Tíminn - 14.03.1942, Blaðsíða 4
64
TÍMIM, langardagiim 14. marz 1942
17. blað
Kosningaskrifstoía Blistans
á kjördag, verður í Sambandshusínu við Sölvhólsgötu.
§imar: ðl§6 - 3ðT§ - 3333 - 4373.
Verðbólgan og stjórnmálin
(Framh. a/ 3. siOu)
ur. — Halda menn, að það
yrði ekki einnig að styrkja út-
flytjendur fleiri vara en fiskj-
arlns. Hvers eiga þeir að gjalda,
sem flytja út slldarafurðir og
landbúnaðarafurðir t. d., þvi
eru þeir ekki tryggðir gegn
tapi af gengishækkun?
Gengishækkun er ein af
þeim leiðum, sem gaumgæfilega
hafa verið athugaðar í sam-
bandi við dýrtíðarmálin. Þótt
sú leið væri farin, yrði að gera
flestar þær aðrar dýrtiðarráð-
stafanir, sem nú hefir verið
gripið til,. ef árangur ætti að
nást i því að stöðva dýrtíðina.
Ennfremur er þess að gæta, að
gengishækkun ein mundi hafa
mjög takmörkuð áhrif á fram-
færslukostnaðinn — dýrtíðina.
En hvað sem því líður, hvort
grípa skuli nú til gengishækk-
unar eða ekki, þá er bezt að
gera sér það fullljóst einmitt
nú, að geti aðalútflutningsat-
vinnuvegur landsmanna —
sjávarútvegurinn — ekki þolað
gengishækkun styrkjalaust, —
sé búið að spenna svo upp
framleiðslukostnaðinn nú þeg-
ar, að smábátaútvegurinn t. d.
þoli ekki hærra gengi en nú
er, þá er gengishækkun ekki
framkvæmanleg. Allir ábyrgir
menn sjá það í hendi sér, að það
verður fullerfitt að raka sam-
an 20—30 milj. króna, til þess
að bæta bönkunum upp gengis-
halla, þó ekki bætist þar við að
greiða þurfi tugi miljóna í út-
flutningsstyrki árlega.
Elnnrðarleysi AI-
þýðnflokksins.
Það sýnir bezt einurðarleysi
Alþýðuflokksins, svo ekki sé
sterkara að orði kveðið, að hann
skuli ekki þora að viðurkenna
þessa staðreynd og skuli hika
við að leggja gengismálið
hreint fyrir landsmenn. Hvers
vegna að reyna að dylja fyrir
mönnum hin eðlilegu og óum-
flýjanlegu áhrif gengishækkun-
ar? Trúir flokkurinn ekki svo á
málstaðinn, að hann þori að
koma hreint fram og segja við
framlelðendur, t. d. útgerðar-
menn og sjómenn: Auðvitað
verðið þið fyrir tapi í bili, en
af því að þessi ráðstöfun er
rétt, þá verður að gera hana
samt. í stað þess er sagt: Eng-
inn verður fyrir neinum halla
— ríkissjóður borgar uppbætur
á fiskinn, — að vísu gerir
frumvarpið ekki ráð fyrir slík-
um uppbótum nema rétt fram
yfir kosningar, en þó að Al-
þýðuflokknum þyki sú trygg-
ing kannske nægileg, mundi
kannske sumum öðrum finn-
ast hið gagnstæða.
Sé nú svo komið, að gengis-
hækkun yrði að fylgja út-
flutningsstyrlíir á aðalút-
flutningsvöruna, þá er hún ó-
framkvæmanleg, nema um leið
séu gerðar öflugar ráðstafanir
til þess að lækka framleiðslu-
kostnaðinn, og það má svo sem
nærri geta hvernig þeim ráð-
stöfunum yrði tekið.
Ég vil ekki á þessu stigi
málsins leggja dóm á það,
hversu ástatt er um möguleika
sjávarútvegsins til þess að þola
gengishækkun, en hitt vil ég
segja, að tillögur Alþýðuflokks-
ins um þetta mál eru ófram-
kvæmanlegar og í sjálfum til-
lögunum er því í raun og veru
slegið föstu, að gengishækkun
sé ekki framkvæmanleg, vegna
þess að útflutningsframleiðslan
þoli hana ekki. Hitt tekur eng-
inn alvarlega, að gengisskrán-
ing verði til lengdar byggð á
því, að miljónatugir séu greídd-
ir í útflutningsverðlaun. Það er
framkvæmanlegt að greiða út-
flutningsuppbætur á einstaka
vörutegundir, sem ekki eru
mjög mikill þáttur í utanríkis-
verzluninni. Hitt er ófram-
kvæmanlegt og mundi leiða til
gengislækkunar á nýjan leik
von bráðar, þótt reynt yrði.
Alþýðnflokknriim
freistar gæfnnnar.
En hvernig stendur á þessu
fáfmi Alþýðu^lokksins? Mér
finst auðvelt að finna á því
skýringu. Eftir að flokkurinn
hefir ákveðið að freista gæf-
unnar I stjórnarandstöðu —
eins og hann er raunar vanur
að gera fyrir kosningar — sbr.
það sem gerðist 1931 og aftur
1937 — þá virðist honum sér-
staðan i dýrtíðarmálinu af
sinnl hálfu varla nógu glögg, og
er það vorkunnarmál, þegar
þess er gætt, að aðaltillögur
flokksins eru uppsuða úr dýr-
tíðartillögum minum — með
þeirri breytingu, að þeir krefjast
þess, að engin afskipti séu höfð
af kaupgjaldi, þótt kaupgjald
framleiðenda eigi hins vegar að
binda með afurðaverðinu. —
Flokknum hefir því þótt þörf á
að brydda upp á einhverju
nýju — og þá er gengishækkun
góð. — En þegar nánar er að
gætt, er þó sá galli á gjöf Njarð-
ar, að Alþýðuflokkurinn hefir
áður haldið fram, að fiskverðið
samkvæmt brezku samningun-
um væri allt of lágt — jaínvel
svo, að fiskveiðar gætu ekki
borið sig. Gerði flokkurinn
mikið veður út af þessu á sinni
tíð og átti að koma sér vel hjá
útvegsmönnum og hlutamönn-
um. Nú voru þvi góð ráð dýr.
En brátt rættist þó betur úr en
áhorfðist. Vandinn reyndist ekki
annar en sá, að bæta nokkrum
linum inn i frumvarpið þess
efnis, að ríkissjóður skyldi bæta
upp hallann af gengishækkun-
inni, þeim sem selja fisk sam-
kvæmt fisksamningnum við
Breta — það gerði ekkert til um
hina. Þetta var svo einfalt og
hafði þann mikilsverða kost, að
með því móti gafst einnig sér-
stakt tækifæri til þess að benda
á, hvað þeir væru afskiptir, sem
byggju við þennan samning.
Þegar þetta úrræði var fundið,
gat svo Finnur Jónsson, hv.
þm. ís., gerst 1. flutningsmaður
frumvarpsins um gengishækk- J
unina, þrátt fyrir allt sem
hann er búinn að fjargviðrast
um fyrirsjáanleg vandræði og
reksturstap útgerðarinnar„
vegna þess, að verðlagið sé of
lágt.
Það er ekki vandasamt að
vera í stjórnarandstöðu á ís-
landi, ef Alþýðuflokksmenn
hafa hitt naglann á höfuðið
með framkomu sinni i dýrtíðar-
málunum.
Þeir segja: Það er lífsnauð-
syn fyrir verkamenn að stöðva
dýrtíðina, engir tapa á henni
meira en þeir. Jafnframt segja
þeir: Það er réttlætismál, að
grunnlaunin séu hækkuð og
stríðsgróðanum skipt þannig,
og það veldur engu um hækk-
un dýrtíðarinnar, þótt það sé
gert — það verður bara að setja
fast verðið á landbúnaðaraf-
urðunum, þá er öllu borgið. —
Ennfremur: Verðið á flskinum
er allt of lágt, framleiðslan ber
sig ekki. Eigi að síður er það
eitt helzta nauðsynj amálið og
úrræðið I dýrtíðarmálunum, að
hækka gengið. — Það þarf eng-
inn á því að tapa — ríkissjóður
borgar — allir græða. —
Ég er sannfærður um, að Al-
þýðuflokkurinn á eftir að hafa
382 Victor Hugo:
andi — afskræmdur i andliti. Maður
hefði vel getað ætlað hann vera eitt
steinskrímslanna, er stóðu á dómkirkj-
unni, en í gegnum gin þeirra hafði
regnvatnið þegar streymt um sex alda
skeið. En vera þessi hafði gefið öllu
þvl nánar gætur, er gerzt hafði fram-
an við anddyri Frúarkirkjunnar frá
þvl um hádegisbil þennan dag. Þegar i
upphafi atburðanna hafði hann, án
þess að mikið bæri á, fest gildan kað-
al, er náði allt niður á steinbrúna, við
eina af meginstoðum þaksvalanna. —
Er hann hafði lokið þessu, tók hann
næsta rólegur að virða fyrir sér það,
sem fram fór að nýju. En skyndilega,
þegar böðlarnir gerðu sig liklega til
þess að hlýðnast skipun Charmolues,
stelg hann upp á brjóstrið svalanna,
greip taki um kaðalinn með höndum,
tönnum og fótum og lét sig slga niður
hratt eins og regndropi rynni niður
gluggarúðu. Þegar hann var kominn
niður á steinbrúna, þaut hann leiftur-
skjótt að böðlunum tveim eins og
grimmur köttur, sem hrapar niður af
húsþaki, greiddi þeim hnefahögg, svo
að þeir hnigu til Jarðar, þreif Tatara-
stúlkuna annarri hendi eins og brúðu,
skundaði burtu og æpti ógnþrunglnni
röddu:
— Griðastaður!
Esmeralda 383
Allt gerðist þetta í slikri skyndingu,
að maður hefði getað séð það, sem fram
fór, að nóttu til við eldingarbjarma.
—Griðastaður! Griðastaður! æpti
mannfjöldinn. Lófatak þúsundanna
fékk hið eina auga Kvasimodos, til þess
að leiftra af gleði og stolti. Hin óvænta
hjálp varð þess völd, að Esmeralda
vaknaði til meðvitundar eins og hún
hræddist þann, er bjargað hafði henni.
Charmolue stóð kyrr í sömu sporum
sem skelfingu lostinn. Sama var að
segja um fylgdarlið hans svo og böðl-
ana. Esmeralda var friðhelg annan við
múrveggi Frúarkirkjunnar. Dómkirkjan
var griðastaður. Armur laganna náði
ekki til neins, er komizt hafði inn fyrir
þröskuld kirkjunnar. Kvasimodo nam
staðar í dyrunum. Hinir klunnalegu
fætur hans virtust sem súlur, er hann
stóð á kirkjugólfinu. Hið stóra, siðhærða
höfuð hans sat djúpt milli herðanna
eins og höfuð á ljóni, sem hefir makka
en engan hala. Hann hélt titrandi
stúlkunni í sínum styrku örmum, en
hann bar hana með slíkri gætni, að
hann virtist óttast að valda henni hin-
um minnstu óþægindum. Maður gæti
ætlað, að honum hefði fundizt hún vera
smágerður, valinn og dýrmætur hlutur,
er væri skapaður öðrum höndum en
hans. Stundum virtist eins og hann
'gíímmn
fæst i lausasölu á þessum stöð-
um i Reykjavík:
Ávaxtabúðinni, Týsgötu 8
Bókabúð Eimreiðarinnar,
Aðalstræti
Hjá Filippusi Vigfússyni,
Kolasundi
„Fjólu“, Vesturgötu
Hafnarstræti 16
Hótel Borg
„Matstofan", Laugaveg 45
Hjá Ólafi R. Ólafssyni,
Vesturgötu 16
Búðin, Bergstaðastræti 10.
Söluturninum.
------GAMLA BÍÓ ____
STOLM
HAIVDRITIÐ
(FAST AND LOOSE)
Aðalhlutv. leika:
ROBERT MONTGOMERY
Og ROSALIND RUSSELL.
Aukamynd:
BANDARÍKIN
STRÍÐSÞÁTTTAKANDI
Börn fá ekki aðgang.
Sýnd kl. 7 og 9.
Framhaldssýning 31/?—6V2
GRÍMUMENNIRNIR
(Legion of the Lawless)
með Cowboy-kappanum:
George O’Brien?.
—------NÝJA BÍÓ------
Merkí Zorros
(The Mark of Zorro).
Aðalhlutv. leika:
TYRONE POWER,
LINDA DARNETT,
BASIL RATHBONE.
Aukamynd:
FRÉTTAMYND
er sýnir meðal annars árás
Japana á Pearl Harbour.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
(Lægra verð kl. 5).
Framsóknarmenn!
Veríð duglegir á kjördag!
Kjósíd snemma og hvetjíð alla stuðníngsmenn
B-listans til pess.
Komíð fyrsta manni B-listans í bæjarstjórn fyrír
klukkan 3 og Hilmari áður en dagur er af lófti.
Ljóðasafn
Guðm. Guðmundssonar
Ljóð Guðmundar skólaskálds þekkja allir, en ljóðasafn-
ið hans þarf að komast á öll góð heimili. Ljóðin eru i
þremur bindum, prentuð á handgerðan pappír, og kosta
þó aðeins 36 krónur í góðu bándi. Upplagið er nærri
þrotið. — Fást ennþá hj á flestum bóksölum.
Bókaverzlun ísafoldar.
Tilkynning
frá Skrífstofu lögreglustjóra í Reykjavík.
Til viðbótar við það, sem áður hefir verið auglýst, til-
kynnist hér með, að vegabréf eru nú afgreidd til íólks,.
sem bjó samkvæmt síðasta manntali við eftirtaldar götur:
Samtún, Sauðagerði, Seljalandsveg, Seljaveg, Shellveg,,
Sjafnargötu, Skálholtsstig, Skarphéðlnsgötu, Skeggja-
götu, Skólabrú, Skólastræti, Skólavörðustig, Skólavörðu-
torg Skothúsveg, Smáragötu, Smiðjustíg, Smirilsveg,.
Sogaveg, Sóleyjargötu, Sólvallagötu, Spitalastig, Stýri-
mannastíg, Suðurgötu, Suðurlandsveg, Sundlaugaveg og
Sölvhólsgötu.
Lögreglustjórinn 1 Reykjavík, 13. marz 1942.
litla gleði af þrekleysi sínu í
dýrtíðarmálinu, og það er
mesti misskilningur, ef flokkur-
inn heldur að hann auki fylgi
sitt með slíkum vinnubrögðum.
Til þess liggja margar ástæður
sem of langt yrði að rekja hér.
í fyrsta lagi, að dýrtíðarmálið
mætir vaxandi skilningi al-
mennings hvarvetna á landinu,
ekki síður launamanna en ann-
arra. í öðru lagi, að stefna Al-
þýðuflokksins brýtur í bága við
stefnu annarra verkalýðsflokka
í þessum málum, og þegar af
þeirri ástæðu munu menn sjá,
að það er eitthvað meira en lít-
ið bogið við afstöðu flokksins.
í því sambandi ber ég ekki sam-
an við forkólfa kommúnista —
þeir hafa aðeins eitt áhugamál
og það' er að gera öngþveitið
sem mest. í þriðja Iagi, að af-
staða Alþýðuflokksins til kaup-
gjaldsmálanna frá stríðsbyrjun
hefir verið sú, að grunnkaup
ætti ekki að hækka, — þangað
til þeir töldu sig þurfa af póli-
tiskUm ástæðum að fara að
„skipta stríðsgróðanum" með
hækkun grunnkaupsins.
Það mun sönnu næst í þessu
máli, að forkólfar Alþýðufl.
munu ekki gera sér neinar
tyllivonir um að þeir skipti
stríðsgróðanum með launa-
stéttunum, þótt almennar
grunnlaunahækkanir eigi sér
stað. Hins vegar munu þeir hafa
ætlað sér að hafa pólitískan
stríðsgróða af þvi að hlaupa
undan merkinu í dýrtíðarmál-
unum. Reyndin mun hins vegar
verða sú, að þau vinnubrögð
munu ekki reynast gróðavæn-
legri fyrir flokkinn en aukning
verðbólgunnar fyrir verkalýð-
inn.
Fjallagrös
seljum við hverjum sem hafa
vill, en minnst 1 kg. í einu.
Kosta þá kr. 5.00. Ekki sent.
Ódýrari í heilum pokum.
S. f. S_Sími 1080
Atvinna
Garðyrkjan á Reykjum í Mos-
fellssveit óskar eftir tveimur
starfsmönnum, sem unnið hafa
við garðrækt áður.
Upplýsingar hjá garðyrkju-
stjóranum, siml 12 Brúarland,
ennfremur í síma 5836 Reykja-
vík.
Usti Framsóknar-
flokksins cr B-listi.
Stúlka
óskast til aðstoðar i starfs-
mannahúsi garðyrkjunnar á
Reykjum í Mosfellssveit. Upp-
lýsingar hjá garðyrkjustjóran-
um, simi 12 Brúarland, enn-
fremur í síma 5836 Reykjavik.
STUÐNINGSMENN
B-LISTANS!
Komið í skrifstofu B-listans
i dag! Hún er í Edduhúsinu við
Lindargötu, simi 4373 og 2323.