Tíminn - 02.10.1941, Síða 4
388
TÍMIM, fiiumtiidagiim 2. okt. 1841
97. blað
Ú R BÆNVM
Rfkisstjóri
veitti sendiherra Bandaríkjanna, Mr.
Lineoln Mac Veagh, móttöku síðastl.
þriðjudag. Fór móttakan fram í mót-
tökusal ríkisstjóra í Alþingishúsinu.
Sendiherrann afhenti umboðsskjal sitt
frá Roosevelt forseta og flutti um leið
stutt ávarp, sem ríkisstjóri svaraði.
Stefán Jóh. Stefánsson utanríkismála-
ráðherra var viðstaddur.
Björn Björnsson,
sonur Gunnars ritstjóra Björnssonar
í Minneapolis, er nýkominn hingað til
lands. Hann er sendur hingað af „Na-
tional Broadcasting Co.“ í þeim erind-
um að senda héðan fréttir í útvarpi á
hverjum fimmtudegi. Vonast Björn
eftir því, að hægt verði að koma þessu
á sem fyrst. Björn verður hér einnig
fréttaritari „New York Times". Mun
hann dvelja hér nokkurn tíma. Bjöm
hefir verið ritstjóri við allmörg blöð
vestra og verið kemiari í blaðamennsku
við háskólann í Norður-Dakota í tvö
ár. Auk Björns eru nýkomnir hingað
fjórir amerískir blaðamenn, sem aðal-
lega munu vinna að myndatöku.
Uppsögn kaupsamninga.
Sex verkalýðsfélög, með samtals 1500
meðlimi, hafa sagt upp kaupsamning-
um frá áramótum. Þessi félög em: Iðja,
félag verksmiðjufólks, Hið ísl. prent-
arafélag, Félag járniðnaðarmanna,
Bókbindarafélag Reykjavíkur og Klæð-
skerafélagið Skjaldborg.
Berklavarnardagurinn.
er næstkomandi sunnudag. Samband
berklasjúklinga gengst þá fyrir merkja-
sölu og blað þess, Berklavöm, verður
selt á götunum. Ágóðanum verður var-
ið til fyrirhugaðs vinnuhælis.
Listsýning
á verkum íslenzkra málara og mynd-
höggvara verður opnuð í sýningarskál-
anum við Garðastræti næstk. laugar-
dag. Bandalag ísl. listamanna gengst
fyrir sýningunni.
Félag Snæfellinga og
Hnappdælinga
heldur fyrstu skemmtun sína á þessu
hausti í kvöld (fimmtudag) í Odd-
fellowhúsinu (niðri). Félagið hélt slík-
ar skemmtanir mánaðarlega í fyrra, og
voru þær ágætlega sóttar.
Fyrsti snjórinn.
Á mánudagsnótt snjóaði í fyrsta sinn
í Esjuna. Áður höfðu gengið sífelld
þrumuveður og rigningar í Reykjavík
og nágrenni. Urðu skemmdir á mann-
virkjum. Meðal annars hrundu skriður
úr Þyrli við Hvalfjörð og stórskemmdu
þjóðveginn á stórum kafla, svo að
hann varð ófær um stundarsakir.
Á vegum Háskólans
verða í vetur námskeið í ensku,
þýzku, frönsku, spænsku, ítölsku og
sænsku. Námskeið þessi eru fyrir alla.
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá
háskólaritara kl. 10—12 f. h. alla virka
daga.
Hjúskapur.
Á sunnudaginn voru gefin saman af
lögmanninum í Reykjavik ungfrú Lauf-
ey Finnbogadóttir og Jóhannes Guð-
finnsson lögfræðingur.
Hjónaband.
Nýiega voru gefin saman í hjóna-
band af síra Eiríki Helgasyni í Horna-
firði ungfrú Sigrún Jónsdóttir (ívars-
sonar alþm.) og Magnús Jónsson kenn-
ari í Reykjavík.
Gamla Bíó.
Framvegis ætlar Gamla Bíó að sýna
tvær myndir á dag. Fyrri myndin
verður sýnd frá kl. 3,30—6,30 án nokk-
urs hlés. Sæti verða ótölusett og kosta
kr. 1,50 niðri en kr. 2,00 uppi. Menn
geta farið út og inn eftir vild á þessa
sýningu. Stanzað stutta stund eða
verið til enda eftir eigin geðþótta. —
Seinni myndin verður sýnd kl. 7 og 9,
og verður þeirri sýningu hagað eins og
Rangiærsla Ól. Th.
(Framh. ai 1. síðu)
itt að skilja frá það magn, sem
setuliðið kaupir, en það er
verulegur hluti af umsetning-
unni. Við mjólkina eru erfið-
leikarnir aðallega utan Reykja-
víkur, þar sem mjólkursalan er
ekki skipulögð. Hvað loks kart-
öflurnar snertir virðist ekki
nema tvær leiðir koma til mála,
annaðhvort verðlaun beint til
framleiðenda fyrir það magn,
sem fer í umsetningu, eða all
víðtæk breyting á dreifingar-
skipulaginu. Báðar leiðirnar eru
talsverðum erfiðleikum bundn-
ar.“
Þessi itmmæli nefndarinnar
sýna allt annað en það, sem Ó.
Th. vill vera láta, þ.e. að nefnd-
in hafi álitið tillögur viðskipta-
mádaráðherra. óhagkvæmar.
Skýrsla nefndarinnar sýnirþvert
á móti, að hægt var að ná veru-
legum áirangri með dýrtíðar-
lögunum, þar sem frá 145—450
þús. kr. framlög nægðu til að
lækka vísitöluna um eitt stig,
ef þau væru notuð til verðlækk-
unar á saltfiski, kartöflum,
kjöti eða mjólk, en verðlækkun
þessara vara samkvæmt dýrtíð-
arlögum telur nefndin vel
framkvæmanlegar, þótt hún
bendi á ýmsa minniháttar
framkvæmdaerfiðleika. Tilraun
Ólafs Thors til að rangfæra á-
lit nefndarinnar og • reyna
þannig að afsaka aðgerðaleysi 1-
haldsráðherranna, er hörmulegt
dæmi um þá óskammfeilni, sem
menn í trúnaðarstöðum þykjast
geta leyft sér hérlendis, en
sýnir jafnframt hversu full-
komlega óverjandi ráðabreytni
íhaldsráðherranna er, þar sem
Ólafur hefr ekkert annað þeim
til varnar en að rangfæra álit
nefndarinnar.
í ritstjórnargrein Mbl. í morg-
un, er reynt að halda því fram,
að viðskiptamálaráðherra hafi
farið með rangt mál, er hann
skýrði frá því í seinasta blaði,
að hann hefði lagt fram nýjar
tillögur í dýrtiðarmálinu. Á
sunnudaginn sagði Mbl., að
þessar tillögur væri frá sér-
fræðinganefndinni, en hún
hefir nú borið það til baka og
Mbl. því orðið að kingja þeim
Á víðfavangi.
(Framh. af 1. síðu)
klausu á öftustu síðu blaðsins
er skammast yfir því, að Slipp-
urinn skuli hafa getað selt
timbur í sumar. Má á þessu sjá
eyrnamark timburkaupmanns-
ins, sem stendur á bak við þessi
skrif. Þar sem ýmsir áróðurs-
menn Sjálfstæðisflokksins hér 1
bænum halda nú uppi svipuð-
um rógburði og kemur fram i
grein timburkaupmannsins,
munu nokkur atriði þessu við-
komandi verða tekin til nánari
athugunar siðar.
að undanfömu, nema hvað verð að-
göngumiðanna hækkar nokkuð frá því
sem nú er.
tilbúningi sínum. Nú segir Mbl.,
i að þessar tillögur „séu stílfærð-
ar af viðskiptamálaráðherra en
eru að öðru leyti þau úrræði,
er ríkisstjórnin hefir rætt með
sér, og mun vart verða úr því
skorið, hver ráðherrann er höf-
undur hverrar einstöku tillögu."
Um þetta lætur Tíminn sér
nægja að segja það eitt, að það
ætti að vera góðs viti fyrir til-
lögur viðskiptamálaráðherra, ef
það er orðið eins með þær og
Lilju, sem allir vildu kveðið
hafa. En því miður hefir það
stundum verið þannig með í-
haldsráðherra, að ekki hefir
verið gott að treysta staðfestu
þeirra. Þeir voru t. d. síðastl.
vor í fyrstu alveg samþykkir
almennum launaskatti til fjár-
öflunar fyrir ríkissjóð, en
greiddu svo atkvæði gegn hon-
um í þinginu. Þeir greiddu líka
atkvæði í þinginu með dýrtíð-
arlögunum, en hafa svo staðið
gegn framkvæmd þeirra í allt
sumar.
Mbl. fullyrðir það ennfrem-
ur, að ráðherrar Framsóknar-
flokksins og ■ Alþýðuflokksins
séu orðnir .andvígir hinum fyrri
tillögum viðskiptamálaráðherra
og nýju tillögurnar séu and-
stæðar þeim. Um þetta er ó-
þarft að vera að þrátta, því að
reynslan mun fljótlega leiða
það í ljós, hvort Tíminn eða
Mbl. hefir þar á réttara að
standa.
Islendingar . . .
(Framh. af 1. siðu)
lendingar hefðu sem frjáls og
fullvalda þjóð fallizt á að fela
Bandarikjunum vernd landsins
meðan styrjöldin stendur. Þetta
bætti aðstöðu Bandaríkjanna
til þess að varðveita frelsið á
hafinu, og í staðinn hefðu þau
veitt íslendingum afdráttarlaus
fyrirheit um „að efla hagsmuni
íslands á allan möguleg-
an hátt,“ og ganga aldrei á
sjálfstæði þess né skipta sér af
landsmálum hér.Hann komst svo
að orði, að bréfaskipti forsætis-
ráðherra íslands og Bandaríkja-
forseta um þessi mál, væri eitt
hið ágætasta dæmi um gagn-
kvæma hjálp og trúnað, sem
nokkurs staðar væri að finna í
samskiptum tveggja landa, og
sagðist vera stoltur af því að
geta átt að því hlut að gera
skuldbindingar þessar að raun-
veruleika.
Sendiherrann sagðist gerla
finna þann andlega skyldleika,
sem væri með íslendingum og
Bandaríkjamönnum og sjálf-
sagt ætti rót sína að rekja til
þess lýðræðislega uppeldis, er
þessar tvær þjóðir hefðu í rík-
um mæli notið. Þótt hann hefði
hér skamma stund dvalizt, sæi
hann að hér umgengjust allir
sem jafningar; hér væri hvorki
þjónslund né þrælsótta að finna
í samskiptum fólks.
Kopar,
aluminium og fleiri málmar
keyptir í LANDSSMIÐJUNNI.
Tónlástarfélagíð og
Leikfélag Reykjavíkar
NIT0UCHE
Sýning annað kvöld
ki. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl.
4—7 í dag.
Ath. Frá kl. 4—5 verður ekki
svarað í síma.
M.s. Helgí
hleður n. k. föstudag til Vest-
mannaeyja. — Vörumóttaka
fyrir hádegi sama dag.
Grá hryssa
5 vetra lítið tamin, tapaðist sið-
astliðið vor. Er ættuð neðar-
lega úr Flóanum. Sást fara yf-
ir Ölfusárbrú, en síðan hefir
ekkert til hennar spurzt.
Ef einhver hefir orðið hennar
var, eru það vinsamlega tilmæli,
að mér verði gert aðvart í síma
um Brúarland.
GUÐMUNDUR ÞORLÁKSSON
Seljabrekku.
Erlendar fréttir
(Framh. af 1. síðu)
til dauða. Tala nýrra fanga
skiptir orðið þúsundum.
Um 30 brezk herskip eru nú
til viðgerðar í Bandaríkjunum
samkvæmt láns- og leigulögun-
um.
Roosevelt hefir tilkynnt, að
Bretar fái nú helming vopna-
framleiðslunnar í Bandaríkj -
unum.
Bretar hafa gert harðar árás-
ir á Stettin og Hamburg und-
anfarnar nætur. Þjóðverjar
hafa svarað með árás á New-
castle.
í ræðu, sem Churchill flutti
i þinginu síðastlið(inn þriðju-
dag, varaði hann við ofmikilli
bjartsýni. Hann sagði, að Þjóð-
verjar gætu hvenær sem væri
gert árás á Bretland, Egipta-
land, Gibraltar, Sýrland eða
Palestinu og yrðu því Bretar að
hafa mikið lið til varnar á þess-
um stöðum og ættu því örðugt
með innrás á meginland Evr-
ópu að svo komnu máli. Brezki
herinn gæti heldur ekki orðið
jafn fjölmennur og þýzki her-
inn. Hann þyrfti að tryggja sér
yfirburði með betri útbúnaði, en
það tæki sinn tíma. Hann sagði,
að skipatjón Breta mánuðina
júlí—sept. hefði verið þriðjung-
ur af skipatjóninu mánuðina
apríl—júní, en skipatjón öxul-
ríkjanna hefði tvöfaldast á sama
tíma. Hann varaði þó við of-
mikilli bjartsýni í þessum efn-
um, því að Þjóðverjar hefðu nú
fleiri kafbáta og langfleygar
flugvélar en nokkru sinni fyrr.
Á krossgötum
(Framh. af 1. síðu)
verður að því horfið að afla yfirlits
um málfar á Austurlandi og fer Björn
Guðfinnsson þangað þessara erinda
mjög bráðlega. Þykir sennilegt, að á
næsta ári verði langt komið að afla
þeirrar vitneskju um þessi mál, er
megi á byggja. Verður þá fyrst sæmi-
lega úr því skorið, hvert stefnir fyrir
alþýðu manna um málfar, framburð
og meðferð feðratungunnar.
194 Victor Hugo
ins og endurtók bæn sína með hræði-
legri röddu.
— Eitthvað að drekka!
Allir skellihlóu.
— Drekktu þetta, kallaði Róbert
Poursepain og kastaði til hans svampi,
er legið hafði í göturæsinu. Þú átt
hönk úpp í bakið á mér.
Kona kastaði steini í höfuð honum og
hrópaði:
— Vektu okkur nú um miðjar nætur
með bölvuðu öskrinu í þér!
— Heyrðu, sonur sæll, vældi kryppl-
ingur einn og reyndi að dangla í hann
með hækju sinni, þyldu nú eitthvað
fallegt, þegar þú kemst upp í kirkju-
turninn næst.
— Þú getur drukkið úr þessu, æpti
maður, sem þveitti beyglaðri pjáturs-
dós beint í andlitið á honum. Konan mín
ól tvíhöfða barn af því að þú mættir
henni einu sinni á götu.
— Já, og kötturinn minn kettling
með sex fætur, þusaði ellihrum kerling,
er burðaðist við að henda í hann múr-
steini.
— Eitthvað að drekka, stundi Kvasi-
modo í þriðja skipti.
IV. KAFLI.
Óvænt hjálp.
í þessum svifum kom hreyfing á
Esmeralda 195
fólksþvöguna. Hún klofnaði í tvennt.
Ung stúlka í fáránlegum búningi olbog-
aði sig út úr þrönginni. Hún hélt á lít-
illi Baskabumbu. Lítil, hvít geit, með
gyllt horn, elti hana.
Augu Kvasimodo glömpuðu. Það var
Tatarastúlkan, sem hann hafði reynt
að nema á brott nóttina áður. Fyrir þá
sök taldi hann sig verða að þola þessa
refsingu í gapastokknum. En samt var
honum í raun og veru aðeins hegnt fyrir
það, að hann var svo óheppinn að vera
heyrnarlaus og hafa átt rétt sinn að
sækja undir heyrnarlausan dómara.
Hann hélt, að hún væri einnig hing-
að komin til þess að koma fram hefnd,
eins og hinir, komin til þess að kasta
einhverju að honum.
Hann sá, að hún steig upp á þrepið.
Reiðin og gremjan sauð niðri í hon-
um. Hann óskaði sér þess eins að geta
rifið gapastokkinn sundur, og ef sá
eldur, er brann úr augum hans, hefði
verið heitur, myndi Esmeralda hafa
verið öskuhrúga ein áður en hún
komst í námunda við hann.
Steinþegjandi laut hún yfir Kvasi-
modo, sem árangurslaust reyndi að slíta
sig lausan til þess að geta flúið hana,
losaði flösku frá belti sínu og bar
hana að skrælþurrum vörum hins þjáða
manns.
GAMLA BÍÓ
LÍFS OG LIÐIVIR
(Beyond Tomorrow)
Aðalhlutverkin leika:
RICHARD CARLSON,
CHARLES WINNINGER,
JEAN PARKER.
SÝND KL. 7 og 9.
ÁFRAMHALDSSÝNING
Klukkan 3.30—6.30.
Læknlr bófanna
Aðalhlutverkin leika:
J. CARROL NAISH og
LLOYD NOLAN.
Börn fá ekki aðgang.
---———NÝJA BÍÓ-------
M E Ð B Á L I
OG BRANDI
Drums along the Mohawk.
Amerísk stórmynd frá
Fox. — Tekin í eðlilegum
litum.
Aðalhlutverkin leika:
CLAUDETTE COLBERT
og
HENRY FONDA.
Börn frá ekki aðgang.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
I SIGLINGAR
milli Bretlands og íslands halda áfram,
eins og að undanförnu. Höfum 3—4
skip í förum. Tilkynningar um vöru-
sendingar sendist
Gulliford & Clark Ltd.
BRADLEYS CHAMBERS,
LONDON STREET, FLEETWOOD.
Sendisveinar
Duglegír sendlar óskast. -
Uppl. á Skólavörðustíg 12.
Tilkynniné
Frá 1. okt. n. k. mun skrifstofa vor hætta innheimtu
á líftryggingum. Iðgjöldum verður því framvegis
einungis veitt móttaka á skrifstofunni í Lækjargötu
2, frá kl. 9—12 og 1—6 daglega.
Va t r y g gingarskrifstofa
Sígfásar Sighvatssonar.
S A V O N
de
P A R I S
varðveita hörund yðar
— gera það mjúkt og
heilbrigt og verja það
öllum kvilium. SAVON de PARIS
er mjúk sem rjómi og hefir
yndislegan hressandi rósailm. —
Notið beztu oy vönduðustu sápuna!
- Notið SAVON de PARIS -
Bóndi - Kaupir þú búnaðarblaðið FREY?