Tíminn - 26.05.1942, Side 4

Tíminn - 26.05.1942, Side 4
204 52. blað TlMCVIV, þrigjmlagiim 26. maí 1942 Ondvegisþjódír lýdrædisins (Framh. af 1. siOu) þangað, sem afkomumöguleik- arnir eru þegar fullnýttir. Hin- ir miklu afkomumöguleikar, sem bíða ónotaðir í dreifbýl- inu, fara forgörðum, en margs- kyns vandræði, atvinnuleysi og fleira, skapast sökum ofmikils fjölmennis í þéttbýlinu. Margar lýðræðisþjóðir aðrar en Bretar og Bandaríkjamenn hafa því hafnað höfðatöluregl- unni, þótt þær hafi aðhyllst hlutfallskosningar í einni eða annarri mynd. Þannig er það t. d. með tvær helztu frænd- þjóðir okkar, Dani og Norð- menn. Danir hafa einskonar hlutfallskosningar í stórum kjördæmum, en miðað við fólks- fjölda, senda t. d. sum kjördæm- in á Jótlandi helmingi fleiri fulltrúa á þing en Kaupmanna- höfn. Þannig takmarka Danir rétt höfuðborgar sinnar. Norð- menn, sem einnig hafa hlut- fallskosningar í allstórum kjör- dæmum, ganga þó enn lengra í þessum efnum. Samkvæmt hinni frægu bændagrein í norsku stjórnarskránni, mega kaupstaðirnir aldrei fá meira en y3 hluta þingsætanna. Þetta hefir þær afleiðingar, að bak við hvert þingsæti í afskekkt- ustu kjördæmunum eru sexfalt færri kjósendur en á bak við þingsæti höfuðborgarinnar. Hinn aukni réttur dreifbýlis- ins í þessum efnum, er auk hins framansagða, rökstuddur með því, að þéttbýlið hefir ýmsan annan rétt umfram dreifbýlið, t. d. aðsetur þings og stjórnar og allra helztu stofnana í þjóð- félaginu. Dreifbýlið verður að hafa aukin réttindi á öðrum sviðum til að vega á móti þess- um réttindum þéttbýlisins. Stefna Framsóknarflokksins. Stefna Framsóknarflokksins hefir alltaf verið og er í sam- ræmi við reynslu þeirra tveggja öndvegisþjóða lýðræðisins, sem hér hafa verið aðallega nefnd- ar. Framsóknarflokkurinn hafn- ar bæði hlutfallsreglunni og höfðatölureglunni, og telur æskilegast, að þingmenn séu kosnir í einmenningskjördæm- um. Þannig veljast þjóðinni betri þingmenn, flokksvaldinu er haldið bezt í skefjum, smá- flokkar útilokaðir 1 og mestir möguleikar skapaðir fyrir starf- hæfan þingmeirihluta. Andstæðingarnir mótmæla skírskotun Framsóknarmanna til kosningatilhögunar Breta og Bandaríkjanna með því, að eigi beri að flana eftir erlendum fyrirmyndum. En stefna Fram- sóknarflokksins er einmitt hin eina íslenzka stefna í þessum málum. Einmenningskjördæm- in hafa alltaf verið hornsteinn íslenzks þingræðis. Fram til þessa árs hefir tvímennings- kjördæmi alltaf verið skipt, en aldrei tekin upp hlutfallskosn- ing, ef breyting hefir verið gerð. Skaftafellssýslum hefir verið skipt, Þingeyjarsýslum, ísa- fjarðarsýslum ogHúnavatnssýsl- um. í stað hlutfallskosningar hefir líka Akureyri verið skilin frá Eyjafjarðarsýslu, ísafjörð- ur frá ísafjarðarsýslum og Hafnarfjörður frá Gullbringu- og Kjóssgt^tílft. Hin íslenzka stefna er, að fjölga einmenn- ingskjördæmunum, ef þurft hefir að leiðrétta kjördæma- skipunina. Frá sjónarmiði Framsóknar- manna er uppbótarfyrirkomu- lagið, sem tekið var upp 1933, lítt viðunandi. Það ginnir flokkana til að vera tvískipta í kosningum og eykur þannig sviksemi, glundroða og ringul- reið. Það eflir flokksvaldið, þar sem flokkarnir telja uppbótar- sætin eign sína. Það fleytir ruslmennum inn í þingið og dregur þannig niður virðingu þess. Tilfærsla fólks í landinú hlýt- ur vitanlega að valda þvi, að sama kjördæmaskipun getur ekki staðið um aldur og æfi. Hún þarf sínar breytingar og umbætur, eins og hin stöðuga framsókn lífsins krefst á öllum sviðum. Framsóknarflokknum kemur því ekki til hugar, að núverandi kjördæmaskipun eigi að vera óhagganleg. Hann hefir líka boðið hinum flokkunum að vinna að endurskoðun hennar. En vitanlega mun Framsóknar- flokkurinn leggja áherzlu á, að kjördæmaskipunin verði, þótt ýmsar breytingar séu nauðsyn- legar, jafnan byggð á þeim höf- uðsjónarmiðum, sem reynzt hafa vel helztu lýðræðisþjóðun- um og rakin hafa verið hér að framan. Það skal enginn halda, að bar- áttan um stjórnarskrárbreyt- inguna nú, sé neinn lokaþáttur í kjördæmamálinu. Þótt hún nái samþykki, mun ekki líða lang- ur tími þangað til fylgismenn hlutfalls- og höfðatölureglunn- ar hefja nýja sókn. Framsókn- armenn munu þá mæta með á- kveðnari tillög'ur en nú. Þeirra stefna nú var að láta taka mál- ið til rækilegrar, friðsamlegrar athugunar. Þeir vildu ekki gera það að æsingamáli. Það mun ltka sannast, að meðan þannig er að málinu staðið, verður það aldrei heppilega leyst. Framsóknarflokkurinn álítur, að fleira þurfi að athuga í stjórnarfari okkar en kjör- dæmaskipunina eina og sam- ræma það þeim viðhorfum, sem vaxa munu úr umróti núver- andi styrjaldar. Þess vegna vildi hann fresta öllum stjórnar- skrárbreytingum til styrjaldar- loka. Hinir flokkarnir virðast loka augum fyrir þessu. Þeir sjá hvergi þörf umbóta, nema á kjördæmaskipuninni. Reyslan mun sýna það i styrjaldarlokin, hvprt ekki hefði verið æsklegra að hafa þessi mál vandlega rannsökuð og undirbúin í stað þeirra ótímabæru og háskasam- legu æsinga, sem nú eru vakin um einn þátt stjórnarskrárinn- ar. Meginverkefni komandi ára. Þeir segja það, andstæðingar okkar Framsóknarmanna, að við séum fjandsamlegir lýðræð- inu, vegna afstöðu okkar í stjórnarskrármálinu. Okkar af- staða er hin sama og afstaða þeirra lýðræðisþjóða, sem djarf- legast berjast fyrir lýðræðið í heiminum. Okkur má því liggja í léttu rúmi, þótt litlir karlar eins og Ólafur Thors og Stefán Jóhann séu að reyna að setja á okkur einræðisstimpilinn. Og Ólafi Thors og hans fylgis- mönnum má vera hollt að hug- leiða þetta: Þjóðverjar og Rúss- ar leyfa ekki neinum mönnum eða ættum að hagnast á hörm- ungum þeirrar baráttu, sem nú er háð um örlög mannkynsins. Menn, sem reyna slíkt hjá þess- um þjóðum, fara annað hvort leið Thyssens eða Rússakeisara. Lýðræðisþjóðirnar taka að vísu vægara á slíkum mönnum, en eigi að síður eru þeir taldir vargar í véum og munu verða „utangarðsmenn“ þeirrar stjórnarhátta, er skapast munu hjá þessum þjóðum að lokinni styrjöldinni, ef þær bera hærra hlut. í þessum löndum. er ekki minnst á breytta kjördæma- skipun, en kröfurnar um auð- jöfnuð, útrýmingu stéttarmis- munar, fátækar og atvinnuleys- is eflast með hverjum degi. Auð- jöfnunin og markvissari skipu- lagning atvinnuháttanna er boðorð hins nýja tíma hjá þess- um þjóðum, en kosningaskipun- in mun haldast með svipuðum hætti. Þetta verður einnig boð- orð hins nýja tíma, hinnar komandi framsóknar á íslandi. Þ. Þ. Hryllilegur glæpur (Framh. af 1. siOu) hann, lét hann afskiptalausan, en aðrir hermenn komu, breiddu teppi yfir líkið og báru það inn í herstöðina. Því verður ekki neitað, að drengurinn virðist hafa sýnt hermanninum óþarfa glettni og verður það aldrei nógsamlega brýnt fyrir fólki, jafnt eldra og yngra, að hafa engin skipti af herliðinu umfram brýnustu nauðsyn. Glettni drengsins rétt- lætir samt á engan hátt þann voðalega verknað, sem framinn var. Hér var um barn að ræða, og til þess bar að taka fullt til- lit. Amerísku hernaðaryfirvöldin skýrðu blöðunum frá því í vet- ur, að þeir ætluðu ekki að láta herlið sitt dvelja í bænum, en innan þess virðast óvandaðri og ógætnari menn en í brezka setuliðinu, þótt sambúðin við meginþorra þess hafi gengið að óskum. Dvöl ameríska liðsins í bænum hlýtur því að vera skyndiráðstöfun og ætti þessi atburður að vera hernaðaryfir- völdunum hvatning til þess að 514 Victor Hugo: heyrði fanginn aðeins rödd fanga- varðarins, er raulaði lagstúf fyrir munni- sér. Konungurinn hélt aftur til herbergis síns, án þess að mæla orð frá vörum á leiðinni. Fylgdarlið hans kom í humátt á eftri. Öllum voru andvörp fangans rík í minni. Skyndilega sneri hans hátign sér að umsjónarmanni Bastillunnar. — Heyrið mig! mælti hann. — Var ekki maður í búrinu? — Jú, óneitanlega, herra! svaraði umsjónarmaðurinn, undrandi yfir spurningu þessari. ' — Hver þá? — Erkibiskupinn af Verdun! Konungurinn vissi eins vel og föru- nautar hans, hver maðurinn var, en honum þótti gaman að því að látast vera ókunnugt um, hver átt hefði hlut að máli. ^ — Ó! mælti hann, eins og hann myndi nú eftir þessu. — Vilhjálmur de Harancourt, vinur Balue kardínála. Það er sannnefndur djöfull af biskupi að vera! Mennirnir, sem á var minnzt í upp- hafi þessa kafla, gengu inn í herberg- ið. Dyrnar luktust að baki þeim, þeir tóku sér hina fyrri stöðu. Meðan konungurinn var í burtu, Esmeralda 515 höfðu nokkur bréf verið lögð á borð- ið. Hann tók þau, og braut sjálfur inn- siglin. Því næst hóf hann að lesa þau, eitt af öðru. Hann gaf meistara Oliv- ier, sem virtist gegna störfum sem einkaritari hans, merki um að taka pennann. Án þess að minnast einu orði á efni bréfanna, hóf hann að lesa hon- um svarbréfin fyrir, er Olivier ritaði liggjandi á hnjánum. — Vilhjálmur Rym gaf öllu, sem fram fór, nánar gætur. Konungurinn talaði svo lágri röddu, að flæmsku sendimennirnir greindu ekki orð hans nema endrum og sinn- um. Þó heyrðu þeir orð og setningar sem þessar: Notið hina frjósömu staði tií verzlunar en hina ófrjósömu til verksmiðjureksturs og iðnaðar. Látið Englendingana kynnast fallbyssum vor- um. Það er stórskotaliðinu að þakka, að styrjöldin hefir breytt um svip. Til herra Brensurire, vinar vors. Það er ekki unnt að halda hernum uppi, nema með auknum skattaálögum. Öðru hvoru brýndi hann röddina. — Þetta er illt að sjá. Sikileyjarkon- ungur innsiglar bréf sín með gulu vaxi eins og vér. Ef til vill er það óráðiegt af okkur að láta það óátalið. Hann er haldinn af stolti ættar sinnar. Láttu þessa getið, meistari Olivier! flytja herliðið sem fyrst úr bæn- um. Amerísku hernaðaryfirvöldin og ameríski sendiherrann hafa þegar lýst hryggð sinni yfir þessum verknaði. Enginn dreg- ur í efa, að þessir aðilar vilji ekki gera sitt bezta til þess að sambúðin verði árekstralaus og þeir sýna það vafalaust í verki, með því að hafa ekki herlið sitt innanbæjar. „Hjúin gera gardinn frægan“ (Framh. af 3. síOu) vel fyrir þá að hafa í vasanum, þegar burt er farið. Frh. ______GAJJLA BfÖ ____ HEITT BLÓÐ (UNTAMED) Amerisk kvikmynd í^eðli- legum litum, sem gerist í stórfenglegu skóga- ^ og fjallalandslagi Kanada. Aðalhlutverkin leika: RAY MILLARD, PATRICIA MORISON, AKIM TAMIROFF. Sýnd kL 7 og 9. -------KÝJA Htó-—----- BLÓD <Mp SANDIJB (Blood and Sand) Amerísk stórmynd gerð eftir samnefndri skáld- skögu eftir Vincente Blas- co Ibaner. r yndin er tek- in í eðlileg n litum. Aðalhlutv .-kin leika: TYRONE i’OWER, LINDA D RNELL. RITA HA :WORTH. Sýnd kl. I, 6.30 og 9. Börn innan 12 ára fá ekki aðgang. Tilkynning ká ríkísstjórninni í því skyni að ameríkska hernum megi takast að verja ísland og draga sem mest úr áhættu landsmanna, er aðeins takmörkuð umferð leyfð um svæði það á Reykjanesi, sem sýnt er á hér birtum uppdrætti. Á Reykjanesi norðvestanverðu allt það svæði, sem afmarkast af línu dreginni yfir nesið, og liggur hún þannig: hefst í Litlu-Sandvík og liggur þaðan austur á við h. u. b. 6,3 km. til staðar, sem liggur um 1 km. í suður frá Sandfellshæð, þaðan í norðaustlæga átt h. u. b. 13 km. vega- lengd upp á brún hæðar þeirrar, er nefnist Litla-Skógfell, þaðan í norðurátt h. u. b. 6,3 km. vegalengd til strandarinnar skammt innan við Grímshól á Vogastapa. Land það, sem aðeins takmörkuð umferð er leyfð um, skal ekki taka yfir Innri Njarðvík, Ytri Njarðvík, Keflavík, Leiru, Garð, Sandgerði, Hvalsnes, Stafnes, Hafnir, né heldur tiltekin landsvæði ræktuð eða umbætt og eru þau sýnd utan rnerkjalínu greinds svæðis á áðurgreindum uppdrætti. Auk þess eru neðangreindir vegir innan svæðis umferðatakmörkunarinnar undanskildir takmörkuninni, svo sem sýnt er á uppdrættinum, sem hér er prentaður með: 1. Vegurinn um Njarðvíkur, Keflavík, Leiru, Garð, Sandgerði og Stafnes. 2. Vegurinn frá Innri Njarðvík til Hafna. 3. Vegurinn til Grindavíkur. Landamerki þessara kauptúna og svæða verða auðkennd með staurum máluðum rauðum og hvítum. . Bannsvæði. Allir þeir staðir, þar sem tæki eru sett upp, mannvirki reist eða hernaðarstörf framkvæmd, innan þess svæðis, sem aðeins takmörkuð umferð er leyfð, um, eða eru afgirðir og merktir sem slíkir, eru bannsvæði. íslendingar mega ekki fara inn á áðurnefnd svæði, sem bönnuð eruð eða aðeins leyíð tak- mörkuð umferð um, nema þeir hafi í höndum tilhlýðileg vegabréf. Vegabréf samþykkt af íslenzku ríkisstjórninni fást, þegar um þau er beðið hjá bæjarfógetanum í Hafnarfirði og lögreglustjóranum í Keflavík, og munu þeir leiðbeina umsækjanda til hlutaðeigandi ameríksks starfsmanns. Umsókn- inni skulu fylgja tvær myndir af umsækjanda, 5X5 cm. á stærð. Umsóknin skal tilgreina þann sérstaka hluta takmarkaðs eða bannaðs svæðis, sem umsækjandinn óskar að fara um, og sömu- leiðis á hvaða tíma eða tímum og í hverjum tilgangi hann hyggst að fara þar um. Sá, sem fer um takmarkaða eða bannaða svæðið, skal ávallt beraá sér vegabréf sitt. Engar ljósmyndavélar eða myndatökuáhöld má fara með inn á takmarkað eða bannað svæði, né geyma þar. • Vegabréf þurfa íslendingar ekki til þess að ferðast um neðangreinda vegi: 1. Veginn um Njarðvík, Keflavík, Leiru, Garð, Sandgerði og Stafnes. 2. Veginn frá Innri Njarðvík til Hafna. 3. Veginn til Grindavíkur. Þar sem vegir þessir liggja um þau svæði, sem umferð er takmörkuð um, er frjálst að fara um veginn, en hvorki má farartæki né maður staðnæmast þar né dvelja. íslenzkar flugvélar mega ekki fljúga yfir áðurnefnd svæði, sem umferð er takmörkuð um, og eigi nær þeim en í 24 km. fjarlægð. Reykjavík, 18. maí 1942.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.