Tíminn - 04.12.1941, Side 2

Tíminn - 04.12.1941, Side 2
496 TÍMIM, fimmttidagiim 4. clos. 1941 125. Mað ‘gíminn Fimmtudaginn 4. des. Skyldusparnaður Um þessar mundir fara meiri peningar um hendur lands- manna en nokkru sinni áður. í lok september s. 1. voru seðl- ar í umferð tæpar 44 milj. kr., en í byrjun stríðsins fyrir tveim- ur árum aðeins 12—13 milj. kr. Flestir landsmenn hafa nú miklu hærri tekjur að krónu- tölu en áður, og hjá mörgum hafa tekjurnar margfaldazt. Það er gamalt orðtak, að eigi sé minni vandi að gæta fengins fjár en að afla þess. Hefir það sannazt nú sem fyrr, að menn kunna misjafnlega vel að fara með fjármuni. Margir þeir, sem hafa fengið auknar tekjur, hafa notað þær skynsamlega. Þeir hafa borgað skuldir, sem á þeim hvíldu, að nokkru eða öllu leyti eftir ástæðum. Samkvæmt hag- tíðindunum hafa skuldir við bankana lækkað um ca. 17 milj. kr. frá stríðsbyrjun til septem- berloka þ. á. Er þó ekki talin þar með sú lækkun, sem kann að hafa orðið á lánum í veð- deildum bankanna, Ræktunar- sjóði og Fiskiveiðasjóði. Þá hafa menn einnig lagt peninga á vöxtu í bönkum og spari- sjóðum í stærri stíl en áður þekktist. Eftir skýrslum um innieignir 1 bönkunum, hafa þær aukizt um 120—130 milj- ónir króna síðustu tvö árin. Innieignir í sparisjóðum lands- ins munu einnig hafa aukizt verulega. Af framansögðu er ljóst, að margir landsmenn nota þann tekjuauka, sem þeir hafa feng- ið, til þess að lækka skuldir og eignast innstæður í peninga- stofnunum. Vafalaust láta flest- ir það sitja í fyrirrúmi að borga skuldir, til þess að komast hjá vaxtagreiðslum, sem eru hærri af skuldum en sparisjóðsinn- stæðum. En þetta hvorutveggja, skuldagreiðslur og söfnun inni- eigna, eru viturlegar ráðstaf- anir, því að með því tryggja menn hag sinn í framtíðinni. Því miður eru svo líka margir menn, sem ekki eignast neitt, þótt þeir hafi miklar tekjur. Þeir eru svo ráðlausir, að þeim verður ekkert við hendur fast. Um leið og tekjur þeirra hækka, vex eyðslan og sukkið að sama skapi. Ef þeir verða fyrir heilsu- leysi eða öðrum óhöppum, verða þeir strax fjárhagslega ósjálf- bjarga og öðrum byrði. Það væri góðverk við þessa menn, ef fjár- ráðin væru að nokkru leyti af þeim tekin, t. d. þannig, að þeim væri ekki að öllu leyti út- borgað það kaup, er þeir vinna fyrir, en nokkur hluti þess væri geymdur á tryggan hátt þar til síðar, þegar þeir hafa þess brýna þörf. Ríkisstjórnin mun að undan- förnu hafa haft til athugunar, hvort eigi væri heppilegt, eins og nú er ástatt, að skylda menn til sparnaðar. Á nýafstöðnu aukaþingi flutti þingmaður Hafnfirðinga, sem á sæti í efri deild þingsins, tillögu til þings- ályktunar ■ um skyldusparnað. Var þar skorað á ríkisstjórnina að athuga möguleikana á lög- gjöf um almennan skyldu- sparnað og leggja árangur þeirrar athugunar fyrir næsta Alþingi. Tillaga þessi var sam- þykkt í efri deild þingsins. Ríkisstjórnin mun áður hafa byrjað athugun á þessu máli og er þess að vænta, að tillögur hennar um það verði tilbúnar í byrjun næsta þings. Skyldusparnaður gæti orðið framkvæmdur með þeim hætti, að mönnum væri gert skylt að leggja nokkurn hluta teknanna til geymslu í peningastofnanir, eða kaupa ríkisskuldabréf. Fé það, sem ríkið fengi að láni með sölu skuldabréfa, mætti nota til að greiða með skuldir ríkisins í öðrum löndum, þegar samn- ingar nást um greiðslu þeirra. Vel gæti komið til mála að á- kveða, að fé þetta væri vaxta- laust fyrst um sinn, a. m. k. þar til styrjöldinni er lokið. Þótt löggjöf yrði sett um skyldu- sparnað, mætti ekki hindra það, að menn gætu notað umfram- „ í s néí ísafold frá 25. okt. s. 1. lætur mjög vel af „vaxandi félags- starfsemi skagfirzkra Sjálf- stæðismanna,“ eins og það er orðað í fyrirsögn. Jú — eigi undrast ég það svo mjög. Um eitt hinna nýstofn- uðu sjálfstæðisfélaga er það t. d. vitað, að það telur a. m. k. eina 6 félagsmenn; af þeim eru þrír í stjórn — og hinir senni- lega í varastjórn. Lítillæti og hógværð hjart- ans er mikil prýði hverjum manni. Eysteinn Jónsson, viðskipta- málaráðherra, er víst lítið elsk- aður af íhaldsmönnum. Að minnsta kosti virðast orð hans og athafnir æði opt hafa orðið til þess, að þeir hafa hrökklazt yfir takmörkin, sem okkur vóru eitt sinn sett með boðorðinu. Nýjasta dæmið og hið síðasta af þvi tagi, er ég hefi séð, er í 50. tbl. ísafoldar. Þar segir svo í ritstjórnargrein: „En öllu örlagaríkara(l) hefir þó sú reginheimska Eysteins Jónssonar reynzt, að koma í veg fyrir aukinn innflutning til landsins eftir að gjaldeyrir var nægur fyrir hendi og enn þá var hægt að fá vörur keyptar með hóflegu verði. Barátta Ey- steins Jónssonar gegn því, að landið yrði birgt að nauðsynja- vörum og hinar vaxandi fjár- fúlgur íslendinga erlendis hag- nýttar til þess að afla verð- mæta inn í landið, bera vott einni hinni mestu skammsýni, sem íslenzkur stjórnmálamað- ur hefir gerzt ber að.“ tekjur sínar til að borga skuld- ir, er á þeim hvíla, sem venju- lega er þeim hagkvæmara en að leggja fé á vöxtu. Nokkuð hefir orðið vart við þann misskilning á þessu máli, m. a. hjá flutningsmanni þeirr- ar þingsályktunartillögu, sem hér hefir verið nefnd, að skyldusparnaður gæti komið í staðinn fyrir skatta til ríkisins. Væntanlega verður ekki meiri hluti þingmanna á þeirri sköð- un, þegar þessum málum verð- ur ráðið til lykta á Alþingi. Ein- staklingum er mikil þörf að nota það tækifæri, sem þeir nú hafa, til að spara fjármuni til notkunar síðar, og því getur verið skynsamlegt að setja lög um skyldusparnað. En löggjaf- arnir mega ekki gleyma því, að ríkissjóður þarf einnig'að safna fé til framkvæmda eftir stríðið, og því er skylt að sjá svo um, að hann fái hæfilegan hlut af þeim afla, sem nú kemur á land. Sk. G. -I> e i ii Ojæja. Ekki eru nú stóryrðin. Nú er það vitað, að meðan örðugleikar vóru með gjaldeyri, var, að tilhlutan viðskiptamála- ráðherra, beitt mjög ströngum hömlum á innflutning ónauð- synlegra vara, til þess að sá gjaldeyrir, er tiltækur var, hrykki fyrir þeim mun meira magni af nauðsynjavörum. Það er líka vitað, að jafnskjótt og rýmkaðist með gjaldeyri, var losað um innflutningshömlur, og það svo verulega, að í raun og veru hefir innflutningur verið frjáls um hríð — að svo miklu leyti, sem við verður ráð- ið af íslendingum sjálfum. Og ekki einasta það, því að enn er vitað, að viðskiptamálaráð- herra hefir gert allt, sem i hans valdi stóð, til þess að örva sem mest innflutning nauðsynja- vara, bæði með beinum hvatn- ingum til innflytjenda, ráðstöf- unum til útvegunar skipakosts o. fl. Naumast er það hugsandi, að ritstjórar ísafoldar, svo vandaðir menn og vel menntir, sem þeir eru, skrökvi að gamni sínu upp á viðskiptamálaráð- herra, — né heldur, að þeir viti ekki betur. Hitt er heldur, að hér sé um ósjálfráða gleymsku að ræða. — Nema þeir hafi gleymt vilj- andi — eins og einn frambjóð- andi íhaldsins komst að orði um sjálfan sig hérna um árið. Ljómandi er ísafold orðhepp- in oft — og smekkleg. „Leyndin um allan sjóðrekst- ur mjólkurklerksins verður með hverju ári órjúfanlegri“ — segir hún 15. nóv. um sr. Svein- björn Högnason. Og það þarf svo sem ekki að efast um, að það er ofurást ísa- foldar á bændum, þessum ves- alings fórnardýrum mjólkur- skipulagsins og sr. Sveinbjarn- ar, sem veldur því, að hún reyn- ir að læða þeim grun inn hjá lesendum (sem hún að vonum telur sjálfri sér ekki fremri að fróðleik og vitsmunum), að eitt- hvað sé óhreint við þennan „sjóðrekstur“ prestsins. Vill ekki ísafold rjúfa þessa „leynd“, svo að bændur megi sjá, hvort eða hvernig þeir eru féflettir? — Ég efast ekki um, að hún geri það með orðinu, svo mikla umhyggju, sem hún ber fyrir hag bænda. ísafold segir 1. nóv. s. 1.: „Þar (þ. e. á Alþingi) er nú að hefjast kapphlaup um kjós- endafylgið. Ekkert er hirt um afleiðingarnar og því síður um hitt, hvað alþjóð er fyrir beztu á þessum alvörutímum. Svo mikill er ákafinn orðinn, að Sjálfstæðisflokkurinn fær á- kúrur fyrir það, að vera ekki me§ í þessu kapphlaupi." Ja — hvert þó í þreifandi. — Fyrr hafði maður nú svo sem orðið var við, að Sjálfstæðis- flokkurinn lagði á það litla á- herzlu, að afla sér kjósenda- fylgis. En að hann færi lesta- gang og yrði jafnvel staður, þegar hinir flokkarnir hleypa á harðastökk til þess að þókn-, ast háttvirtum kjósendum, — það hafði mér aldrei til hugar komið. En — meðal annarra orða: Það er eins og mig minni að Sjálfstæðismenn hafi haldið því fram, að samstarfið, sem þeir kenna Framsóknarmönnum um, hafi verið framkvæmt í óþökk alls landslýðs. Þó minnir mig og að því væri mjög á lofti haldið, að dýrtíðarfrumvarp Eysteins, sem allur Framsókn- arflokkurinn stóð að, hefði orð- ið öllum til ills, ef náð hefði fram að ganga. — Hvernig má það vera, að í athöfnum og til- lögum, sem svo eru óvinsælar, geti talizt kapphlaup um kjós- endafylgi? — „Mitt er að yrkja, ykkar að skilja," sagði skáldið forðum. Þegar Hermann Jónasson baðst lausnar fyrir ráðuneyti sitt, vildi ríkisstjóri, sem kunnugt er, eigi samþykkja lausnar- beiðnina fyrr en ráðin væri ör- lög dýrtíðarfrv. Eysteins Jóns- sonar á Alþingi. Hafði enginn ráðherranna neitt við þetta að athuga. Um þetta farast ísafold svo orð i Reykjavíkurbréfi þ. 1. nóv.: „Þessi framkoma hans (for- sætisráðhrra) sannar þann á- byrgðarlitla hringlandaskap hans, er áður hefir hér verið lýst.“ — Þarna er nú markið lag- lega hitt! Fyrir löngu er frægur orðinn tvísöngur Sjálfstæðisblaðanna um verðlag á landbúnaðaraf- urðum. Er annarri röddinni ætlað að ná eyrum verka- manna og annarra launþega í kaupstöðum og kauptúnum, en hin röddin syngur fyrir sveita- menn. „Tvísöngur er samstilltur söngur, þar sem raddirnar fara vel hver með annarri, hreinleg- ar og þjóðlegar," — segir ísa- fold 8. nóv. s. 1. Sælir eru einfaldir. „.....Þess vegna var Sjálf- stæðisflokkurinn flokkur allra stétta, og barðist fyrir því, að stétt stæði með stétt.“ (Bjarni Benediktsson í ísafold 1. nóv. s. 1.). Svo er sagt, að Bjarni borg- Kvennaskólinn á Blönduósí var settur 18. þ. m. Voru þar viðstaddir allir kennarar skól- ans skólaráðið og allir nemend- ur, að fjórum undanskildum,sem voru ókomnar. Nemendur eru nú 38 alls, og er það hámark þeirrar tölu, sem unnt er að taka í skólann. Við byrjun þessa skólaárs lágu fyrir á annað hundrað um- sóknir. Má af því marka vin- sældir hans og þá miklu þörf, sem er á þessum skólum, því að sömu sögu munu aðrir hús- mæðraskólar hafa að segja. Þeir geta ekki rúmað helming þeirra umsækjenda, sem vilja koma. Sú breyting hafði orðið á kennaraliði skólans, að ungfrú Margrét Björnsdóttir frá Ak- ureyri, hafði sagt upp starfi sínu, en aftur hafði verið ráðin kennari við skólann ungfrú arstjóri sé einn af fyrirmönn- um félags nokkurs 1 Reykjavík, er kvað vera einskonar verka- mannadeild innan Sjálfstæðis- fl. Á fundi sínum í haust sam- þykkti félag þetta ályktun, sem allfræg er orðin. Var þar lýst hinni megnustu vanþóknun á taumlausu okri bænda á af- urðum landbúnaðar. Undarlegt, hvað bændur eru þrjózkufullir og seinir á sér að meta einlægni borgarstjórans og viðurkenna kjörorð hans, eins og hann slítur sér þau út fyrir allar stéttir, aumingja maðurinn. ...... Öll framkoma for- ystumannanna (Framsóknar- flokksins) sannar .... nefni- lega það, að það sem einblína er á, eru þröngir flokkshagsmun- ir, leið til þess, enn þá einu sinni, að geta blekkt fólkið í byggðum landsins til fylgis við lélegan málstað.“ Þannig farast ísafold orð þ. 8. nóv. s. 1., í tilefni af kröfum og tillögum Framsóknarfl. um lausn dýrtíðarmálanna. Auma skepnan, þessi Fram- sókn! Eins og kunnugt er, voru 8 af 17 þingmönnum Sjálfstæðis- flokksins andvígir því í önd- verðu, að stofnað yrði til sam- starfs um stjórn landsins. Um þetta segir Árni frá Múla í 49. tbl. ísafoldar: „Sannleikurinn er sá, að eng- inn ágreiningur hefir orðið inn- an Sjálfstæðisflokksins um það, að samstarf þyrfti að vera um stjórn landsins.“ — Sá virðist nú ekki veill fyr- ir brjösti! Skagfirðingur. Margrét Líndal frá Lækjamóti. Síðastliðið haust varð skólinn fyrir þeim miklu óþægindum, að hermannaskálar voru byggð- ir allt upp að skólalóðinni að norðan, og fjölmennt setulið settist þar að. Sló það miklum óhug á forráðamenn skólans og kennara, og jafnframt þá, sem ætluðu að senda dætur sínar á skólann. Kvað svo ramt að þessu, að fjöldi námsmeyja hætti við að koma á skólann, sem höfðu þá verið heimuluð skólavist. Var nú úr vöndu að ráða fyrir skólaráð og forstöðu- konu. Skyldi nú loka skólanum eða setja nýjar skólareglur, miklu strangari en áður höfðu verið? Síðari ráðstöfunin var tekin. Skólinn var settur með þeim hugrökku, ungu stúlkum, sem þorðu að sjá setuliðið dag- lega, án þess að hafa nokkur frekari kynni af því. Forstöðukonu, kennurum og nemendum skólans til mik- illar sæmdar tókst svo vel að fylgja þessum fyrirmælum, að reglurnar voru ekki að neinu leyti brotnar, og námsmeyjarn- ar komu aftur sigrihrósandi heim til sín með óskert mann- orð, úr nágrenni setuliðsins. Nú, þegar skólinn er settur, er aðstaðan sú sama. Sömu skólareglum verður því að fylgja. Skemmtanalífið verður því ekki stór liður í lífi skóla- meyja Blönduósskvennaskóla í vetur. Þær fá ekki leyfi til að sækja danssamkomur utan skólans, en aftur mega þær halda boðsböll innan skólans, oftar en áður var. Þegar við, eldri meyjar, stunduðum nám þar, var aðeins ein dansskemmt- un haldin á vetri. Ég hefi orðið þess vör, að ýms- ir utan skólans hafa misskilið þessar nýju skólareglur þannig, að þeir hafa haldið, að nem- endur væru alltaf lokaðir inni og fengju ekki að koma undir bert loft. Þetta er alger mis- skilningur. Nemendur fá tveggjastunda útivistarfrí hvern dag um miðjan daginn, og auk þess geta þær farið út á tún og landareign skólans eftir vild, þegar þær hafa frí frá störfum. Þegar ungar stúlkur hafa að- eins einn vetur til þess að búa sig undir húsmóðurstöðu, er þeim vissulega hentugast að njóta sem bezt góðra áhrifa frá forstöðukonu og kennurum góðs heimilis. Það er áreiðan- lega gott fyrir þær, að fá tæki- færi til að æfa sig í að skemmta heimilinu með söng, leikjum og dansi, sem þær iðka á laugardagskvöldum. Ætti það að vera metnaðarmál ungu stúlkn- anna að gera þau kvöld sem ánægjulegust. Virðist þá vera nokkur skaði, þótt ungu stúlkurnar fái ekki (Framh. á 3. síðu) Bjarni Ásgeirsson: Tvö systkiol Árið 1863 fluttust að Gríms- stöðum á Mýrum hjónin Níels Eyjólfsson og Sigríður Sveins- dóttir, og bjuggu þau þar eftir það til dauðadags. Níels var Austfirðingur að ætt. Var Eyjólfur faðir hans Guð- mundsson og bjó að Helgustöð- um í Reyðarfirði. Sigríður var dóttir séra Sveins Níelssonar, er var um þessar mundir prestur að Staðarstað í Snæfellsnes- sýslu og fyrri konu hans, Guð- nýjar Jónsdóttur prests að Grenj aðarstað. Ólst Sigríður að mestu upp hjá móðurstystur sinni, Kristínu, og manni henn- ar, séra Hallgrími Jónssyni að Hólmum í Reyðarfirði. Voru þau Níels og Sigríður þannig samsveitungar í uppvextinum og hófst þá kunningsskapur þeirra, er síðar leiddi til hjú- skapar og æfilangra samvista. Um miðja nítjándu öldina munu þau hafa flutzt að Staðarstað til séra Sveins. Þar giftust þau árið 1855 og þar fæddist elzta dóttir þeirra, Guðný. Árið 1857 byggði Helgi Helga- son, bóndi og hreppstjóri í Vogi á Mýrum, timburhús á jörð sinni, eitt hið fyrsta timbur- hús, sem reist mun hafa verið á íslenzkum bóndabæ, og stendur það enn í dag. Níels var þá lærður húsasmiður og fékk Helgi hann sér til aðstoðar um húsbygginguna. Byggði hann eftir það þeim hjónum nokk- urn hluta jarðarinnar og bjuggu þau þar í sambýli við Helga til vorsins 1863, að þau fluttu að Grímsstöðum, sem fyr er sagt. Mjög þóttu þau hjón þá þeg- ar bera af allri alþýðu manna og reyndist svo æ síðan. Níels var búhöldur ágætur og atorku- maður hinn mesti, ótrauður til allra framkvæmda og skjótur að taka upp nýjungar allar, er þá voru uppi um hagkvæmari vinnubrögð og bætta búnaðar- háttu. Var hann mjög á undan samtíðarmönnum sínum flest- um um búnaðarframkvæmdir og bætti ábýli sitt stórum að húsagerð og þó einkum með jarðabótum, sem voru líf hans og yndi. Kom han’n að Gríms- stöðum í hinni mestu niður- níðslu en skildi við þá svo prýðilega, er hann féll frá eftir 22 ára búskap þar, að lagður var grundvöllurinn að því höf- uðbýli, sem sonur hans og son- arsynir hafa aukið og endur- bætt og Grímsstaðir eru nú orð- ið. Sigríður var prýðilega gáfuð kona og vel að sér. Hún var bókhneigð mjög og listelsk og fróðleiksfús. Varð heimili þeirra til fyrirmyndar um menningu alla, bæði verklega og andlega. Árið 1883 lézt Níels Eyjólfs- son og tók Hallgrimur sonur hans þá við jörð og búi og bjó þar lengi síðan. Auk hins mikla æfistarfs þeirra hjóna, er Grimsstaðirnir munu ætíð bera menjar eftir, verður hér að geta annars, sem ekki er minna um vert. Þau eignuðust og ólu upp sjö börn, auk tveggja, er þau misstu í æsku, hvert öðru mannvæn- legra. En fimm þessara syst- kina settust að í fæðingarsveit sinni, Álftaneshreppi, og bjuggu þar allan sinn búskap — um aldarfjórðung og yfir hálfrar aldar skeið sum. Þessi fimm systkin voru Guð- ný Kristrún, lengi húsfreyja að Valshamri, gift Guðna Jónssyni bónda þar frá Fíflaholtum i Hraunshreppi , Marta María, húsfreyja á Álftanesi, nú ný- látin, Sveinn, fyrverandi bóndi á Lambastöðum, dáinn fyrir tveimur árum, Hallgrímur á Grímsstöðum, sem enn er hreppstjóri þeirra Álfthrepp- inga, og Sesselja Soffía, lengi húsfreyja á Grenjum, gift Bjarnþóri Bjarnasyni bónda þar, frá Knarrarnesi. Þeir Guðni og Bjarnþór eru nú látnir fyrir nokkrum árum. Tvö þeirra Grímstaðasystkina fluttu úr sveitinni uppkomin. Voru það Haraldur prófessor Nielsson, hinn þjóðkunni og ástsæli kennimaður, sem látinn er fyrir allmörgum árum sem kunnugt er, og Þuríður kona Páls Halldórssonar, fyrverandi stýrimannaskólastj óra. Öll hlutu þau systkini að erfð- um gáfur og atorku foreldra sinna, og auk þess allstrangt en heilsusamlegt uppeldi í starf- semi og háttprýði. Hjá þeim gætti í ríkum mæli tveggja sterkra eðlisþátta, — að öðrum þræði athafnavilja og um- bóta í verklegum efnum og veraldlegum málum, — en hin- um óvenjulegs áhuga á andleg- um efnum, fróðleiksþrá og ást á fögrum listum. En báða þessa eðlisþætti sameinaði sterk og þróttmikil skapgerð. Það leiðir nú að líkum, að lítið sveitarfélag hafi ekki orð- ið ósnortið áhrifa frá svo þrótt- miklu athafnasömu fólki sem þessi systkni voru, fyrst það fékk að njóta þeirra svona lengi. Mér er líka í barnsminni frá því að ég var að alast upp sem sveitungi þeirra, er þau öll voru í blóma lífsins, hversu mikinn svip mér þótti þau setja á sveitina, framkvæmda- og fé- lagslíf hennar og yfirbragð allt. Bræðurnir voru báðir búhöld- ar ágætir, og auk þess jafnan á meðal helztu leiðandi manna sveitarinnar í hreppsmálum og félagsmálum yfirleitt, bæði út- ávið og innávið og systurnar allar vel metnar húsfreyjur á mannmörgum heimilum, gáf- aðar og glæsilegar. Þá dró það ekki úr ánægjulegu yfirbragði og aðdráttarafli þessara heim- ila, er hin ungu mannvænlegu börn þeirra systkina voru að al- ast þar upp og gáfu heimilun- um þá fyllingu og þann unað, er mörg efnileg og vel upp alin börn veita hverju heimili. Hve- nær sem ég renni huganum til æskusveitar minnar, verður of- arlega í minning svipur hinna þróttmiklu og glæsilegu heim- ila þeirra systkina. Tvö þessara fyrnefndu fornu

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.