Tíminn - 09.04.1942, Síða 3

Tíminn - 09.04.1942, Síða 3
28. blaðS TlMIMV, fimmtudaginn 9. apríl 1942 107 A N N A L L Afmæll. Ólafur Guðmundsson óðals- bóndi á Sámsstöðum í Hvítár- síðu varð hálfáttræður 3. þ. m. Hefir hann nú búið á fimmta tug ára hinu mesta rausnar- og myndarbúi. Á undan honum bjuggu þar bæði faðir hans og afi, er hvorirtveggja hétu Guð- mundur. Sámsstaðir eru mikið býli og fagurt, er liggur miðsveitis í hinni blómlegu byggð Hvít-ár- síðu í Mýrasýslu, enda hefir nú lengi verið með afbrigðum vel setið. Hefir Ólafur verið hvorutveggja í senn hinn mesti búhöldur, hagsýnn og ráðdeild- arsamur, og jafnframt óvenju- lega athafnasamur um allar umbætur á bújörð sinni. Hófst hann snemma handa um tún- ræktina. Girti, sléttaði og færði út töðuvöllinn löngu fyrr en það var almennt orðið í sveit- um landsins. Minnist ég þess, er ég fyrst kom að Sámsstöð- um fyrir röskum þrjátíu árum, að mér þótti þá sem ég hefði hvergi séð jafnfallegt tún. Timburhús byggði hann um aldamótin og stóð það fram til ársins 1937, að hann reif það og byggði nú íbúðarhús úr steini, mikið og vandað. Útihús öll, hlöður og fénaðarhús, eru einnig að sama skapi vönduð og myndarleg. Sámsstaðir liggja í þjóðbraut, og eru auk þess þingstaður sveitarinar, svo að þar er tíð- um margt gesta og gangandi. Er þar gott að koma og ánægju- legt um að litast, bæði úti og inni. Ólafur bóndi er maður þéttur á velli og þéttur í lund. Máske nokkuð fáskiptinn við fyrstu kynningu, en hlýr og að- laðandi þegar komið er inn úr skelinni — glaður og reifur í góðra vina hóp — og vinur vina sinna. Hann er félagslyndur og samvinnulipur og hefir eins og vænta má gegnt ýmsum trún- aðarstörfum í sveitar- og sam- vinnumálum sveitunga sinna. Ólafur er giftur Margréti Sig- urðardóttur frá Neðra-Nesi, hinni mestu atgerfiskonu, er verið hefir ljósmóðir í sveitinni full 40 ár. Börn þeirra hjóna eru Guð- mundur, er býr ásamt föður sínum á Sámsstöðum, kvæntur Sigríði Brandsdótur frá Fróða- stöðum, Þórdís húsfreyja að Lundum í Stafholtstungum, gift Geiri bónda Guðmundssyni og Guðrún, gift kona í Reykja- vík Þorkeli Kristj ánssyni. Sig- urð son sinn misstu þau hjón uppkominn fyrir nokkrum ár- um. Var hann kvongaður Unni smekkvísinnar fyrir að hafa keypt slíkar myndir fyrir lands- fé. Aðrir töldu afsakanlegt, að taka myndirnar upp i skuldir, sem ekki myndi verða greiddar á annan hátt. Þriðju létu í ljós eindregna ósk úm, að þessi „list“ yrði hið skjótasta burt úr þinghelginni og kæmi aldrei aftur fyrir augu þingmanna. XIII. Máltækið segir: „Vogun vinn- ur og vogun tapar“. Hér sáu þingmenn með eigin augum úr- valsmyndir eftir menn hins nýja tíma, þeirra sem segja að þeir einir kunni að gera mál- verk á íslandi og eins að dæma um list. Jafnframt þessu veit þingið og mikill hluti þjóðar- innar, að menntamálaráð hefir síðan 1928 keypt í tali margra tuga eftir hina snjöllustu lista- menn landsins ágætar myndir. sem prýða þinghúsið, stjórnar- ráðið, margar opinberar bygg- ingar, hús forsætisráðherra og ríkisstjórabústaðinn. Þar á þjóðin verk skáldanna í mynd- list. Myndsýningin í þinghúsinu er samsafn af rímlausum fer- skeytlum. Þorgeirsboli er alger- lega sérstaklegs eðlis. Myndin er að efni til svo gróf, and- styggileg og ósönn í öllu eðli sínu, að hún mun ætíð þykja óhafandi bæði á almannafæri og í húsum einstakra manna. En málarinn, sem gerði hana, er í röð fremstu íslenzkra lista- manna, bæði að því er snertir flest önnur verk hans, og líka að almennri menntun. Lista- maðurinn valdi þessa mynd Gísladóttur í Borgarnesi. Kunningjar Ólafs og vinir munu hafa sent honum marga hlýja kveðju á afmælisdeginum með þökk fyrir góða viðkynn- ingu, ásamt hamingjuóskum með langan og dáðríkan starfs- dag. ' Bjarni Ásgeirsosn. (Grein þessi átti að koma í seinasta fimmtudagsblaði, en komst þá ekki, sökum þrengsla. Ritstj.) Guðjón Jónsson hreppstjóri í Hallgeirsey verður 50 ára 9. þ. m. Guðjón hefir búið í Hall- geirsey allan sinn búskap, rúm 20 ár, og setið jörð sína mjög vel. Hann hefir byggt upp öll hús á jörð sinni og vandað í- búðarhús er steini. Guðjón er maður vel á sig kominn, glæsimenni í sjón og sérstakt ljúfmenni í allri um- gengni, söngelskur og söngmað- ur góður. Guðjón hefir gegnt ýmsum trúnaðarstörfum, meðal annars hefir hann verið hreppstjóri rúmlega 20 ár, verið í sveitar- stjórn jafn lengi, formaður fræðslunefndar um 10 ára skeið, auk ýmsra annara starfa. Öll- um þessum störfum hefir hann gegnt með sérstakri trú- mennsku. Guðjón er kvæntur Guðrúnu Gunnarsdóttur hreppstjóra, Hólmum', ágætri konu, og er hún manni sínum mjög sam- hent, enda heimilið hið á- nægjulegasta. Vinir hans, fjær og nær, senda honum hlýjar kveðjur á þess- um tímamótum æfi hans, með þökkum fyrir vel unnin störf og óskum um- bjarta framtíð. V. Þrjár þSngsál iíllögur (Framh. af 2. síSu) Skagfirðinga flytja tillögu um að skora á ríkisstj órnina að láta á næsta sumri leggja veg yfir háhrygg Siglufjarðar- skarðs og lúka vegagerð frá Ketilási að Hraunum í Fljót- um. Svipuð tillaga var fram bor- in á vetrarþingi 1941, og hafði mikið fylgi, en kom aldrei til umræðu. Hér í Tímanum hafa áður birtzt greinar, meðal annars eftir Jónas Jónsson, þar sem mjög greinilega er sýnt fram á nauðsyn þess, að vegur verði lagður um Siglufjarðarskarð hið allra bráðasta. Við þessa tillögu eyfirzku og skagfirzku þingmannanna flyt- ur Gísli Guðmundsson þá breytingartillögu, að vegur um Öxarfjarðarheiði skuli tekinn með í þessa áskorun, og verðl vegagerð á heiðinni lokið næsta sumar. eftir sig i listasafn þjóðarinn- ar, og tiltók sjálfur borgun fyr- ir. Þetta atvik sýnir ótvírætt, hvílíkt glapræðl það yæri að ætla að afhenda listamönnun- um sjálfum valdið yfir lista- verkakaupum. Úr því að slíkum manni, sem Jón Stefánsson er, voru svo mislagðar hendur, þá er sannarlega ekki mikils að vænta af Jóhanni Briem og hans nótum. XIV. Á þessari sýningu er nakinn kvenmaður eftir Jóhann Briem. Um þá mynd höfðu þingmenn þau orð, að ef allar konur væru jafn illa vaxnar, líkastar lið- dýrum, og með litblæ öskuhrúg- unnar á hörundinu, þá myndi ellihugsjón Tolstoys komast í framkvæmd af sjálfu sér. Öll sú aðdáun, sem karlmenn hafa á konum myndi hverfa á svipstundu og ekki verða eftir annað en óbeit og leiðindi. Næst kom andlitsmynd af Hirti Snorrasyni. Þegar Hvanneyrar- skólinn var fimmtugur óskuðu gamlir nemendur Hjartar skóla- stjóra eftir því, að mennta- málaráð léti gera málverk af þessum merkismanni, og léti‘ það fylgja Hvanneyrarstað. Ráðið fól þetta einum af yngri málurunum. Hafði sá maður sýnt ótvíræða náttúrugáfu, og átti ríkið eftir hann álitlega mynd frá fyrri árum. Hann tók að sér að gera verkið. Myndin var borguð og send til Hvann- eyrar. En er þangað kom, neit- aði fjölskylda Hjartar og gamlir lærisveinar, að hún yrði borin i f ii r O ;i s ö I bi iii á S landbnoaðarins Sampykktir síðasta búnaðarþíngs Fyrlr búnaðarþingið, er hér sat á rökstólum á dögunum, voru lögð allmörg erindi varð- andi afurðasölumál landbúnað- arins, frá búnaðarsamböndum eða forvígismönnum þeirra. Ræddi búnaðarþingið þessi mál ítarlega og samþykkti ályktan- ir um þau: „Búnaðarþing skorar á Al- þingi og ríkisstjórn, að verð- bæta svo af dýrtíðarsjóði eða ríkissjóði framleiðsluvörur land- búnaðarins, hvort heldur þær eru seldar á innlendum eða er- lendum markaði, að búskapur- inn beri sig, líkt og aðrir at- vinnuvegir. Ennfremur lýsir Búnaðarþingið yfir því, að það lítur svo á, að verð það, sem út- lit er fyrir að bændur muni fá fyrir framleiiðsluvörur, sínar 1941, sérstaklega ull og gærur, muni vera fjarri því að svara til framleiðslukostnaðar. Telur þingið, að endanlegt verð á þessum vörum, þ. e. ull og gær- um, til bænda, þurfi að vera mun hærra en 1940. Að láta nú á næsta sumri gera ákveðna tilraun með hraðfryst- ingu á kindakjöti, og jafnframt framkvæma markaðsleit fyrir það i Ameríku og Englandi. Að taka til athugunar, hvort ekki væri hægt að koma upp nú þegar svo átórri skinna- verksmiðju í landinu, að hægt verði að verka og vinna megin- ið af gærubirgðum frá s. 1. ári, til þess að ekki þurfi að selja þær úr landi fyrir lítið verð. Jafnframt felur Búnaðar- þingið Búnaðarfélagi íslands, að láta fara fram árlega rann- sókn á því, hvaða verð bændur þurfa að fá fyrir vörur sínar, til þess að standast kostnað við framleiðsluna og afkoman verði lífvænleg, þannig, að menn, sem lifa af landbúnaði, beri jafn- mikið úr býtum og aðrar stétt- ir þjóðfélagsins, miðað við vinnutíma þeirra.“ í greinargerð fyrir afgreiðslu málsins á Búnaðarþingi segir: Það er augljóst mál og öllum kunnugt, að kostnaður við framleiðslu búsafurða hefir auk- izt stórkostlega, að mikil verð- hækkun er óumflýjanleg, ef ekki á allt um koll að keyra, þvi afleiðingar af taprekstri frá ári til árs á hvaða atvinnugrein- um sem er, hafa fyrr eða seinna í för með sér, að grípa verður til neyðarráðstafana. Væri hér um atvinnuveg að ræða, er litla þýðingu hefði fyrir þjóðfélagið, væri ekki á- stæða til sérstakra aðgerða, en nú er svo ástatt, að þjóðin get- ur þurft að treysta að mestu leyti á þær atvinnugreinar, er framleiða neyzluvörur, og þá á landbúnaðinn sérstaklega, og eru því engar ráðstafanir land- búnaðinum til bjargar of dýru verði keyptar. Nefnd sú, er um málið fjallaði, lýsir því ennfremur yfir, að verðið á landbúnaðarafurðum hafi verið alls ófullnægjandi 1941 með þvi verðlagl, sem útlit er fyrir að fáist fyrir ull og gærur. Þá tekur nefndin það fram, að nauðsynlegt sé að hindra allan misskilning og tortryggni milli neytenda og framleiðenda, og til að útiloka hann sé nauð- synlegt, að það liggi skýrt fyrir, hve hátt verð bændum sé nauð- synlegt að fá til að þeir geti rekið heilbrigðan búrekstur, og er Búnaðarfélag íslands sjálf- sagður aðili til að fella dóm um, hvaða verðlag þurfi að vera á vörum bænda á hverjum tíma. Samband ísl. samvinnufélae/a. Athugið: Fyrir hverja krónu, sem þér kaupið í kaupfélagi, fáið þér eins mikið og unnt er. inn i skólahúsið. Fékk mennta- málaráð hana senda aftur. Lá hún við hlið Þorgeirsbola og málverka eftlr menn hins nýja tíma í geymslurúmi menntamálaráðs á Arnarhváli, þar til hún fór á sýninguna í þinghúsinu. Dómur þingmanna um málverkið var sá, að eftir myndlnni hefði þessi skólastjóri á Hvanneyri verið eins og illa stunginn leirhnaus. Það er full- víst, að svo illa gerð og lygileg mynd verður aldrei höfð til sýnis til minningar um Hjört Snorrason. Næst koma nokkrar myndir, sem eru bein eftirstæling af því andlausasta og vesalasta, sem til er í franskri úrkynjun- arlist frá síðari árum. Þar er hrúgað saman sterkum litar- klessum, með svipaðri tækni og krakkar gera, er þau hafa til umráða litsterka blýanta. Þar sjást í sjóþorpi alla vega af- skræmdar persónur. Þar á með- al kvenfólk með horn. Á tog- urum vinna hauslausir hásetar að því að velta olíutunnum frá Héðni Valdimarssyni. Þegar stúlka heldur á opinni bók, eru blaðsíðurnar öðru megin þriðj- ungi breiðari heldur en hinn hluti bókarinnar. Þegar lista- maðurinn horfir út um glugga á húsi við Húnaflóa, eru glugga- tjöldin ósamstæðar tjáslur, og gluggapóstarnir jafn skakkir eins og hugsun myndgerða- mannsins. Niðurstaða sýningarinnar mun vera sú, að þingmönnum sé nú ljóst, að hér er sannar- (Framh. á 4. síðu) Um skattafrumv. nýju (Framh. af 2. siðu) þessu þingi líða í fullkomnu að- gerðarleysi í skattamálunum. — Hvers vegna lögðu þeir ekki fram sínar tillögur og börðust fyrir þeim? Er það kannske vegna þess, að það er öruggara að koma við yfirboðum, ef menn vita, hvað hinir ætla sér? — Þá eru menn líka tryggðir fyrir þeim slysum, að „yfirboð- in“verði í reyndinni„undirboð“! Nú hefir verið lagt fram frumvarp á Alþingi, sem trygg- ir afnám „frádráttarreglunn- ar“, og er það eina úrræðið til þess að tryggja háa skatta af stríðsgróðanum. Hvað segir svo Alþfl, sem heldur því fram, að engum sé treystandi nema hon- um til þess að skattleggja stríðsgróðann, um þetta frv? Framsögumaður flokksins við 1. umr. málsins á Alþingi kvaðst vilja taka sér frest til þess að athuga nánar, hvort hann yrði fylgjandi afnámi frádráttar- fyrirkomulagsins eða ekki. — Framsögumaður Alþýðuflokks- ins í skattamálum hefir m. ö. o. ekki ennþá, — í marzbyrjun 1942, á þriðja stríðsgróðaárinu, — gert sér grein fyrir því, hvort afnema beri frádráttarergluna, sem er þó höfuðskilyrði þess, að hækkun .stríðsgróðaskattstigans nái tilgangi sínum. Af þessari afstöðu flokksins má svo sem nokkuð marka, hvað áunnizt hefði um þetta grundvallaratriði skattamál- anna, ef Alþýðuflokkurinn hefði átt að hafa forustuna. Ég mun síðar gera nokkra grein fyrir skattlagningu hluta- félaga og sjóði þeirra. NIGLIMGAR milli Bretlands og íslands halda áfram, eins og að undanförnu. Höfum 3—4 skip í förum. Tilkynningar um vöru- sendingar sendist Culliford & Clark Ltd. BRADLEYS CHAMBERS, LONDON STREET, FLEETWOOD. Erlendir ullarsokkar hafa verið auglýst- ir hér undanfarið af miklu kappi. — Vér höfum ávalt íyrirliggjandi fjöl- breytt úrval af íslenzkum ullarsokkum, sem eru alveg eins fíngerðir og þeir er- lendu, en auk þess mjög hlýir, ódýrir og endingargóðir. — íslenzku sokkarnir eru seldir í verksmlðjuútsölu Iðunnar og Gefjunar í Aðalstræti og ýmsum öðr- um vefnaðarvöruverzlunum i Reykja- vik. Út um land fást sokkarnir hjá flestum kaupfélögum og mörgum kaup- mannaverzlunum. — í heildsölu hjá Sambandi ísl. samvinnufél., Reykjavík. Ert þú kaupandi Dvalar? Tímaritið Dvöl kemur út fjórum sinnum á ári, hvert hefti að minnsta kosti 80 lesmálssiður. Dvöl flytur úr- vals sögur i góðri þýðingu, ferðasögur, greinar um margvísleg efni, ljóð og íslenzkar sögur, bókmennta- pistla og margt fleira. Margir þekktir menntamenn og og sum beztu skáld og rithöfundar þjóðarinnar hafa heitið ritinu stuðningi sínum i framtíðinni. Gerizt þegar kaupendur DVALAR. Hún kostar aðeins 10 kr. á ári. TÍMARITIÐ DVÖL Sími 2353. Pósthólf 1044. Lindargötu 9 A. Reykjavík. 424 Victor Hugo: Esmeralda 421 V. KAFLI. Lykillinn aff rauffa hliffinu. Nú hafði erkidjáknanum borizt til eyrna sagan um undankomu Tatara- stúlkunnar. Hann vissi varla, hvemig hann átti að bregðast við þessum óvæntu tíðind- um. Hann hafði sætt sig við það, að Esmeralda væri dauð. Hann hafði tæmt bikar þjáninganna í botn og öðlast frið. Hjarta mannsins getur ekki hryggt og þjáðst nema að vissu marki. Það er svampur. Þegar svampurinn hefir sog- ið í sig eins mikið vatn og I honum rúmast, er svo nákvæmlega sama þó að allur veraldarsjórinn belji á honum: í svampinum rúmast ekki einn einasti vatnsdropi umfram það, sem hann hef- ir þegar í sig drukkið. Við dauða Es- meröldu hafði svampur hjarta hans gegnvöknað, og allt, sem af þessum heimi var, var honum eilíflega glatað — og skipti hann engu. Þegar hann komst að raun um, að Esmeralda og Föbus voru bæði á lífi, hófst baráttan og hugarkvölin að nýju. Hann lokaði sig inni og lét aldrei sjá sig við bænagerðir, messusöngva né guðsþjónustur. Hann bannaði öllum að koma til sin, jafnvel biskupnum. Stund- ir liðu fram, margar vikur. Fólk hélt, — Tatarastúlkan! Hver ert þú? Ert þú afturganga? Um leið greip hann til sverðs síns. — Flýttu þér, flýttu þér, hrópaði Kvaslmodo og togaði í tauminn. Þessa leið. Föbus sparkaði í bringuna á honum, eins snöggt og hann mátti við koma. Augu Kvasimodos skutu gneistum, og hann gerði sig líklegan til þess að ráð- ast á liðsforingjann. Þó hlífðist hann við því og sagði: — Sæll er sá, sem einhver elskar. Hann lagði megináherzlu á orðið „einhver." Svo sleppti hann taumnum og sagði: — Af stað þá! Og Föbus sló i og reið burt há- bölvandi. Brátt hvarf hann Kvasi- modo sýnum í myrkrinu. — Ja, guð minn góður, tautaði hann, að segja nei við slíku boði! Síðan rölti hann inn í Frúarkirkjuna, kveikti ljós í kolu sinni og haltraði upp stigana. Tatarastúlkan beið hans enn, eins og hann átti von á. Hún hljóp á móti honum undir eins og hún varð hans vör. — Einn, yeinaði hún i örvæntingu. — Ég fann hann hvergi, svaraði Kvasimodo mæðulega.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.