Tíminn - 31.12.1941, Síða 4
538
TlMHyiV, miðvikinlaginn 31. des. 1941
135. blað
Iðniuiarvörnr lYist bjá kaupfélöguEn um land allt og mörgum
kaupm önnum.
Iðunnarvörur eru smekklegar, haldgóðar og ódýrar.
■;>)ú
Skinnaverksmiðjan Iðunn
framlelðlr f jölmargar tegundlr af skóm á karla, konur og
börn. — Vlnnur ennfremur ár báðum, sklnnum og gærum
margskonar leðurvörur, s. s. leður til skógerðar, fataskinn,
hanzkaskinn, töskusklnn, loðsátaðar gærur o. m. fl.
Skinnaverksmiðjan Iðunn, er báin nýjustu og fullkomnustu
tækjum, og hefir á að skipa bóp af faglærðum mönnum,
sem þegar bafa sýnt, að þeir eru færir um að keppa við
átlenda framleiðslu á þessu sviði.
fj R BÆNUM
Messur um nýárið.
/ Dómkirkjunni: Á gamlársdag kl. 6
sr. Bjami Jónsson. — Á nýársdag kl.
11 sr. Friðrik Hallgrímsson.
í Laugarnessókn: Á nýársdag kl. 2
sr. Garðar Svafarsson.
í Fríkirkjunni: Á gamlárskvöld kl. 6
sr. Árni Sigurðsson. — Á nýársdag
kl. 2 e. h. sr. Árni Sigurðsson.
/ Austurbœjarskólanum: Gamlárs-
dag kl. 6 e. h., sr. Sigurbjörn Einars-
son. — Á nýársdag kl. 5 e. h., séra
Jakob Jónsson.
Flugmálin.
Vestan um haf hafa þær fréttir bor-
izt, að Örn O. Johnson hafi fest kaup
á stórri flugvél handa Flugfélagi ís-
lands. Flugvélin er ekki alveg ný, en
þó nokkuð dýr. Hefði það verið ofviða
sökum kostnaðar að kaupa nýja flug-
vél nú. Flugvél þessi er með tvo hreyfla
og getur flutt tíu farþega. Hún mun
ætluð til farþegaflutninga milli Akur-
eyrar og ýmissa staða á Austurlandi.
Er gert ráð fyrir, að hún verði eina
klukkustund á leiðinni milli Akureyrar
og Reykjavíkur. Flugvélar af þessari
gerð, „Beechcraft“-flugvélar hafa verið
mikið notaðar til farþegaflutnings
vestra og reynzt vel.
Bæjarstjórnarkosningarnar.
Tveir listar við bæjarstjórnarkosn-
ingarnar eru þegar komnir fram. Eru
þeir frá Alþýðuflokknum og kommún-
istum. Á lista Alþýðuflokksins eru efst-
ir: Haraldur Guðmundsson, forstjóri,
Jón Axel Pétursson, hafnsögumaður,
Soffía Ingvarsdóttir, frú, Sigurður Ól-
afsson, starfsmaður sjómannafélagsins,
og Jón Blöndal hagfræðingur. Á lista
kommúnista eru efstir: Sigfús Sigur-
Mjólkurstöðin . . .
(Framh. af 1. siðu)
fjólubláum geislum er varpað
á mjólkina til þess að auka
bætiefnaforða hennar.
— Hvað er að segja um ferða-
lagið að öðru leyti?
— Fátt annað en það, að ég
mætti allsstaðar hinni mestu
vinsemd og góðvilja hvar sem
ég fór. Ég átti kost á að koma
í tvo háskóla, þar sem kennd
er mjólkurvinnsla og auk þess
skoðaði ég margar mjólkur-
vinnslustöðvar.
— Hvernig fannst þér við-
horfið til íslands og íslendinga
meðal Bandaríkjamanna?
— Yfirleitt varð ég ekki var
við annað en góðvild í garð ís-
lendinga meðal Bandaríkja-
manna. En hinu gat ég ekki
lokað augunum fyrir ,að margir,
sem töluðu um ísland, voru með
Grænland í huganum. Ferðin
með Dettifossi heim var hin á-
nægjulegasta í alla staði.
hjartarson, ritstjóri, Björn Bjamason,
bæjarfulltrúi, Katrín Pálsdóttir, frú,
Steinþór Guðmundsson, kennari og
Einar Olgeirsson, ritstjóri.
Jólatrésskemmtun
Framsóknarfélaganna í Oddfellow-
húsinu byrjar kl. 4 e. h. næstk. sunnu-
dag. Skemmtun fyrir fullorðna fólkið
hefst kl. 9,30 að kvöldinu. Þátttaka til-
kynnist sem allra fyrst á afgreiðslu
Tímans. Sími 2323.
H GLEÐILEGT IVÝÁR!
Landsstniðjan.
tttttttittttittttttititttitttttitttttttttttttuttttt,
tmttitttttttttttttttttttttttttttnt,
tt
GLEÐILEGT \ÝÁR!
Þökkum viffskiptin á liffna árinu.
Skinnaverhsmiðjan Iðunn.
iittiitititttttitttitttititttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttnttttttttttttttt
tittttttitttttitttttitttutttttttvntttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttxtt
GLEÐILEGT IVÝÁR!
Þökkum viffskiptin á liffna árinu.
SápuverUsmiðjan
Sjjöfn.
thttttttttttwttttttttttttttttttt
Bóndi - Kanpir þú biinaðarblaðið FREY?
r.______—GAMLA BtÓ ~ ______
„BALALAIKA“
Stórfengleg amerlsk söng-
mynd. í aðalhlutverkum:
NELSON EDDY og
ILONA MASSEY.
sýnd á nýársdag.
kl. 5, 7 og 9.
Barnasýning kl. 3
Aðgöngumiðar seldir frá
kl. 11.
GLEÐILEGT NÝÁR.
~-^NÝJA BÍÓ
„SIS. HOPKEVS44
fyndin og fjörug skemmti-
mynd með svellandi tízku-
tónlist.
Aðalhlutverkið leikur
„revy“-stjarnan:
JUDY CANOVA
Sýnd á Nýársdag
kl. 3, 5, 7 og 9
Gleöilegt Nýár!
Bókaútgáía Menningarsjóðs
og Þjóðvinaíélagsins
hefir nú gefið út á þessu ári sjö bækur, sem áskrifendur fá fyrir
10 krónur. — Bækurnar eru þessar:
1. Jónas Hallgrímsson: Úrvalsrit — Ljóff og sögur, 192 bls. Þetta
er fyrsta bindið af samstæðu ritsafni, sem gert er ráð fyrir
að gefa út á næstu árum af úrvalsritum helztu íslenzkra
skálda að fornu og nýju.
2. Mannfélagsfræffi, þýdd úr ensku, 126 bls. Dr,. Guðmundur
Finnbogason hefir í þessu riti lagt grundvöll að íslenzku
fræðimáli í þessari vísindagrein. Dr. Guðmundur er eini
íslendingurinn, sem sameinar óvenjulegt vald yfir móður-
málinu og víðtæka heimspekilega menntun.
3. Almanak Hins íslenzka Þjóffvinafélags fyrir árið 1942, 120
bls. í því birtast mjög skemmtilegar ævisögur Churchills og
Roosevelts eftir Hallgrim Hallgrímsson meistara og itarleg
ritgerð úr nútíma íslandssögu um íslenzka fjármálaráðherra
og bankastjóra. Greinin er eftir Gylfa Þ. Gíslason hagfræð-
ing og er prýdd 28 myndum.
4 Andvari 1941. Þetta tímarit er stofnsett af Jóni Sigurðssyni
og framhald af Nýum félagsritum. Það er nú hundrað ára
gamalt. í því hafa jafnan birzt þungvægustu ritgerðirnar
um frelsismál íslendinga og er svo enn.
í>. Uppreisnin í eyffimörkinni, síðara bindi, 230 bls. Bókin er
eftir glæsilegustu ævintýrahetju síðustu heimsstyrjaldar og
þykir perla í enskum bókmenntum. Þar lýsir mikill rithöf-
undur Arabíu og lífi fólksins, sem þar býr. Bogi Ólafsson,
yfirkennari, hefir þýtt bókina.
6. Almenn stjórnmálasaga síffustu 20 ára, fyrra bindi, 158 bis.
efir Skúla Þórðarson, sagnfræðing. Er þar glöggt yfirlit um
hina þýðingarmiklu viðburði í sögu stórþjóðanna milli tveggja
heimsstyrjalda. Bókin er mjög nauðsynleg til skýringar þeim
atburðum, sem nú eru að gerast.
7. Anna Karenina eftir Leo Tolstoi, fyrsta bindi, 256 bls. Þessi
bók er talin einhver fullkomnasta skáldsaga, sem rituð hefir
verið vegna hinna skörpu, margbreyttu og sönnu mannlýs-
inga. Magnús Ásgeirsson rithöfundur hefir þýtt bókina.
Takmark Þjóffarútgáfunnar er aff hjálpa til aff koma upp fjöl-
breyttu bókasafni á hverju heimili í landinu.
TilkynnlDg
Lndanfariu gamlárskvöld hefir mjög bor-
iö á því, að menn hafi þyrpzt saman á g'ötum
hæjarins. Lögrcglan niiiii með harðri hendi
dreifa úr slíkri mannþyrpingu, oj*' er því fólk
alvarieg'a varað við því að safnazt saman í
hópa á götum bæjarins, og hér með brýnt fyrir
mönnum að hlýða tafarlaust skipnnum lög-
reglumanna, er þeir gef a til þc;ss að halda uppi
góðri reglu á alinannafæri.
I»eir, sem brjóta gegn þessn, verða látnir
sæta ábyrgð.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 30. des. 1941.
AGIVAR KOFOED-HATVSETV.
Föstudaginn 2. janúar 1942 verða bankarnir opnir affeins
frá kl. 2 e. h. (kl. 14) til venjulegs lokunartíma hvers banka.
Þann dag fer þó engin afgreiffsla fram í sparisjóffsdeildum bank-
anna. Sparisjóffur Reykjavíkur og nágrennis verffur opinn affeins
seinni afgreiffslutímann greindan dag.
Reykjavík, 30. desember 1941.
Landsbanki fslands Étvegsbanki fslands h.f.
Rúnaðarbanki f slands
Sparisjóður Reykjavikur og nágrennis