Tíminn - 16.04.1942, Qupperneq 4
124
TÓirVJV, fimmtndajgiim 16. aprfl 1942
32. blað
tÍR
Stórslys á flugvellinum.
Það slys vildi til, þegar flugvélin
„Smyrill" var að leggja af stað til
Akureyrar í fyrradag, að flugvélin
steyptist til jarðar rétt við flugvöll-
inn, úr á að giska 50 m. hæð. Þrír
farþegar og flugmaðurinn slösuðust
mjög hættulega og flugvélin gereyði-
lagðist. Farþegarnir voru: Axel Kristj-
ánsson kaupmaður á Akureyri. Hann
skaddaðist á höfði, fékk heilahristing
og taugaáfall og er að líkindum hand-
leggsbrotinn. Rosenthal, þýzkur maður,
sem dvalið hefir alllengi hér á landi.
Hann fótbrotnaði, fékk taugaáfall og
meiddist auk þess allverulega á höfði.
Þriðji farþeginn var enskur höfuðs-
maður. Hann slasaðist langmest, en
blaðið hefir ekki fengið neinar frekari
fregnir af líðan hans. Flugmaðurinn,
Sigurður Jónsson, kjálkabrotnaði, rif-
beinsbrotnaði, mjaðmabrotnaði og
skarst á höfði. Einnig fékk hann mjög
alvarlegt taugaáfall. Mennirnir liggja
allir á sjúkrahúsi hersins í Stúdenta-
garðinum. Brezk sjúkrabifreið, sem var
stödd nálægt slysstaðnum, flutti þá
þangað strax eftir að slysið vildi til.
Um orsakir þesa slyss, er ekkert kunn-
ugt, þar sem flugmaðurinn er svo mik-
ið meiddur, að hann getur ekki gefið
neinar upplýsingar um það. Dálítill
stormur var, en þó mátti veður telj-
ast sæmilegt til flugferða.
Vorprófdagur í sundi.
í kvöld fer fram sundmót skólanem-
enda i Reykjavík í sundhöllinni og
gangast fimm fimleikakennarar skól-
anna fyrir mótinu. Allur ágóði á móti
þessu rennur til starfsemi barnavina-
félagsins „Sumargjafar". Tilgangurinn
með þessu móti, er að sýna bæjarbú-
um og öðrum, hvað nemendur skól-
anna hafa lært í sundi og er í ráði
að efna til slíkra sundmóta á hverju
vori framvegis. Sundsýningin í kvöld
verður þó ekki eins fjölbreytt eins og
kennararnir hefðu kosið, vegna mikils
farsóttarfaraldurs í bænum að undan-
förnu og ennfremur vegna bólusetn-
ingar fermingarbarna, sem nú stendur
yfir. Fyrst sýna fullnaðarprófsböm
þær sundaðferðir, sem þau verða að
kunna til að ná fullnaðarprófi, svo
sem bríngusund, baksund, björgimar-
sund og kafsund. Þá fer fram boð-
sundskeppni milli barnaskólanna og
nemendur Stýrimannaskólans sýna
stakkasund. Loks fer fram boðsunds-
keppni milli framhaldsskólanna (skrið-
sund ' jpni), Þessir skólar taka þátt
í henni: Háskólinn, Iðnskólinn,
Menntaskólinn og Verzlunarskólinn.
Þessir skólar keppa um bikar, sem
rektor háskólans gaf til þessa. Að lok-
um fer fram boðsundskeppni milli
stúlkna úr framhaldsskólunum. Þátt-
takendur í því verða úr Gagnfræða-
skóla Reykjavíkur, Verzlunarskólanum
og Menntaskólanum. Þessi sundsýning
gefur góða hugmynd um sundkunn-
áttuna í skólunum, bæði barnaskólun-
um og framhaldsskólunum. Það mun
því vera óhætt að gera ráð fyrir að
áhorfendasvæðin í sundhöllinni verða
fullskipuð í kvöld.
Verður framleíðslan
Af mold erfu
(Framh. af 1. síðu)
urn stuðning við manninn. En
litlu áður hafði Sigurður dregið
úr vasa sínum tillögu, þar sem
skorað var á mig, að segja af
mér formennsku í Framsóknar-
flokknum, af því að ég væri til
skaðsemdar flokknum. Ég benti
honum á, að á þessum stað væri
ekki hægt að taka við tillögu
frá honum, þar sem hann ætti
ekki sæti í miðstjórninni, en til
að gera honum efnislega ítrasta
greiða, bað ég þá fundarmenn,
sem væru þakklátir Sigurði, að
gera svo vel að rétta upp hönd.
Engin hönd hreyfðist. Stóð Sig-
urður þá upp, lýsti yfir að hann
væri genginn úr Framsóknar-
flokknum, og gekk út. Morgun-
inn eftir birtist tillaga Sigurð-
ar í Alþýðublaðinu. Hann mun
hafa afhent plaggið í prent-
smiðjuna, áður en hann kom
á fundinn til Framsóknar-
manna kl. 9 um kvöldið.
Að öllu samtöldu hafa Fram-
sóknarmenn fengið viðunandi
úrslit með Tungunestilraun
sína. Sigurður Jónasson hefir
verið til leiðinda og til minnk-
unar fyrir flokkinn hin síðari
ár. En milli fésýkiskastanna
hefir hann slegið í skorpum, og
þá töluvert látið undan hon-
um. Sigurður fer ekki allslaus
frá Framsóknarmönnum, held-
ur með mjög álitlegan gróða á
hlutabréfum sínum í Eddu.
Vasar hans svigna nú undan
seðlabögglunum, þar til höfuð-
óvinur Sigurðar, niðurjöfnun-
arnefndin, fer að týna þá upp
úr vösum hans aftur, til þess
að Bjarni borgarstjóri og lið
hans hafi því meira milli handa
til að framkvæma hugsjónir
sínar.
Við hverja jarðarför segir
presturinn: „Af mold ertu kom-
inn, að mold skaltu aftur verða.“
Framsóknarmenn geta nú beitt
: þessari útfararkveðju við hinn
burtvikna fjáraflamann. Hann
kom til okkar úr mold krat-
anna. Hann hverfur aftur til
upphafs síns í hinum sama reit.
En hitt mun engum detta í
hug, að um nokkra pólitíska
upprisu verði nokkurntíma að
ræða að því er snertir Sigurð
Jónasson. Sá þáttur í útfarar-
kveðju þjóðkirkjunnar getur
eftir eðli sínu aldrei átt við
hann. J. J.
Innilegt þakklœti tjái ég öllum, er minntust mín
af vinarhug, fœröu mér gjafir og sendu mér heilla-
óskir á sjötugsafmœli mínu.
Helgi Jónsson frá Stórabotni
Reykjavík. Sími 1249. Simnefni: Sláturfélag.
Reykhús. — Frystihús.
Nfðursuðuverksmlðja. - Bjúgnagerð.
Framleiðir og selur í heildsölu og smásölu: Niður-
soðið kjöt og fiskmeti, fjölbreytt úrval. Bjúgu og alls-
konar áskurð á brauð, mest og bezt úrval á landinu.
Hangikjöt, ávallt nýreykt, viðurkennt fyrir gæði
Frosið kjöt allskonar, fryst og geymt í vélfrystihúsi, eftir
fyllstu nútímakröfum.
Verðskrár sendar eftir óskum, og pantanir afgreiddar
um allt land.
Egg frá Eggjasölusamlagi Reykjavíkur.
Auglýsing
um hámarksverð.
Gerðardómur í kaupgjalds- og verðlagsmálum hefir ákveð-
ið eftirfarandi hámarksverð:
í heildsölu í smásölu
Haframjöl ........................ kr.
Sagogrjón ......................
Kartöflumjöl ...................
Smjörlíki ......................
Krystalsápa ....................
Kartöflur ......................
Að gefnu tilefni óskar gerðardómurinn að geta þess, að há-
marksverð þetta gildir um allt land og er óheimilt að selja
vörur þessar, eða aðrar sem hámarksverð hefir verið auglýst á,
hærra verði.
Viðskiptamálaráðuneytið, 15. apríl 1942.
pr. 100 kg. pr. kg.
kr. 77.60 kr. 0.97
— 156.60 — 1.96
— 136.77 — 1.71
— 312.00 — 3.68
— 242.00 — 3.00
— 60.00
-GAMLA BtÓ
IV A IV E T T E
(No, No, Nanette)
Amerísk söngvamynd með
ANNE NEAGLE
Aukamynd:
Hnefaleikakeppni milli
JOE LOUIS og
BUDDY BAER.
Sýnd kl. 7 og 9.
Framhaldssýning 3%-6%:
PÓSTÞJðFARIVlR
(Stage to Chino)
Cowboymynd með
GEORGE O’BRIEN.
aðgang.
Börn innan 12 ára fá ekki
-NÝJA Bló.
Á suðrænum
slóðum
. (Down Argentine Way).
Fögur og skemmtileg
stórmynd tekin í eðlileg-
um litum.
Aðalhlutverkin leika:
DON AMECHE
og
BETTY GRABL...
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
I
Eik innréttar eldhús bezt,
Eik hefir fagmenn nóga.
Eik býr leikföng allra flest,
Eik er prýði skóga.
Kaupmenn og kaupfélög
Framleiðum ennfremur allskonar bús-
áhöld úr tré.
Vörur sendar um land allt gegn póstkröfu
Krísfján Erlendsson
Sími 1944 Símnefni Eik
Póstbox 843- — Skólavörðustíg 10
Reykjavík
Brezka menningarstofnunin
(THE BRITISH COEIVCIL)
hefir ákveðið að veita þremur íslenzkum kandídötum styrk til
framhaldsnáms við enska háskóla á komanda háskóla-ári.
Styrkurinn nemur £350 til hvers styrkþega. Eyðublöð undir
umsóknir fást hjá brezku sendisveitinni í Þórshamri, Reykja-
vík. Umsóknir sendist fyrir 1. maí n. k. til annars hvors
1 ögð í rústír?
(Framh. af 1. siðu)
hitaveituna í sumar og framleitt
kjöt og mjólk og fisk handa
okkur sjálfum og viðskipta-
mönnum okkar.
Bandamenn eru hér með all-
f jölmennt lið. Sumt af þessu liði
hefir unnið að nauðsynlegum
vegagerðum og öðrum mann-
virkjum fyrir yfirmenn sína. Ef
sumir hermenn geta unnið
stund úr degi að vegagerð eða
öðrum þvílíkum framkvæmdum,
þá geta fleiri gert það. En ef
ekki þykir hlýða, að hermenn-
irnir geri slík nauðsynjaverk,
þá verður að flytja inn verka-
fólk úr öðrum löndum.
Engin lýðræðisþjóð hefir í
þessu stríði vanrækt eins og
íslendingar, að beita vinnuafli
þjóðarinnar að framleiðslu lífs-
nauðsynja. Hér verður að ger-
ast stefnubreyting. J. J.
Lesendur!
Vekjið athygli kunningja yð-
ar á, að hverjum þeim manni,
sem vill fylgjast vel með al-
mennum málum, er nauðsyn-
legt að lesa Tímann.
(<r.
Herzla og hreinsun
(Framh. af 3. síðu)
smiðjan að kosta 1,6 milj. kr.
En slík verksmiðja mundi hafa
unnið úr um y5 af síldarlýsis-
framleiðslunni 1940.
í rekstraráætlun, sem einnig
er birt i þessu erindi, er kostn-
aður við vinnsluna talinn 220
kr. á hverja smál. af hertri feiti
í umbúðum, miðað við verðlag
ársins 1939. Með þessum kostn-
aði átti herzlan að bera sig, eða
vel það, þegar tekið var til sam-
anburðar verð á hertri feiti er-
lendis til smjörlíkisverksmiðj-
anna hér.
1 Ef herða ætti allt síldarlýsi,
sem framleitt er hér á landi,
mundi þurfa til þess mjög mik-
inn stofnkostnað, jafnvel á
venjulegum tíma. En hér er um
svo mikilsvert mál að ræða, að
ekki virðist áhorfsmál að rann-
saka það eftir föngum, og þá
m. a. kynna sér til nokkurrar
hlítar markaðinn fyrir herta
feiti erlendis.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
inu, þótt þessi ljóður væri á
ráði hans.
„ALÞÝÐUFLOKKSKLERKUR".
Sigurður dósent Einarsson
flutti messu í kapellu háskólans
sl. sunnudag. Notaði hann tæki-
færið til að sveigja ósmekklega
að Haraldi Níelssyni, svo að væg
orð séu við höfð.
Síðan Sigurður varð háskóla-
kennari hefir hann gerzt svo
þröngsýnn í trúarefnum að
furðu gegnir.
Það er meinlaust þótt Alþbl.
tali fyrirlitlega um Framsókn-
arklerka og íhaldsklerka, ef það
gleymir ekki að berja sér á
brjóst og þakka drottni fyrir, að
Sigurður Alþýðuflokksklerkur
skuli ekki vera eins og slíkir
syndum hlaðnir menn.
438 Victor Hugo:
Einn greifanna af Foix heitir einnig
Föbus.
— Komdu með mér! mælti prestur-
inn. — Ég hefi nokkuð að segja þér.
Þegar riddarahópurinn birtist á sjón-
arsviðinu, breyttist hið kuldalega kæru-
leysi erkidjáknans í óróleik. Hann
skundaði af stað, og Gringoire veitti
honum eftirför. Þeir gengu þögulir yfir
að Bernardinerstrætinu, sem reyndist
nær mannlaust. Þar nam erkidjákninn
staðar.
— Hvað ætlaðir þú annars að segja
mér, herra? spurði Gingoire.
— Finnst þér ekki, að riddararnir,
sem , leið okkar urðu, bera skrautlegri
klæði en við? spurði erkidjákninn og
virtist hugsi.
Gringoire kastaði til höfðinu.
— Mér finnst mun meira koma til
minna klæða en þeirra, herra erki-
djákni? Af hverju. ætti ég að öfunda
þá — hreysti þeirra, vopnum eða her-
aga? Nei, mér gezt mun betur að heím-
spekingi, þótt tötra beri. Ég kýs fremur
að vera fluguhöfuð en Ijónshali.
— Það er vissulega merkilegt! mælti
erkidjákninn niðursokkinn í hugsanir
slnar. — Skrautlegur einkennisbúning-
ur er þó tilkomumikill hlutur.
Þegar Gringoire sá, að hann var svo
mjög í þungum þönkum, yfirgaf hann
Esmeralda 439
hann, til þess að virða fyrir sér and-
dyri eins hinna næstu húsa, Hann kom
þó brátt aftur og klappaði saman lóf-
unum af gleði.
— Ef þú getur slitið hugann frá
skrautklæðum hermannanna, vildi ég
leyfa mér að fara þess á leit við þig, að
þú athugaðir anddyri húss herra Au-
brys, sem er eitthvert hið fegursta, sem
getur, mælti hann.
— Pétur Gringoire! mælti erkidjákn-
inn. — Hvað hefir þú gert af Tatara-
stúlkunni?
— Esmeröldu! Drottinn minn dýri.
Þú ert furðu gjarn á að skipta um um-
ræðuefni með óvæntum hætti.
— Var hún ekki konan þín?
— Jú, það held ég nú. Við giftumst
til fjögurra ára. Ég sé annars, að þú ert
ekki enn hættur að hugsa um hana,
mælti Gringoire og leit glettnislega til
erkidjáknans.
— Verður þér aldrei til hennar hugs-
að?
— Jú, fyrir kemur það. En ég er ann-
ars svo önnum kafinn. En guð minn
góðut, hvað geitin hennar var falleg!
— Bjargaði Tatarastúlkan ekki llfi
þínu?
— Jú, óneitanlega gerði hún það.
— Nú, hvar er hún þá, hvað hefir þú
gert af henni?
okkar undirritaðra, sem úthluta styrknum, samkvæmt sam-
komulagi brezkra og íslenzkra stjórnarvalda.
Pálmi Hannesson. Cyril Jackson.
Rrezka menningarstofnunin
(THE RRITISH COMCIL)
býður fjóra styrki handa mönnum, sem vilja leggja stund á
verzlunar- eða iðnaðarnám í Bretlandi. Önnur fög geta einn-
ig komið til greina við styrkveitingarnar. Styrkurinn nemur
£100 til hvers styrkþega, og er veittur til náms á komanda
háskólaári. Eyðublöð undir umsóknir fást hjá brezku sendi-
sveitinni í Þórshamri, Reykjavík. Umsóknir sendist til mín
fyrir 1. maí n. k.
Cyril Jackson
Fulltrúi British Councils á íslandi.
Fyrip tilstilli Rritish Council
geta nokkrir læknakandidatar fengið stöðu við brezk sjúkra-
hús, og fá frítt fæði, húsnæði, og auk þess £10 i laun á mán-
uði. Nánari upplýsingar um stöður þessar má fá hjá land-
lækni.
Tilkynnlng:
jh ■ . ^ i ■___■ ■ # * •
ira nkisstjorninm
Tilkynning frá ríkisstjórninni, dags. 4. apríl 1941 og birt
í 19. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1941, um lokun á mest-
um hluta Eiðisvíkur fyrir allri umferð, afturkallast hérmeð.
Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið,
13. apríl 1942.
^aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaA. A. a. -A. a
♦ ÚTBREIÐIÐ TÍMANN4