Tíminn - 05.08.1942, Side 1
| RITSTJÓRI:
í ÞÓRARINN ÞÓRARTNSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
RITSTJÓR ASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9A.
Símar 2353 og 4373.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSJNGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9 A.
Síml 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h-f.
Símar 3948 og 3720.
26. ár.
Reykjavík, mlðvikiulagiim 5. ágúst 1942
85. blað
Lærdómsríkl viðtal í Morgunblaðinu
Forsætisráðh. skvrir frá „stærstu
viðfanAsefnum stjórnarinnar"
Hákon VII.
sjotugur
Mikil hátíðahöld hjá
IVorðmönnum víðs
vegar nm lieim
Hver er ,,þjóðm“ að dómi núver-
andi forsætisráðherra?
Morgunblaðið birtir samtal við Ólaf Thors forsætis-
ráðherra 31. f. m. Samtalið lýsir svo vel stjórnleysinu,
sem nú er, og manninum, sem fyrir því stendur, að
rétt þykir að það komi fyrir sem flestra sjónir.
Ólafur byrjar frásögn sína
meö því, að stjórnin hafi haft
mikið að gera. „Samt hefir
unnizt tími,“ segir hann, „til að
athuga nokkur af hinum
stærstu viðfangsefnum."
Skal nú vikið nokkuð nánara
að þessum „stærstu viðfangs-
efnum.“
1. Fólkseklan við landbúnað-
arvinnuna. Ólafur segir, að fyrr-
verandi ríkisstjórn hafi samið
við setuliðsstjórnirnar um tak-
mörkun í hernaðarvinnunni.
Þetta er rétt. Framsóknar-
flokkurinn fékk því til leiðár
komið, að þetta var gert.
Ólafur heldur síðan áfram:
„Reynslan hefir nú skorið úr
um það, að þetta hefir ekki
komið að fullu gagni, því menn,
sem hafa komið frá setuliðs-
vinnunni hafa ráðið sig til ann-
arrar vinnu, sem annað hvort
er arðvænlegri ellegar hefir að
öðru leyti fallið þeim betur í
geð.“
Já, „reynslan hefir skorið úr.“
Allan seinni hluta þingtímans,
þegar samningarnir um tak-
í fyrra. Ólafur Thors hefir því
ekki gert hér annað en að fylgja
því fordæm'i, sem fyrirrennarar
hans voru búnir að skapa, þótt
ýmsir Sjálfstæðismenn væru því
andvígir. Hann hefir enn einu
sinni orðið að viðurkenna, að
andstæðingar hans hafi haft
rétt fyrir sér, en flokksmenn
hans rangt.
Þótt Ólafur reyni að nota
þetta, eins og skrumauglýsingu,
mun fæstum finnast það stór-
virki, þótt hann fylgi fordæmi
fyrirrennara sinna og bæti ekki
við fyrri mistök sín, er svipt
hafa landbúnaðinn vinnuafl-
inu, með því að hækka verðið
á síldarmjölinu.
Annars er það athyglisvert,
að ráðherrann segist hafa gert
þetta í samræmi við „sveita-
valdið" í Sjálfstæðisflokknum.
Var kannske „bæjarvaldið" í
Sjálfstæðisflokknum á öðru
máli? Því fannst a. m. k. of
lágt verð á síldarmjölinu, sem
bændur fengu í fyrra.
3. Innheimta útflutnings-
gjalds á ísfiski. Þá kemur þessi
mörkun í Bretavinnunni stóðu athyglisverða- klausa í viðtal-
Hákon VII. Noregskonungur
varð sjötiu ára mánudaginn
3. ágúst. Þann dag héldu frjáls-
ir Norðmenn hátíðlegan, hvar
í heimi sem þeir höfðu aðsetur.
Þegar Norðmenn slitu sam-
bandi við Svía 7. júní 1905 og
Óskar II. Svíakonungur hafði
lýst sig andvígan því, að ein-
hver ættingja sinna settist að
konungdómi í Noregi, var leit-
að til Karls Danaprins um að
gerast konungur þar. Eftir að
þjóðaratkvæðagreiðsla hafði
fram farið um stjórnskipun í
Noregi og meginþorri kjósenda
lýsti sig fylgjandi konungsríki,
tók Karl prins boði Norðmanna
og sigldi frá Kaupmannahöfn
til Noregs með skylduliði sínu
og föruneyti 23. nóvember 1905,
(Framh. á 4. síöu)
Attraeðiir
Bergsteinn Ólafs-
son
Bergsteinn Ólafsson, bóndi á
Árgilsstöðum í Hvolhrepp, er 80
ára í dag. Hann er fæddur að
Árgilsstöðum 5. ágúst 1862, son-
ur Ólafs Arnbjarnarsonar og
Þuríðar Bergsteinsdóttur, er
þar bjuggu.
Bergsteinn hefir verið odd-
viti sveitar sinnar í 37 ár, en
samfleytt hefir hann átt sæti í
hreppsnefnd í 50 ár, og á þar
sæti enn, þrátt fyrir hinn háa
aldur. Þá hefir hann oft átt
sæti í sýslunefnd.
Kona Bergsteins er Þórunn
ísleifsdóttir frá Kárastöðum.
Börn þeirra eru Gissur hæsta-
réttardómari og Ólafur og fs-
leifur, báðir heima.
Bergsteinn er vinsæll af sam-
sýslungum sínum, glaður og
góðviljaður og hefir jafnan ver-
ið gildur bóndi.
urinn þess, að jafnframt yrði
hafður hemill á óþörfum fram-
kvæmdum og stjórnin aflaði sér
til þess heimildar. Framsókn-
armenn sýndu fram á, að tak-
mörkunin í hernaðarvinnunni
myndi annars ekki koma að
neinum notum. En Ólafur Thors
neitaði því, að styðja Slíka ráð-
stöfun, þvi að hann óttaðist
mótspyrnu striðsgróðamann-
anna og kommúnista.
Það, sem þessi lánlausi ráð-
herra er að skýra almenningi
frá, er því þetta: „Reynslan
hefir skorið úr um það,“ að mót-
staða hans gegn takmörkunum
á óþörfum framkvæmdum var
hrein vitleysa, eins og honum
var líka strax bent á af Fram-
sóknarmönnum. Nú staðfestir
hann, að það, sem Framsókn-
armenn sögðu, sé komið á dag-
inn.
Það má að vissu leyti teljast
þakkarvert, að stjórnin skuli
þannig hafa valið sér fyrir
„stærsta viðfangsefni“, að sjá
þó seint sé fyrri villur sínar og
viðurkenna þær.
2. Síldarmjölssalan til bænda.
Þar sem luxusbyggingarnar
drógu vinnuaflið 1 stórum stíl
frá landbúnaðinum og ekki
tókst að útvega honum vinnu-
afl, varð stjórnin að leita ann-
arra úrræða, segir Ólafur Thors.
Hann segir síðan:
„Eftir að hafa athugað málið
gaumgæfilega, sérstaklega í
sambandi við umboðsmenn
sveitavaldsins í Sjálfstæðis-
flokknum, hefir ríkisstjórnin á-
kveðið að leggja fyrir Alþingi
tillögu til þingsályktunar, sem
heimilar ríkisstjórninni að
selja síldarmjöl sama verði og
það var lægst í fyrra.“
Síðastliðið vor fékk Fram-
sóknarflokkurinn þvl til leiðar
komið, þótt það sætti harðvít-
ugri andstöðu ýmissa Sjálf-
stæðismanna, að útlendi áburð-
urinn var seldur sama verði og
„Hefir hún (þ. e. ríkisstjórn-
in) því ákveðið að beita heimild
laganna frá 1941 um að leggja
10% útflutningsgjald á fisksöl-
una í Englandi.“
í tvö ár hefir Ólafur Thors
barizt gegn þessu í ríkisstjórn-
inni og neitað að framkvæma
heimildina eftir að þingið veitti
hana. Hann talaði móti þessu í
útvarpsumræðunum um van-
traustið, hann talaði á móti því
á öllum framboðsfundum í
kjördæmi sinu, hann lét Mbl.
vera í móti því og í síðustu út-
varpsræðunni, sem hann flutti
í kosningabaráttunni, mælti
mælti hann gegn því að leggja
þetta gjald á — það næðist al-
veg eins með tekjuskatti.
En nú eftir að hann hefir
grætt á því nokkra tugi —
sennilega hundruð þúsunda kr.
— persónulega, að tefja þetta
eins lengi og hægt var, finn-
ur hann að „sessinn hann er
ekki sætur“. Hann veit af yfir-
lýsingum blaða, að yfirgnæf
andi þingfylgi er fyrir því að
sleppa ekki stríðsgróðanum við
þetta gjald lengur — og þá
flýtir hann sér að éta ofan í sig
flest, sem hann hefir sagt um
þetta í tvö ár. Það eru vitanlega
umbúðir til að leyna ofaníát-
inu, að þetta gjald sé nú sér
staklega nauðsynlegt, vegna
síldarmjölskaupa bænda. Sé
það réttmætt að innheimta
gjaldið nú, þá hefir það ekki
verið síður réttmætt áður.
Þriðja „stóra viðfangsefni'
stjórnarinnar er því það, að Ó1
afur Thors hefir loksins lagt
niður mótþróa sinn í þessu máli.
4. Svo kemur aðal-„stórmál-
ið“, sem stjórninni hefir unnizt
tími til að hugsa um. „Ríkis
stjórnin leggur fyrir Alþingi
frumvarp til laga um afnám
gerðardómsins“, segir forsætis-
ráðherrann. Ástæður: „Hins
vegar verður að viðurkenna þá
(Framh. á 4. siöu)
Erleni ylírlii 4. águst
Sigra Þjóðverjar rauða
herinn fyrír veturínn ?
Gandhi herðir sjálfstæðisbaráttu Indverja
Seinustu fregnir herma, að
Rússum hafi tekizt — a. m. k. í
bili, — að stöðva sókn Þjóð-
verja til Stalingrad. Hins vegar
hefir sókn Þjóðverja í Kákasus
ekki stöðvazt og eiga þeir nú
tiltölulega skammt ófarið til
olíulindanna í Majkop.
Frá sjónarmiði Rússa virðist
3að langtum mikilvægara, að
halda opinni flutningaleiðinni
um Volgu milli norðurherja og
suðurherja sinna en að
verja olíulindirnar norðan
Kákasusfjalla fyrir Þjóðverjum.
Herfræðingar eru nú komnir á
3á skoðun (The Times Weekly
15. júlí), að olíulindirnar í Rú-
meníu geti fullnægt þörfum
Þjóðverja og olíuskortur þeirra
sé því ekki eins tilfinnanlegur
og af er látið. Hins vegar skipt-
ir það miklu máli fyrir Þjóð-
verja, að norðurher Rússa fái
ekki olíu frá Kákasus, því að
Dað hljóti fljótlega að lama
varnir hans. Þess vegna sé það
fyrsta mark Hitlers, að komast
til Volgu og stöðva þessa flutn-
inga. Þess vegna sé það líka
markmið Rússa, að halda hin-
um miklu olíulindum sunnan
Kákasusfjalla og opinni leið-
inni þaðan til norðurherjanna 1 fylkingarbrjóst og hyggst að
um Kaspíahaf og Volgu. nota hina örðugu aðstöðu
Það er þegar þungt áfall fyr- Breta til að ná fullum árangri
ir norðurheri Rússa að hafa ai hinni löngu sjálfstæðisbar-
misst hinar frjósömu landbún- áttu sinni. Hann hefir nýlega
aðarsveitir í Ukrainu og Don- fen8'ið' framkvæmdaráð Kon-
héröðum*m. Öflun vista verður £ressflokksins til þess að veita
því erfið fyrir norðurherinn. Þó honum heimild til að stjórna
væri það tilfinnanlegra fyrir nýrri óhlýðnisbaráttu gegn
hann að missa olíuna frá Káka- Bretum> ef þeir leggi ekki niður
sus, jöll yfirráð í Indlandi og kveðji
Þjóðverjar hafa þegar náð eml5æi;i'isrnenn sína í burtu
miklum árangri í sumarsókn-!Þa®an- Þessi samþykkt fram-
inni. En meginmarkinu hafa j kvæmdaráðsins verður lögð til
þeir enn ekki náð. Það er eyði-;endanleSrar samþykktar fyrir
legging rauða hersins. Ef þeir ;miðstjórn flokksins, er kemur
ná ekki því marki fyrir haustið,!saman snemma í þessum mán-
að rauði herinn verði ófær til. u®n
að heyja vetrarhernað líkt og I Óhlýðnisbarátta Gandhis er
síðastliöinn vetur, geta land- j1 Því fólgin, að Indverjar hlýði
vinningarnir í sumar frekar orð- i enSum fyrirmælum Breta og
ið þeim til ógagns en gagns. i ka.upi ekki brezkar vörur, en
Þeir eiga þá lengri flutninga tiljbeiti hins vegar aldrei líkam-
vetrarvígstöðvanna en áður. j legmm mótþróa. Þessi baráttu
Almenningur í Þýzkalandi mun a®ferð hefir oft reynzt Gandhi
áður en henni lauk. En þessir
landvinningar komu þeim ekki
að gagni, því að þeir fengu ekki
tíma til að hagnýta þá. Niður-
staðan getur orðið sú sama að
þessu sinni, ef rauði herinn
verður ekki sigraður í sumar.
En verði Rússar gersigraðir í
sumar, horfir málið öðru vísi
við.
Ameríska blaðið „Time“
kemst þannig að orði 20. þ. m.:
Ef Þjóðverjar vinna fullnað-
arsigur í Rússlandi, lengist
styrjöldin um ótakmarkaðan
tíma; þættinum 1939—41 lýk-
ur þá með fullum ósigri Banda-
manna. Bandamenn, sem þurfa
að ráðast inn í Evrópu Hitlers
og berjast á heimavígstöðvum
hans, hafa þá stórum örðugri
aðstöðu en Hitler hafði í Rúss-
landi. Og á sama tíma og þeir
þurfa að gera þetta, munu Jap-
anir eflast í austri og verða eins
erfiðir viðfangs og Þjóðverjar,
ef Rússar tapa.
Indlandsmálin vekja Bretum
stöðugt auknar áhyggjur.
Gandhi, sem er orðinn 72 ára
gamall og virtist ráðinn í að
draga sig i hlé, er aftur kominn
líka finnast nýr vetrarhernað-
ur í Rússlandi óglæsileg tilhugs-
un, jafnhliða því, að loftsókn
Breta eykst og andúðin í her-
numdu löndunum eflist. Það er
því lífsnauðsyn fyrir Þjóðverja
að gersigra rauða herinn fyrir
haustið, en hann veitir enn öfl-
ugt viðnám.
Bandamenn benda á það, að
Þjóðverjar hafi í seinustu
heimsstyrjöld verið búnir að ná
Ukrainu og Kákasus á vald sitt
sigursæl og myndi reynast
Bretum sérstaklega örðug, eins
og sakir standa nú.
Gandhi hefir jafnhliða lýst
(Framh. á 4. slðu)
Þíngið kom
saman í gær
Það var starislaust
Syrsta daginn
Hið nýkjörna Alþingi kom
saman í gær.
Störf hins fyrsta fundar í
sameinuðu þingi urðu ekki önn-
ur en þau, að kosnar voru
nefndir til að athuga kjörgögn
þingmanna, sem enginn ágrein-
ingur mun þó um. Ekkert ann-
að var gert. Virðist þetta benda
til, að það sé tilgangur ríkis-
stjórnarinnar, sem ræður þess-
um vinnubrögðum, að láta störf
þingsins vera sem silakeppsleg-
ust. Stjórnin virðist m. ö. o. á-
kveðin í því, að láta störf þings-
ins dragast svo að ekki verði
hægt að hafa kosningar fyrr en
í vetur.
Aukin hætta af
loftárásum
Tlminn, sem ríkis-
stjórnin velur til að
sundra samheldni
pjóðarinnar
Stöðugt berast nýjar og nýj
ar tilkynningar frá amerísku
herstjórninni um aukin hernað
arflug þýzkra flugvéla hér við
land.
Marg oft hefir komið til
vopnaviðskipta milli þeirra og
flugvéla Bandamanna við
strendpr Norðausturlandsins.
Síðastliðinn sunnudag gerði
þýzk flugvél sprengju- og vél-
byssuárás á eina hernaðarstöð
Ameríkumanna á Suðaustur-
landi.
Allar líkur benda þannig til
þess, að loftárásarhættan fari
hér vaxandi. Það er líka al-
mennt talin mest hætta á loft-
árásum hér frá miðjum ágúst
og fram í miðjan október.
Þennan tíma telur ríkis-
stjórnin þó heppilegastann til
þess að láta fara fram harða
kosningabaráttu, sem ekki get-
ur orðið til annars en að sundra
kröftum þjóðarinnar.
Á víðavangi
„VESTURLAND“ OG
VETRARKO SNING AR.
Blað Sjálfstæðismanna á
Vestf j örðum,„Vesturland“ ,krefst
sess, að sumarþingið verði stutt
og kosið verði aftur áður en
haustar. í því tilefni er rétt að
vekja athygli blaðsins á þessu:
Ríkisstjórnin lét ekki hraða
3Ví að safna saman kjörgögn-
um og landskjörstjórn úthlut-
aði því uppbótarsætum hálfum
mánuði seinna en unnt hefði
verið að gera.
Ríkisstjórnin kallaöi ekki
Dingið saman fyrr en 1 y2 viku
eftir að landskjörstjórn hafði
úthlutað uppbótarsætunum.
Þannig hefir ríkisstjórnin
tafið að þing kæmi saman í 3Y2
viku.
„Vesturland" getur séð á
þessu ',að ríkisstjórnin stefnir
að því að hafa vetrarkosningar.
ÚRRÆÐI EIRÍKS.
Þeir menn, sem ganga erinda
Sjálfstæðisflokksins út um
sveitirnar, eru auðsjáanlega
skelkaðir yfir hinum mikla
samdrætti landbúnaðarfram-
leiðslunnar.
Þeir vita, sem er, að hann er
að verulegu leyti sök núv. rík-
isstjórnar. Fyrv. ríkisstjórn
fékk því til leiðar komið, að
fækkað var í setuliðsvinnunni í
vor. En það var ekki einhlýtt.
Það þurfti einnig að takmarka
luxusbyggingar stríðsgróða-
mannanna. Fyrv. stjórn vann
að því máli, en stjórnarskipt-
in komu í veg fyrir, að nokk-
uð yrði gert. Hin nýja stjórn
vildi hvorki styggja stríðs-
gróðamenn eða kommúnista og
lét því reka á reiðann í algeru
hugsunarleysi.
Til þess að reyna að breiða
yfir þetta, er Eiríkur Einarsson
að burðast við í Mbl, að bera
fram tillögur um aukið vinnu-
afl handa bændum við heyskap-
inn í sumar.
Tillaga hans er sú, að ann-
að hvort verði fækkað um 700
manns í hernaðarvinnunni eða
vegavinnunni.
En er nokkur trygging fyrir
því, að þessir menn fari í land-
búnaðarvinnu? Fara þeir ekki
beint í luxusbyggingarnar?
Eða ætlar Eiríkur að láta
taka þessa menn og flytja þá
með valdi í heyskaparvinnu?
Heldur hann, að það geti geng-
ið, meðan allir aðrir njóta at-
vinnufrelsis?
Nei, það þarf áreiðanlega
annað og meira úr því, sem
komið er, en að fækka í hern-
aðarvinnunni eða vegavinnunni
til þess að tryggja bændum
vinnuafl við heyskapinn í sum-
ar. Það hirðuleysi ríkisstjórnar-
innar, að takmarka ekki luxus-
byggingarnar í vor, verður á-
reiðanlega seint bætt.
JÓHANN JÓSEFSSON.
Jóhann Jósefsson birtir ný-
lega greinarstúf í Mbl. og segir
það rangt hjá Tímanum, að
hann sé orðinn illa þokkaður I
Vestmannaeyj um.
Blað Jóhanns, „Víðir“, skýrði
frá því 11. f. m„ að Jóhann
hefði „tapað persónulega 198
atkv.“ í kosningunum 5. júli.
Getur Jóhann ekki séð á þvl,
að hann er orðinn illa þokkað-
ur í Eyjum? Dæmalaus þöngul-
haus má maðurinn vera, ef
hann sér þetta ekki.
ÚTHLUTUN BÍLANNA.
Bílstjóri skrifar blaðinu: Mbl.
krefst þess, að reikningar Mjólk-
ursamsölunnar séu birtir mán-
aðarlega. Ég er þvi ekki kunn-
ugur, hvort þetta sé fram-
kvæmanlegt, án aukins mann-
afla í skrifstofum fyrirtækis-
ins og ekki myndi það draga úr
dreifingarkostnaðinum. En ann-
að er framkvæmanlegt, án sér-
stakrar fyrirhafnar. Það er að
yfirmaður bifreiðaeinkasölunn-
(Framh. á 4. síöu)