvæð-
isins.
Áætlaður fjöldi íbúða í Setbergi
fuilbyggðu er 1.050 þar af 55%
einbýli eða sérbýii og 45% fjöl-
býli eða þétt byggð.
í hverfinu fullbyggðu verða
u.þ.b. 5.000 íbúar.
Á þessu svæði mun 1. áfangi byggðarinnar rísa.
. -
&
---- tSSSCW■rm-
Framkvæmdir hafnar.
Deiliskipulag Setbergs staðfest
1983. Verklegar framkvæmdir
hófust við 1. áfanga byggðar í
Setbergi í byrjun þessa árs.
Hagvirki hf. annast gatnagerð.
Tilboðsupphæð skv. samningi
kr. 9.200.000,-
Loftorka hf. annast gerð frá-
rennslisiagna og undirganga við
gatnamót Reykjanesbrautar og
Lækjargötu. Tilboðsupphæð kr.
2.200.000.-
Gatna- og frárennsliskerfi
byggðarinnar hannað á skrif-
stofu bæjarvterkfræðings undir
yfirumsjá Jóhanns Bergmann.
í fyrsta áfanga verður úthlutað
lóðum undir 82 íbúðir. Þar af
eru einbýlishús 64, parhús 8 og
raðhús 10.
114 Hafnfirðingar sækja um
Ióðir undir einbýli og 44 utan-
bæjar. 5 Hafnfirðingar sækja
um parhús og 3 utanbæjar. 3
Hafnfirðingar sækja um raðhús.
Búast má við úthlutun um
miðjan apríl.
Á fundi bæjarstjórnar 1. þ.m.
var samþykkt tillaga gatnanafna-
nefndar með nokkrum breytingum,
um nöfn á götum í Setbergi. Á með-
fylgjandi korti má sjá hvar eftir-
taldar götur koma til með að liggja.
1. SETBERG Nafn byggðar-
innar
2. LÆKJARBERG Safnbraut í
framhaldi af Lækjargötu og eftir
Fjárhúsholti
3. HAMRABERG Safnbraut
sem liggursamhliðaReykjanes-
braut til norðurs, vestan Ás-
bergs og Þórsbergs.
4. HOLTABERG Safnbraut,
sem liggur frá Lækjarbergi að
Hamrabergi þvert yfir Setbergs-
holt.
5. STEKKJARBERG Vegur,
sem liggur yfir Stekkjarhraun
frá Lækjarbergi.
6. LÆKJARGATA Brautin frá
Lækjargötu framhjá Reykholti
og upp á stofnbrautina, -
væntanlega Reykjanesbraut -,
verði framhald Lækjargötu.
Eftirfarandi götur eru útfrá
Hamrabergi, talið frá Lækjarbergi:
7. ÁLFABERG
8. EINIBERG
9. FAGRABERG
10. GLITBERG
11. FURUBERG
12. GRENIBERG
13. HVASSABERG
14. HNOTUBERG
15. KVISTABERG
16. LJÓSABERG
17. LYNGBERG
18. REYNIBERG
19. STUÐLABERG
20. VÍÐIBERG
Eftirfarandi götur eru útfrá
Lækjarbergi:
21. STAÐARBERG Gata til
suðurs þar sem þjónustumið-
stöð er fyrirhuguð.
22. DOFRABERG Gata til norð-
urs rétt ofan Stekkjarbergs.
23. TRAÐABERG Gata til norð-
urs næst fyrir ofan Dofraberg.
24. DALSBERG Gata eftir Mos-
hlfð niðurdalbotninn að Lækjar-
götu.
Eftirfarandi götur eru útfrá Holta-
bergi:
25. HÓLSBERG Gataefst í holt-
inu vestan Galdraprestshóls
26. HLÍÐARBERG Gata I miöri
hlíðinni til norðurs.
*
ELDFAST POSTULÍN
Bollar, kökudiskar,
matardiskar og súpu-
skálar.
TÚPGPENNAR
Túpulitirnir eru þvott-
ekta og mjög einfaldir í
notkun. I versluninni
fást dúkar og myndir til
að mála á.
ATH.
Námskeið í hnýtingum, glermálun og
glerskurði hefjast eftir páska.
Innritun hafin.
Verslunin
FRÍSTGND
Verslunarmiðst. v/Miðvang,
s. 54277
Svefnsófar og skrifborðsett
á mjög hagstæðu verði.
Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 54100
IZIDQm
Munið vinsælu
FERMINGAGJAFIRNAR
okkar.