Tíminn - 22.08.1942, Síða 3
92. hlað
TlMPJTV, lawgarclagmn 22. ágást 1943
363
A N IV Á l L
ÍÞRÓTTIR
Dánardægui*.
Gunnar Sigurðsson, bóndi í
Beinárgerði, andaðist hinn 19.
júní síðastl., að heimili sínu í
Beinárgerði á Völlum, eftir
stutta legu. Gunnar var fæddur
í Beinárgerði 1891 og varð því
rúmlega fimmtugur. Ævisaga
þessa manns er merkileg og að
mörgu leyti einstæð. Hún er
hetjusaga og fyllilega þess virði,
að á lofti sé haldið, þó að ekki
sé hægt að gera henni nema
lítil skil í stuttri minningar-
grein.
Þegar farið er upp Velli, verð-
ur vegfarandanum starsýnt á
býli, sem er í miðjum Valla-
hreppi Það stendur undir skógi-
vaxinni hlíð móti vestri. Þessi
bær er Beinárgerði. Og ekki
minnkar athyglin, þegar heim
er komið. Fallegt steinhús og
skrúðgarður fyrir framan húsið,
einn af allra fegurstu görðum
á Héraði. Slétt og fallegt tún
og allt umhverfis bæinn með
afbrigðum snyrtilegt. Hús-
bændurnir, Gunnar og kona
hans, hafa gert garðinn frægan.
Gunnar átti við mikið
heilsuleysi að stríða um dag-
ana, lá margar og langar legur
bæði á sjúkrahúsum og heima
hjá sér. Mörgum varð það
minnisstætt, er heimsóttu
hann, hvort heldur á sjúkra-
húsum eða í legum heima, hve
hann var glaðvær og reifur og
bjartsýnn. Aldrei heyrðist
æðruorð. Hann var ásáttur að
taka því, sem að höndum bar,
með stillingu og ró. . Gunnar
komst yfir fyrsta vanheilsu-
kaflann. En hann var ekki
samur maður framar. Hann
varð að ganga við staf, eins og
myndin sýnir, þar sem hann
stendur og heldur i tauminn á
eftirlætishestinum sínum, Fáki.
Þessi hestur bar hann, hvenær
sem hann þurfti að fara út af
heimilinu, en hann þoldi ekki
'að ferðast nema í söðli. Ætla
mætti, að nú hefði verið nóg
lagt á þennan mann. En þraut-
ir hans voru ekki á enda. Fyrir
rúmum sex árum fékk Gunnar
lömunarýeikina ofan á allt, sem
á undan var gengið, og lá þá
lengi rúmfastur. En hann komst
einnig yfir þessi veikindi. Þó
var hann nú orðinn enn fatl-
aðri en áður, því að fæturnir
voru báðir lamaðir. Þá fékk
hann stólinn, sem hann sat
jafnan í upp frá því og vann
í. í stólnum ferðaðist Gunnar
út og inn, ók sér sjálfur áfram
með handafli. Síðari myndin
er tekin af honum í stólnum,
og ' yngsti drengurinn hans
stendur við hlið hans.
Ætla mætti, að kjarkurinn
hefði nú bilað í lífsbaráttunni.
En það var öðru nær. Gunnar
Meistaramól
I. s. í.
Meistaramót f. S. í. fór að
mestu leyti fram síðastliðinn
laugardag og sunnudag. Þrátt
fyrir .mjög .óhagstætt .veður
hófst mótið stundvíslega. Eftir
að keppninni lauk í hverri grein
fór fram afhending verðlauna,
sem 3 ungar stúlkur úr K. R.
önnuðust, en K. R. sá um mótið
að þessu sinni. Á laugardaginn
og sunnudaginn kemur lýkur'
mótinu með keppni í 10.000 m.
hlaupi og tugþraut.
Þrír hlutskörpustu mennirn-
ir í hverri grein urðu þessir:
200 m. hlaup:
1. Jóh. Bernhard K.R. 23,7 sek.
2. Brynj. Ingólfss. K.R. 24,2 —
3. Baldur Möller Á. 24,6 —
Hástökk:
1. Jón Hjartar, K.R. 1,65 m.
2. Ingólfur Seinss. f.R. 1,60 —
3. Magnús Guðm.s. F.H. 1,60 —
Kúluvarp:
1. Gunnar Huseby K.R. 14,63 m
2. Jóel Sigurðsson í. R. 12,73 —
3. Jens Magnússon K.R. 11,57 —
800. m. hlaup:
1. Sigurg. Ársælss. Á. 2.04,5 m.
2. Hörður Hafl.son Á. 2.07,6 —
3. Halldór Sigurðss. Á. 2.13,2 —
Spjótkast:
1. Jón Hjartar K.R. 52,27 m.
2. Jóel Sigurðss. Í.R. 47,83—.
3. Anton Björnss. K.R. 43,32 —
5000 m. hlaup:
1. Árni Kjartanss. Á. 17.03,0 m.
2. Indriði Jónss. K.R. 17.09,8 —
3. Jónatan Jónss. Á 18.48,4 —
Þrístökk:
1. Oliver Steinn, F.H. 13,36 m.
2. Jón Hjartar, K.R. 12,64 —
3. Ulrich Hansen, Á. 12,27 —
Á sunnudag var keppt í þess-
um greinum:
100 m. hlaup:
1. Oliver Steinn, F.H. 12,1 sek
2. Jóh. Bernhard, K.R. 12,2 —
3. Brynj. Ingólfss. K.R. 12,4 —
Kringlukast:
1. Gunnar Huseby,K.R. 38,84 m.
2. Ól. Guðmundss. Í.R. 37,94 —
3. Sigfús Sigurðss. Self. 31.45 —
Stangarstökk:
1. Magnús Gum.s. F.H. 3,00 m.
2. Sig. Steinsson í. R. 3,00 —
3. Kjartan Markúss. F.H. 3,00 —
1500 m. hlaup:
1. Árni Kjartanss. Á. 4.29,8 m.
2. Hörður Hafliðas. Á. 4.30,0 —
3. Sigurgísli Sig. Í.R. 4.31,4 —
Sleggjukast:
1. Vilhj. Guðm.s. K.R. 41,34 m.
2. Helgi Guðm.s. K.R. 38,45 —
110 m. grindahlaup:
1. Jóh. Jóhanness. Á. 19,0 sek.
Jóhann keppti einn. Aðrir
mættu ekki.
400 m. hlaup:
1. Brynj. Ingólfss. K.R. 53,4 sek
2. Sigurgeir Ársæls. Á. 53,7 —
3. Jóh. Bernhard, K.R. 55,5 —
Langstökk:
1. Oliver Steinn, F.H. 6,57 m.
2. Sverrir Emilss. K.R. 6,19 —
3. Rögnv. Gunnl.s. K. R. 5,98 —
hélt áfram að vinna fyrir
heimili sínu. Eftir að hann varð
bundinn við stólinn, tók hann
að stunda söðla- og skósmíðar
og fórst það vel úr hendi, þó að
hann hefði aldrei lært þær iðn-
ir. Gunnar var með afbrigðum
vandvirkur maður, hvar sem
hann lagði hönd að, og af-
kastamikill, meðan hann hafði
heilsu. Gunnar var greiðugur og
hjálpsamur og vildi hvers
manns vandræði leysa. Hann
var félagslyndur maður og lét
til sín taka ýmis félagsmál
sveitarinnar, þó verður okkur
sveitungum hans sérstaklega
minnisstætt, hve hann lét sér
annt um félagsmál æskunnar,
þar- vau hann lífið og sálin, og
á hann manna mest þakkir fyr-
ir það, að ungmennafélagsskap-
ur hefir ekki með öllu dáið út
hér í sveitinni. Gunnar var
einn af þeim mönnum, sem
Viðnýall
Afmælisrit gefið út í minningu sjötugsafmælis
Dr. Helga Péturss
með formála eftir Jónas Jónsson og greinum eftir Árna
Óla blaðam., Jónas Guðmundsson forstj., Hallgrím Jóns-
son skólastjóra, Jakob Líndal, Lækjamóti, og Bjarna
Bjarnason, Hornafirði. Aðalefni bókarinnar er þó eftir
dr. Helga sjálfan og skiptist í þessar greinar: 1. Af sjö-
tugs sjónarhól. 2. Afstaða jarðlífsins í alheimi, 3. Frum-
saga mannkyns og framsaga, 4. Hvað framundan er,
eða gæti verið, 5. Carmen, 6. íbúar stjamanna og vér
hér á jörðu, 7. Vísindi og trú, 8. Líf og ást, 9. Arthur
Schopenhauer, 10. Úrslitavandinn, 11. Framtíð Reykja-
vikur, 12. íslenzkt ljós yfir egiptska gátu. 13. Nauðsyn
Nýalsstefnunnar, 14. Stjörnulíffræði og kristin trú, 15.
Upprisusagan og sigurinn á dauðanum, 16. Fjöll og fróð-
leikur, 17. Skilningur á lífinu.
ÞESSA BÓK ÞARFTU AÐ EIGA
Dr. Helgi Péturss.
Bókaútgfála Guðjóns Ó. Gudjónssonar, sfmi4i69.
§máiölnyerð
á yindlnm.
Útsöluverð á amerískum vindlum má eigi vera hærra en hér
segir: Panetelas ...50 stk. kassi kr. 41.40
Corporals ...50 stk. kassi — 37.20
Cremo ... 50 stk. kassi — 37.20
Golfers (smávindlar) ... 50 stk. kassi — 18.50
Do. ( smávindlar) .... ... 5 stk. pakki — 1.85
Piccadilly (smávindlar) .. ...10 stk. blikkaskja — 2.20
Muriel Senators ... 25 stk. kassi — 22.80
Do ...50 stk. kassi — 45.60
Rocky Ford ...50 stk. kassi — 32.70
Muriel Babies ...50 stk. kassi — 27.60
Van Bibber ... 5 stk. pakki — 2.25
Le Roy ... 10 stk. pakki — 4.30
Royal Bengal ... 10 stk. pakki — 3.25
Utan Reykjavikur og Hafnarfjarðar má útsöluverðið vera 3%
hærra en að framan greinir, vegna flutningskostnaðar.
ATH.: Vegna þess, að kvartanir hafa borizt til Tóbakseinka-
sölunnar um það, að verzlanir selji vindla stundum með hærri
smásöiuverðsálagningu en leyfiegt er samkvæmt lögum, viljum
vér hérmeð skora á allar verzlanir að gæta þess nákvæmlega, að
brjóta eigi lagaákvæði um smásöluverðsálagningu og benda þeim
á, að háar sektir liggja við slíkum brotum. Jafnframt viljum vér
benda almenningi á það, að yfir slíkum brotum er rétt að kæra
til næsta lögreglustjóra hvar sem er á landinu.
aldrei slitnaði úr sambandi við
æskuna. Hann var hugsjóna-
maður og bjartsýnn með af-
brigðum.
Það var skemmtilegt að
heimsækja hann. Alltaf var
hann jafn glaður og taldi kjark
í hvern þann mann, sem þess
þurfti með, enda munu fáir
hafa farið svo frá Gunnari, að
þá langaði ekki að koma til
hans aftur.
Heimili Gunnars er myndar-
legt svo að af ber. Eftirlifandi
kona hans er Guðlaug Sigurð-
ardóttir frá Hjartarstöðum i
Eiðaþinghá, og það má með
sanni segja, að hún var stoð og
stytta hans í hverju því, sem
að höndum bar. Þau hjónin
eignuðust sjö börn. Gunnar
kenndi börnum sínum sjálfur
undir fermingu og sendi þau
aldrei í barnaskóla. Þau eru öll
mjög mannvænleg.
Eins og gefur að skilja eru
fjárhagsmálin erfið úrlausnar,
þegar bóndinn er sjálfur heilsu-
laus, en koma þarf upp stórum
barnahóp. En ofan á þá erfið-
leika bættust ýmis óhöpp. T. d.
brunnu íbúðarhúsin tvisvar
sinnum, og I annað skiptið
misstu þau hjón allar innan-
stokkseigur sínar, svo að naum-
ast björguðust rúmföt. Slík ó-
höpp eru tilfinnanleg, jafnvel
þótt ekki bjáti á að öðru leyti.
En þrátt fyrir þetta allt brast
Gunnar aldrei kjarkinn. Árið
1938 byggði hann nýtt íbúðar-
hús, sem er mjög vandað eftir
ástæðum.
Síðastliðinn vetur andaðist
móðir Gunnars, og var hún
jarðsungin í Beiná'rgerði, þar
sem sonur hennar hafði fenglð
leyfi fyrir heimagrafreit. Nokkr-
um dögum áður en Gunnar dó,
lét hann ganga frá grafreitn-
um, og fór verkið fram eftir
hans fyrirsögn, þó að hann
væri þá lagstur banaleguna.
Gunnar var jarðsunginn að
heimili sínu, og var mikill
mannfjöldi saman kominn i
Beinárgerði þann dag. Athöfn-
in fór fram með miklum hátíð-
leik í skrúðgarðinum fyrir
framan húsið. Það var kyrrð og
ró, sem þar ríkti. En er kistan
var borin út úr garðinum, tóku
fuglarnir í trjánum að syngja.
Þessir litlu sakleysingjar voru
vinir Gunnars. Þeir vildu sýna
þakklæti sitt. Þeir mundu það,
er norðannæðingar vorsins
geysuðu yfir grund, þá leituðu
þeir skjóls í garðinum og fundu
(Framh. á 4. tUSu)
Tvær riýjar bækur:
KATRÍN,
saga um unga stúlku, danska i aðra ættina, en norska 1
hina. Katrin er fædd i Noregi, en elst upp 1 Danmörku.
Hún fer i skemmtiferð til Noregs, og þar gerist mestur
hluti sögunnar. Hún rennir sér á skíðum niður fjallahlíð-
arnar, dansar á kvöldin, og lendir í ýmsum ævintýrum.
Katrín er eftirlæti ailra stúlkna.
HLEKKJUÐ ÞJÓD.
Árið 1939 kom út í Danmörku bók eftir rússneskan
höfund, Iwan Solonewitsch, sem vakti óhemju eftirtekt.
Iwan er lögfræðingur af bændaættum, gáfaður maður og
þrekmikill. Hann lýsir lífinu í Rússlandi undir stjóm
Kommúnista. Hann lýsir því af elgin sjón og raun. Og
lesandanum rennur kalt vatn milli skinns og hörunds,
þegar lýst er lífinu i því landi, sem hefir um flmm miljónir
manna í fangabúðum, og þó er lífið í fangabúðunum litlu
verra en líf og kjör þeirra, sem taldir eru frjálsir menn.
Þessa bók þarf hver hugsandi maffur að lesa.
Bókaverzlun ísafoldar.
Sambtmd ísl. samvinnufélafia.
Kaupfélög! Gætið þess, að hafa vörubirgðir yð-
ar ætíð nægilega tryggðar fyrir elðsvoða.
Innheimtomenn Tímans
nm land allt!
Vlnnilf eftir fremsta megni að innlieimtn Tím-
ans. — GJalddaginn var 1. Júli.
IMHEDITA TÍMANS.
__ \ __________________
Gleymið ekki að borga
T í m a n n.