Tíminn - 04.10.1941, Síða 4
392
TÍMECT, laogardagiim 4. okt. 1941
98. blað
ÚB BÆNUM
Húsnæðisvandræðin
í bænum eru nú eitt mesta vanda-
málið, sem bíður úrlausnar. Um mán-
aðamótin sept.—okt. hófust haustflutn-
ingarnir í bænum, en þó með minna
móti en venjulega. Alls hafa nú 55 hús-
næðislausar fjölskyldur, sem í er sam-
anlagt 234 manns, leitað á náðir fram-
færslufulltrúa. í ráði er að húsnæðis-
lausar konur og böm verði fluttar til
Valhallar á Þingvöllum, en heimilis-
feðrunum verður fengið húsnæði á far-
sóttahúsinu til bráðabirgða.
Kristján Haukur Pétursson,
sonur Péturs Leifssonar ljósmyndara,
hefir nýlega lokið fullnaðarprófi í
landbúnaðarverkfræði við búnaðarhá-
skólann í Kaupmannahöfn með ágæt-
iseinkunn.
Trúlofanir.
Ungfrú Jónína Sigurðardóttir, Egg í
Skagafirði og Jóhannes Hannesson,
Kj artansstöðum, Staðarhreppi, Skag.
Ungfrú Sigríður Helgadóttir, Lóu-
götu 2, og Sindri Sigurjónsson frá
Kirkjubæ í Hróarstungu.
Ungfrú Jóhanna Sturludóttir frá
Fljótshólum í Plóa og Gísli Bjarnason
bifreiðarstjóri, Lambhúskoti í Biskups-
tungum.
Bindindishöllin.
Húsráð góðtemplara í Reykjavík,
hefir fyrir skömmu samþykkt að ganga
inn í kaupsamning „Húsfélags bind-
indismanna" um kaup á Bindindishöll-
inni. Pyrir nokkru síðan kom til orða
að Góðtemplarareglan keypti húseign-
ina Fríkirkjuveg 11 (hús Thor Jensens)
en vegna ágreinings, sem varð um mál-
ið innan reglunnar, fóru kaupin ekki
fram. En í þess stað stofnuðu nokkrir
meðlimir bindindissamtakanna „Hús-
félag bindindismanna" í því augnamiði
að koma í veg fyrir að húseignin lenti
í höndum annarra, ef svo kynni að fara
að templarar kæmu sér síðar saman um
að kaupa eignina.
Sigixrvin Einarsson,
kennari við Miðbæjarskólann hefir
fengið frí frá kennslustörfum, án
launa, í tvö ár. ,Hann hefir sinnt
kennslustörfum samfleytt í 18 ár.
Háskóla bíó.
Háskólinn hefir fengið leyfi til þess
að starfrækja kvikmyndahús í ís-
húsinu við Tjamargötu. Er áætlað að
húsið taki 385 manns í sæti og hefji
sýningar um áramót.
Nýtt samkomuhús.
Um þessar mundir er í undirbúningi
af hálfu Bandaríkjastjórnar, að reisa
stórt samkomuhús fyrir setuliðið sem
hér dvelur, við sunnanvert Skólavörðu-
torg. Hefir Bandaríkjastjóm farið þess
á leit við Reykjavíkurbæ, að bærinn
láti í té leigulausa lóð undir húsið.
Bæjarráð hefir samþykkt þetta erindi
með því skilyrði, að húsið verði að fullu
eign bæjarfélagsins að ófriðnum lokn-
um.
Innflutningur . . .
(Framh. af 1. slðuj
reiða á næstunni. En að ó-
breyttum kringumstæðum,
hvað snertir siglingarnar og
gj aldeyrissamböndin við Ame-
ríku, þá hefir einkasalan í
hyggju að flytja að minnsta
kosti 150 fólksbifreiðar til
landsins á fyrstu mánuðum
næsta árs.
Nýjasta framleiðslan af bif-
reiðum er mun dýrari en fram-
leiðsla undanfarinna ára og
verður hækkun á öllum slíkum
vörum næstu mánuði. Einnig
hækka farmgjöld stöðugt og þar
sem verðtollurinn miðast við
innkaupsverð, að viðlögðu
flutningsgjaldi, verða þær bif-
Furðnleg ályktun . . .
aflað. Þar sem hernaðaryfir-
völdin hafa ekki getað sann-
prófað skýrslu lögreglustjóra,
eru allar fullyrðinagar þeirra
um hana út í bláinn.
Það er heldur alls ekki hægt
að dæma þessi mál eingöngu
eftir skýrslum sakadómara og
lögreglustjóra, því að þær eru
hvergi nærri tæmandi.
Um samvinnu íslenzkra yfir-
valda og hernaðaryfirvaldanna
um þessi mál skal það tekið
fram, að ekki hefir staðið á ís-
lenzkum yfirvöldum í þeim
efnum. T. d. hefir lögreglustjóri
óskað eftir samvinnu um það,
að stúlkur yngri en 16 ára
fengju ekki aðgang að her-
mannaskemmtunum eða her-
mannaskálum, en sú samvinna
hefir ekki fengizt.
Ég verð að telja það mjög
óviðkunnanlegt að brezku hern-
aðaryfirvöldin séu að gefa yfir-
lýsingar eins og þessar.
Ég vil taka það skýrt fram,
að í afskiptum íslenzkra yfir-
valda af þessum málum felst
hvergi nein andúð í garð
brezku herstjórnarinnar eða
brezku hermannanna. Það er
almennt viðurkennt, að þessir
aðilar hafa komið mjög vel
fram. En það er líka viður-
kennd staðreynd, að ný og al-
varleg siðferðisvandamál hljóta
að skapast, þegar fjölmennt
herlið sezt að í ókunnu landi,
hversu gott og siðprútt, sem það
er. Það er til þess að ráða bót
á þessum vanda, er skýrslunum
hefir verið safnað, því að þær
eiga að sýna hvernig málum er
komið og hvað virðist því til-
tækilegt að gera. —
Tíminn verður að telja það
mjög óviðeigandi, að brezku
hernaðaryfirvöldin séu að
skipta sér af skýrslusöfnun ís-
lenzkra yfirvalda um íslenzkt
fólk. Það er hlutur, sem þau
varðar engu, og eru bein og ó-
þörf afskipti af okkar eigin
málum, sem við óskum að sjá
einir um.
Það verður einnig að teljast
óþörf og vítaverð afskipti hern-
aðaryfirvaldanna af íslenzkum
málum, að ætla að fara að
hefja áróður þess efnis, að allt
sé í lagi 1 hinum svokölluðu
„ástandsmálum" og siðferðið
hafi batnað síðan herinn kom.
Slíkan áróður taka íslendingar
ekki almennt sem góða og gilda
vöru. Og mönnum verður það á
að spyrja: Hver er tilgangur-
inn með þessari fullyrðingu
herstjórnarinnar? Er henni
ætlað að draga úr áhuga þjóð-
arinnar fyrir þeim ráðstöfun-
um, sem verið er að undirbúa?
Er það ætlunin með þessu, að
lokka þjóðina til að halda að
sér höndum og fljóta áfram
sofandi að feigðarósi?
Ásakanirnar í garð lögreglu-
reiðar, sem nú eru að flytjast
til landsins og væntanlegar eru
á næstu mánuðum, dýrari en
að undanförnu.
198
Victor Hugo:
EsmeralcLa
Lögtak.
Eftir kröfu bæjargjaldkera Reykjavíkur, og að
undangengnum úrkurði, verður lögtak látið fara
fram til tryggingar ógreiddum útsvörum til bæjar-
sjóðs Reykjavíkur, sem lögð voru á við aðalniður-
jöfnun s. 1. vor og féllu í gjaldaga að Vs hluta
mánaðarlega 1. júní, 1. júlí, 1. ágúst, 1. september og
1. október þ. á., en það eru útsvör allra þeirra gjald-
enda, sem ekki greiða útsvör sín samkv. a.- og b.-lið
1. gr. I. nr. 23, 12. febr. 1940 um breyting á 1. nr. 106,
23. júní 1936, ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, að
átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsing-
ar, séu þau eigi að fullu greidd innan þess tíma.
Lögmaðurinn í Reykjavík, 4. okt. 1941.
BJÖRN ÞÓRÐARSON.
stjóra og lögreglunnar eru
næsta óviðeigandi. Og það skal
hernaðaryfirvöldunum sagt í
eitt skipti fyrir öll, að íslend-
ingar óska ekki eftir því, að
erlendur her skipti sér af störf-
um íslenzkra embættismanna,
og reyni að gera þau tor-
tryggileg í augum þjóðarinnar.
Það, að erlend hernaðaryfir-
völd skuli reyna að bera ís-
lenzka embættismenn órök-
studdum sökum í íslenzkum
blöðum, ber líka lítinn vott um
góðan vilja til þeirrar samvinnu,
sem þau eru öðrum þræöi að
bjóða fram.
Brezku hernaðaryfirvöldin
segjast vera fús til samvinnu
„við íslenzk yfirvöld um að
varðveita þá vingjarnlegu sam-
búð, sem hingað til hefir verið
með setuliðinu og landsmönn-
um“. Því miður verður þessi
yfirlýsing að teljast nokkuð
tvíeggjuð, því að við íslending-
ar viljum hvergi nærri varð-
veita áfram, nema þá að óveru-
legu leyti, þá „vingjarnlegu
sarnbúð", sem átt hefir sér stað
í „ástandsmálunum". En það
mun koma í ljós, hvern
skilning hernaðaryfirvöldin
leggja í þessa yfirlýsingu sína.
Falsanir í
iarmgfaldamálinu
(Framh. af 1. siSu)
legur. Sjálfsagt þótti þó, að áð-
ur skiluðu félögin eitthvað af
hinum mikla gróða sínum frá
síðastl. ári.
Samkvæmt útreikningi, sem
viðskiptamálaráðuneytið lét
gera í júnímánuði síðastl.,
höfðu farmgjöldin hækkað það
mikið frá því fyrir stríð, að það
kostaði orðið 1620 þús. kr.
meira en áður að koma til
landsins venjulegum ársinn-
flutningi af skömmtunarvörum.
Ef tillaga viðskiptamálaráð-
herra hefði verið framkvæmd,
myndi flutningskostnaðurinn
hafa lækkað, sem svaraði þess-
ari upphæð.
* * *
Þess ber að gæta, að farm-
gjöldin hafa öllu meira óbein en
bein áhrif á vísitöluna. Þannig
eru t. d. áhrifin af farmgjalda-
199
Tónlístarfélagið og
Leikfélag Reykýavíkur
NITOUCHE
Sýning annað kvöld
kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl.
4—7 í dag.
Ath. Frá kl. 4—5 verður ekki
svarað í síma.
Sundnámskeíð
hefst að nýju í Sundhöllinni
mánudaginn 6. þ. mán. Þátt-
takendur gefi sig fram sem
fyrst. Upplýsingar í síma 4059.
SUNDHÖLL REYKJAVÍKUR.
hækkun. Farmgj aldahækkun
gerir meira en að hækka inn-
flutningsvörurnar í verði. Þeg-
ar innflutningsvörurnar hækka
eykst framfærslukostnaðurinn
og kaupið hækkar. Af kaup-
hækkuninni leiðir síðan hækk-
un á landbúnaðarvörum og
innlendum iðnaðarvörum. Þetta
eru hin óbeinu áhrif af farm-
gjaldahækkun og þau hafa
miklu meiri áhrif á vísitöluna
en hin beinu áhrif. En á sama
hátt myndi líka farmgjalda-
lækkun hafa meiri óbein áhrif
en bein áhrif á vísitöluna.
Ef raktar eru orsakir vísi-
töluhækkunarinnar kemur það
í ljós, að þær eru að langmestu
leyti að finna i verðhækkun
erlendu vörunnar. Þær hækka
fyrst og síðan hækkar kaupið
og innlendu vörurnar á eftir.
Það er vitað mál, að farm-
gj aldahækkunin er einn stærsti
þátturinn í verðhækkun er-
lendu varanna. Þess vegna var
það hörmulegt glapræði, sem
aldrei verður bætt, að atvinnu-
málaráðherra skyldi ekki í tæka
tíð hlýða þeim ráðum sam-
sarfsmanna sinna, að setja há-
mark á flutningsgjöldin. Millj-
ónagróði Eimskipafélagsins í
fyrra hefir haft meiri og stór-
felldari hækkunaráhrif á vísi-
töluna, en almenningur mun
yfirleitt gera sér ljóst.
Á víðavangi.
inum, svo að ég borðaði afganginn sjálf-
ur.
— Hvað segirðu, skömmin þín? hróp-
aði hún. Hefirðu étið alla kökuna?
— Nei, mamma. Það var hundurinn.
Ég bannaði honum það, en hann gerði
það samt. Svo að ég borðaði það, sem
eftir varð.
— Þú ert ljóta barnið, sagði móðirin,
bæði hló og illskaðist í senn. Taktu eftir,
Ovdarda! Heima úðar hann í sig öllum
kirsuberjunum í garðinum okkar. Afi
hans segir, að hann verði líklega liðs-
foringi. — Láttu mig ekki komast að
þessu líku aftur, karl minn. Haltu á-
fram, fitukeppurinn þinn!
SJÖITA BÓK.
I. KAFLI.
Föbus höfuðsmaður.
Margar vikur liðu. Marzmánuður fór í
hönd. Sólin skein í allri sinni geisla-
dýrð. Þetta var einn hinna blíðu og
yndislegu vordaga, sem allir Parísarbú-
ar fagna sem helgidegi á torgum og í
skemmtigörðum. Á þessum hlýju og
björtu dögum ver fólk venjulega ofurlt-
illi stund til þess að dást að hinu
skrautlega fordyri Frúarkirkjunnar,
rétt um það bil, er sólin tekur að hníga
til vesturs og varpar eldi kvöldroðans á
framhlið musterisins. Geislar lækkandi
sólarinnar hverfa af gangstéttunum og
smám saman teygir skugginn sig hærra
og hærra upp eftir kirkjuhliðinni. Geisl-
arnir verða æ hallari, ná loks ekki leng-
ur að skína á götuna og skuggarnir þok-
ast lengra og lengra upp kirkjuveggina,
en rósrautt sólskinið víkur undan.
Það var um það leyti dags.
Gegnt hinni miklu kirkju, sem var
slegin roða kvöldsólarinnar, gat að líta
nokkrar ungar og fallegar stúlkur á
steinsvölum, er prýddu gamalt gotneskt
stórhýsi fram við torgið. Stúlkurnar
hlóu og gerðu að gamni sínu og undu
sér hið bezta.
Fljótséð var, að þetta voru aðalsmeyj-
ar af auðugum foreldrum. Það var
meðal annars hægt að ráða af því, hve
langar slæðurnar voru; þær féllu undan
perluskrauti, er þær báru um höfuð sér,
niður að gólfi. ísaumaðir klútar, sem
þær báru á öxlum sér, en huldu þó eigi
barm þeirra að tízku þeirra tíma, sýndu
það. Það var ljóst af því, hve íburðar-
mikið efni var í millipilsum þeirra,
jafnvel enn glæsilegra en í kjólunum. Og
það sást enn á öllu því silki, flaueli og
líni, sem þær voru vafðar í, en þó fram-
ar öllu öðru á mjallhvítum höndum
(Framh. af 1. siðu)
isflokknum vegna tengda sinna
við Thorsarana. í grein þessari
kemst hann að þeirri skringi-
legu niðurstöðu, að það sé til
þess að útrýma stéttastríði og
skapa þjóðareiningu, að Sjálf-
stæðisflokkurinn æsir verka-
menn til að gera ranglátar kröf-
ur til bænda og bændur til að
gera ranglátar kröfur til verka-
manna í verðlagsmálunum!
4 krossgötum
(Framh. af 1. síðu)
Gæftaleysi er á Hofsósi um þessar
mundir. En afli dágóður þegar gefur
á sjó. Slátrun stendur nú sem hæst,
og eru dilkar heldur vænir. í ráði er
að skera niður allt fé að Þönglaskála,
en þar hefir orðið vart garnaveiki í
sumar. Þönglaskáli er utan við það
svæði, sem niðurskurður fór fram á í
fyrra.
Erlendar fréttir.
(Framh. af 1. síðu)
14.500 flugvélar. Hann sagði að
þýzka þjóðin yrði að færa hin-
ar ítrustu fórnir, ef sigur ætti
að vinnast.
GAMLA BÍÓ
LÍFS OG LIÐNIB
(Beyond Tomorrow)
Aðalhlutverkin leika:
RICHARD CARLSON,
CHARLES WINNINGER,
JEAN PARKER.
SÝND KL. 7 og 9.
ÁFRAMHALDSSÝNING
Klukkan 3.30—6.30.
Tæknlr liófaiiua
Aðalhlutverkin leika:
J. CARROL NAISH og
LLOYD NOLAN.
Börn fá ekki aðgang.
-------NÝJA BÍÓ-----~
MEÐ BÁEI
OG BBANDI
Drums along the Mohawk.
Amerísk stórmynd frá
Fox. — Tekin í eðlilegum
litum.
Aðalhlutverkin leika:
CLAUDETTE COLBERT
og
HENRY FONDA.
Börn frá ekkl aðgang.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Innilega þökkum við auðsýnda samúð og hluttekningu
við fráfall og jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa,
ÞORSTEINS MATTHÍASSONAR frá Tungu.
Sérstaklega þökkum við Sparisjóði Ólafsvíkur og Dýra-
verndunarfélagi íslands fyrir virðingu sem þau sýndu þeim
látna.
Fyrir hönd systkina, tengdabarna og barnabarna.
Karlotta Þorsteinsdóttir.
“t
^IGLIMGAR
milli Bretlands og íslands halda áfram,
eins og að undanförnu. Höfum 3—4
skip í förum. Tilkynningar um vöru-
sendingar sendist
Gullíford & Clark Ltd.
BRADLEYS CHAMBERS,
LONDON STREET, FLEETWOOD.
ÉG UNDIRRITAÐUR starfræki frá og með deginum í dag
trésmiðju- og leikfangagerð á Skólavörðustíg 10, Reykjavik,
sem ég rek með ótakmarkaðri ábyrgð undir firmanafninu:
Tek að mér eldhúss- og búðarinnréttingar og hverskonar
aðra smíði. Áherzla lögð á gott efni, vandaða vinnu og fljóta
afgreiðslu.
Gjörið svo vel og leitið tilboða.
Síminn er 1944 — P. O. Box 843. Símnefní: Eik.
Reykjavík, 2. okt. 1941.
Virðingarfyllst.
KrisÉján Erlendsson trésmiður.
Nt ERU
Haustvörurnar komnar
Peysufatasatin — Peysufatasilki matt —
Ullarkjólaefni í mörgum litum — Ferming-
arkjólaefni margar gerðir — Fjölbreytt úr-
val af Silkiefnum — Einnig mikið af fal-
legum Flauelum.
---Sent iini land allt gegn póstkröfn.-
Verzlun Sígríðar Guðmundsdóttur
Langaveg 12. Sími 2264
Á afgreiðslu Dvalar eru nú til þrjú heil
(complet) eintök af ritinu. Er orðið
mjög örðugt að fá slík eintök. Verða
þau (allir árgangarnir átta) seld á 75 krónur.
Dvöl
DVÖL, Lindargötu 9A,
Reykjavík,
TÍMIHIV er víUlesnasta anllýsinlablaSBf!