Fjarðarfréttir - 01.03.1983, Blaðsíða 3
Fjarðarfréttir
3
HLUTHAFAR í LÝSI OG MJÖL HF.
NEYTA FORKAUPSRÉTTAR
Eins og fram kom i síðasta tbl.
Fjarðarfréta samþykkti meirihluti
bæjarstjórnar að selja hlutabréf sín
í Lýsi og Mjöl h/f og því til viðbót-
ar hluta af bréfum Bæjarútgerðar-
innar. í samþykkt bæjarstjórnar
var ráð fyrir því gert að Skipafélag-
ið Víkur og Saltsalan h/f keyptu
bréfin á 15 földu nafnverði þeirra.
Skv. lögum um hlutafélög ber að
bjóða öðrum hluthöfum forkaups-
rétt á þeim hluta sem selja á og þá
á þeim kjörum sem boðin hafa
verið.
í bæjarráði þ. 24. febrúar s.l. var
lögð fram fundargerð stjórnar Lýsi
og Mjöls h/f frá 21. feb. s.l. Þar
kemur fram að eftirtaldir hluthafar
óska eftir að neyta forkaupsréttar:
Jón Gíslason h/f,
Frost h/f,
Fiskaklettur h/f,
Illugi h/f,
Bernhard Petersen,
Adolf Björnsson og
dánarbú Ásgeirs Stefánssonar.
Það er því ljóst að af sölu fyrir-
tækisins verður ekki til Skipafé-
Iagsins og Saltsölunnar. Hvort þeir
hlutahafar er nú auka hlutafáreign
sína í fyrirtækinu muni halda
rekstri þess áfram skal ósagt látið,
en heyrst hefur og ekki farið lágt að
þeir ætli sér fremur að selja Lýsi
h/f, Reykjavík fyrirtækið og þá að
sjálfsögðu fyrir hærra verð en 15
falt.
UMDEILDAR LÓÐAÚTHLUTANIR
Fyrir nokkru var úthlutað 31 lóð í
Norður- og Vesturbæ. Um-
sækjendur um lóðirnar voru um
140 svo að sýnt var að erfitt yrði að
ná samstöðu um úthlutun, enda fór
svo að miklar deilur spunnust um
málið í bæjarstjórn. Minnihlutinn
lagði fram og mælti með notkun
punktakerfis þar sem umsækjend-
ur fá ákveðinn fjölda stiga eftir að-
stæðum (búsetu, atvinnu, fjöl-
skyldu- og íbúðarstærð o.fl.)
Meirihluti bæjarstjórnar var
andvígur þessum úthlutunarreglum
og benti á ýmis vandkvæði á fram-
kvæmd þeirra.
Að lokum var tillaga meirihlut-
ans um úthlutun samþykkt, en við
gerð hennar segist meirihlutinn
hafa stuðst við ákveðnar megin-
reglur við mat á fyrirliggjandi um-
sóknum, hvað varðar aldur og bú-
setu umsækjenda, fjölskyldu-
stærð, húsnæðisaðstæður og sér-
stakar aðstæður og þarfir einstakra
umsækjenda.
Á myndinni hér að ofan má sjá
hvar framkvæmdir eru hafnar við
Klettagötu, en þar eru nokkrar um-
ræddra lóða. Þarna var áður
barnaleikvöllur, sem mörgum
finnst eftirsjá að.
LÁRA
gullsmiSur
Austurgötu 3 - SS3784
220 UafnarJirK
Fermingagjafir
Handsmíðaðir
gull- og silfur
skartgripir
Annast áletranir
Gólfdúkar - Gólfdúkar - Gólfdúkar
GÓLFDÚKAR !!!
Vortilboð á gólfdúkum:
Staðgreiðsluafsláttur eða
mjög hagstæð greiðslukjör.
Verð frá kr. 190 pr.ferm.
Leiðin liggur í
li=LÆiiiAm(or
LÆKJARGATA 32 • PÓSTH.53 HAFNARFIRÐI • SÍMI 50449
Samkvæmt
verðkynningu
verðlagsstofnunar
borgar sig að versla
i